Síður

fimmtudagur, 20. janúar 2022

Af fimmtugum krakka


Það er ekki á hverjum degi sem krakkinn manns verður fimmtugur. En það gerðist 22. des sl. Eldri krakkinn.  Áttum því láni að fagna að vera saman á Tenerife og fögnuðum með honum. Þetta var svona eins  og annar í afmæli því stóra veislan var haldin í Trékyllisvík á Ströndum í sumar. En manna gamla þurfti smá fagn á réttum degi. 

Mamma í hálfa öld. 

Mamma stolt af stráknum sínum. 

Hann er bara æði. 

Hann Kalli.


miðvikudagur, 19. janúar 2022

Að kaupa ný föt.


Um þar síðustu áramót strengdi ég ekki beint áramótaheit en ákvað að vera meðvituð um öll fatakaup á árinu sem var í hönd, þ.e. árið 2021. Kannski var ég svona þenkjandi vegna þess að skápurinn minn var ekki lengur fullur af engu til að fara í, heldur átti ég fullt af fötum sem mér þótti vænt og langaði bara að fara í aftur og aftur. Af hverju ætti ég þá að kaupa eitthvað nýtt. 

Ég byrjaði í maí að kaupa mér nýja strigaskó, vegna þess að ég fer mjög oft út að labba en notaði sömu skóna í vinnunni (Meitlinum) og það voru komin göt á skóna þar sem stóra táin er. Næstu kaup var hlýrabolur en hann var keyptur vegna þess að Lindex gaf mér 1000 kr í afmælisgjöf og til þess að nýta þetta fór ég í Lindex á Akureyri og nýtti mér hið frábæra tilboð. 

Seinna fór ég í Lindex á Selfossi og keypti samfellu og bikini þar sem stefnan var sett á Gran Canaria í nóvember.

Síðan gerðist ekker fyrr en á Gran Canaria en þar varð ég mér úti um sandala, sem er nauðsyn á svoleiðis stað og svo valt ég um rauðan kjól sem hlaut viðurnefnið jólakjóll. Já, og svo dúnvesti sem mun koma sér vel í sumar í hjólahýsaferðum um Ísland.

þriðjudagur, 18. janúar 2022

Nýjar útivistarbuxur


Þegar ég bjó fyrir austan, fékk ég fjallgöngudellu. Gat samt ekki hellt mér út í delluna nema eignast réttan klæðnað. Fór að safna mér fötum og fleiru. Keypti mér buxur, sokka og skó á Egilstöðum. Eignaðost síðar úlpu flíspeysur og bakpoka. Var samt ekkert alltaf á fjöllum en þó, fór allavega Fimmvörðuháls. 

Hvað er svona merkilegt við þetta? Jú, það eru búxurnar. Ég var að leggja þeim fyrst í dag. Ég bjó sko fyrir austan á árunum 1996 til 1999. Buxurnar eru 24 ára gamlar. Ég hef mikið notað þær. Ekki endilega á fjöllum heldur á mínum næstum daglega göngutúr. Enda er klobbinn í buxunum orðin heldur lélegur og göt hér og þar. Fékk nýjar buxur í dag sem ég held að dugi mér út ævina.