Síður

laugardagur, 2. apríl 2005

Eftir páskaferðina til Wales þekkjum við Simmi minn Heathrow flugvöll snöggtum betur en áður. Á leiðinni til Wales ætluðum við að taka tengiflug sama dag en komum aðeins of seint. Rananum út í Manchestervélina var lokað á nefið á okkur. Við sem hlupum á milli terminala eins og skrattinn væri á hælunum á okkur. Það var ekkert um annað að ræða en að fara á hótel í London og gista þar um nóttina. Nýttum við okkur hótelpöntunarþjónustu á Heathrow vegna þess að við vorum ekkert undir það búin að vera á hóteli. Morguninn eftir fengum tókum við flug til Manchester og þangað náði Jones fjölskyldan í okkur. Við fórum til baka 10 dögum síðar því þá var möguleiki á að laust pláss væri í vél frá London og heim. Þetta skapar gífurlega spennu og stress að vera að ferðast á opnum miðum. Mesta spennan er vegna tengiflugsins. Við vissum að það væri ekkert mál að komast frá Manchester til London, það eru svo margar vélar á dag. En að vera komin til London án þess að vita með vissu hvort það sé laust í vél heim skapr aðal stressið, því það stóð aldrei til að gista í London. Við vorum sem sagt komin allt of snemma á Heathrow á miðvikudeginum. Urðum að vera þar í eina átta klukkutíma því vélin heim fór ekki fyrr en 21:10. Við erum sem sé orðin lúnkin í að fara á milli terminala og þekkjum marga veitingastaði og upplýsingaborð á Heathrow. Við hefðum sjálfsagt getað fengið töskuna okkar geymda einhvers staðar á vellinum og farið og heimsótt Betu, Pusa og Kalla prins en við vorum ekki viss um að þau ættu neitt með kaffinu svo við létum það eiga sig.
Við uppgötvuðum svo morgunin eftir, nývöknuð heima, að við áttum brúðkaupsafmæli þennan dag sem við eyddum á Heathrow. Aldrei gleymt þessum degi áður. Við hefðum sjálfsagt ekkert hegðað okkur öðruvísi en við gerðum þótt við hefðum munað þetta, kannski skálað í hvítvíni, ég veit það ekki. Það er nú alveg ástæða til að skála fyrir 33 árum í hjónabandi enda kom hann Simmi minn með kampavín heim úr vinnunni daginn eftir og það var ekkert verra.

Engin ummæli: