Síður

mánudagur, 28. júní 2004

"Flettu því upp." "Ég skal fletta því upp." Setningar á borð við þessar fóru fyrir brjóstið á börnunum mínum á unglingsárum þeirra. "Oh, hún mamma þarf alltaf að fletta öllu upp." Þeim fannst þetta hallærislegt. En það þurfti stundum að finna út hver væri höfundur ljóðs, hver sagði hvað við hvern í Njálu, stafsetja rétt, eða hvað það nú var sem kom uppá í umræðunni. Í dag væri sjálfsagt farið á netið til að afla upplýsinga.
Ég varð heldur en ekki ánægð um helgina þegar Nanna, litla fjögurra ára, kom að máli við mig með blómvönd í hendi.
"Amma, hvað heita öll þessi blóm?"
"Þetta eru baldursbrá, sóley, geldingahnappur, gleymmérei, gullmura, dagsstjarna en hér er eitt sem ég veit ekki hvað heitir."
"Við skulum þá bara fá bók sem stendur í hvað það heitir," sagði barnið.
Mér finnst ég hafa uppskorið því sem ég sáði.

sunnudagur, 27. júní 2004

Það er aldeilis búið að taka á fótboltanum um helgina.
Höfðnginn, Karl Kolbeinn, spilaði með Ægi á Borgarnesmótinu og dvöldum við þar um helgina. Við áttum samastað á Mótel Venus því við erum langt kominn með kvótann í tjaldútilegu, allavega þegar spáð er rigningu. Ég pakkaði eingöngu niður fatnaði með rigningu í huga og var með hroll um mig alla á meðan. Það rættist sem betur fer úr veðrinu og var alveg þolanlegt alla helgina. Það var dálítill vindur og sólin lét sjá sig öðru hverju og meðan ekki rignir er allt fyrirgefið hvað veður snertir. Ægismenn tefldu fram nokkrum liðum á mótinu og var misjaft gengi þeirra eins og von er vísa. Minn maður lék með 5. flokki og hefði viljað að þeim gengi betur en hann sættir sig ótrúlega vel við lyktir miðað við keppnisskapið sem hann býr yfir. Yngstu krakkarnir í Ægi voru aftur á móti í fyrsta sæti. Gott hjá þeim. Mér finnst langskemmtilegast að fylgjast með þeim spila.
Nanna litla, ömmuljós, var ótrúlega góð alla helgina. Hún er mikill dundari og þarf ekki að hafa mikið fyrir henni. Hún tekur reyndar upp á því stöku sinnum að skipa okkur fyrir og þá hlýðum við bara. "Amma, stattu aðeins upp." Og þá stend ég upp. "Afi, komdu." Og þá kemur afi. Svo einfalt er það nú.

miðvikudagur, 23. júní 2004

Það er gott að vera amma.
Það er gott að finna litla arma um hálsinn.
Það er gott að heyra í gargandi tölvuleikjum.
Það er gott að þurfa stússast í eldhúsinu.
Það er gott að fara út á róló.
Það er gott að fara á fótboltakeppni.
Það er gott að vera amma.
Það er erfitt að sitja lengi á gólfinu í Barbie.

mánudagur, 21. júní 2004

Gestur Einar fékk nokkur prik hjá mér í morgun. Hann kvaddi viðmælanda sinn með orðunum: "Hafðu það gott í vinnunni alla vikuna." Venjulega tala þáttagerðamenn á mánudögum um að löng vinnuvika sé að hefjast og langt sé til helgarinnar. Því er troðið inn í kollinn á landslýð að vinnan sé böl. Enginn fær ósk um að hafa það gott nema það sé að nálgast helgi.
Ég er farin að telja niður þar til amerísku barnabörnin mín lenda á Fróni. Það eru bara tólf tímar núna klukkan sjö. Em þau lögðu af stað til Minneappolis klukkan hálf þrjú í dag. Þetta er ansi langt ferðalag fyrir lítil skinn.

sunnudagur, 20. júní 2004


Erla tók mig með í göngutúr í dag. Simmi keyrði okkur að Hafinu bláa og gengum við Skötubótina alla heim. Ég held að Skötubótin sé best geymda leyndarmál norðan Alpafjalla. Þvílík paradís sem þessi staður er. Við vorum alveg hissa á því að hitta ekki fyrir fólk á ferli því veðrið var svo gott og fegurðin þarna er engu lík. Við hittum reyndar þrjá litla krakka þegar nær dró bænum (þorpinu) en það voru börn aðkomufólks sem var að spila golf að þeirra sögn en börnin voru að leika sér í fjörubörðinu á sundfötum einu fata. Við, Erla, vorum aðeins einn og hálfan tíma að ganga þetta og vorum alsælar þegar við náðum byggð. Ég var búin að synda fimmhundruð metra í lauginni fyrir hádegi þannig að ég átti inni fyrir rjómapönnsu hjá mömmu í kaffinu. Posted by Hello
Það er greinilegt að hvorki Sigmundur Ernir né Sirrý hafa lesið Da Vinci lykilinn. Ég vissi svarið við fimm milljónkróna spurningunni í Viltu vinna milljón. Eingöngu vegna þess að ég er að lesa þessa frábæru bók.

laugardagur, 19. júní 2004


Ég eignaðist nýja græju í dag. Forláta myndavél frá Sony. Ég mátti til með að athuga hvort myndavélin gæti tekið mynd af okkur svona alein ....og það heppnaðist. Posted by Hello
Ég hef lang oftast hlaupið í Kvennahlaupinu. Í dag var ég í Króniku og náði ekki heim nógu snemma. Það var meira að gera en við bjuggumst við. En ég sá konurnar í Mosó mála bæinn bleikan. Þær voru rosalega margar. Ég hélt að þær ætluðu aldrei að hætta að fara framhjá. Þær voru flottar, það er engin spurning. Bleikar og sætar.

föstudagur, 18. júní 2004

Ég fékk höfuðhögg í gær. Fékk fiskikar í hausinn. Í ennið. Var nokkra klukkutíma að jafna mig. Er samt það aum í dag að ég held ég sleppi Jónsmessugöngunni sem ég var búin að ákveða að fara í (þó það sé ekki Jónsmessa alveg strax). Ég hagaði mér eins og hálfviti. Ég átti að fara upp úr lauginni þegar ég fékk karið í hausinn. Í staðinn dró ég það að bakkanum, með gleraugun í hendinni og risakúluna á hausnum og synti svo yfir aftur í stórri slöngu. Næstum ógerlegt að synda þannig en gerði það samt. Varð að standa mig. Ekki láta segja um mig að ég sé aumingi. Við töpuðum samt. Ætluðum að vinna fyrir hönd skólans. Keppni í óhefðbundnum íþróttum. Hausverkurinn sem ég fékk er ólýsanlegur. Það góða við þetta er að nú hef ég afsökun fyrir gleymsku og öðrum furðulegheitum í fari mínu. Ég fékk höfuðhögg.

miðvikudagur, 16. júní 2004


Við, Simmi minn, fórum út í búð áðan og keyptum nokkra flugmiða, þannig að þessar elskur verða komnar í fangið á okkur næsta þriðjudag. Þau ætla að fljúga ein frá Minneappolis til Íslands. Kolbeinn er alvanur þessu flugi, en Nanna síður enda miklu yngri. Þau fá flugfreyjufylgd á leiðinni. Við förum svo með þeim aftur út 2. ágúst og stoppum í nokkra daga. Æ, hvað ég hlakka til að fá að dúllast með þessi barnabörn mín í nokkrar vikur. Posted by Hello

þriðjudagur, 15. júní 2004

Í fyrra lífi, þegar ég var garðeigandi og ræktaði blóm og gras og tré, var miðað við að vera búin að slá einu sinni fyrir sautjánda júní. Allir vildu hafa fínt hjá sér á þjóðhátíðardaginn. Ég bý mér oft til einhverjar furðureglur til þess að muna hitt og þetta. Ég setti þennan slátt alltaf í sambandi við Hörpu litlu Guðfinns, því hún á afmæli fimmtánda og ég sló grasið alltaf þann dag til þess að vera örugglega búin fyrir sautjándann. Eitthvað hefur breyst frá því Harpa var lítil, því nú held ég að allir garðeigendur séu búnir að slá fyrir löngu og jafnvel tvisvar. Enda er Harpa þrítug í dag og margt breytist á skemmri tíma en þrjátíu árum. En af hverju ætti grasspretta að breytast? Það hlýtur að vera til skýring á því. Nenni ekki að pæla í því. Ég á ekki blóm og tré og bara orfá grasstrá. En Harpa litla Guðfinns fær hamingjuóskir frá mér með daginn.

mánudagur, 14. júní 2004

Tilfinningasveiflur

Allt er autt
húsið er tómt
hugurinn eirðarlaus
hjartað dapurt
sálin ein
þar til hurð er skellt
og söngur ómar
úr forstofunni.

sunnudagur, 13. júní 2004


Messan á Strönd í dag var tekin upp og verður útvarpað 8. ágúst. Við, í Söngfélaginu, stóðum okkur alveg þokkalega held ég. Séra Baldur talaði í prédikun sinni um velmegun okkar vesturlandabúa og fátækt, sjúkdóma og eymd annars staðar í veröldinni. Ýmislegt sem hann fjallaði um kom við kaunin. Fimm miljónir barna deyja úr sjúkdómum á ári í heiminum. Helmingur jarðarbúa þarf að lifa á 150 krónum á dag. Ríkidæmi okkar vesturlanda er fátækt annarra að þakka. Maður hrekkur við og íhugar smástund og fer svo heim og eldar góðan mat og belgir sig út þar til maður stendur á blístri. Mér kom í hug ljóð Njarðar P. Njarðvík, Barn í Bíafra.

Barn í Bíafra
bregður upp mynd sinni
eitt andartak
guðar það
á glugga sjónvarpsins

eitt andartk
horfir hungrið
inn í huga þinn
úr tærðu andliti
angistarfulls barns

eitt andartak
horfist sekt þín
í augu við sekt þína

eitt andartak
kemst þú við
klökknar og segir:
blessað barn
hvað þú átt bágt

og slekkur á sjónvarpinu
 Posted by Hello

föstudagur, 11. júní 2004


Fyrstu mánuðina sem Lúkas Þorlákur var til var hann svo alvarlegur að það var eins og hann bæri á herðum sér allar heimsins áhyggjur. Eftir að hann lærði að brosa virðist hann ekki hafa hætt því. Núna er eins og að lífið og tilveran sé bara til þess að hafa gaman af. Hann er alltaf jafn hress og kátur.  Posted by Hello

fimmtudagur, 10. júní 2004

Ég hef fylgst spennt með útdrætti Happdrætti Háskólans í kvöld. Skipst á að kíkja inn á textavarpið og heimasíðu happdrættisins. Ég á ekki miða í happdrættinu en við sem erum saman í léttvínsklúbbi notum öftustu tölu hæsta vinnings sem vinningsnúmer í litla skemmtilega leiknum okkar. Loksins birtist vinningsskráin á heimsíðunni. Sem betur fer vann ég ekki núna. Ég vildi alveg eiga allar flöskurnar tíu, það er ekki það. En af því ég fékk þær síðast vildi ég að einhver annar fengi pottinn núna. Það liti svo illa út ef ég fengi pottinn aftur af því ég kom klúbbnum á laggirnar. Það var heppinn kona, stödd í útlöndum, sem vann. Ég er búin að senda henni og öllum hinum sms skilaboð. Alvaldur aðalráður verður að standa sig sem formaður, skráningarstjóri, móttökustjóri og upplýsingafulltrúi klúbbsins, fyrst hann var að stofna hann.

miðvikudagur, 9. júní 2004


Vísindamaðurinn Kalli
Nýjustu rannsóknir í Bandaríkjunum sýna að....Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa komist að....Þannig hljóma oft fréttir í ljósvakamiðlum eða fréttir í blöðum. Ég sé alltaf fyrir mér svakalega karla. Mikla spekinga. Mikla fræðimenn. Nú er strákurinn minn að verða einn af þeim. Jafnvel orðinn einn af þeim. Hann er alltaf að rannsaka svefn. Mikill svefnáhugamaður. Rannsakar rottuunga. Skrifar doktorsritgerð um það sem hann kemst að. Það er ekki hægt að segja frá því í stuttu máli hvað hann er að gera. Það er svo flókið. Það sem ég skil er að hann var valinn besti nemandinn í vísindum af Sleeping Research Society og fékk verðlaun. Þúsundir nema og annarra sóttu um með því að senda inn skýrslu af því sem þeir eru að gera. Þar á meðal prófessorinn hans Kalla. Kalli minn, strákurinn minn, var bestur. Hann var valinn besti nemandinn. Hann er núna í Fíladelfíu að taka á móti verðlaununum og verður þar af leiðandi að halda fyrirlestur á ráðstefnunni sem er haldinn í kjöfarið á valinu. Duglegur strákur Kalli. Strákurinn minn. Posted by Hello

þriðjudagur, 8. júní 2004


Þegar ég var sjö ára fékk ég hjól í afmælisgjöf. Pabbi keypti það af Páli sýslumanni og gerði það upp handa mér. Drífa Páls, sýslumannsdóttir, var fyrri eigandi. Ég var yfir mig hamingjusöm með "nýja" hjólið og Gréta systir fékk gamla hjólið mitt sem var stórt og mikið þrihjól. Ég man þegar ég eignaðist það, aðeins þriggja ára gömul. Það var keypt í Fálkanum og ég hjólaði út úr búðinni. Mjög stolt. Þriggja ára stór stelpa. Þessi mynd er tekin snemma morguns á 7 ára afmælisdaginn minn, 8.júní 1957.Sitjandi á afmælisgjöfinni.Ég náði ekki alveg niður á pedalann. Posted by Hello
Aumingja maðurinn, sem ég tek til hjá, varð svo um þegar hann fattaði um hádegisbil að það var afmælisdagurinn minn í dag að hann gat ekki á sér heilum tekið. Hann var ekki búinn að kaupa neina gjöf eða neitt. Mér var nú nokk sama. Afmælin koma of hratt orðið finnst mér. En þessi elska heimtaði að gefa mér skó. Hann vissi auðvitað að ég er með skódellu og ég sló hendinni ekki á móti þessu boði. Ég á nýja skó núna. Flotta skó.

mánudagur, 7. júní 2004

Ég ætla rétt að vona það að viðgerðinni á íþróttahúsinu fari að ljúka svo ég geti farið að synda aftur, því nú hlassast utan á mig aukakílóin aftur. Þvílíkt óréttlæti að mega ekki slaka á smá stund. Ég hef kannski borðað eitthvað meira undafarið en ég má en maður má bara ekki neitt. Maður má aldrei ekki neitt. Ég fengi ekki glansmynd hjá de danske núna. Eftir kvöldið í kvöld ætla ég að hella mér aftur í prógrammið þeirra. Það virkar ef maður fer eftir því. Og sundið, það virkar.

Keltneski víkingurinn Lúkas Þorlákur er orðinn 7 mánaða gamall. Varð það í gær. Á myndinni er hann um 5 mánaða í heimsókln hjá Gunnu ömmu og Simma afa.  Posted by Hello

sunnudagur, 6. júní 2004

Eftir messuna í morgun fórum við að leiðinu hennar tengdamömmu. Kalli tengdapabbi, þrír synir hans og við Jóna Stína. Við skiljum það ekki enn að hún skuli vera farin. Hún sem var sameiningartákn fjölskyldunnar. Hún hélt okkur saman, bar fréttir á milli og passaði okkur öll. Bar umhyggju fyrir okkur öllum, hlúði að og lét okkur finna fyrir væntumþykju, ást og blíðu. Margir spyrja okkur hvernig Kalli hafi það. Við getum aldrei dáðst nóg að honum. Hann er ótrúlegur. Ber harm sinn í hljóði en sýnir okkur skemmtilegu hliðina á sér. Við leiðið hlúði hann að blómunum og fannst þau ekki alveg nógu vel sett niður. "Það vantar aðeins meira mín megin," sagði hann.
Sjómannadagur
Selvogsbrautin er eins og gata í stórborg þessa stundina. Margir á ferli. Bílar aka um og fólk labbar úti í góða veðrinu. Greinilega mikið um að vera í bænum. Straumurinn liggur niður að höfn. Veðrið hefur allt að segja. Góður sjómannadagur.
Nú er ellin farin að segja til sín. Við nenntum ekki á sjómannaballið í gærkvöldi. Elduðum bara góðan mat, reyndar eins og alltaf, og kúrðum heima. Frábært. Höfðum það huggulegt. Ég söng svo í messu í morgun og ég var stolt af því að sjá að fimmtii hluti kirkjugesta var mitt fólk.

laugardagur, 5. júní 2004

Það var nóg að gera í Króniku í dag. Matur sendur út og margir borðuðu inni. Ég er bara orðin nokkuð lúnkinn við að útbúa crépes.
Bæði við að búa til pönnukökuna stóru á crépespönnunni og að að gera fyllinguna. Borðaði svoleiðis sjálf eftir sjálfa mig. Ummmm....

Hér er hið myndarlega og skemmtilega starfsfólk skólans. Posted by Hello
Við, Simmi minn, fórum í gær með starfsfólki skólans að sjá söngleikinn Chicago. Frábær sýning. Flottir dansar, flottir búningar, flottir strákar og flottar stelpur. Söngurinn æðislegur. Eftirminnilegur er leikur Eggerts Þorleifssonar. Ég hef aldrei "fílað" hann almennilega sem leikara. En hann fékk mörg prik hjá mér í gær fyrir sinn leik. Ég sá hann allt í einu í nýju ljósi. Flottur leikari. Skemmtilegt kvöld.

föstudagur, 4. júní 2004

Síðasti starfsmannafundurinnn var í morgun þó svo tveir vinnudagar séu eftir af þessu skólaári. Við, Ásta og Jón, notuðum tækifærið og buðum upp á afmæliskaffi. Slógum okkur saman. Buðum upp á brauð frá Mása og ýmislegt gúmmulaði með framleitt hér á landi eða útlöndum. Skemmtilegur siður að afmælisbörn bjóði upp á eitthvað. Sumir taka þetta alvarlega aðrir ekki. Eftir að skólaárið var lengt hef ég átt afmæli á skólatíma og það er svo í ár. En þegar ég var lítil átti ég afmæli um mitt sumar. Mér finnst það alls ekki lengur. Það er ekki einleikið hvað tíminn getur breyst á marga vegu.

miðvikudagur, 2. júní 2004

Ef ég fyndi rosalega mikið til í löppinni færi ég til Helga og kvartaði yfir því, svakalega aum, og bæri mig illa og segði honum að ég vissi bara ekkert hvað amaði að mér en ég vonaði að hann fyndi eitthvað út úr því. Þegar maðurinn, sem ég skúra hjá, finnur til í löppinni gengur hann draghaltur í hálfan mánuð og þegar hann getur varla dregist um hosiló lengur hringir hann í Helga, eftir áeggjan mína, og segir honum hvað sé að sér og hvernig pillur hann þurfi. Ég skil þetta ekki alveg, en hann er ekki haltur þessa stundina. Hann hefði kannski átt að verða læknir!

þriðjudagur, 1. júní 2004

Rigning.
Æ,æ.
Samt hlýtt og gott veður.
En blautt.
Rennandi blautt.