Ég er komin í svo mikið jólaundirbúningsskap að ég get ekki leynt því lengur. Ég hef notað verkfallið til jólaföndurs (og slugs og snúið sólarhringnum við, en það er önnur saga) og er langt komin með það í huganum hvernig ég ætla að skreyta nýja húsið mitt að utan og ég get varla beðið með að byrja.
Ég er búin að sauma í höndunum snjókarl, jólalegan, sem er kominn upp á vegg; jóladagatal, bara fyrir okkur gamla settið; rosaflottan jólatrésdúk; mála spýtujólasveina, sem pabbi sagaði út í nýju söginni og nú er ég að klára að sauma bæði í höndum og vél, jólasveinatríó. Ef ég held svona áfram þarf ég ekki að sækja kassana útí skúr því ég hef ekki pláss fyrir meira dót. Og þó, það er lífsnauðsyn að ná í e-ð af gamla dótinu, því það eru svo miklar tilfinningar tengdar sumum hlutunum.
Ég fór áðan út í Krónu (erfitt að segja ekki kuffulag) og keypti efni í ekta ensku jólakökuna en á ekki koníak þannig að ég verð að bíða með að baka hana þangað til á morgun eða hinn.
Ég get svarið það, það er verið að spila jólalag í útvarpinu!!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli