Það var verst hvað það var kalt í gær í kröfugöngunni. Ég fór klædd eins og asni, sem sagt ekki dúðuð. Ég nefnilega svo asnaleg með húfu. Mér er ennþá dálítið kalt, einhvers staðar innan í mér þrátt fyrir að hafa dúðað mig fyrir framan sjónvarpið í gærkvöldi. Hann yljaði samt aðeins skemmtitaugarnar ungi kennarinn sem hafði farið í hvítan bol utan yfir úlpuna sína og skrifað á bakið - ég er 29 ára kennari með 155 þúsund á mánuði - og að framan - ég er á lausu vantar góða fyrirvinnu - . Hann vonaðist til þess að hann sæist í sjónvarpinu. Hann fór líka að raula á meðan við gengum að Ráðhúsinu- launin duga ekki baun, við þurfum hærri laun - svo þróaðist þetta í að syngja:
Áfram, áfram áfram kennarar
áfram, áfram áfram kennarar
áfram, áfram áfram kennarar
við bökkum ekki baun
og svo var hrópað hærri laun.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli