Síður

miðvikudagur, 26. apríl 2006

Þeir stóðu sig svo sannarlega vel krakkarnir í 10. bekk á uppfærslu sinni á Grease. Í bekknum er hljómsveit, hver stórsöngvarinn á fætur öðrum og frábærir leikarar.
Ég skemmti mér konunglega.
Blessuð sé minning Herberts Gränz.
Hann var jarðsettur í dag, tæplega tvítugur að aldri.

föstudagur, 21. apríl 2006

Nú er lífið skrítið. Ég er aftur orðin sjómannskona. Ég fékk mér ekki nýjan kall, hann Simmi minn fór bara út á sjó. Hættur að smíða og orðinn vélstjóri aftur. Kemur heim skítugur á höndunum. Hann er bara búinn að fara einu sinni út á sjó og leggja netin. Það var í nótt. Hann kom heim um þrjúleytið í dag og átti þá von á að fara aftur um miðnætti eða jafnvel síðar. Svo hringdi skipperinn klukkan átta og hánn átti að vera mættur í Reykjavíkurhöfn klukkan tíu. Við vorum bara að horfa á sjónvarpið í rólegheitum og þá þarf hann hann allt í einu að fara út á sjó. Ég veit ekki hvort ég geti vanist þessu aftur. Ég hélt að þessum kafla i lífi mínu væri lokið. En það á víst aldrei að segja aldrei.

miðvikudagur, 19. apríl 2006

Í gær fékk ég fjármálaráðgjafa í heimsókn. Ekki frá mínum banka heldur öðrum banka. Unga og mjög viðkunnalega konu. Ég var búin að segja henni í símann að bankinn hennar hefði örugglega ekki áhuga á að fá mig í viðskipti. Hún vildi samt koma og fara yfir stöðuna. Ég hafði allan vara á mér því gulrótin var að lækka iðgjöld trygginga. Það finnst mér hljóma eins og ég verði að borga eitthvað meira annars staðar. Þegar við höfðum farið yfir stöðuna sagði konan að ég væri alveg á rétti leið í fjármálum, ég skyldi halda svona áfram, hætta svo að hafa áhyggjur og fara aftur að synda og út að ganga. Svo tók hún utan um mig, kyssti mig á kinnina og kvaddi.
Frábær fjármálaráðgjöf. Ég sat eftir hæstánægð. Hvort bankinn hennar verður ánægður með vinnuna hennar eða ekki kemur mér ekkert við.

föstudagur, 14. apríl 2006


Á meðan doktorinn og familía bjuggu í Iowa, einu af miðvesturríkjum Bandaríkjanna, var ég alltaf uggandi um þau þegar fréttir bárust til Íslands um vindstróka og hvirfilbylji þar í landi. Fyrst efir að þau fluttu út fóru þau eftir fyrirmælum yfirvalda og húktu ofan í kjallara, jafnvel í nokkra klukkutíma, þegar fréttir bárust um að von væri á svona óvætti. Seinna urðu þau kærulausari og hættu að hlaupa ofan í kjallara. Í dag berast þær fréttir að skýstrókur hafi farið yfir Iowa city, borgina þar sem mitt fólk bjó, og orðið einum manni að bana og yfir 20 þúsund heimiili séu núna án rafmagns. Ekki nóg með það heldur fór strókuinn yfir Washington street, götuna þar sem the Midwestfamily (Kalli og kó) bjó, en strókurinn fór yfir húsaröðina á móti þar sem þau bjuggu. Þar léku unglinsbarnið og litla Skotta sér heilmikið á trambólíni sem vinur þeirra átti. Ætli það sé farið út í veður og vind? Og hvað með fólkið sem býr í borginni og við þekkjum?
Ég hef mjög gaman að því að grilla úti. Hef verið í vandræðum í nokkurn tíma vegna grillleysis. Notaðist við lítið kolagrill á svölunum í blokkinni þangað til ég keypti í Ameríku ferðagasgrill. Það er ekki nógu stórt til þess að grilla fyrir matarboð þó það sé stærra en þessi sem eru seld hér heima (það er rétt að allt sé stærra í Ameríku) svo ég hef verið í grillhugleiðingum um nokkurt skeið. Þeim hugleiðingum lauk um jól er við fengum grill í jólagjöf. Keypt í Ameríku. Doktorinn og tengdadóttirin skelltu því með í gáminn með dótinu þeirra. Við, Simmi minn, urðum eiginlega agndofa þegar við fengum það, því við höfðum aldrei ímyndað okkur að við myndum eignast svona stórt grill. Aftur komum við að því að allt er stórt í Ameríku. Við héldum að við myndum aldrei nota nema einn þriðja af grillinu en annað kom í ljós. Við erum í því að grilla þessa dagana. Þegar maður hefur svona mikið pláss þá grillar maður allt. Ég dreifi grænmeti og kartöflum út um allt grill og veitir ekkert af plássinu. Grilligrilligrill. Simmi minn, sem aldrei hefur viljað grilla, kokkurinn sá, skiptir sér af öllu hjá mér og er greinilega að reyna að ýta mér frá eins og hann gerði hér forðum með eldhúsið.
Mér finnst það nú ekkert leiðinlegt.
Á þessari stundu ilmar bökunarlykt úr eldhúsinu.
Ég hef grun um að kokkurinn sé að baka brúntertu.

fimmtudagur, 13. apríl 2006

Hann Simmi minn er eins og barn með nýju græjurnar sínar. Hann keypti sér áðan brauðrist og samlokugrill. Bara völlur á mínum. Hann hefur ekki borðað brauð núna í þrjár vikur eða síðan gamla brauðristin okkar brann yfir. Hann borðar aldrei brauð nema ristað. Gikkurinn sá. Sú gamla var búin að þjóna sínu hlutverki í 20-30 ár. Góð ending. Ég er ekki viss um að sú nýja eigi eftir að duga eins lengi. Mér finnst allt nýtt dót í dag vera bölvað drasl. Jæja, við skulum sjá til.

miðvikudagur, 12. apríl 2006


Lukku Láki er greinilega farinn að greina hljóðkerfisfræðina. Hann biður mömmu sína um kex og pabba sinn um biscuits. Hann talar og talar en yfirleitt segir hann meira en menn fá skilið. Hann er bara tveggja og hálfs. Þegar hann heyrir mömmu sína tala íslensku í símann kemur hann hlaupandi og tekur af henni tólið og segir með spurn í rómnum: "Amma?" "Afi?" Og hvort okkar sem heldur á tólinu hinum meginn við sjóinn verðum uppveðruð og breytum röddinni í smábarnatónsrödd og segjum: "Lúkas, halló, hvað segirðu kallinn minn?" Hann vill helst ræða um áhugamál sitt sem eru teiknimyndafígúrurnar í sjónvarpinu sem við kunnum ekki nógu mikil skil á en reynum okkar besta. Thomas og James og Bob the builder. Þetta eru allt vonandi góðir gæjar, sem gefa prinsinum af Wales gott veganesti.

þriðjudagur, 11. apríl 2006


Unglingsbarnið og litla Skotta eru búin að vera hjá okkur í tvo daga. Doktorinn og tengdadóttirin voru í vandræðum með þau þegar páskfrí skall á. Okkur Simma mínum finnst voða gaman loksins að geta hjálpað til með börnin. Unglingsbarnið leikur sér í tölvunni og hittir gamla vini hér í bæ. Litla Skotta dundar sér við að föndra hitt og þetta og málar og teiknar. Við fórum í sund í dag og undum okkur þar dágóða stund. Þar er búið að setja upp vatnsnuddtæki sem ég lét berja á stífum vöðvum. Alveg frábært.
Eitthvað var litla Skotta að pæla í lífinu og tilverunni og klikkti út með að hún þyrfti að spyrja pabba sinn um ákveðinn hlut.
Amma Gunna: "Já, það er sniðugt hjá þer að spyrja pabba þinn, því pabbar vita svo margt."
Litla Skotta: Já, en þeir vita nú ekki meira en mömmur þeirra!"
Ég varð nú bara upp með mér!

miðvikudagur, 5. apríl 2006

Í helgri bók stendur að Jesú hafi breytt vatni í vín. Hann Simmi minn gerir oft veislumat úr einhverjum ruðum sem hann finnur í ísskápnum. Sullar einhverju saman og bætir við og kryddar pínu. Ég geri ráð fyrir að Jesú hafi notað viðlíkan gjörning. Mér datt þetta í hug í gær þegar ég breytti kjötsúpu í fiskrétt.
Kom svona líka ljómandi vel út þótt ótrúlegt sé.

sunnudagur, 2. apríl 2006

Flott Gellan í gær.
Flott skemmtiatriði úr heimabyggð.
Sum á heimsvísu. Danssýning Júlís og dömunnar hans var stórkostlegur.
Það fannst mér einnig um klassaíska gítarleikinn hans Ómars Bergs.
Og auðvitað stóð Bergheimakórinn sig vel.
Veislustjórinn fínn eins og von var þar sem Bjarni Áskels stóð vaktina.
Maturinn var frábær. Ég vildi bara að ég hefði getað borðað meira. Ótal frábærir fiskréttir eldaðir af Kiwanisfélögum sjálfum.
Stuð í dansinum.
Flott Gellan í gær.