Síður

mánudagur, 28. nóvember 2011

Minningarorð

Ásta og Simmi sumarið 2004

Það líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um Ástu mágkonu.  Ég sakna hennar svo mikið og átti eftir að gera svo margt með henni. Hún dó, aðeins 65 ára gömul 23. júlí s.l og var jarðsungin frá Hallgrímskirkju þann 5. ágúst.  Hún var jarðsett í Þorlákshöfn, rétt hjá mömmu sinni.

Ég man fyrst eftir Ástu sem ungri stúlku í Þorlákshöfn, úti að ganga með Baldvin kaupfélagsstjóra. Mér fannst það mjög rómantískt. Hún hefur líklega verið skiptinemi í Ameríku  fyrsta sumarið mitt í Þorlákshöfn, svo göngutúrar með Baldvin hafa verið sumarið 1965  eða 1966.

Það var svo 1969 sem ég fer að koma á heimili foreldra hennar sem kærasta Simma en þá er Ásta farin að búa með Jonna og Hrefna litla fædd. Það var alltaf svo gaman að koma til þeirra í heimsókn enda vel tekið á móti okkur. Margar góðar minningar á ég  um Ástu og Jonna, Dóru Sif og Hrefnu.  Fyrsta sólarlandaferðin var farin með  þeim á Costa del sol. Mér fannst þau svo sigld og klár og flott og fín enda bjuggu þau í Noregi um tíma þar sem þau stunduðu bæði nám. Ásta var búin með hjúkrunarskólann og bætti við sig heilsuverndarhjúkrun sem hún vann svo við í Reykjavík í mörg ár.  Þegar þau fluttu svo seinna til Gautaborgar í Svíþjóð, í frekara nám, fylgdum við Simmi þeim út og gerðum úr þessu frábæra skemmtiferð með  viðkomu í Kaupmannahöfn. Þar kynnti Jonni fyrir okkur þeim ágæta mat pizza og hann fór með okkur á jazzbúllu.  Upplifun fyrir okkur Simma. 

Ásta var mikil smekkmanneskja, hvort sem það var klæðnaður eða híbýlaprýði. Hún var alltaf svo vel klædd og kunni að velja sér  fatnað sem kælddi hana. Hárið alltaf fínt og stíllinn allur elegant. Hún var lágvaxin en var samt svo stór, hnarreist og spengileg.

Það var sama hvar hún bjó sér heimili, það var alltaf fallegt. Hún vildi hafa fallega hluti í kringum sig og kunni að velja saman það sem passaði.  Allt frá húsgögnum, myndum á veggjum og niður í smæstu hluti sem hún skreytti heimilið með var á réttum stað og féll saman.

Hún unni góðri, sígildri tónlist og var dugleg að sækja menningarviðburði, leikhús og tónleika.

Ekkert var eins gaman og þegar hún bauð okkur Simma í mat. Matarboðin hennar voru svo glæsileg. Nostrað við hvert smáatriði, hvort sem það var matseldin sjálf , hvernig maturinn var framreiddur eða hvernig lagt var á borð.  Það skipti hana miklu máli að hafa allt fallega borið fram.  Fyrir utan hvað hún kunni vel að leggja á borð var hún frábær kokkur. Það var alltaf eitthvað spennandi  í pottunum hennar. Einu sinni þegar hún bjó á Seyðisfirði, með Ingimundi, hafði hún mikið fyrir því að ná í hreindýrakjöt, því hún vildi allt það besta fyrir Simma bróður. Hún varð því frekar sár þegar hún komst að hvers konar gikkur hann er því hann vill helst ekki prófa neitt nýtt.

Ásta var mikil heimsmanneskja. Hún hafði komið til margra landa og hafði mjög gaman af að ferðast. Hún kom oft til Rómar eftir að Hrefna flutti þangað enda fylgdist hún vel með barnabörnunum þremur og reyndist þeim afar góð amma. Hún fylgdist líka vel með börnum systkina sinna og var dugleg að spyrja um þau öll. Síðasta utanlandsferið hennar var til þess að ljúka við Jakobsveginn. Hún gekk hann, ásamt vinkonum sínum, í þremur áföngum. Hún lagði ríka áherslu á að klára seinasta hlutann í vor. Hún var orðin veik þegar hún gekk en krafturinn svo mikill að það var ekki annað viðkomandi en að ljúka við verkið.

Ásta fékk sýkingu í lungun sem leiddi hana til dauða. Mig grunaði ekki, þegar við hittumst 17.júní í Reykjavík og fengum okkur að borða á veitingahúsi, að það yrði síðasta máltíðin okkar saman.

Lífið getur verið hræðilega óréttlátt. Ásta átti eftir að gera svo margt.

Jólaundirbúningur.

Aðventukransinn minn
Í gamla daga  væri ég um þessar mundir farin að anda hraðar og alveg að fara á límingunum yfir því hvað jólin nálgast hratt og að það ætti eftir að gera allt fyrir jólin. Nú er allt breytt hjá mér. Ég læt duga að þvo gardínur og þrífa glugga og ég geri það áður en jólaljósin eru hengd upp. Það hefur nú þegar verið gert. Og ég bóna gólfflísarnar með þar til gerðu flísabóni. Ég er búin að kaupa bónið og byrjuð að undirbúa vinnuna.
Ég hef líka alltaf bakað heilmikið fyrir jól en hent kökunum úr stömpunum í desember að ári svo nýju kökurnar fái pláss. Ég tók þá ákvörðun núna að baka ekki neitt. Ég bakaði nú samt í gær eina smákökusort en það var allt fyrir Nönnu ömmustelpu. Hún bakaði kökur í skólanum sem henni fannst svo góðar en fékk ekki að fara með þær heim af því það á að borða þær á litlu jólunum í skólanum. Hún var það klók að skrifa niður uppskriftina og mundi hana það vel að við gátum skellt okkur í að baka. Í ljós kom að þetta voru rúsínukökurnar sem mamma bakaði alltaf fyrir jólin í den og voru mitt uppáhald nema hvað rúsínum hafði verið skipt út fyrir súkkulaði. Ég bakaði líka eina skúffuköku fyrir hann Simma minn. Hann er allt í einu eitthvað voða spenntur fyrir því að eiga brúnköku sem hann getur nælt sér í öðru hverju með mjólkurglasi. Mér finnst gaman að baka og mun að sjálfsögðu verða við þessari ósk. En fullir stampar af smákökum verða ekki í skápunum um þessi jól.
Það gæti nú samt dottið í mig að baka smá fyrir mömmu.
Tvær þrjár smákökusortir.
Jafnvel lagtertu.

sunnudagur, 20. nóvember 2011

Ljósatré

Við, Simmi minn, notuðum góða veðrið um síðustu helgi og hengdum þrjár ljósaseríur í öspina í garðinum. Ekki tókst betur til en svo að ljósin vildu hrúgast einhvern veginn öll á sama stað þannig að ég var ekki nógu ánægð með útkomuna. Við fórum þess vegna í höfuðhreppinn í gær og keyptum tvær alveg eins seríur í viðbót en þær eru þannig að það er hægt að bæta endalaust við.
Tréð er ekki á hið í garðinum en vill vera svona hér.
Þessar tvær voru settar upp í gær svo núna eru 500 ljós á trénu en samt væri hægt að bæta 500 í viðbót. Það er nóg pláss ennþá.
Þetta verður látið duga í ár.
Ljósatré eða perutré eins og Dillí á Reyðarfirði kallaði það.
Jólaljósaperutré.

laugardagur, 19. nóvember 2011

Leikhúsferð


Hjón í krísu
Ég er svo heppin að hafa minn eigin leikhúsferðstjóra. Ef ég hefði hann ekki færi sjálfsagt eignilega aldrei í leikhús. Svilkona mín fylgist miklu betur en ég með því sem er að gerast í leikhúsum borgarinnar og sendir mér öðru hverju símaskilaboð, tðlvupóst eða skillaboð á fésbók um að hún hafi pantað miða, þennan dag á þetta leikverk. Ég tek daginn frá og svo förum við að sjá eitthvað spennandi. Í gær var það Hjónabandssæla í Gamla bíói, með þeim Eddu Björgvins og Ladda í aðalhlutverkum. Þau eru tvö allan tímann á sviðinu og skila hlutverkum sínum auðvitað alveg frábærlega. Þau leika miðaldra hjón, sem eru komin í helgardvöl á hóteltil þess að finna ástarneistann aftur. Maður kannaðist við ýmislegt sem fór á millum þeirra og hláturinn var ekki langt undan.
Frábært kvöld með góðum vinum

föstudagur, 18. nóvember 2011

Ánægð hlaupakelling

Heldur betur ánægð eftir 3 km hlaup í
Reykjavíkurmaraþoni
Ég hef ekki alveg haldið mig við hið fína hlaupaprógramm sem mér áskotnaðist. Mér fannst þetta orðið dálítið erfitt á sjöttu viku. Þá fór ég bara að stytta tímann um 10 mínútur eða svo. Ég er samt hæst ánægð með sjálfa mig. Á þriðjudaginn skokkaði ég gamla litla hringinn minn og það var ekkert mál. Í dag fór ég stóra hringinn og fór með þeim ásetningi að hlaupa og ganga til skiptis. Ekki fór það nú svo heldur skokkaði ég alla leiðina, sem er rúmir  5 km, á þremur hraðaskiptingum, hægt, meðalhratt og tók nokkra hraðaspretti.
Veðrið var eins og best verður á kosið í nóvember. Austan gola, þurrt og mátulega hlýtt.
Gott hlaupaveður.

fimmtudagur, 17. nóvember 2011

Skondnar uppákomur.

Hann er svo skondinn og skemmtilegur þessi heimur. Alltaf er hann að skreppa saman og ég hef alltaf jafn gaman af því þegar dæmi um það skjóta upp kollinum. Netið á nú aldeilis stóran þátt í því hvað heimurinn hefur minnkað.
Frú forseti borgarstjórnar
Svava Rán og Láki við Gullfoss
Í fyrravetur langaði einn nemenda minn, af erlendu bergi brotinn, að fræðast um Gullfoss og Geysi. Ég sagði honum frá og lét hann svo "gúggla" Gullfoss og skoða myndir. Margar fínar myndir komu upp af Gullfossi en ein líka af Svövu Rán og Lúkasi við fossinn. Ég missti næstum andlitið af undrun en þá hafði ég sjálf sett þessa mynd á netið og texta við, þannig að hún spratt upp.
Í dag var annar nemandi minn, stelpa frá Tælandi, að vinna með texta og þurfti að fá útskýringu á hvað blómsveigur væri. Hún notaði líka Google translate og fór inn á myndir. Hún fékk upp ýmsar myndir af fólki að leggja blómsveiga á leiði eða styttur en ein myndin var af tengdadóttur minni. Ég athugaði af hverju hún kæmi upp og það var vegna þess að hún hefur lagt blómsveiga á leiði, bæði Jóns Sigurðssonar og Bríetar Bjarnhéðinsdóttur sem forseti borgarstjórnar.
Þetta var eiginlega alveg ótrúlegt í bæði skiptin.
Svona er heimurinn í dag. 

miðvikudagur, 16. nóvember 2011

Af gömlum kennara

Það er komin allnokkur reynsla á þetta nýja líf mitt, þ.e. að vera bara hálfdagskerling eins og það var sagt um konur sem unnu bara hálfan daginn í Meitlinum í gamla daga. Ég er búin að vera hálfdagskerling síðan skóli hófst í haust. Ég hóf þá töku lífeyris og réð mig í 49% starf við skólann. Ég er svo heppinn að vera á 95% reglunni og ákvað að nýta mér þau réttindi sem það gefur. Þrátt fyrir að hlakka til að minnka svona við mig var ég líka kvíðin. Kvíðinn fólst aðallega í því að vera ekki með á nótunum, missa af einhverju sem verið er að gera í skólanum af því ég mæti bara þrjá daga í viku. Ég passa mig mjög vel á því að spyrja fólk um hitt og þetta og lesa viðburðadagatalið sem hangir á vegg. Þetta hefur gengið nokkuð vel. En það besta er að mér finnst þetta fyrirkomulag alveg dásamlegt. Ég mæti eingöngu í vinnu þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag og á þess vegna alltaf langa helgi.
Ja, nema þegar ég er beðin um að taka að mér forfallakennslu, sem kemur nokkuð oft fyrir.
Af því ég hef fulla starfsorku enn, þannig lagað,  þá finnst mér bara fínt að kenna tíma og tíma í forföllum.
Ég gerði mér samt fulla grein fyrir því, fyrir mörgum árum, að ég sæi mig ekki fyrir mér að kenna 10. bekk íslensku eftir sextugt. Það einfaldlega gengi ekki upp. Bilið á milli kynslóða stækkar svo ört á vissu skeiði að það væri sama hvað ég reyndi að skilja ungmennin til að geta verið skemmtilegi, nútímalegi íslenskukennarinn, gæti ég það aldrei. Ég er svo heppin að hafa, fyrir tilviljun byrjað fyrir nokkrum árum að kenna íslensku sem annað mál og það er það sem gerir það að verkum að ég get þetta ennþá. Þegar ég var leyst undan því að vera umsjónarkennari léttist kennslan og öll vinnan til muna.
Þess vegna er ég svo þakklát forsjóninni fyrir að hafa hent mér í þessa, fáránlegu 95% reglu sem auðvitað gengur ekki upp til lengdar. Ég nýt hennar á meðan hægt er.
Ég varð alveg ferlega reið í dag þegar ég las á einhverjum fréttamiðli að Pétur Blöndal, alþingismaður,
íhugar að leggja það til að hækka lífeyrisaldurinn. Hann var með einhverjar röksemdir til að styðja mál sitt og klikkti út með það að kennarar gætu alveg kennt til 75 ára aldurs jafnvel til áttræðs ef þeir hefðu áhuga á því. Hann veit ekki, þessi maður, um hvað hann er að tala. Ég er rétt komin á sjötugsaldurinn og er afskaplega fegin að geta minnkað við mig.
Pétur heldur að ég geti þetta í 14 til 19 ár í viðbót. Ef þetta er dæmi um hugsunarhátt alþingismanna, fari þeir bara allir heim til sín.

sunnudagur, 13. nóvember 2011

Partýtími

Maður fer varla úr partýgallanum um þessar mundir svo mikið er að gera í skemmtanalífinu. Um síðustu helgi hittust systur hans Simma míns og buður okkur Jónu með og dætrum og tengdadætrum. Við hittumst heima hjá Dóru Sif og borðuðum svo á Tapashúsinu. Ég hafði mína tendgadóttir með en ekki dótlu þar sem hún átti ekki heimangengt. Þetta var alveg rosalega skemmtilegt kvöld þó svo að það vantaði nokkrar stelpur. Við enduðum svo á karíókí á Obbladí og þar tók Elsa mín lagið og gerði það með stæl.
Á laugardagskvöldið stóðum við Simmi minn upp úr leisíboj klukkan hálftólf og löbbuðum á hverfispöbbinn, Happy hour, því þar var Rúnar að spila og syngja. Það var auðvitað mjög gaman. Ég hef ekki áður séð Rúnar á alvörupöbb að spila og það var gaman að sjá og heyra hvað hann gerir þetta vel. Við tókum meira að segja einn snúning áður en við töltum heim.
Á föstudag var starfsmannadagur Ölfuss sem er alltaf mjög áhugavert að taka þátt í. Fyrirlesarinn að þessu sinni er sálfræðingur sem talaði um öfluga liðsheild. Hann kom inn á marga góða punkta sem hreyfði við manni. Eftir fyrirlesturinn var boðið upp á snittur og vín svo ég kom heim pínu full.
Í gær stóðum við hjónakornin aftur upp úr leisíboj og núna til að fara á Eyjakvöld í Ráðhúskaffi sem er hinn hverfispöbbinn okkar. Þetta var nokkurs konar söngtónleikar, rosalega skemmtileg hugmynd. Hljómsveitin Obbosí úr Eyjum spilaði Eyjalögin og varpaði textum á vegg svo allir gætu sungið með og það var sko gert. Rokna stuð og stemming.