miðvikudagur, 30. júlí 2014
Dótla heim
Er svo spennt fyrir morgundeginum. Dótla kemur á landið kalda með báða strákana sína. Dave hefur ekki komið í nokkur ár og núna stendur til að sýna honum íslenska náttúru og landslög. Það er ekki alveg rétt sem Kalli heldur fram að Dave hafi aldrei fengið að sjá neitt nema Þorlákshöfn. Við höfum farið með hann gullna hringinn og ég veit ekki betur en að honum hafi fundist það bara gaman. Vonandi á hann eftir að njóta Íslands uppi í sveit með útsýni yfir uppsveitir Árnessýslu.
laugardagur, 4. janúar 2014
Aftur í veitingabransann
![]() |
| Gerum rosalega góðar pizzur |
Aldrei veit maður ekki neitt. Er maður ekki bara komin í svona djobb, allt í einu og óforvarandis. Við, Simmi minn, hugsuðum reyndar um þetta í nokkurn tíma og slóum úr og í með það að fara að reka veitingahús enn og aftur. Aðra stundina vorum við ákveðin í því að við værum búin með þennan pakka. Við gætum ekki á gamals aldri verið í vinnunni eftir kvöldmat en viti menn við gátum líka fundið milljón ljósa punkta við að fara að reka veitingastað og hér erum við. Að baka pizzur, steikja hammara og ýmsa aðra góða rétti,brosandi og bjóðandi góðan dag, bjóða fólk velkomið og þjóna á alla lund. Já, aldrei skyldi maður segja aldrei.
fimmtudagur, 2. janúar 2014
Komin á klakann
![]() |
| Ungur nemur, gamall temur |
Þegar við lentum á Fróni, með dótlu og Lúkas með okkur urðum við að koma við á tveimur stöðum til að kaupa inn fyrir Víkingpizza. Við náðum ekki mikilli hvíld áður en við urðum að standa vaktina og baka pizzur. Það var rosalega þægilegt kvöldið, enginn asi, bara jafnt að gera frá fimm til hálf átta. Gott fyrir lúna ferðalanga. Svava Rán og Lúkas komu og borðuðu hjá okkur. Honum finnst ekkert betra en kjúklinganaggar og nóg er til af þeim hjá okkur.
miðvikudagur, 1. janúar 2014
Nýtt ár
![]() |
| Lógóið fyrir Víkingpizza |
Á móti okkur, Simma mínum, tekur nýjasta afkvæmið sem er rekstur Víkingpizza en þann stað byrjuðum við að reka 1. des sl. Við héldum að við værum búin með þann pakka, þ.e. að reka veitingahús en aldrei skyldi maður segja aldrei og við erum bara spennt fyrir þessum rekstri og nýja árið leggst vel í okkur. Mikil vinna bíður okkar en við höfum það mottó að vinna hafi ekki drepið neinn.


