Það var dútlað við skemmtanalífið um helgina. Ester og Halldór voru sæt að bjóða mér á jólaskemmtun hjá Norrænafélaginu á föstudagskvöld því Simmi var á karlafundi hjá Kiwanis. Það var borinn á borð matur frá öllum Norðurlöndunum, alveg frábær. Þar smakkaði ég færeyska blóðpylsu í fyrsta sinn og var hún miklu betri en blóðmörin okkar. Þeir krydda pylsuna sem gerir hana að lostæti. Eftirrétturinn var jólagrautur og fékk ég möndluna. Ég fékk ægilegan fínan pakka sem ég tími ekki að taka upp fyrr en á jólunum. Ég er búin að láta hann á nýja fína jólatrésdúkinn minn. Og þar bíður hann. Ég veit að ég er dálítið snemma í þessu en hneykslist þeir sem hneykslast vilja, mér er nokk sama.
Í gærkvöldi vorum við í systkinaboði hjá Jónu Stínu og Finna. Þau buðu upp á grillað lambalæri með öllu tilheyrandi og ostaköku í eftirrétt. Allt rosalega gott. Það er nú ekki leiðinlegt að vera með þeim systkinum öllum í boði. Hlegið og fíflast og rifjaðar upp gamlar stundir. Ásta gisti hjá okkur; fyrsti næturgesturinn á nýja staðnum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli