Hamagangur á HóliVið, Simmi minn, erum búin að vera í húsinu sem við eigum núna, síðan haustið 2004. Fyrir framan húsið hafa verið tveir litlir grasblettir, sinn hvoru megin við stétt, umluktir kræklóttu íslensku birki. Það hefur ekki verið gaman að draga garðsláttuvélina þarna yfir til að slá. Enn leiðinlegra að raka þessa bletti og koma grasinu einhvers staðar fyrir. Maður lætur sig samt hafa þetta því meira verður að gera en bara það sem er skemmtilegt.
Í fyrrasumar keyptum við okkur hjólhýsi og þegar við vorum ekki að flakka vildum við hafa hýsið, sem auðvitað heitir Sólbrekka, í innkeyrslunni en ekki úti við aðalgötu eins og við gerðum við gömlu Brekku, þ.e. fellihýsið sem við áttum. Við vorum orðnir snillingar í að koma Sólbrekku fyrir í innkeyrslunni en þá vorum við í vandræðum með bílinn. Gátum jú sett hann við hliðina á Brekku en komumst varla út úr honum fyrir trjám.
Þá fékk ég hugmynd. Rífa bara upp trén, innkeyrslumeginn við húsið, kantinn og allt gras. Líka grasið hinu meginn við stéttina og setja möl í staðinn.
Þetta er búið og gert. Ekki aftur snúið. Núna þurfum við ekki að slá fyrir framan húsið. Núna komast, bæði Sólbrekka og bíllinn fyrir með góðu móti. Og það er nóg pláss fyrir gestabíla.
Mér finnst dálítið grátt að líta út um eldhúsgluggann en ég ætla að fá mér blómaker og dreifa þeim smekklega um hið grá svæði .