Ég þurfti ekkert að hugsa mig um í dag eftir að hafa verið í tveggja tíma rannsókn hjá hornhimnufræðingnum. Hann sagði að ég væri góður kandídat í augnaðgerð með lasertækni. Ég varð harla glöð við tíðindin. Ég var alveg eins undir það búin að heyra það að ég væri ein af þessum prósentum sem svona aðgerð hentaði ekki. Ég hef verið mjög spennt fyrir svona aðgerð síðan ég heyrði fyrst um þetta rætt, hélt samt að þetta hentaði eingöngu nærsýnu fólki. Þegar ég svo hitti mann um daginn, fjórum dögum eftir aðgerð, fjarsýnan með sjónskekkju, dútlandi við að setja saman eyrnalokka, hringdi ég um leið í Sjónlag og pantaði tíma í forskoðun. Og kom út með þessa líka fínu einkunn. Ég pantaði tíma í aðgerð og fer næsta miðvikudag klukkan tíu. Hana nú og hafðu það.
Ég hlakka til.
Ég hlakka rosalega mikið til.
Ég hlakka svo mikið til aðég er með fiðring í maganum.
Kannski get ég lesið án gleraugna eftir aðgerð.
Kannski get ég lesið í rúminu.
Kannski þekki ég fólkið í heita pottinum.
Kannski get ég lesið nóturnar á kóræfingum, með góðu móti.
Kannski þarf ég að nota lesgleraugu.
Kannski kaupi ég þeu í BÓNUS, í stað gleraugna á 70 þúsund.
Kannski, kannski , kannski.
Ég fer kannski að heilsa fólki á götu.
Ég fer kannski að vinka fólki sem keyrir fram hjá mér á bílum.
Ég fer kannski að heyra betur.
Eftir sex daga.
Eftir sex nætur.
Ég fer í aðgerð.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli