Draumar manns rætast stundum í afkomendunum. Minn draumur hefur verið að fara til Liverpool, á Bítlaslóðir, síðan ég byrjaði að elska, dá og dýrka Bítlana fyrir margt löngu. Lúkas Þorlákur skrapp þangað í gær. Reyndar ekki að hitta Bítlana heldur ofnæmislækni. Hann er sem betur fer í góðum gír og von um að ofnæmið eldist af honum. En hann keyrði með mömmu sinni og pabba eftir Penny Lane.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli