Síður

laugardagur, 31. mars 2012

Annar í brúðkaupsafmæli og skírn

Krakkinn, löngu síðar.
Í dag fyrir 40 árum bárum við, Simmi minn, drenginn okkar til skírnar. Það var mér mikið kappsmál að drengurinn yrði ekki, í kirkjubókum og öðrum mikilvægum plöggum, kallaður lausaleikskrói, utanhjónabandsbarn, bastarður eða hvaða nöfn voru notuð um börn sem voru getin utan hjónabands. Við, Simmi minn, lifðum í synd. Við sváfum saman án þess að hafa hlotið blessun kirkjunnar til þess að mega það. Mér leið hrikalega illa að vera svona vond manneskja. En ég var svo heppin að einhver sagði mér það að ef við giftum okkur áður en krakkinn yrði skírður væri allt í fína. Þá slyppi krakkinn viða að vera skráður fæddur utan hjónabands.
Þannig að þegar hann fæddist, 22. des 1971 fór ég að plana hvernig ég reddaði því að framtíð litla barnsins mín yrði í lagi. Það varð náttúrlega að skíra barnið á skikkanlegum tíma en ég yrði að koma okkur, Simma mínum, í hjónaband áður. Þannig háttaði til árið 1972 að skírdag bar upp á 30 mars og þá var ágætt fyrir mig að draga hann út í Selvog og láta hann giftast mér í Strandarkirkju og það var siður að  messa í Þorlákshöfn á föstudaginn langa og þá væri bara fínt að bera barnið til skírnar.
Við gamla dressið, búin að vera í hjónabandi í heilan sólarhring, bárum krakkann til skírnar í messu í skólanum í Þorlákshöfn og allir eða sem sagt ég, urðu glaðir.
Krakkinn laus við lausaleikskróastimpilinn.
En ég, þar með komin í hjónaband.
Sem lafir enn.

föstudagur, 30. mars 2012

Brúðkaupsafmæli

Í dag eru 40 ár síðan við, Simmi minn, gengum í hjónaband. Vá, hvað þetta var eitthvað hrikalega hátíðleg setning. Sama með það, við erum búin að vera í hnappheldunni í fjörutíu ár. Eignast tvo krakkalakka og komið þeim, sem betur fer til manns og sitjum svo tvö eftir og hugsum um hvort annað. Krakkarnir okkar eru auðvitað það sem máli skiptir, að þeim líði vel og allt það og svo komum við.
Við erum alltaf með veislu í farangrinum, eins og Hemmingway  og erum alltaf í góðum gír. Hugsum alltaf um að það sem máli skiptir en að  er að líða vel í núinu.
Að láta sér líða vel í núinu.
Það verður ekkert betra seinna.
Núið er lífið.
Fyrir fjörutíu árum var líka núið.
Já, núið er snúið því það er allt í einu búið
En á  hverju augnabliki er nýtt nú.
Svona vorum við aldamótaárið 2000.Sæl og södd.
Við Simmi minn grípum hvert nýtt nú sem kemur
og ætlum að eiga saman þá daga sem við getum lifað í nýju núi.

fimmtudagur, 29. mars 2012

Brjóstaminnkun

Af hverju ætla  ég í brjóstaminnkun loksins núna að verða 62 ára gömul? Af hverju ekki fyrir löngu síðan? Það er vegna þess að ég vissi ekki að ég væri með of stór brjóst. Ég vissi að þau voru stór en ekki að þau væru of stór.
Það eru líklega um 20 ár síðan mér var í raun og veru bent á að ég væri með það stór brjóst að ég ætti að íhuga brjóstaminnkun. Dagný Magg sýndi mér brjóstin sín eftir aðgerð og ráðlagði mér að gera slíkt hið sama. Mér fannst hún flott eftir aðgerð en ég sá ekki að ég þyrfti á brjóstaminnkun að halda og fannst strax þá alveg útilokað að fara að skera í heilbrigðan vef og skemma þar með náttúrusköpun.
Oft er höfuðverkur, bakverkur eða vöðvabólga notað sem afsökun fyrir brjóstaminnkun en ég hef hvorki þjáðst af höfuðverkné bakverk en er með mikla vöðvabólgu í öxlum og hef alltaf sagt að ég viti ekki með vissu hvort bólgan stafar af of stórum brjóstum eða einhverju öðru.  Brjóstalitlar konur geta fengið vöðvabólgu. Ég er líka með djúp för í axlirnar eftir brjótahaldara en það eru líka margar konur, sem eru með minni brjóst en ég.
Ég hef safnað saman í hausinn á mér nokkrum atriðum um brjóstastærð mína í gegnum árin og svo á einum tímapunkti í janúar 2011 safnaðist allt saman á einn stað í hausnum á mér og mér varð ljóst að ég yrði að gera eitthvað í þessu og rauk í símann og pantaði mér tíma hjá lýtalækni. Tímann fékk ég í apríl 2011 hjá Þórdísi Kjartansdóttur og eftir viðtal við hana var ég sett á biðlista. Ef ég var með efasemdir áður en ég hitti lýtalækninn hurfu þær gersamlega eftir viðtalið. Hún sagði að ég væri með svo stór og þung brjóst að Tryggingastofnun mundi borga hverja einustu krónu og þegar hún benti mér á að brjóstin væru búin að rífa sig frá bringubeininu varð ég alveg ákveðin í að fara í aðgerð.
Ég hef beðið róleg. Læknirinn sagði að hún tæki mig innan árs og nú hef ég fengið tíma þann 7. maí 2012.
Ég get varla beðið, ég hlakka svo til.


mánudagur, 26. mars 2012

Mánudagshugleiðing

Nú er heldur betur komin reynsla á hálfdagsvinnuna mína. Búin að vera heima næstum því alla mánudaga í vetur og föstudaga fram að áramótum. Mér finnst ég vera forréttindapíka að hafa þennan möguleika að hefja töku lífeyris og vinna 49% vinnu.
Ég finn að ég hef ekkert i unglingana að gera lengur. Eftir að ég tók að mér forfallakennsluna í handmennt og þar með farin að umgangast íslenska unglinga reglubundið aftur, finn ég gapið á milli mín og þeirra. Þetta eru náttúrlega bara stelpur og þær fá að hlusta á tónlist á meðan þær dúlla við handavinnuna. Tónlistin er langt fyrir ofan eða neðan mitt áhugasvið og umræðuefnið oft á tíðum fyrir utan minn skilning. Ég hef kannski fjarlægst svona mikið með því að hætta að vera með íslenskum krökkum og kenna eingöngu íslensku sem annað mál. Ég veit það ekki.
Alla vega er ég afskaplega ánægð að geta snarminnkað svona vinnuna, verið meira heima og gert það sem mig langar.
Mánudagar eru æðislegir.
Mér finnst samt mjög gaman að kenna handavinnu.