Síður

miðvikudagur, 10. febrúar 2016

Aftur í ræktina

Ég hef alla tíð stundað einhvers konar líkamsrækt. Alveg síðan ég man eftir. Leikfimi í skóla, sund og handbolti. Frúarleikfimi allskonar eftir að ég varð frú. Kenndi sjálf eróbikk, með Önnu Lú, eftir að hafa lært hjá Jónínu Ben og Ágústu. Synti í sundlaug Þorlákshafnar klukkan sjö á morgnana í 10 ár. Var komin í kílómetrann.  Prófaði svo að fara út að hlaupa. Þá var ég orðin sextíu og eitthvað ára. Breytti svo um og fór að lyfta bjöllum. Elska alla hreyfingu.                                                                   Þegar við, Simmi minn, fórum að reka Meitilinn fann ég ekki lengur tíma til að stunda reglulega hreyfingu. Hætti bara. Það er í sjálfu sér heilmikil hreyfing í vinnunni en einhvern veginn öðruvísi. Hitti svo á Elínu Jóndóttur um daginn en hún er með einkatíma á þeim tíma sem hentar mér. Er núna búin að fara í nokkur skipti og er hrikalega óánægð með hvað mér hefur hrakað í þessi tvö ár sem ég hef ekki gert neitt skipulagt. Mér finnst flest allar æfingar erfiðar. Eitthvað sem ég hefði riggað upp fyrir tveimur árum.                                                                                                                                    Nú er bara að vona að ég verði snögg að ná upp fyrra þreki af því þetta er svo gaman.

miðvikudagur, 27. janúar 2016

Hætt að kenna

Ég var við kennslu í 44 ár. Útskirifaðist úr Kennó 1971 og byrjaði að kenna þá um haustið við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Var þar lengst af þó með smá hléum á meðan ég forframaðist á öðrum stöðum. Var einn vetur að nema við Háskóla Íslands, þrjá vetur kenndi ég á Reyðarfirði, einn vetur í Hveragerði og hálfan vetur á Akranesi. Þegar ég var 61 árs hóf ég töku lífeyris enda 95 ára reglan enn við lýði. Kenndi samt þrjá vetur í hálfu starfi eftir það. Hætti alveg vorið 2015. Halldór lét þá af störfum ssem skólastjóri og ég hafði löngu ákveðið að hætta um leið og hann.
Nú er eitt misseri liðið af þessu skólaári og ég hef ekki séð eftir að hafa hætt eitt einasta augnablik, miklu heldur ólýsanlegan létti. Ég var orðin dauðleið á kennslu fyrir löngu. Mér finnst sjálfri ótrúlega skrýtið að segja þetta því kennarinn í mér var alltaf mjög ofarlega á persónukilgreiningunni. Kona, móðir, kennari.
Ég veit náttúrlega ekki hvernig mér liði ef ég væri "bara" heima. Ég hef nóg um að hugsa og nóg að gera í Meiltlinum. En mér finnst svakalega gott að vera heima og dunda mér við hitt og þetta. Finn alltaf eitthvað að gera. Dund og dútl.

fimmtudagur, 21. janúar 2016

Árið 2015 í hnotskurn

Mér var þann heiður sýndur á vínartónleikum Lúðrasveitar Þorlákshafnar í janúar að vera kynnir. 
Elsta barnabarnið mitt, Karl Kolbeinn, útskrifaðist sem stúdent og hóf nám við HR á haustönn. Hann og Magga, kærastan hans, koma aðra hverja helgi til okkar og leysa okkur af í Meitlinum. 
Elskuleg mágkona mín, Jóna Stína, lést í september úr krabbameini eftir ótrúlega stutta legu. Hennar er sárt saknað. 
Alltaf kemur að kveðjustund en Svava Rán og Lúkas komu til Birmingaham með lest og þurftu auðvitað að fara til baka áður en við var litið.
Hið árlega jólarallí með Öldu og Valda var með öðru sniði nú en áður þar sem við eyddum fimm dögum í Birmingham. Harpa, Benni og Friðborg sáu um Meitilinn á meðan. Þetta var alveg dásamleg ferð í alla staði og bónusinn var að fá Lúkas og Svövu Rán í heimsókn í einn sólarhring. 
Við mættum að sjálfsögðu í 4 ára afmæli prinsessunar Heklu 13. nóvember.
Ég varð mjög glöð þegar Nanna bað mig um að hjálpa sér við að fara yfir Gísla sögu Súrssonar fyrir próf. Við fórum yfir alla bókina á einni helgi og ræddum um hana enda fékk hún toppeinkunn á prófinu.
Það var gert opinbert í netmiðlum að Kalli væri búinn að næla sér í kærustu eða öllu heldur að Björk Eiðsdóttir væri búin að fá sér kærasta. 
Í september skiptum við á Sólbrekku og húsbíl. Þó að hið eiginlega útilegutímabili hafi verið lokið fórum við samt í fjórar stuttar reisur til að prófa gripinn. Við erum rosalega ánægð með þessi skipti og höldum að bíll henti okkur betur en hjólhýsi.
1. apríl 2015 tókum við, Simmi minn, við rekstri bakaríisins í Þorlákshöfn. Þetta var mikil viðbótarvinna við rekstur Meitilsins og vorum við oft rosalega þreytt eftir langan vinnudag. Sem betur fer komu frelsandi englar og keyptu bakaríið af okkur en Benni og Harpa tóku við rekstrinum í lok nóvember. 
Ég er forfallinn skraflfíkill og eyði alltof miklum tíma á degi hverjum í skrafl en þessi nýi íslenski vefur er svo flottur og svo skemmtilegt að spila að ég ræð ekki við mig. Þetta kemur niður á bóklestri og prjónaskap en afsökunin er að þetta heldur heilasellunum gangandi.
Alltaf finnst mér jafn gaman að hitta börnin mín og sérstaklega þau saman. Það gerist alltof sjaldan en þannig er nú bara lífið. Við hittumst öll í brúðksupsveislu Hörpu og Arnars í júlí.
Létum verða af því að mála húsið í sumar enda var það múrað upp á nýtt í fyrrasumar. Við tókum vinkil á litinn á hurðum og gluggum og máluðum það kókakólarautt án þess að spyrja nágranna okkar, sem við hefðum líklega átt að gera þar sem við búum í raðhúsi. En við erum hæstánægð og enginn hefur kvartað.



Lúkas og Svava Rán komu heim í sumar til að vera viðstödd brúðkaup Hörpu. Lúkas bað um að fá að fara í útilegu, hoppa á trampólíni, skoða Gullfoss og geysi. Þessar óskir fékk hann allar uppfylltar og heimsókn í Slakka að auki og buðum við Viktori Inga með í ferðina.

miðvikudagur, 20. janúar 2016

A eða B

Ég hef breyst úr A manneskju í B manneskju. Ég get bara ekki farið fram úr bælinu á morgnana fyrr en eftir klukkan níu í fyrsta lagi. Í gær var klukkan orðin hálf ellefu þegar ég skreiddist fram úr. Ég hef kveikt á útvarpinu og veit þess vegna að ég sofna og vakna til skiptis því ég heyri bara sumt af því sem verið er að fjalla um. Ég fer líklega aðeins seinna að sofa en ég gerði á meðan ég var enn að vinna í skólanum.Ég er alltaf komin upp í rúm fyrir miðnætti, tek bók og les þangað til ég heyri í útvarpinu: Útvarp Reykjavík, klukkan er tólf. Þá slekk ég ljósið og hlusta á fréttirnar og sofna síðan. Ætti samkvæmt ráðleggingum svefndoktora að sofa í 7-8 tíma sem ég líklega geri ef ég mínusa frá mínúturnar sem ég vaki öðru hverju alla nóttina. Þvílík forréttindi að þurfa ekki að fara á fætur á ákveðnum tíma heldur fá að ráða sér sjálfur. Já, það er ljúft að vera hætt að vinna  eða þannig.

þriðjudagur, 19. janúar 2016

Nýtt ár

Ég sakna þess dálítið að vera hætt að skrifa smápistla hér. Ég held að fésbóinni sé um að kenna. Hún sýgur úr manni sálina og skilur ekkert eftir. En að skrifa hugleiðingar hér verður til þess að heilinn þarf að starfa og hugsa og koma hugsunum í orð og á læsilegt form. Þyrfti að finna tíma á degi hverjum til að hugsa upphátt hér.