Síður

þriðjudagur, 22. nóvember 2005

Morgunsundið gerir gæfumuninn. Nú er ég komin í 700 metrana. Ég syndi í lágmark 25 mínútur eftir að Einar Guðmunds sagði mér að fyrstu 20 mínúturnar færu í að brenna kolvetnum og eftir það kæmist maður í fitubrennslu. Ég brenni sem sagt fitu í fimm mínútur. Það er líklega ekki nóg því ég er endalaust að stækka á vitlausa kanta.
Sundið er samt gott.
Rosalega gott.

þriðjudagur, 15. nóvember 2005




Ég er alltaf að bíða eftir því að hún dótla mín sendi mér mynd af Lúkasi, svona í tilefni þess að hann varð tveggja ára þann sjötta þessa mánaðar, en það bólar ekki á neinni mynd. Ég skoða aftur og aftur myndirnar sem ég tók af honum í sumar og verð svo að ímynda mér hvernig hann hefur breyst. Ég veit að hann er orðin 93 cm á hæð. Hann er aðeins stærri en kúrfan segir en þyngdin rétt, svo hann er langur og grannur pilturinn. Við spjöllum líka stundum í símann en hann er betri í ensku en íslensku og amma þrjóskast við að tala bara íslensku svo greyið litla á í erfiðleikum með að skilja gömluna sína. Mér finnst svo gaman að myndunum sem ég tók í sumar af honum og Birgittu Ósk. Hann var greinilega mjög hrifinn af henni. Hún er bara tveimur og hálfum mánuði eldri.

mánudagur, 14. nóvember 2005

Enn einu sinni hefur hið daglega líf mitt tekið breytingum. Ég hef ekki undan núna að reynast venjast nýjum vinnum hjá honum Simma mínum. Það mætti halda að hann væri enn að reyna að finna út úr því hvað hann ætlar að verða þegar hann er orðinn stór. Ég var rétt að komast inn í rútínu með honum sem sundlaugarvörður þegar hann fór að smíða hjá Ella. Hann er sem sagt smiður núna, eða þannig. Það er svo sem gott og blessað en málið er að hann kemur ekki heim á kvöldin fyrr en klukkan sjö sem þýðir að ÉG verð að sjá um kvöldmatinn alein. Hann sem var alveg búinn að taka að sér eldhúsið og við bæði mjög lukkuleg með það. En sem betur fer planar hann kvöldmatinn í hádeginu og sér um að taka úr frysti ef þess þarf. Og hann bendir mér á hvað þarf að kaupa inn ef það er matarkyns.
Ég verð að reyna að vanda mig því eins og Óli Guðbjarts sagði mér fyrir tæpum 40 árum þá er leiðin að hjarta mannsins í gegnum magann. Og hann tók meira að segja fram: "...og mundu það nú Gunna mín."
En þá áttu konur líka að sjá alfarið um matarstússið.
Nú er öldin önnur.
Sem betur fer.

sunnudagur, 13. nóvember 2005

Við erum orðin svo ráðsett, við Simmi minn, að við dönsuðum bara tvo dansa á árshátið Ölfus í gærkvöldi og fórum svo heim. Ég verð nú að játa að ég hef smá áhyggjur af þessu en var óskaplega ánægð í morgun þegar ég vaknaði. Maturinn var frábær hjá Bjössa í Básnum og stelpurnar á leikskólanum klikkiuðu ekki með skemmtiatriðin. Þetta var hið ánægjulegasta kvöld sem byrjaði heima hjá skólastjórahjónum í skemmtilesu spjalli.