Síður

þriðjudagur, 29. apríl 2003

Ég hef alltaf litið á drauma og draumaráðningar sem sæmilega skemmtilegt umræðuefni en ég trúi ekki á drauma, að fólk sé berdreymið eða dreymi fyrir daglátum. Það er eitthvað sem samræmist ekki lífinu á 21. öldinni að tala um undirmeðvitund, drauma og að finna eitthvað á sér. Það þyrfti alla vega að sanna þetta fyrir mér með óyggjandi hætti ef ég ætti að trúa. Þess vegna tel ég það algjöra tilviljun að þegar mig dreymdi að einn samstarfsmaður minn faðmaði mig að sér þá gerðist það nákvæmlega eins þegar ég mætti til vinnu og einnig er það tilviljun að þegar mig dreymi Guðna Ágústsson, að gefa mér góð ráð fyrir sparnaði, þá hann kom á kennarastofuna daginn eftir og talað meðal annrs um að fólk ætti erfitt í dag með að spara. Ég er a.m.k. mjög ánægð með að draumurinn sem mig dreymdi í nótt kom ekki fram í morgun í vinnunni eins og hann var í raun þ.e. ég að gera stykki mín í litla fötu í herbergi að stöddum nokkrum mönnum og konum.....

mánudagur, 28. apríl 2003

Ég er hálf slorpíkuleg í dag eftir djamm helgarinnar. Hef ekki orku í þetta lengur. Þarf að fara snemma að sofa til að halda fullri starfsorku. Þetta var nú ekkert venjulegt heldur. Grillpartý á miðvikudag, útskriftarpartý á fimmtudag, saumó á föstudag og söngfélagspartý á laugardag. Allt rosalega skemmtilegt það vantar ekki en fyrir konu á sextugsaldri er þetta einum of. Hefði viljað slaka á næstu helgar en það eru engin grið gefin, næstu helgar eru bókaðar en sem betur fer hafa þær ekki allar fjögurra daga frí.

laugardagur, 26. apríl 2003

Ég var þæg og góð og gegndi því að vera í bíógallanum, með aur í vasanum klukkan 19:30 í gærkvöldi. Ég var sótt heim og saumaklúbbnum smalað saman og rennt á Eyrarbakka í Rauða húsið. Þar var haldinn fundur um vorferð sem við höfum ekki farið í mjög reglulega. Líklega eru hátt í tuttugu ár síðan síðast svo það var kominn timi til að gera eitthvað í málinu. Til stendur að dvelja hjá Dúnu og Alla á Hestakránni eina helgi í maí og njóta þess sem þau geta boðið upp á. Og nú fá karlarnir okkar að koma með. Siðan fengum við okkur gott að borða og drekka og höfðum það næs.......
Þá er Gvendur í Götu genginn á vit feðranna. Við sungum við jarðarförina úti í Selvogi í dag.

föstudagur, 25. apríl 2003

Góða veðrið togaði í mig og ég fór út. Átti erindi á pósthúsið og í Rás en kom við í verBÚÐINNI og fékk mér kaffið hennar Hörpu. Það er frábær hugmynd hjá henni að hafa kaffihús og fiskbúð á sama stað. Það verður varla íslenskara. Mig dreymir um að Café Krónika verði bókakaffihús. Ég er búin að koma fyrir nokkrum bókum en ég er ekki nógu oft að flækjast þarna til stjórna honum Simma mínum. Ég er búin að segja honum að setja upp fleiri bókahillur en hann gegnir mér ekki svo skrýtið sem það nú er. Það hefur dottið inn fólk sem greinilega hefur verið að læra og lesa og vinna á fartölvur. Það er vonandi byrjunin.
Ég hálfvorkenni þessum pólítíkusum um þessar mundir. Mér finnst það vera niðurlægjandi fyrir þá að heimsækja vinnustaði og tala fyrir daufum eyrum fólks og jafnvel finna fyrir pirringi af því þeir eru að trufla fólk í kaffitímum. Ég vildi ekki þurfa að ganga á milli fólks og biðja það um að styðja mig til þess að ég héldi vinnunni minni. Samfylkingin kom á kennarastofuna um daginn og í morgun kom Kristján Pétursson. Fólk nennir ekki einu sinni að spyrja neins, því er alveg sama. Ég er algerlega á móti svona sérframboðum eins og Kristján er með. Tveggja flokka kerfi væri alveg nóg fyrir okkur.
Nú er upprunninn tími partýa og óvissuferða. Það var grillpartý hjá skólastjórahjónunum á síðasta vetrardag, saumaklúbbsóvissuferð í kvöld og söngfélagspartý á laugardagskvöld. Söngfélagsball, sem við sjáum um sjálf, þann 2. maí og ég er búin að skrá mig í óvissuferð með kennaraliðinu þann 9. maí. Og þá er fátt eitt upp talið. Mér finnast óvissuferðir frekar óheppilegar, ég er alltaf í vandræðum með fatnað, þó svo að eitthvað sé útgefið hvað hann varðar. Í kvöld á ég að vera tilbúin heima hjá mér klukkan 19:30 í bíógallanum með aur í vasanum. Ég gæti hæglega klúðrarð þessu. En í óvissuferð kennaranna á að hafa vaðstígvél meðferðis, sundföt og hlý föt. Verðlaun verða veitt fyrir asnalegasta jakkann. Nú get ég ekki hugsað um annað en þennan jakka. Mér datt í hug í morgun að taka traustataki jakka sem hangir alltaf hjá yfirhöfnum kennranna og er stundum notaður sem leikmunur en það er löggujakki. Gæti verið móðgandi fyrir einhverja og ég vil aldrei móðga neinn. Ég verð að hugsa upp einhvern annan jakka.
Ég prófaði eitt af þessum furðulegu prófum sem tröllríða netheimum og þetta er útkoman.
Jæja, útkoman var að ég væri hnetusmjör og síðan mín þoldi ekki álagið.
Ég veit þá að héreftir tek ég ekki nein svona próf. Mér er nú líka sléttsama.

miðvikudagur, 23. apríl 2003

Ég varð að taka á mig krók heim úr skólanum í dag því ég á enga grillsteik heima. Labbaði í stafalogni og næstum því hitasvækju í kaupfélagið, sem heitir núna 11-11 og breytist von bráðar í Krónu, og smellti mér á lambasteik. Þar sem til stendur að kennararnir grilli hjá skólastjóranum í kvöld lætur maður ekki sjá sig nema með lambakjöt, annað væri helgispjöll á hans heimili. Ég er ekki komin í grillstuð enn þá þannig að ég keypti ekki grillkartöflur, grillgrænmeti, grillolíu, grillþetta og grillhitt ég keypti bara kartöflusalat sem meðlæti, afskaplega ófrumlegt. Ég keypti heldur ekki grillbakka, makkarónukökur, marssúkkulaði, jarðarber og bláber í eftirrétt heldur súkkulaði -jógúrt- hnetur og ávexti sem á ekki að grilla heldur bara hella í skál og úða í sig. Ég hlýt að fá grillstemmninguna í mig eftir kvöldið í kvöld. Svo á ég eina hvítvín sem ég sting í pokann líka og hvolfi væntanlega í mig. Ummm... hvað ég hlakka til.

mánudagur, 21. apríl 2003

Svo er það hið árlega páskakaffi hjá mömmu og pabba. En aumingja Simmi kemst ekki fyrr en leikurinn er búinn.
Heilagleiki páskanna var meðtekinn í tveimur messum í gær. Fyrst var messað í Þorlákskirkju, fyrir hádegi og síðan í Strandarkirkju. Ég var búin að fá frí frá söng þessa helgi. Við hjónakornin ætluðum að vera á Austurlandi, búa í íbúð Svövu Ránar og keyra svo á Fáskrúðsfjörð og athuga hvernig nýja skólastjóranum þar reiðir af og svo ætluðum við auðvitað á Reyðarfjörð að rifja upp þrjú ár sem við áttum þar og heimsækja skólastjórahjónin. En af þessari ferð varð ekki af því að hann Simmi minn rekur fyrirtæki sem þarf að sinna. Það varð sem sagt að hafa opið í Króniku á laugardaginn. Sjálfstæðismenn í mosó voru með hið árlega páskabingó á torginu og það hefði vrið fáranlegt að hafa lokað í kaffihúsinu á staðnum. Við riðum nú ekki feitum hesti frá þessum degi en borgaði sig samt.
Fyrst ég var heima þá fór ég auðvitað og söng með kórnum mínum. Það er mín slökun og félagsskapurinn skemmtilegur. Nú svo hitti ég Guðrúnu Eggerts í messu og hún kom með mér heim og þáði hádegismat hjá hjá okkur. Það var gaman að eiga við hana spjall, við hittumst allt of sjaldan.

laugardagur, 19. apríl 2003

Við Simmi minn hringdum tvö símtöl til útlanda í gærkvöldi. Fyrst töluðum við við Jones kærustuparið í Wrexham í Wales. Það er allt í þessu fína með þau, bara ástfangin og sæl með lífið og tilveruna. Voru búin að vera tvo daga í sumarhúsi foreldra Dave þar sem þau voru í 22 stiga hita. Svava Rán sólbrann en Dave varð dökkbrúnn og enn sætari fyrir vikið að sögn hennar. Hún segir að hann megi ekki hugsa um sól þá verði hann brúnn.
Við hringdum svo til Iowa City USA og þar svaraði höfðinginn Karl Kolbeinn og sagði að mamma sín og pabbi hefðu farið fyrir svona tíu mínútum ti Chicago og ætluðu að hitta þar einhverja Íslendinga. Hann var heima og Tim vinur hans hjá honum en átti von á barnapíu rétt bráðum. Það rigndi en snjóaði hagléli öðru hverju á stærð við "golfballs" að sögn Kolbeins.

föstudagur, 18. apríl 2003

Við vorum að koma úr bíltúr með Jónu Stínu og Finna. Við keyrðum um yndislegastu sveit landsins, Flóann. Það er svo gott að vera staddur í Bæjarhreppnum og horfa yfir fjalllaust landið og sjá þar sem haf og himinn mætast. Við byrjuðum á Eyrarbakka og Stokkseyri, þá tekur Bæjarhreppurinn við og síðan Villingaholtshreppurinn og við beygðum Urriðafossafleggjarann og sáum hið nýja brúarstæði fyrir Þjórsárbrú. Skoðuðum aðeins ný hverfi á Selfossi og undruðumst uppbygginguna þar en enduðum í ís í Eden, rétt eins og í gamla daga.
Í hádeginu hjálpuðum við Grétu og Gunnari að borða afganga úr fermingarveislu Kolbrúnar. Þrátt fyrir 70 manna veislu í gær var nóg til handa stórfjölskyldunni í dag.
Ég hef stundum kvartað við hann Simma minn yfir því að það sé bara ekki hægt að rífast við hann eða fá hann til að ræða út um ýmis málefni sem mér finnst þurfa að útkljá. Þetta getur gert mér ansi gramt í geði. Hann hefur alltaf haldi því fram að það sé betra að þegja en að segja einhverja vitleysu. Hann hrósaði líka sigri þegar hann las málháttinn sem hann fékk í páskaegginu sem ég gaf honum og hann stalst til þess að borða á skírdagskvöld. Málhátturinn hljóðar svona: Þögn er viskutákn en mælgi heimsku mark.

fimmtudagur, 17. apríl 2003

Hann sonur minn sendi mér þetta ljóð og ég hugsaði um leið:" Mikið rosalega er strákurinn minn góður, hann jafnast á við bestu ljóðskáld sem Ísland hefur alið." En ég misskildi sendinguna auðvitað, hann var bara að segja mér hversu góður Steinn Steinar var og hversu vel valin orð standa tímans tönn.

Nú baðar jörð í blóði,
og barist er af móði,
og þessu litla ljóði
mun lítil áheyrn veitt.
Og þótt ég eitthvað yrki
um Englendinga og Tyrki,
má telja víst það virki
sem verra en ekki neitt.

Ég ligg hér einn og lúinn,
úr lífsins harki flúinn,
og vilja og vopnum rúinn
á vinsamlegum stað.
Manns hug ei hátt skal flíka,
ég hefi barist líka
og átt við ofraun slíka.
En ekki meira um það.

Vort líf er mikil mæða
og margt vill sárið blæða,
og knappt til fæðu og klæða
er kannske nú sem þá.
En samt skal sorgum rýma,
þótt sækist hægt vor glíma,
því eflaust einhverntíma
mun einhver sigri ná.

Og berjist þeir og berjist
og brotni sundur og merjist,
og hasli völl og verjist
í vopnabraki og gný.
Þótt borgir standi í báli
og beitt sé eitri og stáli,
þá skiptir mestu máli
að maður græði á því.


Steinn Steinarr
1908-1958


Hefði þetta getað verið samið í gær?
--

Karl Æ. Karlsson
Department of Psychology
Behavioral and Cognitive Neuroscience
E-415 Seashore Hall
Iowa City, IA 52242
Home Tel: +(319) 338-9318
Lab Tel: +(319) 335-3975
e-mail: karl-karlsson@uiowa.edu
Ég er ekki gerð fyrir það að vinna á veitingastað. Ég get ekki selt hluti sem ég bý til sjálf eða hann Simmi minn og ég get ekki rukkað fólk sem gleymir að borga og ég verð svo þreytt í fótunum á "plammpinu" (skyldi þetta vera gott og gilt íslenskt orð?) fram og til baka að ég er alveg að niðurlotum komin eftir smá stund. Sem betur fer er komið að stuttu fríi.

þriðjudagur, 15. apríl 2003

Hún er kölluð Karlotta. Fallegt nafn. Ég heyrði hennar fyrst getið fyrir nokkrum vikum. Það var hringt í mig og ég spurð hvort ég vildi hitta hana í október. Ég varð svo glöð að ég fór að gráta. Ég held að ég hafi haldið að ég myndi aldrei hitta hana. Það er reyndar ástæða fyrir því. En það er komið í ljós að hennar er von og ég hlakka alveg rosalega mikið til.

mánudagur, 14. apríl 2003

Í dag hófst páskafrí hjá mér sem kennari. Það er ósköp ljúft og ég segi nú alltaf, þegar fólk segir :"Bara komin í frí, ha?" að það séu forréttindi að fá að vera kennari. Þá nennir fólk ekki að tala meira um þetta, finnur líklega að ég er í kennslu af eintómri hugsjón en ekki vegna löngu fríanna sem ég fæ alltaf öðru hverju. Ég fór á sama tíma á fætur og venjulega en ekki til að fara í skólann heldur í Mosó að reyna að hjálpa til við störfin á Króniku. Það er ótrúlega erfitt að detta svona inn dag og dag og eiga að finna á sér hvað á að gera næst. Það gleymist ýmislegt sem kokkurinn heldur að ég finni á mér að eigi að gera. Og svo fæ ég skammir en þær fara nú bara inn um annað og út um hitt. Enda sé ég ekki hann Simma minn fara upp í skóla og redda einum íslenskutíma bara rétt si svona. Ég sé hann ekki fyrir mér kenna um viðtengingarhátt sagna eða undirflokka fornafna.

sunnudagur, 13. apríl 2003

Söngurinn hefur hljóðnað og fermingarveislan afstaðin. Ég skaust í Mosó til að hjálpa til við frágang. Hugsa með sér, hann Simmi minn var með fermingarveislu í dag. Ég bara spyr, hvar var hann eiginlega þegar börnin okkar fermdust? Af hverju eldaði hann ekki matinn þá? Ef ég man rétt keyptum við dýrum dómum kokka og fínerí til að hafa allt sem flottast. Mig grunaði bara ekki það, og sjálfsagt ekki hann heldur, að hann gæti kokkað, hvað þá séð um veislu. Ég er búin að vera gift þessum manni í 31 ár og kysst hann í 35 ár og er enn að kynnast honum. Þvílíkt og annað eins. Hvenær tekur þetta enda? Ég held ég vilji engan enda það er alltaf jafn spennadi að hitta hann að loknum vinnudegi, jafnvel eftir öll þessi ár, hversu súr og sæt sem þau hafa verið.
Pálmasunnudagur runninn upp bjartur og fagur. Simmi minn er farinn í Mosó að sjá um fermingarveislu. Ég þarf að vera hérna heima til þess að syngja við fermingarmessu í Þorlákskirkju. Hann hefði nú heldur viljað hafa mig með en svona er lífið. Mér finnst það líka ágætis afsökun að þurfa að syngja við messu því ég á mjög erfitt með að sjá um mat og þjónusta fólk. Það vantar í mig þann þáttinnn. Ég verð svo stressuð að ég fæ andarteppu. Ég er hrædd um að það sé of lítill matur, hann sé vondur, illa fram borinn og allt sé ómögulegt. Ég er þokkaleg í skúringum og uppvaski en ekki þó nema rétt þokkaleg. Ég er ómöguleg í afgreiðslu. Ég gaf fólki í gær kökusneiðar með kaffinu af því mér fannst kökurnar ljótar og ekki hægt að selja þær. Þar tapaði Snör ehf.

laugardagur, 12. apríl 2003

Dagurinn var tekinn snemma. Það þurfti að koma Dúllu Jones á Leifstöð, í veg fyrir flug eins og Reyðfirðingar segja. Þegar við mættum þar, með klukkutíma fyrirvara, leist okkur ekki á blikuna. Leifstöð var eins og hin fræga stappaða síldartunna nema hvað það flæddi út úr henni. Ég giska á að um 100 farþegar hafi verið í biðröð fyrir utan hús, komust hreinlega ekki inn. Við sáum að Dúlla næði aldrei á tilskildum tíma í innritun. En það kom tilkynning, í hátalarakerfinu, að allir á leið til London hefðu forgang og hinir farþegarnir ættu að hliðra til. Síðast þegar ég heyrði í henni var hún að hlaupa að hliði 32. Á þessari stundu, klukkan 10:50, ættu þau skötuhjú, Dúlla og Dave Jones að vara að hittast á Heathrov (andsk...ég kann ekki að skrifa híþró). Þarf að fletta því upp.

fimmtudagur, 10. apríl 2003

Ráðgátan, um hvort Íslensk málnefnd væri virkilelga hætt að reyna að uppræta þágufallssýki, er leyst. Magnþóra kom með úrklippu úr DV handa mér þar sem Silja Aðalsteinsdóttir er að fjalla um besta aprílgabbið. Þetta með þágufallssýkina var aprílgabb í málfarsmínútu Spegilsins. Ég fer alltaf í dálitla fýlu þegar fólk er með aprílgabb þar sem ekkert þarf að "hlaupa", ég er á móti svona asnalegu gabbi, en það má segja að ég hafi "hlaupið" núna því ég eyddi löngum tíma við tölvuna í gær að lesa heimasíðu Íslenskrar málnefndar þar sem ég leitaði dyrum og dyngjum að einhverri umfjöllun um þágufallssýki en fann ekkert. Sem von er. Við ætlum að berjast aðeins lengur við þessa meintu sýki en ég spái því að komandi kynslóðir eigi eftir að slaka á kröfunum um notkun ópersónulegra sagna.

þriðjudagur, 8. apríl 2003

Heyrði því fleygt að Íslensk málnefnd væri hætt að skipta sér af þágufallssýki. Mig bráðvantar nánari fréttir af þessu.
Pöntunarþjónustan kemur með kjöt í karrí í kvöld. Ég mun anga af indversku kryddi í skólanum í kvöld en til stendur að breyta okkur Ástu í sminkur. 10. bekkur ætlar að uppfæra hið vinsæla leikrit Síldin kemur, síldin fer. Ég sá generalprufu í gær og krakkarnir standa sig með prýði. Hlakka til að sjá þetta aftur.
Við, stelpurnar í saumaklúbbnum, náðum að kjafta saman til klukkan rúmlega eitt í nótt. Aldrei slíku vant. Við gleymdum okkur bara alveg yfir einhverju skemmtilegu fánýti. Til þess er leikurinn gerður. Ég hef líka fengið að finna fyrir því í dag, dauðsyfjuð, því venjulega sef ég tvo til tvo og hálfan tíma fyrir miðnætti.

mánudagur, 7. apríl 2003

Pöntunarþjónustan er búin að hringja. Nú fékk ég að velja á milli spaghettí bolognese eða plokkara. Ég valdi plokkarann vegna umræðna í síðustu viku (eða var það þar áður) um þverrandi fiskát Íslendinga. Ég mun bæta aðeins úr því í kvöld. Ég mun væntanlega seðja sætabrauðshungur mitt síðar í kvöld en það er saumaklúbbur hjá Svanhildi. Það verður ljúft að slaka á með stelpunum.

sunnudagur, 6. apríl 2003

Talaði við Kalla í gærkvöldi. Það er allt gott að frétta í Ameríku, þannig lagað, gott veður og allir hraustir. Kolbeinn er farinn að sýna gelgjustæla, ekki orðinn tíu ára gæinn. Hann skammast sín stundum fyrir foreldra sína. Hefur beðið Elsu að klæða sig eins og hinar mömmurnar eru klæddar. En eins og allir vita, sem þekkja Elsu, færi hún aldrei út úr húsi í gallabuxum, strigaskóm og í bol með áletruninni IOWA. Ég benti Kalla á hvað hann og Svava Rán hefðu haft það gott að þurfa aldrei að skammast sín fyrir okkur, gamla settið hans. Kalli kímdi og spurði mig hvort ég myndi ekki eftir því þegar hann og Svava Rán kúrðu ofan í aftursætið á bílnum, áleið út úr þorpinu, því þau skömmuðust sín svo rosalega fyrir okkur að það mátti enginn af þeirra vinum sjá þau með okkur. Minni mitt náði nú ekki svona langt að kannast við þetta en spurði hverju sætti. Jú, pabbi var með bólur á enninu og kenndi síðum hártoppi um. Til þess að losna við bólurnar tók hann toppinn frá með grænni spennu. Hvernig áttu þau að lifa með þessum hryllingi?

laugardagur, 5. apríl 2003

Ég finn fyrir sorg þegar ég sest fyrir framan tölvuna mína og opna síðuna mína. Mér verður hugsað til þeirra sem hafa hætt að skrifa um hugðarefni sín á netið vegna ömurlegra umsagna sem þeir fá um skoðanir þeirra á lífinu og tilverunni. Mér finnst þetta svo skemmtilegur vettvangur til þess að skrifa um allt og ekkert og hefur liðið vel með það hingað til. Veit ekki hvert framhaldið verður. Ég hef reynt að innræta þá hugsun hjá nemendum mínum að virða skoðanir annarra en láta samt sína skoðun í ljós þó þeir séu ekki á sama máli en gera það kurteislega þannig að viðmælandinn verði ekki sár og móðgaður. Það að kunna samræðulist er lífsnauðsyn en það þarf þetta til, að virða það þó allir hafi ekki sömu skoðanir. Margt fullorðið fólk virðist gleyma allri kurteisi þegar það les skoðanir annarra og lætur allt flakka án þess að hugsa hvort það særi og meiði. Kurteisi kostar ekkert.
Ég tók próf um það hversu góð íslenskumanneskja ég væri hjá Eddu og útkoman er vægast sagt ömurleg. Ég fékk 5 stig af 20 mögulegum og umsögnin var þessi:
Do you speak icelandic? Þetta gekk kannski ekki alveg nógu vel en æðrastu ekki, íslenskan er svo ótrúlega orðrík að lengi væri hægt að tala með orðum sem enginn venjulegur Íslendingur hefði heyrt. En það er alltaf hægt að auðga mál sitt með lestri góðra bóka - og hjá Eddu eigum við nóg af þeim á sanngjörnu verði!
Á ég ekki bara að segja upp og finna mér aðra vinnu?

föstudagur, 4. apríl 2003

Kötturinn Ferguson hvarf að heiman fyrir rúmri viku. Hann stökk ofan af svölunum hjá Svövu Rán og kom ekki aftur eins og hann var vanur. Svava Rán er búin að vera ómöguleg yfir þessu. Það er búið að leita um allan Hornafjörð en enginn hefur séð köttinn. Viti menn- hann birtist í gærkvöldi fyrir neðan svalirnar og mjálmaði hátt og bauð sjálfan sig velkominn heim. Mikil varð gleði Svövu Ránar. Hún skilur ekkert í því af hverju kötturinn fór svona illa að ráði sínu eins og hún er góð við hann en málið er að hann er jú fress, ógeldur og þarf sitt.
Var ekki föstudagur í gær? Nei, það er föstudagur í dag. Er alltaf föstudagur? Nei, ég bara spyr, því ég skil ekki hvert tíminn fer.Einhver gáfaður maður sagði að tíminn væri afstæður. Ég verð að taka þátt í því.
Ég var á Enjokynninigu hjá Magnþóru í gærkvöldi og nú finnst mér allt svo ógeðslega skítugt hjá mér, því ég hef aldrei þrifið með Enjo. Og verra er að ég á ekkert Enjodót þannig að ég verð að hanga innan um drulluna og ógeðið heima hjá mér. Ég ætla að reyna að þrífa upp á gamla móðinn en það verður bara til að sýnast þangað til ég hef efni á að kaupa Enjo. Þar til - ryk, drulla og skítur.

fimmtudagur, 3. apríl 2003

Ég varð svo spennt í gær þegar Elsa hringdi og sagði að það væri hægt að fá flug núna frá Minneappolis fyrir 20 þúsund. Hún var að pæla í að senda Kolbein strax, þó skólinn væri ekki búinn, til að spara pening. Við höfum hingað til borgað hátt í 100 þúsund fyrir hann. Mér fannst hugmyndin hennar góð og fór strax að skipuleggja í huganum nýja uppröðun húsgagna svo færi vel um pilt hjá mér og talaði við Halldór í morgun um það hvort Kolbeinn mætti ekki koma í skólann þó stutt sé eftir af kennslu. Auðvitað var það velkomið. Þá eru þeir feðgar ekki eins hrifnir af hugmyndinni. Ég hringi í kvöld til að heyra betur í þeim.

miðvikudagur, 2. apríl 2003

Það er af sem áður var þegar ég stjórnaði skemmtanalífi okkar hjóna. Ef mig langaði að fara eitthvert eða gera eitthvað þá ákvað ég það og sagði Simma mínum frá því og hann kom með mér. Hann er allt í einu farinn að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Segir hiklaust við mig að hann langi ekki að fara ef ég sting upp á einhverju. Hann hefur annaðhvort tekið út þroska núna á gamals aldri eða orðinn leiður á að ég stjórni öllu. Og ekki nóg með það heldur tekur hann einn og óstuddur ákvörðun um hvað skuli gert til skemmtunar. Hann sagði við mig í gærkvöldi: " Það verður farin óvissuferð á vegum Kiwanis á laugardaginn. Það er búið að skrá þig og þú kemur með." Ég sem hata óvissuferðir. Ég þoli ekki að vita ekki nákvæmlega hvað ég er að fara að gera, aðallega vegna klæðnaðarins. Hugsa sér að vera í útivistarfötum og lenda svo inni á fínum veitingastað? Eða vera í sparidressi og lenda í gönguferð úti í rigningu? Þetta hefur nefnilega komið fyrir mig og það er andstyggilegt.
Voðalega verður leiðinlegt að geta ekki lengur lesið það sem Murtan hefur haft að segja hingað til. Hún er hætt. En svona er lífið, allt breytist, ekkert er alltaf eins. Það verður að taka því.

þriðjudagur, 1. apríl 2003

Ég reyndi að herja út frí frá messusöng á páskum, á kóræfingu í kvöld. Ég vona að það gangi því þá ætlum við Simmi minn að fara austur á Hornafjörð og hertaka íbúðina hennar Svövu Ránar og vera þar frá því á skírdagskvöld og fram á annan í páskum. Tímann á svo að nota til þess að heimsækja Austfirðinga.
Á sunnudaginn áttum við Simmi minn 31 árs brúðkaupsafmæli. Er það ekki bara vel af sér vikið?