Síður

föstudagur, 30. júní 2006

Þarna er máske partur af skýringunni. Kameltáin þykir ekki fallegt fyrirbæri.

fimmtudagur, 29. júní 2006

Ég get alveg samþykkt hinar ólíklegustu lýtaaðgerðir ef þær eru til þess að viðkomandi líður líkamlega (og/eða andlega) betur á eftir. En þegar skapabarmar eru það nýjasta sem borið er á markaðstorg útlitsóánægjunnar þá staldra ég við. Hvert stefnir samfélagið með konur þessa lands? Af hverju mega skapabarmar ekki lengur vera eins og þeir koma af skepnunni(eða á skepnunni)?
Fyrir ekki svo ýkja margt löngu roðnuðu karlmenn ef þeir sáu glitta í beran ökla á konu en nú þiggja þeir af þeim háar peningaupphæðir fyrir að skera af þeim skapabarmanna í trú kvennanna að þær séu með ljóta eða of stóra barma. Hver kom þeirri firru inn í hug kvenna? Þetta skyldi þó ekki vera karllægur hugsunarháttur? Ég er nú svo skrítin að þegar ég hef tekið eftir því að barmar á konu koma í ljós sinn hvoru megin við saum buxna þá hef ég hugsað með mér: "Æ,æ, hún þyrfti að fá sér buxur í stærra númeri." Aldrei dottið í hug að eitthvað gæti verið að börmunum.!!!
Höfum við Vesturlandabúar ekki fordæmt umskurð kvenna í Austurlöndum?
Hvílík hræsni er þá hægt að segja núna.

miðvikudagur, 21. júní 2006


Hún er ótrúleg tækni nútímans.
Hann Simmi minn hann hringdi í mig
frá Vestmannaeyjahöfn um hálf tólf leytið.
Á meðan hann talaði við mig tók skipsfélagi hans
af honum mynd og sendi mér og ég gat skoðað hana
á meðan við vorum enn að tala saman.
Furðuleg þessi tækni.

Sumarsólstöður og loksins kom sumarið. Ég lagðist marflöt á pallinn minn og sólaði á mér kroppinn. Þá fyrst er komið sumar þegar það er hægt.
Ég skellti líka grenitrénu í holuna á miðri flötinni, hlúði vel að því en nennti alls ekki að sníkja mér einhvers staðar hrossaskít í botninn á holunni. Ég vona að moldin sé næringarrík og svo á ég örugglega eftir að gefa trénu áburð.
Þó að mér finnist sólríkir dagar dásamlegir þá er ég ekki síður fyrir skammdegið, ljós og kertaljós og þess vegna sé ég tréð fyrir mér um jólaleytið með ljósum.

þriðjudagur, 20. júní 2006


Ég er nákvæmlega núna í tilvistarkreppu. Ég setti stóla út i garð í vor, bæði að vestan og austan, en ég hef ekki getað notið þess að sitja mikið í þeim því þeir eru alltaf blautir. Rigning, rigning, rigning.
Og svo fást ekki sjóvettlingar í sjoppunni. Ég hef ekki spurt um þá í 10 ár eða svo en mér er alveg sama það eru fleiri en hann Simmi minn sem stunda sjó, eða hvað. Hvar á ég að kaupa handa honum sjóvettlinga??? Ég bara spur!

mánudagur, 19. júní 2006


Ég er búin að vera að dúllast í garðinum í dag. Bæta mold í trjábeðin og snyrta til í þeim. Það er lítur bara nokkuð huggulega út hjá mér. Ég bætti nokkrum runnum við í fyrra og þeir koma vel undan vetri. Í dag keypti ég grenitré sem á að fara í holu sem er á miðri lóðinni. Ég býst við að geta sett á það 10 ljósa seríu um næstu jól og svo verður spennandi að sjá hve ljósunum getur fjölgað ár frá ári.

sunnudagur, 18. júní 2006


Á föstudag, eftir að Simmi minn setti nýja vatnsdælu í Sólbrekku og græjaði í hana 220 volta rafmagn, þá tengdum við og brunuðum út úr rigningunni. Við erum svo heppinn að eiga veðurspekinga að vinum og vandamönnum og treystum alfarið á þá hvað veður snertir. Það var sem sagt ekið að Kirkjubæjarklaustri og það reyndist rétt hjá þeim veðurglöggu, þar var hið besta sumarveður og blíða. Undum við okkur þar í góðra vina hópi um helgina. Mér finnst þessar helgarútilegar alveg ómissandi. Þar hittir maður fólk sem maður hittir allt of sjaldan. Núna tjölduðu (eða lögðu hjólhýsum öllu heldur) hjá okkur kærir og elskulegir vinir eins Emma mín Granz með sinn ektamann Gísla, sem fagnaði 52 ára afmæli, og Sjöfn og Steini, sem ég hitti bara einu sinni á ári í jólaföndri, og fleiri Selfyssingar sem ég hitti ekki að öllu jöfnu. Steini tók upp gítarinn og þegar farið er að syngja er bara gaman.
Ég hét því í vor að ég skyldi skoða einhvern nýjan blett á landinu mínu á hverju ári hér eftir. Ég er búin með þann kvótann núna því við keyrðum inn að Fjaðrárgili en þar hef ég aldrei komið áður. Þar er enn ein náttúruperlan okkar.
Simmi minn horfir inn eftir gilinu á myndinni.

fimmtudagur, 15. júní 2006


Ég er svo sveitó að ég botna ekkert í flugfargjöldum. Ég var að skoða það um daginn hvað það kostaði að skreppa til Manchester og ég fann netsmell á 55.900 kr. fyrir okkur diskódressið. Ég keypti ferðina ekki þá, þurfti aðeins að pæla en var skíthrædd um að verðið hækkaði ef ég biði of lengi. Í morgun skellti ég mér aftur á Netið og keypti ferð, og viti menn, hún kostar bara 39.900 kr.
Lukkan yfir mér.
Græddi 16.000 þúsund kall.
Það var ekki verra.

þriðjudagur, 13. júní 2006


Nanna litla, ömmustelpa, dvelur hjá mér um þeessar mundir (búin að vera eina nótt). Hún sagði upp úr þurru áðan: "Ef ég væri forsetinn á Íslandi þá mundi ég segja öllu fólki á Íslandi að koma í forsetahúsið og þegar allir væru komnir mundi ég segja þeim að það væri alveg bannað að selja eiturefni á landinu."
Góð tillaga hjá þeirri stuttu.
Bara ef lífið væri svona einfalt.

sunnudagur, 11. júní 2006


Við, Simmi minn, fórum í sjómannamessu í morgun eins og við erum vön að gera á Sjómannadegi. Hér áður fyrr söng ég með kórnum en hann sat niðri í kirkjuskipinu, oft með pabba sínum. Nú sátum við saman og ég stóðst ekki freistinguna að syngja með kórnum í sætinu mínu. Séra Baldur fór á kostum í predikun dagsins eins og hans er von og vísa. Hann sagði sögu tilurðar þess að Þorlákshöfn fékk þetta nafn. Ég er búin að kunna þessa sögu lengi en Baldur gerði hana svo lifandi að unun var á að hlýða.
Eftir messu var vígður minnisvarði um drukknaða ástvini við mjög hátíðlega afhöfn.

Ég fór á Litla róló í gær að leika mér.
Það var rosalega gaman.
Það komu ótrúlega margir krakkar líka að leika.
Við fórum í danskan og hollí hú og fuglafit.
Það komu ekki allir sem fengu bréf en samt margir.

Þær stöllur Lóló, Rúna. Eygló og Sessa eiga heiður skilið að hafa hrint þessari frábæru hugmynd í verk að boða alla krakka, sem fæddust um miðbik síðustu aldar þ.e. frá 1940-1960 og ólust upp í Smáratúni á Selfossi, á Litla róló til að rifja upp liðna tíð og hafa gaman. Sagt er að Smáratún hafi verið fjölmennasta barnagatan á Selfossi á þessum árum. Enda fengu 60 manns bréf um þessa endurfundi þrátt fyrir að fleiri hafi konið við sögu.
Í góðu veðri gengum við Smáratúnið og það var staldrað við um stund hjá hverju húsi og þeir sem voru mættir og höfðu alist upp þar urðu að stilla sér upp fyrir myndatöku og segja frá því sem kom upp í hugann á þeirri stundu.
Minningarnar streymdu fram og flæddu um hugann. Ég hitti þarna gamla kæra vini sem ég hef ekki hitt lengi, aðra held ég góðu sambandi við (þó að aldrei sé nóg gert) og sumum var ég búin að steingleyma. Ég er nú bara þannig, því miður. En það rifjaðist upp fyrir mér hver var hvað og þá var eins og tíminn hefði staðið í stað. Það var eins og við hefðum alla tíð verið að leika okkur á Litla róló.

Það var hundrað prósent mæting úr Smáratúni 3.
Rúnar, Eygló og Emma af efri hæðinni og Gunna ,Gréta og Rut af neðri hæðinni.

föstudagur, 9. júní 2006


Nú á ég bágt.
HM í fótbolta er byrjað.
En það er ekkert á miðað við hvað hann Simmi minn á bágt. Stóra sjónvarpið okkar er bilað. Það er komið í viðgerð en verður ekki tilbúið fyrr en eftir helgi. Þatta er forláta SONY sjónvarp sem við keyptum á Egilsstöðum þegar við vorum vertar á Tærgesen Reyðarfirði. Viðgerðarmaðurinn segir að það borgi sig að gera við það því það sé svo flott og gott. Enda kostaði það heilmikið á sínum tíma.
En nú situr fótboltaáhugamaður heimilisins við 14 tommu skjá og rýnir í hann til að reyna að sjá hvaða karlar eru að hlaupa fram og til baka á græna grasinu þarna á milli markanna.

fimmtudagur, 8. júní 2006


Já, já,
þau eru orðin
56 árin.
Það ber ekki á öðru.

þriðjudagur, 6. júní 2006

Við Simmi minn tengdum Sólbrekku aftan í jeppann á laugardaginn og brunuðum að Flúðum. Okkur langaði að sjá hvernig Sólbrekka kæmi undan vetri og svo langaði okkur í útilegu. Það fannst smá bilerí í Sólbrekku. Vatnsdælan hafði sprungið vegna frosta. Ég vissi ekki að það þyrfti að tæma vatn úr dælunni áður en Sólbrekka færi í vetrargeymslu. Hann Simmi minn er búin að gera við þetta. Við undum okkur vel á Flúðum í bongóblíðu við afslöppun, sund, rölt, grill og spjall við fólk. Við vöknuðum því við vondan draum á Hvítasunnudagsmorgun. Rumpulýður hafði farið yfir svæðið og rænt mat fá nágrönnum okkar en tekið ferðagasgrillið okkar frábæra, sem við keyptum í Ameríku í hittifyrra, og stól. Simmi minn fann grillið við skemmtistaðinn Útlagann, mikið skemmt en stólinn erum við að vona að tjaldvörðurinn hafi fundið og eigi eftir að senda okkur. Það er svona útileguleisíboj, annar af tveimur, en við notum þessa stóla líka í garðinum okkar.
Verst var tilfinningin sem sat í manni á eftir. Óhugnaður og auðvitað reiði. Samt var meiri óhugnaður í mér. Því fólk var vitni að þessu en þorði ekki að aðhafast neitt. Ég sé gaurana fyrir mér, skemmta sér rosalega vel, borðandi annarra manna mat, sitjandi á annarra manna stólum og grillandi á annarra manna grilli. Og þeim var skítsama.
Helvítis beinin.
Þeir voru heppnir að vera ekki á svæðinu þegar Simmi var sem reiðastur.
Helvítin að tarna.
Í þokkabót kláruðu þeir úr gaskútnum mínu.
Helvítis ormarnir.

fimmtudagur, 1. júní 2006


Það var öðruvísi að hjóla í vinnuna í morgun en hina morgnana. Engin börn á leiðinni og nánast engin umferð við skólann. Það var vinnudagur án nemenda í dag og alveg feykinóg að gera samt. Það er heilmikið mál að færa inn allar einkunnir og yfirfara þannig að allt sé rétt gert. Mentor auðveldar vinnuna heilmikið en kerfið var alltaf að detta út svo það tafði okkur svolítið. En allt hafðist þetta að lokum og allt er tilbúið fyrir skólaslitin á morgun.
Skólaslit.
Þrítugustu og fimmtu mín sem kennari.
Þrítugust og fimmtu skólaslitin.