Ég er ekki eingöngu haldin símafælni heldur símsvarafælni einnig. Ég fer alltaf í flækju ef ég verð að tala inn á símsvara og haga mér alltaf eins og bjáni að mér sjálfri finnst svona eftir á. Ég tala einstöku sinnum inn á símsvarann á "labbinu" hans Kalla og þó að ég viti að hann einn skilur íslenskuna verð ég alltaf einhvern veginn önnur en ég er. Tala með breyttri röddu og get engan veginn verið eðlileg. Ekki nóg með það heldur verða skilaboðin eins og ég sé að lesa bréf. Í stað þess að byrja og segja "Hæ, Kallli, þetta er mamma... og koma svo með erindið, þá enda ég á því að segja ókei, bæ, bæ, mamma. Þetta er náttúrulega fyrir neðan allar hellur að vera komin á sextugs og vera enn hrædd við þessi tæki. Ég geri heilmikið í því að vinna bug á símafælninni og ég held að ég hafi lagast. Ég reyni núna að draga ekki að hringja það sem ég verð að hringja heldur dríf ég í að hringja og ... ég hef aldrei meitt mig. En hjartað slær hraðar og lófarnir svitna, sérstalkega ef ég þarf að hringj í opnbera stofnun.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli