Síður

sunnudagur, 10. apríl 2005


Við fórum með lest til Liverpool í pílagrimaferð. Þegar ég var 14 ára og gerðist aðdándi the Beatles var það mjög fjarlægur draumur að komast til Liverpool. En allir draumar geta ræst þó svo að árin verði 40. Fórum við á Bítlaslóðir, gengum eftir Mathewstreet og í safn þar sem saga Bítlana var rakin í máli, tónum og myndum. Best af öllu var að fara í Cavern club og standa við sviðið þar sem bítlaæðið byrjaði. Mest var ég hissa á hvað það er lítið og að klúbburinn skuli vera neðanjarðar. Hann er starfræktur enn sem pub. Posted by Hello

Við skoðuðum líka einn af mörgum miðaldaköstulum sem eru í Wales. Þessi er í borginni Conwy sem er nyrst í Wales. Edvard l lét byggja hann seint á 13 öld. Það var hann sem náði yfirráðum yfir Wales. Hann byggði 17 kastala víðs vegar um landið og byggði borgarmúra utan um svæðið, hvatti svo Englendinga til þess að flytja þangað. Fyrir utan voru svo Walesbúarnir og steyttu hnefum og eru að því enn.  Posted by Hello

laugardagur, 2. apríl 2005

Eftir páskaferðina til Wales þekkjum við Simmi minn Heathrow flugvöll snöggtum betur en áður. Á leiðinni til Wales ætluðum við að taka tengiflug sama dag en komum aðeins of seint. Rananum út í Manchestervélina var lokað á nefið á okkur. Við sem hlupum á milli terminala eins og skrattinn væri á hælunum á okkur. Það var ekkert um annað að ræða en að fara á hótel í London og gista þar um nóttina. Nýttum við okkur hótelpöntunarþjónustu á Heathrow vegna þess að við vorum ekkert undir það búin að vera á hóteli. Morguninn eftir fengum tókum við flug til Manchester og þangað náði Jones fjölskyldan í okkur. Við fórum til baka 10 dögum síðar því þá var möguleiki á að laust pláss væri í vél frá London og heim. Þetta skapar gífurlega spennu og stress að vera að ferðast á opnum miðum. Mesta spennan er vegna tengiflugsins. Við vissum að það væri ekkert mál að komast frá Manchester til London, það eru svo margar vélar á dag. En að vera komin til London án þess að vita með vissu hvort það sé laust í vél heim skapr aðal stressið, því það stóð aldrei til að gista í London. Við vorum sem sagt komin allt of snemma á Heathrow á miðvikudeginum. Urðum að vera þar í eina átta klukkutíma því vélin heim fór ekki fyrr en 21:10. Við erum sem sé orðin lúnkin í að fara á milli terminala og þekkjum marga veitingastaði og upplýsingaborð á Heathrow. Við hefðum sjálfsagt getað fengið töskuna okkar geymda einhvers staðar á vellinum og farið og heimsótt Betu, Pusa og Kalla prins en við vorum ekki viss um að þau ættu neitt með kaffinu svo við létum það eiga sig.
Við uppgötvuðum svo morgunin eftir, nývöknuð heima, að við áttum brúðkaupsafmæli þennan dag sem við eyddum á Heathrow. Aldrei gleymt þessum degi áður. Við hefðum sjálfsagt ekkert hegðað okkur öðruvísi en við gerðum þótt við hefðum munað þetta, kannski skálað í hvítvíni, ég veit það ekki. Það er nú alveg ástæða til að skála fyrir 33 árum í hjónabandi enda kom hann Simmi minn með kampavín heim úr vinnunni daginn eftir og það var ekkert verra.

mánudagur, 28. mars 2005

Það stóð til að koma heim í gær en það eru allar flugvélar fullar svo við komumst líklega ekki heim fyrr en á miðvikudag. Flugmiðarnir okkar eru sannkallaðir spennumiðar. Það væsir ekki um okkur hér hjá Svövu Rán, Lúkasi og Dave, það er ekki það, heldur vinnan. Ég á að mæta í vinnu á morgun. Ég hef áhyggjur af því. Það styttist í samræmd próf hjá 10. bekk. Ég er búin að senda skólastjórunum ímeil með fyrirmælum sem ég vona að koma að gagni.
Í Wales er gott veður, líklega svipað og ég las í Mogganum að væri á Íslandi. En hér er gróður mikið til orðin grænn og páskaliljurnar í fullum blóma alls staðar, meðram vegum og á umferðareyjum, enda þjóðarblómið þeirra.
Lúkas er algjör perla, veluppalinn, fallegur, skemmtilegur, alltaf hlæjandi og mikill ömmusnúður.

sunnudagur, 20. mars 2005

Búin að pakka. Allt tilbúið fyrir vikudvöl í hinu Stóra-Bretlandi. Við eigum svona spennuflugmiða. Komumst við með eður ei. Það var ekki pláss fyrir okkur með morgunvélinni svo nú er bara að vona að tvö sæti verði laus með seinnipartsvélinni ef ekki þá er að reyna á morgun en vitað er í dag að það muni ganga. Spennandi. Hlakka til að knúsa Lúkas Þorlák.
Horfa á hann ganga óstuddan.
Sjá hann tæta dótið hennar mömmu sinnar.
Sjá fallegu, stóru, bláu augun hans.
Heyra hann babla.
Kenna honum íslensku.

föstudagur, 18. mars 2005

8. 9. og 10.bekkir voru með árshátíðina sína í gærkvöldi. Allir bekkir voru með skemmtiatriði og svo borðuðu allir saman. 8. bekkur flutti frumsamið leikrit. 9. bekkur var með Hárið, hvorki meira né minna og 10. bekkur tefldi fram söngkonum sem við eigum örugglega eftir að heyra meira í í framtíðinni. Nemendaráð hafði veg og vanda að skipulagningu og fórst ráðinu það mjög vel úr hendi. Miðrýmið inni í turni breyttist í veitingasal með dúkuðum borðum og rómartískri stemmingu. Krakkarnir voru svo flott klæddir að fína og fræga fólkið má vara sig. Það var dansað til miðnættis og ég sá ekki betur en að allir skemmtu sér vel. Við, kennararnir, þurftum ekki að hafa áhyggjur af neinu, krakkarnir sáu um alla hluti sjálfir.
Góðir krakkar sewm við eigum.

föstudagur, 11. mars 2005

The Midwest family er að koma sér fyrir í Los Angeles. Familían hlýtur að skipta um nafn núna þar sem hún er flutt frá miðvesturríkjunum á austurströndina. Hvernig hljómar The Eastcoast family? Ferðin austur tók eina viku með góðum stoppum. Elsa er mjög ánægð með íbúðina sem þau leigðu í gegnum Netið. Það er eins með hana og allt annað í Ameríku, það er allt svo stórt að Nanna heldur að fataherbergið sé herbergið hennar. Hún er alsæl með dótið sitt þar inni. Kolbeinn hefur sérbaðherbergi og sérgang. Þarna er 25 stiga hiti að jafnaði allt árið og Malibuströndin þarna rétt hjá og stutt til fjalla í hina áttina. Þau hafa aðgang að sérsundlaugum og eru systkinin dugleg að nýta sér það.
Það er í dag sem doktorinn byrjar að rannsaka flogaveiki. Undirbúningurinn hefur staðið yfir í eitt og hálft ár. Það stendur heima um leið og Kalli mætir í nýju vinnuna þá er fyrsti sjúklingurinn tilbúinn til þess að láta krukka í hausinn á sér. Það er eins og hann hafi beðið eftir Kalla.

þriðjudagur, 8. mars 2005

Mikið rosalega er gott að byrja daginn á að synda 500 metra.
Mikið rosalega er gott að fara í líkamsrækt til Elínar Óskar.
Mikið rosalega er gott að ganga Nesið rösklega.
Mikið rosalega er vont að gera þetta allt á of skömmum tíma.
Ég "ofæfði" í síðustu viku og varð að taka helgina í hvíld.
Mikið rosalega getur maður stundum verið vitlaus.

sunnudagur, 6. mars 2005

Mér fannst svo asnalegt að vera búin að gleyma hvað bækurnar heita sem ég las og ekki las í síðustu viku að ég fór á Bókmenntavefinn til þess að fríska upp á minni mitt. Bók Ágústs Borgþórs heitir Tvisvar á ævinni, bók Vilbotgar heitir Fiskar hafa enga rödd og bók Kristínar heitir Hér.
Ég er byrjuð á Samkvæmisleikjum Braga og hún lofar góðu. Simmii minn byrjaði á Týnd í morgun og hann hefur ekki sleppt henni. Segir meira að segja við mig: "Ég get ekki talað við þíg núna", ef ég yrði á hann. En ég skil hann mjög vel svo þetta er allt í lagi.
Í þessu tölublaði Bæjarlífs er skemmtileg grein um hana Ingunni frænku mína Helgadóttur og svo sagt frá Doktor Karli á baksíðu.

laugardagur, 5. mars 2005

Ég er farin að hafa það fyrir venju að fara í bókasafnið á föstudögum og ná mér í lesefni.
Fyrir rúmri viku tók ég þrjár bækur og las tvær þeirra um síðust helgi. En ég hef greinilega gullfiskaminni. Ég skilaði þeim í gær og man ekki í dag hvað þær heita. Það sem ég man er að ein bókin var ljóðabók eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur. Ég las ljóðin hennar einu sinni yfir. Pældi ekki mikið í þeim. Líklega hefur mér ekki fundist þörf á því. Ein bókin var ný smásögubók eftir Ágúst Borgþór. Ég hef alltaf verið "svag" fyrir smásögum. Sögurnar hans Ágústs eru góðar. Skrambi góðar. Þriðja bókin er eftir Krístínu Ómarsdóttur. Ég hef ekki orðið svo fræg að lesa neitt eftir hana og var frekar spennt að komast í þessa bók. Ég las fyrstu 10 eða 20 blaðsíðurnar fletti svo í gegnum hana og lokaði bókinni og skilaði henni. Það er ekki oft sem ég gefst upp við bók. Mér finnst það vont mál að byrja á bók og ljúka ekki við hana. Aumingjaskapur eða eitthvað. Ég veit ekki hvað þeð er. Mér reynist það erfitt að viðurkenna fyrir sjálfri mér að mig langi ekki að lesa bók sem ég byrja á. En þetta var raunin. Hermaður að drepa fólk og gæla við hænu. Ekki fyrir mig. Nema ég hafi ekki gefið sögunni nægan sjens og pælt í raunverulegri merkingu.
Í gær fór ég sem sagt á bókasafnið og nældi mér í tvær bækur. Ég byrjaði á þeirri fyrri klukkan hálf ellefu í morgun og lauk lestrinum nú síðdegis. Frábær spennusaga eftir Karin Alvlegen sem heitir Týnd upp á íslensku en Saknad á frummálinu. Ég gat varla lagt bókina frá mér, hún var svo spennandi. Mæli méð henni fyrir spennufíkla. Enda fékk Karin, Glerlykilinn, fyrir Týnd sem besta Norræna glæpasagan árið 2000. Samt eyddi ég smá tíma í að moppa gólfin. Það er í manni eitthvert húsmóðurgen sem ræðst ekki svo vel við.
Í fyrramálið ætla ég að byrja á hinni bókinni sem ég tók en það eru Samkvæmisleikirnir etir Braga Ólafsson.
Hlakka til.
Annar góður dagur í að lesa góða bók.
Þarf mjög lílega ekki að moppa á morgun.

fimmtudagur, 24. febrúar 2005

Skrambans, ansans ári. Ég gleymdi mér í dag og fór heim og reif í mig hádegisverð og mundi ekki eftir kvennasúpunni fyrr en ég kom aftur upp í skóla. Og ég sem ætlaði að koma nýrri nafngift á framfæri um nafn á fyrirbærið. María á hugmynd að nafni. Ég má bara ekki láta það koma fyrir oftar að gleyma mér.
Mig vantar einhvers konar "rímænder."
Ég fór í mánaðarskoðunina í dag hjá Sjónlagi. Ég skora svona líka hátt. Kem rosalega flott út. Sé ótrúlega vel og allt það. Ég þarf samt að nota +1,5 við lestur og ég er ALLTAF að lesa. Þannig að ég keypti mér fimmtu lesgleraugun í dag. Ég dreifi þeim um allt hús. Hef ein á náttborðinu, önnur í forstofunni, þriðju í eldhúsglugganum, fjórðu í vasanum og fimmtu eru venjulega týnd.
En þvílíkur munur að fara í sund. Nú sé ég hverjir eru í lauginni og það besta er að ég sé hverjir eru í heita pottinum. Áður þurfti ég að hlusta á raddirnar og ég hafði það þannig ef ég þekkti þær ekki þorði ég ekki í pottinn. Nú er ég ekkert hrædd. Ef ég þekki ekki fólkið þá er það bara allt í lagi og ef ég þekki það þá er það líka í fínu lagi en áður átti ég kannski að þekkja það en sá bara ekki hver var á ferð. Það gat verið dálítið pínlegt.

Hann hringdi í mig í kvöld hann Lucky Luke, Lúkas Þorlákur, Lukku Láki og sagði: "hææææ." Ég skildi alveg hvað fólst í þessu. Hann saknar mín og vildi gjarnan sjá mig oftar og langar bara að segja mér svo margt. Ég held að nú sé komin tími fyrir ömmu að kaupa sér flugmiða og skreppa til Wales til þess að knúsa prinsinn. Posted by Hello

miðvikudagur, 23. febrúar 2005

Það verður örugglega bið á því að ég fái fataskápa í svefnherbergið. Pabbi setti þessa líka svakalegu fataslá þegar ég flutti inn en hún átti bara að vera til nokkurra nótta. En hann Simmi minn bætti um betur á meðan ég var í vinnunni í dag. Hann setti hillu yfir slánna. Þannig að nú hef ég 185 cm langa hillu til þess að setja draslið á sem enn er á stólum eða á gólfinu. Það er mjög þægilegt að hafa engar hurðir. Ég er dálítið spennt fyrir því. En ég á eftir að finna hvort ryk safnast upp á þessa hillu. Ef svo er nenni ég vafalaust ekki að búa lengi við þetta og kaupi mér fínan skáp með hurðum og skúffum og ýmsum græjum.

þriðjudagur, 22. febrúar 2005

Ég hef gætt að mataræðinu mínu í mörg ár, eiginlega síðan ég var 17 ára. Ég veit alveg hvað má og ekki má og fer næstum því alltaf eftir því. Ég hef alltaf passað að hreyfa mig mikið og var um tíma sjálf að kenna eróbikk. Samt er ég of þung og með of hátt kólestról í blóðinu. Ég hreyfi mig þó nokkuð ennþá. Geng í vinnuna, fer í leikfimi þrisvar í viku, syndi á morgnana og fer í göngutúra um helgar. Svo kemur tengdapabbi, sem ég hef haft áhyggjur af lengi vegna mataræðis hans og lítillar hreyfingar og mælist með kólestról eins og hjá nýbura og ekkert að blóþrýstingnum. Ég held að ég blási á allar kenningar um mat og hreyfingu.

laugardagur, 19. febrúar 2005

föstudagur, 18. febrúar 2005

Það er í dag ssem strákurinn minn mun verja doktorsritgerðina sína. Stór dagur. Kalli minn alveg að verða doktor. Doktor í lífeðlislegri sálarfræði eða heilafrumufræði. Það er ekki til almennileg íslensk þýðing á þessu. Hann hefur numið við Cognitive and Behavioral Neuroscience Department of Psychology University of Iowa
Hefur aðeins verið í rúm fjögur ár að stúdera þarna. Duglegur strákur sem ég á.
Hann hefur fengið margar greinar birtar í virtum vísindaritum um heiminn.(Til þess að sjá greinarnar þarf að slá karlsson k and blumberg á leitarstikuna). Hann mun byrja klukkan hálf þrjú í dag að tala að bandarískum tíma, þá er klukkan hálf níu í kvöld hjá okkur. Hann mun tala í klukkutíma og vörnin tekur um þrjá tíma. Hann ætlar að verja fyrir opnum tjöldum en ekki fara í hliðarherbegi eins og flestir gera við þennan skóla. Hann er ekkert kvíðinn, líklega er kvíðahnúrurinn bara í minum maga og pabba hans. En hann er vel undirbúinn og við munum vera í því í allan dag og kvöld að senda hlýja strauma vestur um haf.
Við erum montin af stráknum okkar.
Rosalega montin.
Við erum eiginlega alveg að springa úr monti.

fimmtudagur, 17. febrúar 2005

Ég skrifaði þennan pistil í Bæjarlíf sem kom út fyrir viku.....

Það mun hafa verið á vordögum 1998 að Sigrúnu Ágústsdóttur datt það í hug að það gæti orðið gaman að konur í þorpinu, sem ættu heimangengt í hádeginu, kæmu saman einu sinni í viku og borðuðu saman súpu og salat. Hún reifaði þessa hugmynd sína við nokkrar kunningjakonur sínar og það varð úr að þær fóru að hittast í Duggunni á fimmtudögum. Þarna komu saman konur úr ýmsum áttum og áttu saman góðar stundir yfir súpunni sinni og skemmtilegu spjalli. Sumar komu beint úr vinnunni aðrar komu að heiman. Sumar komu alltaf en aðrar komu stundum. Það var engin kvöð og engin binding. Sumar hættu að koma, einhverra hluta vegna og aðrar nýjar komu í staðinn. Þegar Duggan hætti starfsemi var það sjálfgert að konurnar hættu að hittast en þær vonuðu alltaf að einhver ráð fyndust. Þegar Ráðhúskaffi hóf starfsemi voru þær ekki seinar á sér að hafa tal af Jóa og Hafdísi og tóku þau konunum opnum örmum. Á fimmtudögum er alltaf búið að dúka eitt borð í hádeginu og leggja á það, sérstaklega fyrir súpukonur og baka brauð og búa til salat.
Konurnar, sem eru enn að hittast á fimmtudögum, vilja koma því hér með á framfæri við konur í þorpinu, sem eiga heimangengt í hádeginu, að þetta eru indælar stundir og góð afslöppun og tilbreyting og vilja endilega sjá sem flestar.
Fyrir hönd súpukvenna,
Guðrún Sigríks

....og viti menn. Þetta hreif. Jói þurfti að bæta við borðum í dag og dekka fyrir langtum fleiri en hann átti von á. Nú vorum við svo margar að við heyrðum ekki hver í annarri þannig að spjallhópar mynduðust. En það var bara gaman að því. Hið besta mál.

sunnudagur, 13. febrúar 2005


Sunnudagsmorgunn Posted by Hello
Enginn á ferli.
Engin hreyfing.
Ekkert fótatak.
Bærinn minn hefur breitt
hvítt mjúkt teppi yfir sig
og sefur vært.

laugardagur, 12. febrúar 2005


Ég gerði í dag dálítið sem ég hef ekki gert áður. Ég fór á þæfingarnámskeið til hennar Steinunnar handavinnukennara og bjó mér til eplagræna tösku. Gréta systir bjó til bláa með sama sniði. Þetta var mjög skemmtilegt. Það er þannig í okkar fjölskyldu að það nægir aldrei að búa til einn hlut, það fer alltaf fjöldaframleiðsla í gang. Við Gréta eigum örugglega eftir að gera fleiri hluti. Við verðum bara að bíða í nokkra daga eða þar til við verðum búnar að viða að okkur efni og öllu því sem til þarf. Posted by Hello

þriðjudagur, 8. febrúar 2005

Rakst á síðu á netflakki sem heitir Sellan.is. Það gladdi gamla kennarahjartað mitt að sjá að tvö ungmenni frá Þorlákshöfn, þar með gamlir nemendur grunnskólans, eru pistlahöfundar. Þau Una Björg og Olav Veigar. Ég sé ekki betur en þau séu hinir ágætustu pennar. Gott mál.

sunnudagur, 6. febrúar 2005

Þorrablótið var frábært eins og lög gerðu ráð fyrir. Skemmtiatriðin meirisháttar, eins og konan sagði. Sigrún Berglind fór á kostum í gervi Sofíu frænku/ Ragnars Matthiasar. Ég vildi bara helst fá að sjá þetta allt aftur. Þar kemur kosturinn í ljós að vera í þorrablótsnefnd, þá fær maður skemmtiatriðin gjörsamlega í æð. Við, Simmi minn, dönsuðum af okkur rassgatið, eins og Elsa tengdadóttir myndi orða það. Við vorum búin með úthaldið um hálf þrjú og drógum okkur þá í hlé. Sunnudagurinn hefur svo farið í þreytu fremur en þynnku. Við höfum greinilega gengið of nálægt okkur. En það lagast, þó síðar verði. Mikið er ég rosalega ánægð með að það skuli vera vetrarfrí í skólanum á morgun. Í fyrramálið mun renna upp dagur tvö í leti.

laugardagur, 5. febrúar 2005

Þá er þorrablótsdagurinn runninn upp. Við, Simmi minn erum tilbúin. Bíðum bara eftir því að Gréta og Gunni sæki okkur. Ætlum að hita upp hjá Öldu og Valda. Svo stjum við hjá kennaraliðinu. Þannig að ég mun hafa samstarfsfólkið á eina hlið og bestu vini á aðra. Það eru nú reyndar í kennaraliðinu frábærir vinir og saman valið skemmtilegt fólk.
Það hefur tekið allan daginn að græja sig. Ég átti allt í einu fullan skáp af engu til að fara í. Fann sex eða sjö samkvæmiskjóla (passaði reyndar ekki í alla) en valdi svo einn þægilegan. Hann er ekki sexí, fremur konulegur en hvað er maður annað en kona? Besta af öllu er að fara á ball með engin gleraugu. Jú, það eru ein frá Tiger í veskinu ef textablöð skyldu vera á borðum og ég ekki alveg að kunna textann. (Hin nýja íslenka hljómar svona).
Ég fór ekki í brúnkumeðferð, eins og allar konurnar á Reyðarfirði. Ég býst við því að konurnar í Þolló hafi líka farið í brúnku og salurinn muni líta út eins og grísaveisla á Spáni en hvað um það.
Það er bara flott.
Það verður örugglega gaman.
Rosalega gaman.
Maður finnur núna, þegar klukkan nálgast sex, fiðringinn í loftinu.
Þorrablótsfiðringinn.

föstudagur, 4. febrúar 2005

Hornhimnufræðingurinn er svona líka ánægður með mig. Honum finnst ég reyndar dulítið heimtufrek en útkoma aðgerðarinnar er vonum betri. Hann segir að ég sjái betur en jafnaldrar mínir. Vá........ Ég verð samt að lesa með +1.5 gleraugum að það er það sem ég kvartaði pínu yfir eða þannig. Hann benti mér á að maður sem færi í hnjáaðgerð á báðum hnjám gæti varla ætlast til þess að ganga daginn eftir. Ég vissi nú allt um það. Fór sjálf í hnjáaðgerð fyrir tveimur árum, á öðru hnénu og var heima í viku, sitjandi í Lazyboy horfandi á imbakassann allan daginn og lét Simma minn stjana við mig.
Jæja, hvað um það, ég fór í Kringluna, í Tiger, að tillögu fræðingsins, og keypti mér fern gleraugu +1,5 á 200 kr. stykkið. Nú verð ég að venja mig á að vera með gleraugu á mér en ekki á nefinu og nú get ég valið um fjórar tegundir eftir skapi eða fötum eða veðri eða einhverju.
En munurinn að ganga úti gleraugnalaus, maður minn, það er ólýsanlegt.

fimmtudagur, 3. febrúar 2005

Á að mæta hjá hornhimnufræðingnum á morgun. Hann vill fylgjast með mér. Ég er með langan lista af spurningum. Það er svo skrýtið að vera allt í einu með allt öðruvísi sjón. Ég veit eiginlega ekkert hvernig ég á að vera eða hvernig ég á horfa og sjá. Líklega er heilagreyið mitt með rugluna. Hann hefur hingað til séð mér fyrir fjarsýnissjón en verður núna að rembast við að sýna mér heiminn með nærsýni. Er þetta ekki of mikið álag fyrir gamlan og gráan heila?
Simmi minn verður á aukavakt þannig að að ég er bíllaus (ég ætla samt ekki að láta það eftir mér að kaupa mér bíl, ég get alveg gengið í vinnuna áfram og hef gott af því) þannig að Rut systir ætlar að keyra mig í bæinn. Það er það sem ég segi: það er gott að eiga góða að.

þriðjudagur, 1. febrúar 2005

Er öll að steypast út í harðsperrum enda ekkert skrítið við það. Ég fór í almennilegan eróbikk tíma í gær. Ég hef ekki gert það í tvö og hálft ár. Bara dúllað í sundi og göngum. Alltaf finnst mér nú eróbikkið jafnskemmtilegt. Skýringin er kannski sú að ég var sjálf eróbikkleiðbeinandi í nokkurn tíma og mér fannst það svo gaman. Ég fékk kikk út úr því að standa fremst, fyrir framan spegilinn og skipa kellingunum fyrir. Ég var sprækari í gær en ég átti von á. Bara nokkuð ánægð með sig sú gamla. Ég ætla að fara þrisvar í viku og athuga hvort eitthvað saxist á spikið sem var farið og hefur læðst að mér aftur.

sunnudagur, 30. janúar 2005

Helgin hefur liðið í indælis friði og ró. Það er vinnuhelgi hjá Simma mínum. Hann tók Ástu systur sína með austur á föstudag. Hún gisti hjá okkur og spjölluðum við yfir hvítvínsglasi eða glösum langt fram á nótt. Simmi fór snemma í bólið enda vaknar hann klukkan 20 mínútur gengin í sex dagana sem hann á vakt. Það er alltaf gaman að hafa Ástu og spjalla.
Ég var ekkert í tiltekt innanhúss enda mér sagt að forðast ryk. Ég var að velta því fyrir mér hvort væri þá betra að láta það eiga sig eða þurrka það en lét það eiga sig. En í dag dró eitthvað mig út í garð og tók ég saman í fullan ruslapoka draslið frá gamlárskvöldi. Þá fann ég vortilfinningu og fór í göngutúr neshringinn. Það var eins og á Laugaveginum. Fullt af fólki í sömu erindagjörðum og ég, að ganga.
Ég ætla að hafa togarasteik handa Simma mínum þegar hann kemur heim. Ég er búin að krydda kjötið eftir hans fyrirmælum og skera lauk og kartöflur í báta og krydda eftir mínum smekk. Best að fara að hita ofninn.
Lífið þessa dagana snýst eingöngu um augun mín. Mér finnst þetta allt með ólíkindum. Simmi minn var viðstaddur aðgerðina á miðvikudaginn og horfði á sjónvarpsskjá þar sem hann sá þetta allt í smáatriðum. Augnsperra sett á augað til að halda því opnu, hornhimnan skorin næstum því í hring og flett upp eins og lok á aski, lazergeisla beint í sárið þannig að megn sviðalykt gaus upp. Tilgangurinn var að leiðrétta hornhimnuna svo fjarsýnin hverfi. Hornhimnan sett á sinn stað og hitt augað tekið fyrir. Það tók mínútu að laga skárra augað og rúma mínútu að laga hitt því þar var einnig sjónskekkja. Mér var pakkað inn í teppi eins og á snyrtistofu látin fá bolta í hendurnar sem ég átti að kreista ef ég fyndi þörf fyrir að blikka augunum. Ég kreisti boltann aldrei og fann ekkert til. Mér var sagt að líta á klukkuna á veggnum þegar ég reis upp og var hún 18 mínútur genginn í eitt. Sem sagt ég var með sjón. Ég má ekk nudda augun í viku, má ekki fara í sund í hálfan mánuð og verð að bera augndropa í augun fjórum sinnum á dag í fjóra daga og nota gervitár eftir þörfum í nokkrar vikur. Ég verð að sofa með augnhlíf fyrstu næturnar til að forðast það að nudda augun í svefni. Augnhlífin er nánast eins og skíðagleraugu. Simma finnst þau svo flott að ég hann er búinn að falast eftir þeim þegar ég hætti að nota þau. Ég fór í skoðun daginn eftir og hornhimnufræðingurinn var mjög ánægður með mig. Ég er aftur á móti eitthvað döpur núna því ég verð að hafa gömul gleraugu frá Simma til að lesa og vinna smálega vinnu eins og að naglalakka mig. Ég er kannski óþolinmóð. Ég má búast við að það taki 3-6 mánuði að jafna mig alveg. Og það eru bara komnir fjórir dagar.
En eitt er alveg skelfilegt. Ég má ekki mála mig um augun í viku. Ég fór ómáluð í skólann á föstudaginn í fyrsta skipti á ævinni. En huggun harmi gegn, þá slepp ég fyrir þorrablót.

fimmtudagur, 27. janúar 2005

Er enn með það mikla móðusjón að ég get ekki verið lengi við skjáinn.... kem tvíefld, þó siðar verði, eins og maðurinn sagði.

miðvikudagur, 26. janúar 2005

Ég sé .........án gleraugna!!!!!!!! Vá..................

þriðjudagur, 25. janúar 2005

Ritarinn hjá Sjónlagi hf. hringdi í mig í vinnuna í dag bara svona til þess að minna mig á morgundaginn. Þó að ég sé gleymin og geri oft skissur þá get ég ekki gleymt því að ég er að fara í Laseraugnaðgerð á morgun. Ég hef ekki um annað hugsað síðan ég fór í forskoðunina á fimmtudag. Ég kvíði ekki neitt fyrir, ég bara hlakka til. Ég hringdi í Valey, gömlu góðu vinkonu mín, til að athuga hvernig hún hefði það eftir sína aðgerð en hún fór í svona sl. fimmtudag. Hún hafði það rosalega gott og var himinlifandi með að hafa gert þetta. Hún sagði mér að maður fyndi ekkert til.
Eftir að ég tók þessa ákvörðun hef ég leyft mér að láta gleraugun fara í taugarnar á mér og þá fatta ég hvað þau angra mig ótrúlega oft. Áður ræddi ekkert um það að láta þau angra sig því það voru engin önnur ráð en að hafa lonníetturnar á nefinu. Núna pirrast ég..
... þegar rignir á þau.
... við að lesa í rúminu.
... við að fara yfir próf.
... við faðmlög og enn meir við kossa. (Ég hitti nefnilega gamlan kunningja í dag sem kyssti mig og faðmaði).
... við að lesa Moggann.
... að koma inn úr kulda.
... við að sjá ekki textann á kóræfingum. (Las í gærkvöldi vökumar í stað vökurnar).
... að geta ekki glymskakkað augunum.
... við að þurfa alltaf að horfa beint á alla hluti.
Nei, ég er hætt, listinn er óendanlegur.

fimmtudagur, 20. janúar 2005

Ég þurfti ekkert að hugsa mig um í dag eftir að hafa verið í tveggja tíma rannsókn hjá hornhimnufræðingnum. Hann sagði að ég væri góður kandídat í augnaðgerð með lasertækni. Ég varð harla glöð við tíðindin. Ég var alveg eins undir það búin að heyra það að ég væri ein af þessum prósentum sem svona aðgerð hentaði ekki. Ég hef verið mjög spennt fyrir svona aðgerð síðan ég heyrði fyrst um þetta rætt, hélt samt að þetta hentaði eingöngu nærsýnu fólki. Þegar ég svo hitti mann um daginn, fjórum dögum eftir aðgerð, fjarsýnan með sjónskekkju, dútlandi við að setja saman eyrnalokka, hringdi ég um leið í Sjónlag og pantaði tíma í forskoðun. Og kom út með þessa líka fínu einkunn. Ég pantaði tíma í aðgerð og fer næsta miðvikudag klukkan tíu. Hana nú og hafðu það.
Ég hlakka til.
Ég hlakka rosalega mikið til.
Ég hlakka svo mikið til aðég er með fiðring í maganum.
Kannski get ég lesið án gleraugna eftir aðgerð.
Kannski get ég lesið í rúminu.
Kannski þekki ég fólkið í heita pottinum.
Kannski get ég lesið nóturnar á kóræfingum, með góðu móti.
Kannski þarf ég að nota lesgleraugu.
Kannski kaupi ég þeu í BÓNUS, í stað gleraugna á 70 þúsund.
Kannski, kannski , kannski.
Ég fer kannski að heilsa fólki á götu.
Ég fer kannski að vinka fólki sem keyrir fram hjá mér á bílum.
Ég fer kannski að heyra betur.
Eftir sex daga.
Eftir sex nætur.
Ég fer í aðgerð.

þriðjudagur, 18. janúar 2005

Sauðurinn ég.
Var á vitlausum stað klukkan 11:10 í dag.
Stóð mig ekki í stykkinu.
Hugsaði bara hálfa hugsun.
Er að pæla í hvað veldur.
Álag í vinnunni?
Elliglöp?
Venjulegur sauðsháttur?
Líklega eitthvað af öllu.
Staðráðin í að standa mig betur næst.

sunnudagur, 16. janúar 2005


Unglingurinn er lagstur í ævintýrabókmenntir við mikinn fögnuð ömmu. Hann hefur lagt á hilluna bækur um heimsstyrjöldina síðari við enn meiri fögnuð ömmu. Posted by Hello

Er þetta ekki ömmuvæntumsvipur sem skín af prinsinum af Wales? Ég sé ekki betur.  Posted by Hello

Elsku amma min.
Eg sakna tin hundrad kilo.
Það er nú ekki leiðinlegt að fá svona tölvupóst frá þessu ömmuljósi. Posted by Hello

laugardagur, 15. janúar 2005

Kalli minn er að velta fyrir sér hvort hann eigi að hafa tilvitnun á saurblaði í doktorsritgerðinni sinni eður ei. Ef svo verður á það að vera fyndið en ekki þung speki. Honum datt í hug e-ð sem Skinner lét hafa eftir sér en hallast þó heldur að því að vitna í Gunnlaug ormstungu. "Eigi skal haltur ganga á meðan báðir fætur eru jafnlangir." Af því að hann Simmi minn hefur þetta oft á hraðbergi þá datt mér í hug að Kalli gæti allt eins notað önnur orð sem pabbi hans vitnar oft í en það er sagan um það þegar hann var tólf ára og hann og aðrir strákar voru í steypuvinnu hjá Gæja Karls og sá sagði við strákana, þegar var aðeins farið að draga af þeim um kvöldið: "Það er ekki nóg ekki að vera sterkur að morgni það verður að vera sterkur að kvöldi líka".
Þessi orð hafa setið í Simma mínum alla tíð og gott ef hann hefur ekki farið eftir þessu.

miðvikudagur, 12. janúar 2005

Það er verið að horfa á fótboltaleik í sjónvarpsherberginu í húsinu mínu. Ég hélt áðan að maðurinn, sem er að horfa, væri að tala í símann en þá var hann að tala við sjálfan sig um gang leiksins. Miklar spekulasjónir í gangi. Hann kallar öðruhverju í mig og segir að ég verði að koma og sjá. Það er nú ekki alveg í lagi með þennan mann. Ég vildi horfa á fóstureyðingarþátt en fótboltinn gengur fyrir. Mér er eiginlega alveg sama um gang einstakra leikja í ensku deildinni. En ef það skyldi vera flugvél á leið á leik í Liverpool eða Manchester lýg ég hiklaust og segist vera einlægur áhugamaður, bara til þess að fá að fara með.

þriðjudagur, 11. janúar 2005

Af hverju hætti ég í fyrra hjá De danske vægtkonsulenter, af hverju?
Ég væri löngu komin í kjörþyngd og væri bara að dúlla við það að halda mér í þeirri þyngd.
Skil ekki sjálfa mig.
Það er nefnilega svo pirrandi núna að komast ekki í neinar buxur
svona af því að það er vetur
og allar götur troðfullar af snjó
og það er kalt úti
og vindur
og svoleiðis
og ég í pilsi.

mánudagur, 10. janúar 2005

Jólaskrautið er loksins komið ofan í kassa. Þeir eru enn á stofugólfinu. Ég nenni ekki að bera þá út í skúr. Nokkur jólaljós loga enn utandyra og munu gera enn um sinn. Þau heita núna hjá mér skammdegisljós.

...og the Midwest family flaug til síns heima 5. janúar. Þó að ég sé eins og jójó á milli Þolló og Leifsstöðvar þá rata ég varla þarna á milli. Það kom allavega í ljós þegar ég þurfti að aka alein heim um daginn. Ég ruglaðist tvisvar á leiðinni. Ég lenti inni í Hafnarfirði, bara alveg niður á Strandgötu. Það stóð samt alls ekki til. Ég fór líklega of langt á hringtorgi. Ég fann nú rétta bratut aftur en gleymdi mér í kópavoginum. Fór undir í stað upp á og lenti í því að keyra gömlu góðu Ártúnsbrekkuna. Ég var svo stressuð og ekki bætti hálka úr skák og blindhríð á leiðinni yfir fjallið þannig að ég er enn þreytt. Börnin mín komust öll heil á húfi heim til sín þrátt fyrir löng og ströng ferðalög.  Posted by Hello

Lífið er óðum að færast í samt horf aftur. Hið venjulega líf okkar Simma míns færðist eðlilega úr skorðum á meðan afkomendur okkar dvöldu á Fróni. The Jones´s fóru af skerinu á milli jóla og nýárs. Gátu ekki stoppa lengur vegna vinnunnar.... Posted by Hello

laugardagur, 1. janúar 2005


Við, Simmi minn, óskum öllum vinum og vandamönnum árs og friðar, gæfu og gengis á nýju ári. Þetta nýbyrjaða ár leggst vel í okkur hjónakornin. Posted by Hello

fimmtudagur, 23. desember 2004

Allir komnir á klakann.........og þá var kátt í höllinni, höllinni, höllinni...........

laugardagur, 18. desember 2004

Nú er fjör í bæ.... og ekki allir mættir enn!

föstudagur, 17. desember 2004

Hún Svava Rán mín er þrítug í dag. Litla stelpan mín er 30 ára. Þrír tugir síðan við vorum saman á sjúkrahúsi Selfoss. Hún pínu hnoðri sem ég óskaði gæfu og gengis í lífinu. Ég þóttist veraldarvön þar sem ég hafði þriggja ára reynslu í móðurhlutverkinu. Ég gat alla vega farið beint heim með hana en þegar ég átti Kalla var ég heila viku hjá mömmu því ég vissi bara ekki hvað ég átti að gera við hann. Hún var svo sannarlega jólabarn því við komum heim á Þorláksmessu. Nú eru þrjátíu ár síðan. Skrítin tilfinning. Tíminn er svo afstæður.

þriðjudagur, 14. desember 2004

Það er svo skrítið með jólin og jólaundirbúninginn að það verður allt að vera í föstum skörðum og margt sem gert er verður að hefð. Við höfum nokkrum sinnum farið í jólarallý með Öldu og Valda og nú er það orðið að hefð. Það var um helgina. Þá förum við í bæinn og skoðum hvað kaupmenn hafa að bjóða og eyðum svo dálítið af aurum í einn og annan óþarfa. Kannski er ein og ein jólagjöf keypt. Við tókum rallýið með trompi í ár og fengum okkur hótelgistingu. Það er hægt að gera góða díla á þessum árstíma. Fyrir vikið snæddum við dýrindis máltíð í mörgum liðum á Carúsó og röltum á pöbba á eftir. Kíktum á barinn á 101 og einhvern írskan einnig. Við skemmtum okkur konunglega. Þetta verður örugglega endurtekið að ári. Þá ætla ég að hafa vaðið fyrir neðan mig og vera búin að panta íbúð hjá Kennarasambandinu á Sóleyjargötunni. Ég verð bara að muna að panta í október.

mánudagur, 6. desember 2004

Í dag hefði Siggi mágur orðið fimmtugur hefði hann lifað.
Hann dó, langt fyrir aldur fram, 10. október 1999.
Blessuð sé minning hans.

sunnudagur, 5. desember 2004

Ég fer venjulega til hennar Röggu í Monroe í klippngu á 7-8 vikna fresti. Ég sleppti hins vegar tímanum sem ég átti í verkfallinu. Og hárið óx og óx og ég var orðin eins og og argintæta. Dauðsá eftir að sleppa tímanum því auðvitað er nauðsynlegt að líta vel út þó að maður sé í verkfalli. Ég átti svo loksins tíma í gær og skellti mér i bæinn. Ragga tók af mér rúmlega tvö reyfi og setti í mig strýpur. Svo nú lít ég sæmilega út eða öllu heldur skárri en áður. Ég spurði hana hvort hún sæi grá hár af því ég sjálf sé engin og hún fann nokkur... já, já, uppi á hausnum á mér.
Ég fékk sjúkdómsgreiningu í vikunni. Fór til gigtarlæknis að tilstuðlan Helga og sá greindi mig með vefjagigt. Það hlýtur oft að vera áfall þegfar fólk greinist með langvinnan sjúkdóm en það var eins og mér létti. Ég veit þá núna af hverju allir þessir verkir stafa. Ég hef alltaf talið mér trú um að ég væri með verk vegna vöðvabólgu, væri með harðsperrur eða hefði legið eitthvað asnalega í rúminu. Nú veit ég betur. Ég hef áunnið mér þennan sjúkóm með langvarandi svefnleysi og streitu. Læknirinn rakti úr mér garnirnar með lífshlaup mitt. Ég fékk munnræpu,(með grátstafinn í kverkunum) sagði honum ýmislegt sem studdi greininguna. Ég vissi alltaf að svefnleysið, sem hefur hrjáð mig frá 1972, hefði slæm áhrif. Ég vissi bara ekki hvað myndi gerst. Verkina hef ég haft síðan 1996 eða síðan ég flutti austur. Verkirnir koma frá aumum vöðvafestum. Nú verð ég að fara að sofa REM svefni á hverri nóttu með hjálp lyfja því vöðvar og vöðvafestur hvílast ekki nema í djúpsvefni. Þetta er nú bara eitt af þessum hundsbitum sem maður fær.

þriðjudagur, 30. nóvember 2004


Hið árlega jólaföndur nokkurra vinkvenna beggja megin Ölfusár fór fram í gærkvöldi heima hjá mér. Þetta var í tólfta sinn sem þessi hópur hittist á aðventunni til þess að föndra fyrir jólin og eiga saman skemmtilega stund. Í ár varð fyrir valinu snjókarl úr spýtu sem hangir á dyrakarmi. Pabbi sagaði þá út og við skreyttum hver á sinn hátt. Siður er að vera annað hvert ár í Þolló og hitt á Selfossi og það er leyndó hvert föndrið er þangað til á hólminn er komið.Hópurinn samanstendur af Erlu með dætur sínar tvær, Eygló og Emmu og þær eru með vinkonuna Sjöfn og svo er það mamma með okkur þrjár og vinkonu okkar hana Öldu. Nú er ég viss um það að þær austan megin árinnar eru byrjaðar að hugsa upp föndrið að ári. Hlakka til. Þetta er alltaf jafn gaman. Posted by Hello

sunnudagur, 28. nóvember 2004


Mikil hátíð var haldin í dag á B-götu 20. Tilefnið var 40 ára búseta í Þorlákshöfn. Við fluttum frá Selfossi til Þorlákshafnar sem var þá 13 ára gamalt þorp. Þá var Rut 6 ára, Gréta 10 ára og ég 14 ára. Þetta voru mikil viðbrigði fyrir okkur öll. Við fluttum vegna þess að pabbi kom á fót vélsmiðjunni Boða ásamt fleiri mönnum frá Selfossi sem sáu framtíð í þessu unga þorpi. Hér erum við öll enn og viljum hvergi annars staðar vera. Nema Dundi sem er systursonur mömmu og við fengum að hafa fyrir litla bróður í nokkur ár. Hann býr í Kópavogi er smiður og rekur trésmíðaverkstæði.
Pabbi og mamma keyptu húsið að B-götu 20 fokhelt, vorið 1964, og kláraði pabbi það á kvöldin og um helgar. Karlarnir í Boða leigðu B-götu 22 og bjó ég þar um sumarið ásamt tveimur vinkonum frá Selfossi, Esther og Dóru, og unnum við í Meitlinum. Ég nýfermd og þær ári eldri. Þegar svo húsið var tilbúið og mamma flutti kom í fyrstu bara Rut með henni. Við Gréta vorum eftir hjá Erlu og Hebba. Ég til að klára annan bekk í Gaggó og Gréta til að vera til jóla í 10 ára bekk. Rut hafði byrjað í 6 ára bekk á Selfossi og með flutningnum lauk hennar skólagöngu þennan veturinn því engin kennsla var fyrir 6 ára í Höfninni. Fyrsti veturinn sem ég er alveg í Þorlákshöfn er ekki fyrr en 1971 þegar ég hef lokið Kennó og byrja að búa með honum Simma mínum og eignast Kalla og byrja að kenna og fer að byggja og.....já það var töluvert sem gerðist það árið.
40 ár.
40 ár í Höfninni.
40 ár síðan ég var í Smáratúni 3.
40 ár síðan ég sá hann Simma minn fyrst.
40 ár síðan ég fermdist.
40 ár síðan ég hjálpaði pabba að glerja stofuna.
40 ár síðan ég eignaðist hvíta Sony útvarpið mitt.
40 ár síðan ég flutti frá Selfossi.
40 ár síðan ég sigldi með Heklu til að skoða Surtsey.
40 ár.Posted by Hello
Laugardagurinn fór í jólaundirbúning. Ég hengdi greni og ljós utan á gluggana sem snúa að götunni. Kemur vel út. Ég bakaði uppáhaldsrúllutertuna hennar Svövu Ránar og haframjöls-kókósmjölssmákökur sem ég fann á síðu sem Eygló sendi mér. Tertubotna bakaði ég líka. Fór svo eftir hádegi til Rutar og við bökuðum Sörur. Hulda litla Gunn var með okkur í því. Það er að verða búsældarlegt hjá mér. Ég á nú samt eftir að baka miklu meira. Ég slepp ekki við að hnoða í brúna lagtertu. "Æi, mamma", sagði Svava Rán þegar ég impraði á því að líklega hefði ég hana hrærða en ekki hnoðaða. Og hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín. Ég hef svo rosalega gaman að þessu öllu í ár að það er í fínu að lagi að bæta við einni hnoðaðri.

föstudagur, 26. nóvember 2004

Ég hef vísvitandi draslað út hjá mér undanfarna daga svo ég hafi eitthvað til að taka til á föstudegi eins og hinar húsmæðurnar. Nú er ég búin að laga til, þurrka af og moppa gólfin, setja í vél og annað partí í þurrkarann. Nú stendur til að skúra flísarnar og skella svo í eina pizzu eða svo.
Fínn föstudagur.
Ég er reyndar búin að gera miklu meira í dag. Kenna mína tíma, sitja þrjú foreldraviðtöl, fara með pakka og bréf á póstinn og slugsa smávegis.
Fínn föstudagur.

þriðjudagur, 23. nóvember 2004

Eftir kynningarfundinn á Selfossi í dag, á kjarasamningi kennara og sveitarfélaga, verð ég ekki hissa þótt hann verði felldur í kosningu sem fer fram á næstu dögum. Það er svo mikill pirringur í kennurum yfir meðferðinni að allt getur gerst. Flestum finnst það óþolandi að láta stilla sér svona upp við vegg og fara að samþykkja næstum það sama og var fellt um daginn með 93% og finnst þá skömminni skárra að láta gerðardóm yfir sig ganga þó að það megi búast við verri kjörum en eru nú í boði. Það verður alla vega mjótt á mununum.
Ég er orðin jólabrjáluð. Búin að hengja upp tvær seríur......... og hef kveikt á þeim!

sunnudagur, 21. nóvember 2004

Það var dútlað við skemmtanalífið um helgina. Ester og Halldór voru sæt að bjóða mér á jólaskemmtun hjá Norrænafélaginu á föstudagskvöld því Simmi var á karlafundi hjá Kiwanis. Það var borinn á borð matur frá öllum Norðurlöndunum, alveg frábær. Þar smakkaði ég færeyska blóðpylsu í fyrsta sinn og var hún miklu betri en blóðmörin okkar. Þeir krydda pylsuna sem gerir hana að lostæti. Eftirrétturinn var jólagrautur og fékk ég möndluna. Ég fékk ægilegan fínan pakka sem ég tími ekki að taka upp fyrr en á jólunum. Ég er búin að láta hann á nýja fína jólatrésdúkinn minn. Og þar bíður hann. Ég veit að ég er dálítið snemma í þessu en hneykslist þeir sem hneykslast vilja, mér er nokk sama.
Í gærkvöldi vorum við í systkinaboði hjá Jónu Stínu og Finna. Þau buðu upp á grillað lambalæri með öllu tilheyrandi og ostaköku í eftirrétt. Allt rosalega gott. Það er nú ekki leiðinlegt að vera með þeim systkinum öllum í boði. Hlegið og fíflast og rifjaðar upp gamlar stundir. Ásta gisti hjá okkur; fyrsti næturgesturinn á nýja staðnum.

fimmtudagur, 18. nóvember 2004


The Jones family frá Wales kemur á klakann hinn 22. des og ætlar að vera hjá okkur gamla settinu til 28. des. Getur því miður ekki stoppað lengur vegna anna en þessi fjölskylda er ekki sú eina sem kemur..... Posted by Hello

...heldur kemur The Midwest family einnig og mun dvelja hjá okkur frá 16. des til 5. jan. Skyldi nokkurn undra að ég hlakki til jóla í ár. Posted by Hello

miðvikudagur, 17. nóvember 2004

Samningur í höfn! Hvað skyldi hann hafa að færa? Ég er víst svartsýnasti kennarinn á minni kennarastofu. Sjáum hvað setur. Maður hlýtur að frétta e-ð á morgun. Annars hef ég farið í fýlu einu sinni í mánuði í rúm 30 ár og ég get það svo sem alveg í sex ár í viðbót.

sunnudagur, 14. nóvember 2004

Ég er komin í svo mikið jólaundirbúningsskap að ég get ekki leynt því lengur. Ég hef notað verkfallið til jólaföndurs (og slugs og snúið sólarhringnum við, en það er önnur saga) og er langt komin með það í huganum hvernig ég ætla að skreyta nýja húsið mitt að utan og ég get varla beðið með að byrja.
Ég er búin að sauma í höndunum snjókarl, jólalegan, sem er kominn upp á vegg; jóladagatal, bara fyrir okkur gamla settið; rosaflottan jólatrésdúk; mála spýtujólasveina, sem pabbi sagaði út í nýju söginni og nú er ég að klára að sauma bæði í höndum og vél, jólasveinatríó. Ef ég held svona áfram þarf ég ekki að sækja kassana útí skúr því ég hef ekki pláss fyrir meira dót. Og þó, það er lífsnauðsyn að ná í e-ð af gamla dótinu, því það eru svo miklar tilfinningar tengdar sumum hlutunum.
Ég fór áðan út í Krónu (erfitt að segja ekki kuffulag) og keypti efni í ekta ensku jólakökuna en á ekki koníak þannig að ég verð að bíða með að baka hana þangað til á morgun eða hinn.
Ég get svarið það, það er verið að spila jólalag í útvarpinu!!!!

föstudagur, 12. nóvember 2004

Það er með þvílíkum ólíkindum hvernig farið er með kennarastéttina að maður á bara ekki orð fyrir reiði og móðgun. Hér má lesa um það sem kennaraforystan hafði að segja um málið.

þriðjudagur, 9. nóvember 2004

Þá er seinni hálfleikur hafinn. Skyldi þetta vera eins og í fótboltanum, jafnlangur tími í hvorum hálfleik? Eða þarf að framlengja og enda svo með vítuspyrnukeppni? Enginn veit. Það er eins og leikur sé rétt að hefjast. Eins og það sé ekki búið að spila neitt. Ekkert markvert gerist. Ég vildi að þeir færu að skora mark.

mánudagur, 8. nóvember 2004

Upp er runninn hinn mikli EF dagur. Ef miðlunartillagan verður samþykkt þá....
Ef miðlunartillagan verður felld þá.... Mér fannst öll síðasta vika vera eitt stórt EF. Hún var löng, leiðinleg og erfið. Þessi óvissa með framtíðina hvíldi yfir öllum, bæði nemendum, foreldrum og kennurum. Ég reyndi að halda venjulegum dampi en ég efast um að ég hafi getað það þó ég hafi reynt. Auðvitað var gaman að hitta krakkana og samstarfsfólkið en þetta EF var alltaf að þvælast fyrir. Vonandi fer þessu EFI að ljúka.

sunnudagur, 7. nóvember 2004


Ég vissi það alltaf að strákurinn minn væri að gera góða hluti í Ameríku en að hann væri kominn svona langt vissi ég ekki .... Posted by Hello

laugardagur, 6. nóvember 2004


Lúkas Þorlákur er eins árs í dag. Verst þykir mér að geta ekki verið með honum á afmælisdaginn en það verður bara í anda. Þetta litla krútt hefur nú ekki verið að troða henni ömmu sinni um tær. Við höfum þrisvar sinnum verið saman nokkra daga í senn. Stundum spjöllum við saman í gegnum netmyndavél. Hann ætlar að koma um jólin með mömmu sinni og pabba. Ég get varla beðið. Posted by Hello

föstudagur, 29. október 2004

Það var bæði gleði og depurð í hjarta mínu þegar ég skeiðaði í rigningunni upp í skóla í morgun. Gleði yfir því að fá að fara í vinnuna mína og tilhlökkun að hitta nemendur eftir helgina. Depurð vegna þess að svo segir mér hugur um að miðlunartillaga færi okkur kennurum ekki það sem við vildum. Samninganefndin okkar er hlutlaus, sveitastjórnarmenn segja að um verulegar bætur sé að ræða til kennara og mikill kostnaðarauki fyrir sveitafélögin. Þorgerður Katrín ánægð og greinilega fegin. Hún dæsti í útvarpsviðtali. Við fáum tillöguna senda í pósti ásamt kjörseðli og eigum að taka ákvörðun hvert og eitt með sjálfum okkur. Mikil leynd hvílir yfir öllu og við eigum að vera þeir fyrsu sem berja tillöguna augum. Spádómar kennarastofunnar í morgun reyndust réttir. Í tvöfréttum rásar tvö voru nokkur atriði í miðlunartillögunni tíunduð. Það eru alltaf einhverjir sem leka. Ég hefði viljað fá góðan fund þar sem væri farið yfir öll atriði tillögunnar og allt útskýrt. Ég hef tekið þátt í því að samþykkja samning sem reyndist vondur þó svo að það sæist ekki í fyrstu. Ég vil helst ekki lenda í því aftur.

fimmtudagur, 28. október 2004


Draumar manns rætast stundum í afkomendunum. Minn draumur hefur verið að fara til Liverpool, á Bítlaslóðir, síðan ég byrjaði að elska, dá og dýrka Bítlana fyrir margt löngu. Lúkas Þorlákur skrapp þangað í gær. Reyndar ekki að hitta Bítlana heldur ofnæmislækni. Hann er sem betur fer í góðum gír og von um að ofnæmið eldist af honum. En hann keyrði með mömmu sinni og pabba eftir Penny Lane. Posted by Hello
Þorlákshafnarkennarar sáu um verkfallsmiðstöðina á Selfossi í gær. Enn er engan bilbug að finna á fólki. Fólk lifir á yfirdrætti, herðir sultarólina og sker ýmsilegt niður. Ég afpantaði klippingu og strípur. Verð bara að líta út eins og argintæta á meðan á verkfalli stendur. Er að koma úr morgungöngu kennaranna. Bjatrsýni ríkti yfir hópnum. Eitthvað talað um að sáttatillaga yrði lögð fram í dag. Sjáum hvað setur.

þriðjudagur, 26. október 2004

Nú þykist Kristján Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri vera kominn með lausn á "kennaradeilunni."
Ætli hann hafi fundið falinn fjársjóð einhvers staðar?
Alls staðar er talað og skrifað um kennaradeiluna. Hvergi hef ég rekist á sveitafélagadeiluna. Er ekki örugglega jafnt á komið með kúk og skít? Sveitafélögin eiga í deilum við kennara og öfugt. Jón Pétur stóð sig vel í Kastljósinu í gær. Hann var spurður um launin sín. Hinir í þættinum hefðu átt að gefa sín upp líka, svona í gamni. Hann spurði hvort það væri frekt af sér, 33 ára gömlum manni með 3ja ára háskólanám að baki að fara fram á 230 þúsund á mánuði.

fimmtudagur, 21. október 2004

Það var verst hvað það var kalt í gær í kröfugöngunni. Ég fór klædd eins og asni, sem sagt ekki dúðuð. Ég nefnilega svo asnaleg með húfu. Mér er ennþá dálítið kalt, einhvers staðar innan í mér þrátt fyrir að hafa dúðað mig fyrir framan sjónvarpið í gærkvöldi. Hann yljaði samt aðeins skemmtitaugarnar ungi kennarinn sem hafði farið í hvítan bol utan yfir úlpuna sína og skrifað á bakið - ég er 29 ára kennari með 155 þúsund á mánuði - og að framan - ég er á lausu vantar góða fyrirvinnu - . Hann vonaðist til þess að hann sæist í sjónvarpinu. Hann fór líka að raula á meðan við gengum að Ráðhúsinu- launin duga ekki baun, við þurfum hærri laun - svo þróaðist þetta í að syngja:
Áfram, áfram áfram kennarar
áfram, áfram áfram kennarar
áfram, áfram áfram kennarar
við bökkum ekki baun
og svo var hrópað hærri laun.
Það var gott að finna baráttuvilja kennaranna í kröfugöngunni í gær. Fólk er sko ekki aldeilis að gefast upp. Það var gott að vera einn af nokkrum þúsundum kennara í sömu stöðu. Við bárum kröfuspjöld sem dugnaðarforkarnir í kennaraliðinu höfðu útbúið. Eftir fundinn á Ingólfstorgi gengu allir kennararnir í röð í gegnum Ráðhúsið. Borgarstjóri stóð þar og einhverjir fleiri. Þetta minnti mig á sömu stöðu fyrir 20 árum þegar kennarar voru enn í BSRB. Þá var farið í verkfall sem stóð í 4 vikur og eftir baráttufund á Lækjartorgi gengum við að Tjörninni, héldumst í hendur og náðum hringinn í kringum Tjörnina. Það er óþolandi að vera í sömu sporum eftir allan þennan tíma. Það er óþolandi að þurfa alltaf að berjast fyrir því að fá greitt fyrir vinnuna sína.
Það er óþolandi að þurfa alltaf að verja vinnuna sína og skilgreina hana fyrir fólki.

þriðjudagur, 19. október 2004

Ég má ekki láta dapran þankagang ná tökum á mér enda er það ekki líkt mér.
Ég er á leið á kóræfingu og ég veit að það mun hressa mig, bæta og kæta
og á morgun ætla ég að hugsa eins og Þórdís.

Einn dagur í viðbót
sem ég er ekki búin að gleyma
að þakka fyrir hver ég er og fyrir hvað ég hef.

Einn dagur í viðbót

sem ég finn fyrir
að augnablikið er það mikilvægasta sem fyrir kemur.

Lífið er röð yndislegra augnablika og ég þakka fyrir það.

Nú er verkfallið farið að segja til sín bæði á sál og líkama. Í gær, og það sem af er þessum degi, þyrlast um í hugskoti mínu hinar ólíklegustu tilfinningar og hugsanir sem ég næ engum tökum á. Ég finn fyrir vonleysi, samviskubiti, depurð, reiði, einangrun, áhyggjum, kvíða, leti, sorg, magnleysi, þróttleysi og líkamlegri vanlíðan. Ég ætla að vona að aðrir kennarar séu enn fullir af baráttuvilja því ég veit að það þýðir ekki að berjast fyrir bættum kjörum með svona líðan eins og minni. Ég er bara til trafala. Ég bara skil þetta ekki. Er öllum sama um framtíð barnanna okkar? Er menntun ekki lengur máttur?

laugardagur, 16. október 2004


Þessi hjónakorn áttu 10 ára brúðkaupsafmæli í gær 15 október. Þau giftu sig í Þorlákskirkju og var það séra Svavar sem sá um athöfnina. Ýmislegt var öðruvísi en venjulega við þessa athöfn. Það voru ekki sungnir venjulegir sálmar heldur sá hluti Geirfuglanna um söng og hljóðfæraslátt og voru textarnir ekkert í líkingu við hefðbundna sálma. Brúðurin var ekki í marengstertukjól heldur í síðum grænum sléttflauelskjól skreyttum breiðum skinnköntum og var brúðguminn í gömlum íslenskum þjóðbúningi, ásamt sauðskinnskóm, sem hann fékk lánaðan hjá Þjóðdansafélaginu. Enginn vissi að brúðkaup væri í vændum. Þau buðu vinum og vandamönnum í innflutningspartý en vildu endilega sýna gestum kirkjuna. Og gengu í það heilaga um leið. Posted by Hello

föstudagur, 15. október 2004

Veturinn bíður á næsta leiti, tilbúinn að hremma haustið og svelgja það í sig. Haustið reynir eins og það getur að tóra sem lengst. Eitt og eitt sölnað lauf hangir enn á berum greinum, vill ekki fara, vill ekki fjúka af og gleymast. Vindurinn og kuldinn eira engu. Saman vinna þeir að undirbúningi komu konungsins. Ég vona að hann verði mildur eins og undanfarin ár. Ég þoli ekki harðstjórn og ofríki.

fimmtudagur, 14. október 2004

Hún er ekki svo vitlaus hugmyndin hans Baldurs að breyta nafni Þrengslavegar í Ölfusbraut. Rökstuðningur hans fyrir nafnabreytingunni er ágætur. Já, það er margt vitlausara.

miðvikudagur, 13. október 2004

Morgunfundirnir okkar kennaranna hér í bæ halda í mér lífinu þessa dagana. Ef það væri ekki fyrir þá væri maður einn heima og alveg að gefast upp. Að finna samstöðuna og baráttuviljann í hinum hjálpar ótrúlega mikið upp á sálarlífið. Við erum búin að bæta um betur og ætlum saman út að ganga þá morgna sem ekki er fundur. Það er farið að hvarla að mér að það eigi að svelta okkur til hlýðni og það væri örugglega auðvelt ef við styddum ekki hvert annað og eflum þannig dug og þrek. Nú dugir ekkert annað en að herða sultarólina og kreppa hnefann.

sunnudagur, 10. október 2004

Eins og segir á nútíma íslensku var ég ekki alveg að nenna að dressa mig upp í dag klukkan fjögur og fara niður í Kiwanishús í einhverja móttöku. En þar sem ég er góð og gegn Kiwaniseiginkona gerði ég þetta samt. Í bíngógallann fór ég og stormaði niður í hús. Ég sá ekki eftir því. Þarna voru mættir nokkrir Kiwanisfélagar og hvorki meira né minna en heimsforseti Kiwanishreifingarinnar ásamt spúsu sinni. Þessi hjón reyndust vera hin skemmtilegustu og eru veitingahúsaeigendur í Visconsin í Ameríku. Eftir "sætsíingtúr" um Þorlákshöfn, þar sem séra Baldur fór á kostum, var haldið í Hafið Bláa og snæddur kvöldverður. Þar er yndislegt að vera og yndislegt að borða. Maturinn var frábær og nostrað við hvert smáatriði. Kokkurinn var kallaður fram til þess að hrósa honum og birtist þá hún Íris litla (sem er reyndar komin á fertugsaldur) frænka Simma og Gumma Baldurs sem var auðvitað þarna sem kjörumdæmisstjóri. Frábært kvöld með skemmtilegu Kiwanisfólki.
Ég var í afmæli aldarinnar í gærkvöldi. Frábær hugmynd hjá Jóhönnu, Sissu og Bjarna að slá merkisafmælunum sínum saman og halda eina alsherjar veislu. Fengu þau Mundaver lánað og var óslitin skemmtidagskrá í þrjá klukkutíma. Það stendur að þeim öllum svo mikið af góðu og skemmtilegu söngfólki að það var ekkert mál að skella upp skemmtun. Ægilega gaman. Mikil gleði. Mikið stuð og mikið fjör. Umgjörðin öll var flott hjá þeim. Mundaver skreytt og þemað var útilega. Fólk mætti í lopapeysum og gallabuxum og neytti drykkja og matar eins og hver gat í sig látið. Ég geri ráð fyrir að stuðið hafi varað fram undir morgun en úthaldið mitt náði rétt fram yfir miðnætti.

föstudagur, 8. október 2004

Samkvæmt lögmálinu ætti maður að borða minna, jafnvel ekkert, þegar maður er með svo mikla hálsbólgu að það er kvalafullt að kyngja munnvatninu. Nei, auðvitað kann maður ráð við því. Bryður verkjatöflur eins og smartís og étur eins os svín.

fimmtudagur, 7. október 2004


Nú er Lúkas Þorlákur orðinn 11 mánaða og ég hef ekki séð hann síðan í apríl.Svona lítur piltur út í dag, farinn að standa upp, ganga meðfram og sýna töluvert sjálfstæði. Það er sárt að geta ekki knúsað þetta krútt á hverjum degi. Posted by Hello

miðvikudagur, 6. október 2004


Var að fá þessa mynd senda. Hér er Nanna greinilega í hænsakofa hjá Simone hinni frönsku. Ég kom inn í þennan kofa í ágúst s.l.. mig langaði ekki að koma við neitt og passaði mig á því vera bara svona í miðjunnu. Þær mæðgur, Elsa og Nanna, óðu um allt í leit að eggjum og týndu þau í körfu eins og Nanna er með. Hænurnar létu sér fátt um finnast og gögguðu hamingjusamar. Enda eggin góð! Posted by Hello
Ég er ekki enn búin að aðlagast nýja lífinu mínu alveg. Enda gerðist svo margt á skömmum tíma að það þarf tíma til að átta sig. Við fluttum í nýtt hús, Simmi hætti sem sjálfstæður atvinnurekandi og fór að vinna sem launamaður. Ég endurheimti húsmóðurtiltilinn. Þetta er nú nægur biti í háls til að byrja með en allt mjög skemmtilegt. Í gær fór ég svo að fá Moggann inn um lúguna hjá mér. Ég hef ekki flett honum að morgni til í mörg ár. Ekki nennti ég að kaupa hann í blokkinni. Sá mig ekki fara niður á naríunum að sækja hann.
Ef það væri ekki þetta verkfall þá væri lífið dásamlegt.
Verkfallið er niðurdrepandi og ömurlegt.
Ég er ekki í fríi og ekki í vinnunni.
Þetta er einkennileg staða.

fimmtudagur, 30. september 2004

Ég er ekki eingöngu haldin símafælni heldur símsvarafælni einnig. Ég fer alltaf í flækju ef ég verð að tala inn á símsvara og haga mér alltaf eins og bjáni að mér sjálfri finnst svona eftir á. Ég tala einstöku sinnum inn á símsvarann á "labbinu" hans Kalla og þó að ég viti að hann einn skilur íslenskuna verð ég alltaf einhvern veginn önnur en ég er. Tala með breyttri röddu og get engan veginn verið eðlileg. Ekki nóg með það heldur verða skilaboðin eins og ég sé að lesa bréf. Í stað þess að byrja og segja "Hæ, Kallli, þetta er mamma... og koma svo með erindið, þá enda ég á því að segja ókei, bæ, bæ, mamma. Þetta er náttúrulega fyrir neðan allar hellur að vera komin á sextugs og vera enn hrædd við þessi tæki. Ég geri heilmikið í því að vinna bug á símafælninni og ég held að ég hafi lagast. Ég reyni núna að draga ekki að hringja það sem ég verð að hringja heldur dríf ég í að hringja og ... ég hef aldrei meitt mig. En hjartað slær hraðar og lófarnir svitna, sérstalkega ef ég þarf að hringj í opnbera stofnun.

laugardagur, 25. september 2004

Fyrrum nemandi minn og núverandi samstarfsmaður, Stebbi Þorleifs, bjargaði deginum með því að senda mér þessa grein Það er stundum þess virði að borga meira . Það eflir mann í baráttunni að vita af einhverjum þarna úti sem skilur starf grunnskólakennarans.

fimmtudagur, 23. september 2004

Mér fannst nú nóg um á mánudaginn, þegar slitnaði upp úr viðræðum launanefnda, að næsti fundur yrði ekki fyrr en á fimmtudag, þ.e. í dag. Nú voru þær fréttir að berast frá úrvarpinu að fundurinn sem hófst í morgun væri búinn og næsti fundur væri boðaður að viku liðinni.
EFTIR VIKU.
Mér finnst kröfurnar okkar réttmætar. Ég er búin að bíða í 30 ár eftir því að geta lifað af kennaralaununum. Ég vil ekki gera neitt annað en vera kennari en hef þurft að fórna heilmiklu til. Ég skil ekki sveitastjórnamenn að semja ekki við okkur. Það er kominn tími til.

mánudagur, 20. september 2004

Ég vaknaði eldsnemma í morgun til þess að hlusta á fréttir.
Fréttirnar sögðu mér að ég væri komin í verkfall.
Ég koðnaði niður og fann undarlega tilfinningu fara um mig.
Ég trúði því aldrei að það yrði verkfall.
Ég trúði því ekki heldur að Halldór Ásgríms yrði forsætisráðherra.
Hvort tveggja er orðið að veruleika.
Þannig að nú veit ég að allt getur gerst.
Ég ákvað að best væri að líta þannig á að ég hefði fengið óvæntan frídag.
Vil ekki verkfall.
Hvað geri ég í fríi?
Horfi á sjónvarpið,
vafra um húsið.
moppa,
horfi meira á sjónvarpið,
sting í vél,
hlusta á fréttir.
Nei, þetta var ekkert frí.
Ég slakaði ekkert á.
Ég var greinilega í verkfalli.
Ömurlegt.
Ég er í verkfalli.
Það virkar í dag eins og tímaskekkja.
Bara asnalegt.
Samt þarf ég hærra kaup.
Og kaup fyrir alla þá vinnu sem vinn.
Það er bara ekki þannig.
Meiri vinnu hefur verið laumað inn á kennrara án þess að þeir fái greitt fyrir hana.
Hvað getur maður kyngt lengi?
Ekki endalaust.
Nei.


sunnudagur, 19. september 2004


Hann Simmi minn á afmæli í dag. 53 ára. Einu sinni var hann herðabreiður og miðmjór með kolsvart hár og mjög skemmtilegur.. Nú er hann... einhvern veginn öðruvísi en enn skemmtilegur.  Posted by Hello

fimmtudagur, 16. september 2004

Fór í fyrsta sinn í gærmorgun án Simma míns í morgunsundið. Komin af stað í líkamsræktina aftur.... að ég hélt. Vonda veðrið í morgun var notað sem afsökun fyrir því að fara ekki í sund. Ætli ég sé þá ekki komin í gírinn? Það kemur í ljós í fyrramálið.

þriðjudagur, 14. september 2004


Mig langaði svo að prjóna eitthvað sætt handa sjáflri mér og prjónaði þetta sem virkaði eigin-lega ekki neitt neitt, en svo skellti ég þessu í þvottavél og útkoman varð... Posted by Hello

...þessi líka hinn ágætasti hattur. Posted by Hello

mánudagur, 13. september 2004

Hann Simmi minn fór í Króniku í morgun. Ekki til þess að elda heldur til þess að taka draslið saman. Það er sem sagt til sölu allt sem til þarf til þess að reka veitingahús. Ég vildi óska að einhver komi og kaupi eitthvað af þessu því mig langar ekkert að fylla nýja fína bílskúrinn minn af Krónikudóti. Ég er buin að vera að mála skúrinn og gera hann fínan að innan og langar bara að hafa hann þannig. Ef allt dótið kemur austur (austur?) þá fyllist skúrinn algjörlega. Æi! Svo væri nú ekki verra að fá smá aur fyrir þetta. Við borguðum fyrir þetta allt fyrir rúmum tveimur árum.

föstudagur, 10. september 2004

Föstudagur.
Voru þeir ekki til þess að þrífa?
Mig minnir það úr fyrra lífi.
Ég þreif.
Þurrkaði af.
Ekkert ryk.
Pússaði spegla og gler.
Ekkert kám.
Þurrkaði úr gluggakistum.
Hvað?
Það er enginn sandur lengur.
Ryksugaði
eitthvað,
ég veit ekki hvað.
Ég skemmti mér konunglega.
Setti plötu á fóninn.
Eða disk eða hvað það nú heitir.
Skellti í pizzu,
keypti hvítar rósir,
kveikti á 21 kerti
(ég átti ekki fleiri kertastjaka)
beið eftir að maðurinn, sem ég sef, hjá kæmi úr vinnunni.
"Rosalega er sætt, hjá þér elskan:"
Stemmingunni náð.
Föstudagur.

miðvikudagur, 8. september 2004

Ég bara trúi því ekki að þeir ætli að senda okkur í verkfall. Verkfall á ekki við á tuttugustu og fyrstu öldinni. Það er niðurlægjandi að fara í verkfall. Verkfallsvopnið er vopn liðins tíma. Ég vildi að ég hefði lesið grein sem birtist í Mogganum fyrir nokkru síðan sem Kalli sagði mér frá. Greinin fjallar um arðsemi náms. Arðsemi fyrir einstaklinginn og arðsemi fyrir ríkið. Háskólanemar gerðu þessa rannsókn en Kalli vissi ekki hvernig formúlu þeir notuðu. En samkvæmt niðurstöðum þessarar rannsóknar er arðsemi af námi mismikið eftir hvaða nám það er. Ein stétt skar sig þó úr því hún sýndi mínus arðsemi en það voru kennarar. Ég skil ekki af hverju þessu hefur ekki verið hampað og notað í kjarabaráttunni.

þriðjudagur, 7. september 2004

Ég var alveg ákveðin í því í vor að fara í allar þær göngur sem Ferðamálafélag Ölfuss bauð upp á í sumar. Ég hafði alltaf einhverja afsökun að fara ekki þegar til kom. Ég varð að fara í partý til skólastjórans í eitt skiptið, barnabörnin voru hjá mér í annað skipti og svo gleymdi ég mér nokkrum sinnum. Í gær hringdi Jóna Stína og minnti mig á Meitlagönguna klukkan 6. Ég ætlaði að fara að bera við leti en ég sá að að það borgaði sig ekki að láta leti og ómennsku spyrjast um sig þannig að ég dreif mig með. Og það er eins og alltaf í svona fjallgöngu, alveg rosalega gaman. Við vorum 21 í hópnum. Flestir fóru upp á stóra Meitil. Ég lét nægja, ásmt nokkrum öðrum að ganga utan í honum. En það skall á þoka og rigning þannig að Litli Meitill verður að bíða betri tíma. Gangan tók þrjá tíma og komið myrkur þegar við komum aftur í bílana.

sunnudagur, 5. september 2004

Það er gaman að vera heima.
Ég slettti í form,
ryksuga,
elda,
strauja,
þurrka af,
tek til í geymslunni,
mála bílskurinn,
geng frá þvotti,
sting diskum í nýju vélina,
horfi á laufin falla af trjánum,
ber á nátturuflísarnar,
borða morgunmatinn sitjandi við borð,
sópa innkeyrsluna,
labba í búðina þegar vantar eitthvað,
les bækur og blöð í lazy boy,
sit í sófanum í stofunni og hlusta á tónlist,
bý um rúmið mitt,
prjóna lopatöskur.
Er heima.
Heima er best.