Síður

fimmtudagur, 31. maí 2012

Langar neglur

Lengstu neglur sem ég hef haft
Halldór skólastjóri spurði mig í gær, þegar ég skrapp upp ískóla, hvort ég væri ekki leið á að hanga svona heima. Ég þurfti að fara í örskots naflaskoðun til að svara spurningunni og það var enginn vandi. Mér finnst einfaldlega ofboðslega gott að hanga heima. Mér finnst reyndar ekki hægt að kalla það að hanga heldur finnst mér gott að vera heima. Ég hef alltaf nóg fyrir stafni. Þó ég sé að jafna mig eftir brjóstaminnkun og má alls ekki gera allt sem mig langar til þá hef ég samt nóg að gera við tímann. Ég er ekki alltaf að gera eitthvað gáfulegt eða nytsamlegt ég er bara hér, við lestur, prjón eða hekl, útvarpshlustun, netflakk og ýmislegt fleira.
Ég er t.d. núna í óða önn að safna nöglum. Það hef ég aldrei getað en núna eru neglurnar bara fínar og ótrúlega langar á minn mælikvarða. Annaðhvort er ástæðan sú að ég geri heimilsverkin ekki þessa dagana eða sú að ég hef tekið inn tvær matskeiðar af lýsi í stað einnar nú í skamman tíma.

miðvikudagur, 30. maí 2012

Bað

Mikið var það dásamlegt að fara í heilsturtu í morgun. Ég þvoði hárið sjálf og blés það líka. Ég á að hllusta á líkamann, hvað hann getur, og það var alveg hægt að blása hárið. Ég labbaði svo í rólegheitum í skólann og gekk þar frá smámálum og labbaði svo til múttu. Göngutúrinn gerði mér bara gott en ég fer hægt yfir. Finnst vont að ganga hratt.
Horfði á brjóstin mín í speglinum en ekki lengi.
 Ég hefði aldrei getað orðið hjúkka. Fæ alltaf illt í rassgatið þegar ég sé skurð eða sár.

þriðjudagur, 29. maí 2012

Brjóstaskoðun

Ég átti tíma hjá Þórdísi lýtalækni klukkan 10 í morgun. Simmi minn keyrði mig á stofuna til hennar og kom með mér inn. Þórdís sjálf var ekki við heldur staðgengill hennar, Þyrí sjúkraliði. Ég varð pínu spæld en Þyrí kunni greinilega alveg til verka og hún skoðaði mig og tók plástra sem voru yfir drenlagnargötunum og gaf mér fulla skoðun. Brjóstin mín líta eins vel út og þau eiga að gera átta dögum frá aðgerð. Ennþá er bólga og bjúgur í þeim en það er eðlilegt. Hún sagði að ég mættti fara í sturtu, bara standa ekki lengi og láta buna á mig og ekki of heita.
Ég fékk nýjan tíma hjá Þórdísi eftir hálfan mánuð.

mánudagur, 28. maí 2012

Afmælisveisla

Nanna, ömmustelpa, varð 12 ára  föstudaginn 25. maí. Þá bauð hún öllum bekknum í partý heim til sín en í dag bauð hún ömmum og öfum, frændum og frænkum í mat. Við tókum mömmu og pabba og Nonna með okkur og vorum náttúrlega ekki svikinn af matnum hennar Elsu. Hún gerir alveg ótrúlega góðar pizzur, bara í ofninum sínum. Þær eru betri hjá henni en á mörgum veitingastöðum. Hún gerir sósuna líka sjálf frá grunni. Nammi, namm. Og svo var súkkulaðiterta í eftirrétt.
Ég var með smá kvíða í brjósti að ég ræki mig utan í einhvern og finndi til í litlu brjóstunum mínum en það var auðvitað alveg ástæðulaust. Ég sat bara á stól og lét Simma minn stjana við mig. Ég er auðvitað aum ennþá enda bara ein vika frá aðgerð. Það var allt í lagi að sita í bílnum og allt í lagi með mig.
Posted by Picasa

sunnudagur, 27. maí 2012

Brjóstamjólk?

Mér líður betur og betur með hverjum deginum. Verkirnir minni og minni og þar með fækkar verkjastillandi pillunum jafnt og þétt sem ég hef verið að gleypa.
Ég var að spekulera í því morgun af hverju ég kannaðist svona við þessa tilfinningu sem ég hef í brjóstunum. Af því ég hef aldrei áður farið í brjóstaminnkun ætti ég ekki að kannast við tilfinninguna. En svo kveikti ég á perunni. Tilfinningin var eins og brjóstin væru stútfull af mjólk. Það eru reyndar 37 ár síðan en ég man tilfinninguna. Þrýstingur í brjóstunum og þau stíf. Þannig er ég núna. En það er af bjúg og bólgu sem á eftir að hjaðna.
"Það er eins og þú hafir misst 10 kíló," sagði María við mig í dag í sunnudagakaffinu hjá mömmu.
Gaman að heyra svona.

laugardagur, 26. maí 2012

Eins og sjúklingur

Mamma og pabbi kíktu við í gær. Mamma sagði að ég liti út eins og sjúklingur. Ég var ekki allskostar ánægð með þá athugasemd svo ég fór í sturtu til að þvo af mér aumingaútlitið. Þar sem ég er með mikla sauma umhverfis brjóstin, sem má ekki bleyta, varð ég að finna eitthvert ráð. Sturtubaðið fór sem sagt þannig fram að Simmi minn berháttaði sig og fór inn í sturtuklefann, ég stóð fyrir utan og stakk hausnum inn fyrir og hann þvoði mér þannig um hárið. Síðan fór ég inn í klefan og sturtaði mig frá tám og upp að mitti. Mér leið óneitanlega betur á eftir. En hárið var látið þorna af sjálfu sér og þá koma í það alls kyns fettur og brettur sem ég vil ekki hafa. Þannig að leikurinn var endurtekinn í morgun, alveg eins nema nú kláraði Simmi minn dæmið þannig að hann blés líka á mér hárið. Svo litaði ég augabrúnirnar.
Ég trúi því ekki að mamma segði í dag, ef hún sæi mig, að ég lti út eins og sjúklingur.
Ég á eftir að segja Simma mínum að við hárþvottinn í morgun, var ég með opin augun.

föstudagur, 25. maí 2012

Eftir aðgerð

Loksins rann dagurinn upp sem ég hafði beðið svo spennt eftir í rúmt ár. Aðgerðardagurinn. Brjóstaminnkunardagurinn. Ég hafði fengið daginn 7. maí úthlutaðan en hann var tekinn af mér og aðgerðinni seinkað um hálfan mánuð. Það kom sér vel, vegna vinnunnar, þannig að ég var alveg sátt. Mánudaginn, 21. maí, skutlaði Simmi minn mér á Landsspítalann Fossvogi, kvaddi mig þar um 10 leytið og ég hóf undirbúning fyrir aðgerð. Ég var náttúrlega fastandi, þannig að undirbúningur var byrjaður og ég hafði farið í sótthreinsandi  sturtu kvöldið áður en nú fór ég aftur í sturtu og þvoði mér samkvæmt fyrirmælum, háttaði ofan í rúm og beið smá stund. Þá var mér ekið í rúminu á skurðstofu , sem var á einhverri annarri hæð. Ég hitti Þórdísi Kjartansdóttur, lýtalækni og hún mældi brjóstin á mér út með venjulegu málbandi og teiknaði á þau hin ýmsu strik með svörtum tússpenna og spurði mig hvaða stærð ég óskaði eftir. "C," svaraði ég. Ég veit ekki enn hvort mér hefur orðið að ósk minni. Svo man ég að ég fékk net til að setja yfir hárið, sem var nóta bene blautt eftir sturtuna, og horfði upp í skurðstofuljós, fékk æðalegg, klukkan var hálf eitt og svo veit ég ekki meir fyrr en einhver sagði eitthvað við mig klukkan hálf fimm. Ég var meira og minna vönkuð það sem eftir lifði dags og margt er í þoku. Ég man þó að áður en nóttin skall á vildu hjúkkur að ég færi fram úr. Ég gat ekki staðið hjálparlaust, fékk stuðning og bað um að fara á klósettið. Ég var leidd þangað og þá gerði ég mér grein fyrir að ég var með dren úr báðum brjóstum. Það tók í og ég fann svo mikið til og svimaði svo mikið að ég gleymdi að hugsa um lítil brjóst.
Ég svaf mest lítið um nóttina. Lá á bakinu og leið þokalega vel.
Dagur tvö leið hratt, ég fékk morgunmat og borðaði hann með góðri lyst, eins og allan mat, naut umönnunar frábærs starfsfólks og hlustaði á útvarp. Simmi kom og einnig Kallli og Nanna.
Venjulega fara konur heim sólarhring eftir aðgerð en vegna drenlagnana fékk ég að vera annan sólarhring til. Mikið var ég fegin. Drenlögnin fór illa í mig. Bara það að vita að rör lægju inn í líkamann var óhugguleg tilhugsun.
Ég horfði á sjónvarpið um kvöldið, þ.á.m. fyrri undanúrslit í Júróvision þar sem Gréta Salóme og Jónsi komust áfram. Ég svaf vel alla nóttina og morguninn líka, þrátt fyrir annir á spítalanum.
Um morguninn, á degi þrjú  voru drenlagnirnar teknar. Það var ekki þægilegt en mér fannst útilokað að kvarta þar sem þetta var sjálfskaparvíti hjá mér. Þ.e. ég bað um aðgerðina en fékk ekki einhverja veiki. Mér leið pínu eins og aðskotahlut eða svindlara þar sem ég lá innan um alvörveikt fólk. En þetta var bara mín eigin hugsun. Allir hafa staðið pottþétt við bakið á mér. Líka starfsfólkið á spítalanum. Simmi minn kom um hádegisbil og fór ég með honum heim. Sat eða hálflá í stól allan daginn og reyndi að hafa það næs en varð bara þreyttari og þreyttari í bakinu. Svaf eiginlega ekkert um nóttina vegna þreytuverkja í bakinu en varð samt að liggja á því. Þori að leggjast á hliðina.
Dagurinn í gær var þokkalegur. Simmi er eins og besti læknir. Hann skipti um á skurðinum og klæddi mig í annan haldara. Hann stjanar við mig.
Ég fann svo í morgun þegar ég vaknaði, eftir góðan nætursvefn, að mér leið miklu betur en veit að ég á taka lífinu með ró og mun gera það.