Síður

föstudagur, 29. nóvember 2002

Uppáhaldssonur minn, vísindamaðurinn Kalli, fór úr stórutáarlið fyrir nokkrum dögum, í júdó. Ég segi það, íþróttir eru stórhættulegar. 'Eg væri allavega ekki búin að rífa afturhluta miðlæga liðþófans ef ég hefði ekki farið að skokka komin fast að fimmtugu. En hvað um það, Kalli er alveg að drepast í tánni, með heljarmiklar umbúðir, getur ekki keyrt bílinn svo uppáhaldstengdadóttir mín, tækniteiknarinn og dugnaðarforkurinn Elsa, er núna í sömu sporum og einstæð móðir með þrjú börn. Ef það væri ekki næstum því ljósár á milli okkar þá myndi ég hjálpa henni eins og ég gæti. Uppáhsldssonarsonur minn, Kolbeinn , er búinn að skila stærsta heimaverkefni sínu hingað til en það var ritgerð um The Independence Hall sem er hús í Pennsylvaníu, húsið þar sem stjórnarskrá Bandaríkjanna var undirrituð. Af hverju Kolbeinn valdi þetta ritgerðarefni er mér hulin ráðgáta en ég er að springa úr monti yfir honum því hann er bara 9 ára gamall. Uppáhaldssonardóttir mín, hún Nanna, er farin að þekkja íslensku jólasveinana og læra vísurnar hans Jóhannnesar úr Kötlum. Geri aðrir betur því hún er bara tveggja og hálfs árs og hefur aldrei í lífi sínu verið á Íslandi um jól. Uppáhaldsdóttir mín, framhaldsskólakennarinn Svava Rán, ætti að fá medalíu. Ég þekki engan annan en hana sem getur getur lifað á loftinu dögum, jafnvel vikum saman. Þingmaður Sunnlendinga, hann Kjartan Ólafsson, ætti að hafa samband við hana og fá hjá henni ráð. Hann var að tala um það í fjölmiðlum um daginn að fólk ætti að taka slátur og borða til þess að spara í matarinnkaupum.Það er miklu ódýrara að gera eins og Svava Rán, að kaupa ekki neitt.

miðvikudagur, 27. nóvember 2002

Þegar ég var sautján fór ég til spákonu. Ekki það að ég trúi á svoleiðis lagað en hópur af konum fékk hana Amý Engilberts til að spá og ég sló til og var með. Ég man nú ekki alveg hvernig hún fór að því að spá en e-ð las hún í lófa og e-ð talaði hún um stjörnumerki. Ég var svo sniðug að skrifa niður það helsta sem hún sagði og geymi blaðið enn. Síðan eru liðin mörg ár....... Svo skrítið sem það nú er þá hefur flest sem hún sagði staðist t.d. barnafjöldinn, hvenær ég hitti karlinn minn, nám og starf svo e-ð sé nefnt. En eitt af því sem hún sagði hef ég beðið spennt eftir. Fyrstu árin eftir spádóminn var ég nú róleg yfir þessu en á síðustu árum hef ég beðið með óþreyju eftir því hvort spáin fari nú ekki að rætast. Spáin var nefnilegaa þessi ...,, þú munt hneigjast að ritstörfum með aldrinum".. Nú er spurningarnar þessar: ,,Hvenær kemur hann eiginlega þessi aldur?" ,,Er ég ekki orðin nógu gömul enn til að fara að skrifa eða er ég farin að skrifa með því að blogga?"

þriðjudagur, 26. nóvember 2002

Það er frekar erfitt lífið þegar sjálfsmyndin er léleg, sjálfstraustið farið og sjálfsálitið ekkert. Svona fór fyrir mér um daginn. Ég hef reyndar náð örlitlu af þessu til baka og er að vinna í þessu dags daglega. Þannig var að fyrir nokkrum mánuðum fór karlinn minn, til nokkurra tugi ára, að vinna í nýju umhverfi og umgengst núna konur meira en áður. Einn daginn segir hann mér að þær gangi allar í g-streng. Ég spurði einskis en hugsaði því meira. Daginn eftir fór ég auðvitað og keypti eina slíka flík. Hlakkaði ég óskaplega mikið til að sýna honum að ég gæti þetta líka. Mátaði flíkina um kvöldið og spókaði mig fyrir framan hann og beið spennt eftir einhverju huggulegu frá honum. Hann virti mig fyrir sér smá stund og sagði svo ,, Ég veit ekki af hverju mér dettur í hug súmóglímukappi?"

mánudagur, 25. nóvember 2002

Ég veit ekki alveg hvernig ég á fara að því að muna alla hluti. Nú er ég t.d. tvíbókuð í kvöld. Á bæði að vera að "stjórna" skemmtikraftafundi vegna þorrablóts í feb. 2003 og mála styttur með saumaklúbbnum mínum!!!
Ég var alla helgina að skrifa skýrslu um rannsókn á högum nýbúa á landinu eða réttara sagt högum eins ákveðins nýbúa. Við Þórhildur Helga unnum þetta saman og lukum verkinu kl. 20:30 í gærkvöldi. Þvílíkur léttir. Ég var að póstsenda greinina til kennarans okkar í KH'I. En þá er bara að byrja á næsta verkefni ef maður ætlar að ná settu marki. En ég get hefnt mín, ég er að fara að semja próf í íslensku fyrir 9.bekk. Hef á tilfinningunni að það verði svínslegt.

laugardagur, 23. nóvember 2002

I DV á föstudag er grein um sögu hússins að Austurstræti 20 i höfuðborg okkar landsmanna. Er og verður ætíð Hressó i mínum huga. Bernskuminningar mínar um Hressó eru þær að mamma fór gjarnan með okkur systurnar þangað þegar við vorum á ferð í höfuðborginni til þess að gefa okkur ís. Eg fæ vatn i munninn við tilhugsunina um ísinn. Betri ís hefur ekki verið framleyddur.Hann var borinn fram i stálskál á fæti og súkkulaðisósu helt yfir. Þvílík flottheit. Ég, smástelpan, sat eins og dúkka við borðið og mér var þjónað. Skemmtilegast var þegar opið var út i garðinn og við fengum borð þar. Mamma sagði að þetta væri bara alveg eins og í útlöndum. Guð, hvað ég var mikil heimsdama. Seinna meir átti eg þess kost að stunda Hressó. Það var a Kennaraskólaárunum. Ég er ekki alvg viss um að eg muni eftir rokkkynslóðinni sem greinarhöfundur DV vitnar í og a að hafa lagt undir sig suðurálmuna en ég man eftir minni kynslóð, hippatimakynslóðinni. Greinarhöfundur segir að snobbaðir menntskælingar hippatímans hafi ekki kunnað að meta Hressó, heldur hafi setið á Mokka eða a Tröð. Hann veit lika um hvað þeir töluðu!!! En hann veit ekki að við, algjörlega lausir við snobb ur Kennaraskólanum, lögðum undir okkur suðurálmuna a Hressó, klædd eins og tilvonandi kennarar, snæddum franskar kartöflur, þvi við höfðum ekki nægt sjóðsstreymi til að borða e-ð dýrara og ræddum af hugsjón um uppeldis- og kennslufræði. Hann veit liklega heldur ekki að i hvert sinn sem e-r bættist i hópinn var honum heilsað með kossi af öllum hinum sem voru mættir. Af hverju erum við ekki enn svona góð hvert við annað?

föstudagur, 22. nóvember 2002

Var að tala við Kalla i Ameriku. Hann var a labbinu að tengja rottu og gerði það bara svona a meðan við töluðum saman. Hann segist vera eins og frystihuskerling að flaka, getur orðið tengt rottu an þess að hugsa. Hann er að undirbua sig fyrir að skila inn doktorsefninu sinu. Ætlar að reyna það i mai. Þa er ar eftir hja honum við rannsoknir og skriftir.
Eg varð klokk þegar hann sagði mer hvað Nanna sagði i morgun við morgunverðarborðið. "Pabbi, mat, plis!!" En a morgunverðarborðinu var enginn matur!!!!!!
Ég held bara að ég sé hamingjusamasta manneskja á jörðinni í þessu augnablii. Ég var að ljúka yfirferð á ritgerðum frá 10. bekk. Kjörbókarritgerðum. Alltaf er þetta nú jafn mikill höfuðverkur. Þetta huglæga mat er svo erfitt. Ég er reyndar með frábæran skala sem ég stal einu sinni frá kennara í ónefndum menntaskóla. 'Eg styðst við þennan skala sem ég tel að flýti vinnunni ótrúlega mikið.
Nú stendur til að fara heim og gera e-ð sem ég nenni alls ekki að gera en það er að þrífa, færa bókhaldið fyrir fyrirtækið okkar og fara niður í geymslu og ná í allt jóladotið svo hægt sé að fara að skreyta Café Króniku.
Var að tala við Elsu gegnum MSN. Hún kvartar yfir jólakvíða sem ég held að tengist skorti á sjóðsstreymi.Mikið vildi ég að við gætum hjálpað þeim með aura. Það er nú bara það sko.
Eg er ekki alveg með á nótunum hvernig þetta blogg virkar. Verð að hringja í Svövu Rán til þess að fa´nánari upplýsingar