Laugardagurinn fór í jólaundirbúning. Ég hengdi greni og ljós utan á gluggana sem snúa að götunni. Kemur vel út. Ég bakaði uppáhaldsrúllutertuna hennar Svövu Ránar og haframjöls-kókósmjölssmákökur sem ég fann á síðu sem Eygló sendi mér. Tertubotna bakaði ég líka. Fór svo eftir hádegi til Rutar og við bökuðum Sörur. Hulda litla Gunn var með okkur í því. Það er að verða búsældarlegt hjá mér. Ég á nú samt eftir að baka miklu meira. Ég slepp ekki við að hnoða í brúna lagtertu. "Æi, mamma", sagði Svava Rán þegar ég impraði á því að líklega hefði ég hana hrærða en ekki hnoðaða. Og hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín. Ég hef svo rosalega gaman að þessu öllu í ár að það er í fínu að lagi að bæta við einni hnoðaðri.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli