Síður

miðvikudagur, 30. desember 2009

Áramótasteikin
"Vantar þig eitthvað úr Krónunni," spurði Simmi minn í símanum í dag. Hann var á leiðinni heim. Ég var nýkomin úr Bónusferð frá Selfossi.
"Nei, ég er búin að redda öllu fyrir áramótin, ekki hafa áhyggjur af neinu, elskan. Ertu kominn á heimstímið?"
"Já, félagi minn á bara eftir að kaupa fyllinguna í kalkúninn, svo leggjum við í hann."
Ég fékk eins og létt högg í hausinn og blés út úr mér, þarna í símann, því sem ég var búin að hugsa en vissi alveg að þýddi ekki neitt fyrir mig að tala um.
"Af hverju getum við ekki haft kalkún eða hreindýr eða andabringur eða nautalundir eða gæs í matinn á gamlárskvöld? Af hverju þarf alltaf að elda það sem þú vilt?"
"Heyrðu, ástin mín, tölum um þetta þegar ég kem heim."
Þegar Simmi minn kom heim heim stakk hann bara upp á því að um næstu áramót yrðum við á Kanarí eða einhvers staðar að heiman þar sem við snæddum á veitingastað svo hver geti pantað það sem hann vill borða.
Já, sumir komast létt frá hlutunum.
Það er ekki hægt að segja annað.

laugardagur, 26. desember 2009


Jólamús
Í gær, eftir að myrkrið skall á, það skall reyndar ekkert á, það bara er á þessum árstíma, þá vorum við Simmi minn á heimleið, gangandi úr veislu og vorum komin allan göngustíginn milli Skálholtsbrautar og götunnar okkar þegar mús gekk í veg fyrir okkur.
Ég hef hingað til séð mýs skjótast allhratt eða hlaupa í felur. Þessi var ekki í þeim gír, hún bara gekk í veg fyrir okkur sallaróleg. Hún var ekki á útsýnisgöngu, gæti hafa verið á heilsubótargöngu. Hún var alla vega ekki hrædd við neitt eða að flýja aðstæður.
Mér fannst allgjör upplifun að sjá músina svona afslappaða. Ég á mér nefnilega leynda samvisku af því ég drap svo margar mýs á Tærgesenárunum. Það var svo leiðinlegt að hafa þær skokkandi yfir salinn þegar gestir sátu við borðhald eða öllu verra að heyra skrjafið í þeim á morgnana ofan í kornflekspakkanum þannig að við vorum sífellt á músaveiðum. Svo fengum við okkur kött. Þá breyttist allt sem viðkom músum á Tærgesen en það er önnur saga.
En þessi litla sæta, feita mús sem ég sá í gærkvöldi var næstum búin að fá boð um að kíkja í heimsókn.
Simmi minn lagði til að flýttum okkur að loka dyrunum á eftir okkur svo hún kæmi ekki inn.
Ég rankaði við mér og fannst það góð tillaga.
Ég var samt að hugsa um greyið úti í kuldanum og vorkenna henni.
Mér fannst hún krúttleg.
Krúttleg jólamús.

þriðjudagur, 22. desember 2009

Jólatrté
"Simmi, áttu ekki að vera að selja jólatré, núna", spurði ég Simma minn í skelfingarkasti seinnipartinn á sunnudag.
Hann stökk upp úr leisíboj, frá því að horfa endalaust á fótbolta í sjónvarpinu, snerist í hringi og spurði mig hvaða dagur væri.
"Simmi", sagði ég umvöndunartón, eins og við lítinn strák.
Hann rauk fram í forstofu og í yfirhöfn og á meðan hann klæddi sig í á hlaupum las hann blaðið frá KIwanisköllunum, þar sem á stendur hver á að sjá um sölu hvenær. Og viti menn, ég hafði rétt fyrir mér, hann átti að selja þennan dag nema hvað sölu lauk þann dag klukkan sex og akkúrat á þessu augnabliki var klukkan sex.
Hann fór úr frakkanum og skammaðist sín.
Daginn eftir, þar sem ég synti mína þúsund metra í rólegheitum, þannig lagað, ég var komin í jólafrí, fattaði ég að jólatrjáasölu Kiwaniskallanna lauk alveg á sunnudag.
Ég gleymdi að kaupa jólatré.
Tíminn flaug frá mér.
Ég reddaði tré í höfuðborginni í dag frá Flugbjörgunarsveitinni.
Einhvern tímann verður allt fyrst.
Flugbjörgunartré í stað Kiwanistrés.
Jólatréð í stofu stendur...............

sunnudagur, 20. desember 2009

Jólalög
Ég á þrjú uppáhaldsjólalög, allavega tvö þeirra tengd miklum tilfinningum.
Á toppnum trónir War is over með þeim skötuhjúum John Lennon og Yoko Ono.
Þetta lag hafði ég heyrt, en ekkert sérstaklega tekið eftir, þegar við Simmi minn vorum stödd í Hull, af öllum stöðum á jarðríki, fyrir nokkrum áratugum síðan, í byrjun desember og þvældumst inn á einhvern lókaklúbb um kvöld eftir að hafa lokið verkefnum dagsins.
Þarna var heldur betur þröngt á þingi og þröngt setinn bekkurinn. Fyrir einhverja guðsmildi fengum við sæti. Simmi minn fór á barinn, eins og svo oft áður, og náði fyrir okkur í drykki.
Þar sem við sátum á baklausum bekkjum og höfðum bara veggina til að styðja okkur við setti plötusnúðurinn War is over eða eins og ég vil frekar kalla lagið So this is christmas á fóninn á þeim hæsta styrk sem um getur. Veggirnir titruðu þannig að tónlist Lennons hríslaðist inn í mig.
Algjörlega.
Ég fékk lagið beint í æð.
Síðan þá situr þetta lag gikkfast í mér sem jólalag jólalaganna.

laugardagur, 19. desember 2009

Jólainnkaup
Ég dró hann Simma minn í höfuðborgina í dag til að kaupa síðustu jólagjafirnar. Á tossalistanum stóð líka Bónus og neðst hafði ég laumast til að skrifa jólakjóll.
Ég þurfti ekki að hafa tossalista, ég vissi alveg hvað átti eftir að kaupa en Simmi minn krafðist þess að ég hefði lista meðferðis, þannig að til þess að friða hann skrifaði ég lista.
Það gekk bara vel að kaupa það sem var á listanum. En þegar var komið að jólakjólnum þá þurfti að fara að flýta sér, því það var leikur í sjónvarpinu sem mátti ekki missa af.
Að velja kjól með þetta á bakinu er ekki auðvelt. Ég reyndi að láta sem ég hefði ekki heyrt þetta og dró Simma minn í þrjár kjólabúðir.
Ég sá bara druslur til að byrja með og var við það að gefast upp þegar ég sá tvo nokkuð góða kjóla hangandi hlið við hlið í sömu búðinni.
Ég mátaði báða en aðeins annar kom til greina. Simmi minn vildi að ég keypti
báða en það var örugglega til þess að forðast valkvíðakast og komast sem fyrst heim í sjónvarpið.
Ég var fljót að velja, því annar var með band sem átti að binda um sig miðjan, en það er eitthvað sem ég þoli ekki á fötum. Það má ekki binda neitt neins staðar í fötum sem ég klæðist.
Ég valdi fínan jólakjól.
Ég á fínan jólakjól.
Held það verði kjólajól í ár.

miðvikudagur, 16. desember 2009

Bjölluhljómur
"Hlátur þinn hljómar eins og klukknahljómur í mínum eyrum," sagði Simmi minn í morgun við mig þegar við hittumst við Íþróttamiðstöðina, hann að koma úr ræktinni og ég að bíða eftir að sundlaugin verði opnuð.
Mér fannst hann svo rómantískur og sætur að ég ætlaði að rjúka á hann þarna fyrir framan félaga mína í Húnafélaginu og kyssa hann fyrir hugguleg orð í minn garð. Ég hafði einmitt verið að hlæja að einhverju fyndnu sem einhver Húnninn hafði látið út úr sér.
Þá upplýsti minn elskulegi að hann hefði stolið þessari setningu frá Trúðnum og klikkti svo út með að lýsa einhverju atriði úr þeirri sjónvarpsþáttaseríu.
Rómantíkin flaug á enda veraldar.
Það mátti nú láta sig dreyma.
Smá stund.
Andartak.
Andartak í rómantískum draumi.

sunnudagur, 13. desember 2009

Bakstri frestað
Ég var alveg ákveðin í því að baka í dag. Það er ekki eins og það sé nauðsynlegt fyrir mig að baka. En einhvern veginn tilheyrir það jólaundirbúningnum að baka og af því ég er búin að undarbúa flest annað þá var kominn tími á baksturinn.
En ég mátti vita það. Ég hef svo oft lent í því. Í rauninni lendi ég alltaf í því þegar mér dettur í hug að skella í köku.
Það er alveg sama þó ég lesi uppskriftina vel og vandlega áður en ég kaupi inn, þá vantar mig alltaf eitthvað til þess að geta búið til deigið. Venjulega verð ég að hlaupa, ekki einu sinni heldur tvisvar út í búð til að kaupa það sem vantar. Það getur verið sykur af því ég átti ekki alveg nóg í skúffunni eða eitthvert krydd eða bara hvað sem er.
Þannig var það núna. Ég tíndi allt til sem á að vera í brúnni lagtertu og þá vantaði púðursykurinn.
Á sunnudögum er ekki opið í matvöruverslunni hér, þannig að ég hafði góða afsökun fyrir því að fresta bakstrinum og gera eitthvað annað.
Slaka á og prjóna.
Ég er eiginlega alltaf að hafa það næs og slaka á.

föstudagur, 11. desember 2009


Jólafílingur
Ég fékk nett nostalgíukast í dag þegar ég setti á fóninn disk sem ég fékk sendan frá dótlu minni í gær. Ég fæ pakka upp á hvern dag nú orðið. Ég veit ekki hvernig þetta endar.
Sum sé, í gær dró ég upp úr sendingu, frá Wales, pakka sem á stóð að við Simmi minn ættum að opna hann strax, já, núna.
Við þorðum ekki annað en að hlýða þessari skipun. Úr pakkanum kom diskur sem við könnuðumst við frá fornri tíð.
Willie Nelson-PRETTY PAPER.
Jóladiskur jóladiskanna.
Þessi diskur....nei þessi plata var sett á fóninn þann 1. des. ár hvert, í mörg ár, á mínu heimili. Það var frí í skólanum og ég notaði tækifærið og bakaði smákökur til jólanna, það var kveikt á jóladagatalakertinu og hnetukerlingarnar voru hengdar upp og Willie settur á fóninn. Ilmur bakstursins fyllti húsið um leið og rödd Willie Nelsons hljómaði.
Jólin voru greinilega á næsta leiti.
Þetta er siður sem gleymist ekki en hefur breyst í tímans rás eins og allt annað.
Annað væri óeðlilegt.
Ég fékk Willie aftur núna og rifjaði upp gamla tíð.
Ég hef ekki spilað hann í mörg ár af því fónninn er ekki lengur til á heimilinu.
Willie er komin í hús og það er gott mál.

fimmtudagur, 10. desember 2009

Jólabollar
Ég fékk pakka í pósti í gær. Ég hélt að það væri komin sending frá Wales en svo var ekki. Pakkinn reyndist vera frá Noregi. Ég varð alveg standandi hissa og renndi í gegnum hugann þeim sem ég þekki í Noregi. Þeir eru ekki svo margir en einhverra hluta vegna hugsaði ég mest til kærs æskufélaga, sem búið hefur í Noregi í mörg ár, á meðan ég tók pakkann upp. Átti samt alls ekki von á neinni sendingu frá honum. Ég reyndist sannspá. Upp úr pakkanum kom hugguleg orðsending og tveir bollar með jólasveinamyndum á. Sendandinn var Bárður.
Ég geri ráð fyrir að færsla mín, frá því um daginn, um norsku jólaglösin, eigi hér einhvern hlut að máli.
Ég varð svo glöð um leið og ég var hissa en af því Bárður byrjaði á því að biðja mig um óskapast ekkert yfir þessu, þá ætla ég ekki að gera það. Bara halda áfram að vera glöð yfir því að eiga svona huggulegan og skemmtilegan vin.
Og vera glöð með jólabollana mína.
Nú á ég norska jólabolla fyrir kaffið sem verður drukkið með koníakinu úr norsku jólaglösunum.

þriðjudagur, 8. desember 2009

Jólabakstur
Ég hef verið að pæla í því að baka bara ekki neitt fyrir þessi jól af því að ef ég á kökur þá ligg ég í þeim og fæ svo bara illt í magann og samviskubit. Simmi minn borðar ekki kökur og við erum ekki með jólakaffi fyrir neinn sérstakan. Fyrir utan það þá hendi ég kökunum síðar af því mér tekst yfirleitt ekki, sem betur fer, að klára úr stömpunum.
Samt langar mig svolítið að baka. Það fylgir jólunum.
"Finnst þér að ég eigi að baka eitthvað fyrir þessi jól," spurði ég Simma minn.
"Já, mig langar svolítið í brúna lagtertu," svaraði hann að bragði.
Hann borðar ekki kökur en langar í brúna lagtertu.
Auðvitað fær hann brúna lagtertu.
Ég fæ súkkulaði-og hnetukökur.

sunnudagur, 6. desember 2009

Rökstólar
Fyrir nokkrum árum keyptum við, Simmi minn, tvo körfustóla á lagersölu hjá einhverju kompaníi í höfuðborginni og komum þeim fyrir í litlu stofunni okkar. Þeir eru ekki svona kósístólar. Maður verður að sitja nokkuð beinn í baki og lappastuttir verða að tylla sér á brúnina til að ná með fótunum niður. Ég var lengi að sætta mig við þessa aumu ákvörðun að kaupa þessa stóla.
Nú hef ég tekið þá algjörlega í sátt.
Þessir stólar heita rökstólar á heimilinu núna og eru notaðir seinnipart dags þegar færi gefst.
Það er þegar, Simmi minn er heima seinnipartinn. Þá setjumst við í þessa stóla og röbbum saman um lífið og tilveruna, hvað er nýjast í fréttum, hvort sem það eru fréttir af familíunni eða landsmálunum.
Við setjumst á rökstóla.
Við, Simmi minn.
Þegar færi gefst.

föstudagur, 4. desember 2009


Jólaglös
Ég kom við í Jólagarðinum í Eyjafirði í sumar og keypti þar tvö koníaksglös. Ég ætlaði ekki að kaupa neitt. Var búin að skanna búðina og komast í jólaskap, þrátt fyrir að það var mitt sumar en ég var enn undir áhrifum kreppunnar og gat ekki hugsað mér að eyða aurunum mínum í einhverja vitleysu.
Þar sem ég var á leiðinni út úr Garðinum, kom ég auga á glös og skálar og eitthvað fleira, skreytt með gamaldags jólasveinamyndum og gyllingu. Þetta fangaði mig. Ég fór, sum sé, út með tvö rándýr glös, að mínu mati. Ég var með dálítið samviskubit fram eftir hausti,vegna eyðslusemi en þegr ég dró glösin fram um daginn og bauð Simma mínum að fá sér koníksdreitil með mér, fannst mér að ég yrði að eignast fleiti glös.
Ég mannaði mig upp í það áðan að hringja í Jólagarðinn í þeirri von að jólasveinninn þar sendi mér rauðvínsglös fyrir jólin.
Ég verð að bíða eftir þeim, því allt er uppselt hjá honum.
Nema ég skreppi til Noregs og kaupi þau beint frá frá Magnor glassverk. Nei, ég segi bara svona.

miðvikudagur, 2. desember 2009


Dónadúettinn
Rosalega varð ég hissa þegar ég fór bloggrúntinn minn í dag og við mér blasti mynd af syni mínum á síðu dr. gunna. Þetta var þá mynd af Dónadúettinum en dr. gunni mun hita upp fyrir þá á útgáfutónleikunum sem verða í kvöld á Kringlukránni.
Ég hlakka rosalega til að fara. Þarna eru á ferð tveir snillingar (ég veit, ég á annan og hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það) á ferð, hr.Óttó og dr. Kalli. Lögin þeirra eru öll stutt, einskonar örlög. Þeir semja lög með viðlagi en endurtaka viðlagið aldrei. Það er bara fyndið. Svo eru textarnir fyndnir þó þeir fjalli um kúk og piss og ýmis viðkvæm mál.
Maður mætir í vissum gír, húmorgír, þegar maður fer á tónleika með Dónadúettinum.
Á síðu dr.gunna er hægt að nálgast eitt laga dúettsins: Dagbjört og Rúna

þriðjudagur, 1. desember 2009

Fyrirhuguð dekkjaskipti
Ég var send í dag til þess að kaupa notuð dekk undir Lindu Black, koma þeim og Lindu til dekkjakarlsins til að skipta út sléttum dekkjum fyrir þessi nýju, notuðu. Ég var eins og útspýtt hundsskinn á milli mjalta og messu til að gegna þessum erindum. Kuldinn alveg að drepa mann en þessu erindi varð að sinna.
Hringir ekki dekkjakarlinn í mig, rétt fyrir kvöldmat og tjáir mér að dekkin sem ég hafi komið með passi ekki undir bílinn.
Hvað var hann Simmi minn að pæla?
Veit hann ekki hvaða dekkjastærð er undir Lindu?

mánudagur, 30. nóvember 2009


Perutré
"Ég ætla rétt að vona það, að enginn taki eftir því að við erum að hengja ljósin á perutréð," kallaði ég niður til hans Simma míns, þar sem ég var að nálgast himininn, búin að klifra svo hátt upp í stóru öspina í garðinum, en hann stóð fyrir neðan og þóttist rétta mér seríuna.
"Nú, af hverju segirðu það," spurði hann.
"Finnst þér í lagi að ég sé hérna uppi og þú þarna niðri?"
"Já, það er í góðu lagi. Þú klifraðir upp í fyrra, þannig að þú ert í æfingu en ekki ég."
Perutréð er fallegra en í fyrra. Það gerir æfingin.

laugardagur, 28. nóvember 2009


Ekta enska
"Hvernig er það, ástin mín, ertu ekki farin að pæla í að baka ekta ensku jólakökuna," spurði Simmi minn starandi á flöskur í koníaksrekkanum í Ríkinu.
"Jú, ég er búin að taka þá ákvörðun að baka hana ekki í ár."
"Nú, af hverju?" spurði Simmi minn, enn að virða fyrir tegundir koníaks.
"Ég tók þá ákvörðun um daginn, að með því að sleppa því að baka ekta ensku í ár, sparaði ég fullt af af peningum. Þetta er sem sagt liður í sparnaði heimilishaldsins."
"Nú, er það," sagðí,Simmi minn, með vonbrigðasvip á andlitinu um leið og hann sneri sér frá koníaksrekkanum.
Ég ákvað að vorkenna honum ekki neitt. Hann hefur aldrei borðað eina sneið af ekta ensku. Ég borða af henni eins og ég get og svo skemmist afgangurinn. En hann, Simmi minn, hefur séð um að vökva kökuna, eins og nauðsynlegt er, einu sinni í viku a.m.k. með koníaki en ég hef alltaf verið svo hissa á því hvað flaskan tæmist á skömmum tíma á miðað við það, að það á bara að dreypa nokkrum dropum yfir kökuna í hvert eitt sinn.
En þarna er kannski komin skýring á því af hverju þessi sorgar-og vonbrigðasvipur var á Simma mínum þegar ég sagði honum að kaka yrði ekki bökuð í ár.

föstudagur, 27. nóvember 2009

Jólahreingerning
Ég kom svona líka hress heim úr vinnunni í dag. Ég réð bara ekki neitt við neitt og var búin að taka bókahillurnar í gegn áður en ég vissi af. Ég á margar bækur, margar, margar bækur og þær safna ryki. Það er argans mikil vinna að taka hverja einustu bók úr hillunum og bursta af þeim rykið, þurrka rykið, sem hefur safnast fyrir á bak við bækurnar og koma þeim svo fyrir á réttan stað í hillunum aftur.
En ég er búin. og ekki nóg með það heldur bættti ég herbergisgluggunum við, þreif þá hátt og lagt, þvoði gardínur, líka rimlagluggatjöldin, og kom jólaljósum fyrir.
Hér angar allt af hreinlæti.

miðvikudagur, 25. nóvember 2009

Blóðsykur
Ég er oft hrikalega áhrifagjörn og er oft sammála síðasta ræðumanni, jæja, kannski ekki alveg alltaf en mér finnst margir svo klárir og gáfaðir að ég fæ minnimáttarkennd. En ég ríf mig nú ofast upp úr því og laga til sjálfstraustið.
En aftur að áhrifagirninni.
Ég las í DV í fyrradag um hinar ýmsu matartegundir sem vinna á fitu. Þar var margt forvitnilegt. Til dæmis þetta með kanilinn. Ég nota kanil eingöngu út á grjónagraut og þá baðaðan sykri og svo í einhverjar smákökutegundir. En ¼ úr teskeið, t.d. út á hafragrautinn eða jógúrtið eða hvað sem er, á að halda blóðsykrinum í jafnvægi. Lauren Slayton, löggiltur næringarráðgjafi í New York segir að blóðsykur hækki oft eftir máltíðir og gefi líkamanum til kynna að hann eigi að geyma fituna frekar en brenna henni.
Ég hugsaði strax með mér að kannski væri eitthvað að blóðsykrinum í mér og fékk mér kanil út á hafragrautinn minn í morgun.
Nú bíð ég spennt hvort ég finni einhvern mun á mér.
Það er bara verst að ég veit ekki hvað ég á að finna.

þriðjudagur, 24. nóvember 2009

Að lifa lífinu
Ég heyri stundum fólk, þá sérstaklega ungt fólk, tala um að það eigi sér ekkert líf og er þá yfirleitt að skírskota til þess að það vinni svo mikið eða að það fari svo mikill timi í skólalærdóm.
Mér finnst þetta eiginlega alveg hræðilegt. Hræðilegt að því leyti að fólk virðist ekki skilja að lífið er núna. Það kemur ekki eftir vinnu eða þegar búið er að læra.
Lífið er augnablikið sem maður lifir.
Það er ekki alveg nóg að skilja þetta, það þarf líka að læra að njóta hvers augnabliks í lífinu. Ekkert kemur til baka, stundin sem maður dregur andann er mikilvægust og framtíðin er óráðin.
Eða eins og Dónadúettinn syngur: Um leið og þú hugsar um núið er það búið.

sunnudagur, 22. nóvember 2009

Jólaljós
Ég keypti ný jólaljós í stofugluggana í Garðheimum á föstudaginn og þau voru hengd upp í gær. En áður en það gerðist tók ég gardínurnar niður og þvoði þær, þreif gluggana og áður en ég vissi af var ég búin að taka alla stofuna í gegn, þvo alla glerhundana og strjúka veggina.
Nú er stofan eiginlega tilbúin til að taka á móti jólunum.
Ég var hrædd um að ljósin yrðu einhvern veginn yfirþyrmandi og of mikil en þau eru bara þægileg og mjúk.
Ljósin í gluggunum eru bara flott.
Flott jólaljós.

laugardagur, 21. nóvember 2009


Álegg
Hann Simmi minn var heldur búralegur í gær þegar hann sauð og pressaði rúllupylsur sem hann hanteraði um daginn og hafði verið með í saltpækli í nokkra daga.
Rúllupylsupressuna tókum við svilkona mín traustataki úr Búrfelli ÁR 40 þegar við höfðum ítök í því skipi. Við gerðum ekki ráð fyrir að kokkurinn þar notaði pressuna nokkuð. Pressan er enn í okkar fórum og Simmi minn notar hana stundum.
Og nú eigum við álegg á margar, margar brauðsneiðar.

föstudagur, 20. nóvember 2009

Jólainnkaup
Þó að ég sé búin að kveikja á skammdegisljósunum mínum, fyrir nokkru, þá er ég ekki endilega komin í jólaskap. Það er ekkert samhengi þar á milli. Skammdegisljósin eru eitt og jólafílingur er annað.
En ég hengdi upp eldhúsjólagardínur áðan. Nýjar gardínur. Við, Simmi minn, fórum sum sé saman í Rúmfatalagerinn í dag með ýmis verkefni í huganum, eins og að skoða garn í peysu á dótlu, sem vill lopapeysu sem er ekki úr lopa, athuga jólaljós í stofugluggann og skoða eldhúsgardínur.
Við fórum tæpum tólfþúsundum fátækari út úr búðinni með nýjar gardínur í poka, stóran pakka af batteríum og sílikon sleikju.
Ég var sirka 30 mínútur að falda gardínurnar (á hliðunum) og hengja þær upp. Ég gat ekki beðið. Áður þreif ég gluggann með útþynntu Ajax, þannig að nú er orðið ótrúlega jólalegt hjá mér, bæði hvað sjón og lykt varðar.

fimmtudagur, 19. nóvember 2009


Hvað er í matinn?
Það mætti halda að hann Simmi minn hafi liðið matarskort í æsku eða einhvern tímann þurft að búa við hungur og hörmunga. Hann pælir endalaust í því hvað á að vera í matinn. Hann er oftast búinn að skipuleggja matseðilinn fram í tímann.
Það er alls ekki sama hvað er í matinn. Það þarf að vera soðið eða steikt, kjöt eða fiskur.
Ef mig langar í eitthvað "léttara" og sting upp á því þá kemur á hann sérstakur svipur sem segir mér að hann sé ekki alveg nógu ánægður. En stundum fer ég mínu fram og elda pasta eða kjúklingabringur eða grænmetisrétti. Hann borðar þetta allt, það er ekki það,en honum finnst þetta varla matur og á það til að segja eins og mamma hans heitin:
"Þetta er nú alveg á við máltíð."
Það er besta hrósið sem ég fæ.

miðvikudagur, 16. september 2009

Keimlík hjón
Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag sá ég að Simmi minn hafði tekið gúllas úr frysti áður en hann fór til vinnu í morgun. Ég hafði náttúrlega ekki haft hugsun á því.
Ég hringdi í hann til þess að fá að vita hvort hann hefði haft einhvern sérstakan rétt í huga þegar hann tók bitana úr frysti.
"Nei, nei, ástin mín eldaðu bara úr þessu það sem þér dettur í hug," sagði hann.
"OK, ég finn eitthvað út úr þessu og kem þer á óvart," sagði ég.
Mér datt strax í hug að elda úr þessu kínverskan pottrétt og snaraði mér í það þegar leið að kvöldverði. Þegar ég var búin að steikja kjötið og skera niður gulrætur, paprikku og lauk og ætlaði að finna til ananasinn og soyasósuna var hvorugt til. Ég slökkti á eldavélinni og skondraði út í kaupfélag, sem heitir núna Kjarval, og reddaði því sem vantaði.
Þegar ég kom heim var síminn hringjandi. Í símanun var Simmi minn með frábæra hugmynd.
"Heyrðu, elskan, hvað segirðu um að elda kínverskan pottrétt úr gúllasinu?"
Ætli þetta sé ekki dæmi um að eldast saman og í sömu átt en ekki að þroskast í sundur eins og stundum er talað um?

miðvikudagur, 9. september 2009

Aftur í sund
Mikið lifandis skelfingar ósköp var gott að komast í sund í morgun. Ég var skíthrædd um að ég væri búin að gleyma sundtökunum en svo var ekki. Ég synti mína 1000 metra eins og ekkert væri.
Ég gæti líka alveg vanist því að ganga fyrir vinnu á morgnana. Ég er búin að gera það núna í tvær vikur og finnst það alveg frábært en ég býst við að sundið hafi yfirhöndina.
Sundið hressir kroppinn og nærir sálina.

þriðjudagur, 8. september 2009

Fleiri kreppuráð
Ég eignaðist nokkrar "nýjar" flíkur um helgina. Það er nú kannski ekki í frásögur færandi en mér finnst það dulítið merkilegt af því að þetta voru allt föt, hangandi inni í skáp hjá mér, sem ég var hætt að nota ýmist vegna þess að þau voru svo hrikalega ljót á litin eða orðin snjáð og mött af mikilli notkun eða þvotti.
Ég keypti mér svartan fatalit og skellti hrúgunni í þvottavélina, í tveimur hollum, og litnum með ásamt kíló af salti og viti menn: Snjáða ljóta fatahrúgan breyttist í hin fínustu föt, splunkuný að sjá.

Þegar launin lækka verður að gera eitthvað í málinu.
Þetta er einn liður.

miðvikudagur, 2. september 2009

Kreppuráð
Neyðin kennir naktri konu að spinna, segir máltækið. Það sannast á mér þessa dagana. Ég hef aldrei getað hugsað mér að byrja skóla að hausti án þess að eiga einhverja nýja flík, helst margar en nú bregður öðruvísi við. Það eina sem ég hef fengið nýtt utan á mig að undanförnu eru prjónaðar lopaflíkur. Það er vegna þess að lopinn er ódýrasta fataefnið sem ég veit um. Vesti fæst á innan við þúsund kall og peysa á milli tvö og þrjúþúsund.
Annað ráð sem ég hef tekið upp til að klæðast "nýjum" fötum er að nota fötin aftur sem ég var búin að leggja til hliðar. Það kom reyndar ekki til af góðu. Ég hef einfaldlega stækkað upp úr mörgum flíkum án þess að vera búin að fá leið á þeim hvað þá slíta. En ég sneri vörn í sókn í vor gagnvart ofstækkun og þar af leiðandi er ég farin að nota bæði pils og buxur sem ég var hætt að komast í.

þriðjudagur, 1. september 2009

Bresk kurteisi
"Segðu góða nótt við ömmu," sagði dótla mín, hinum megin við Atlantshafið og rétti Lúkasi símtólið.
"Good night, amma,"sagði Lúkas.
"Góða nótt," Lúkas minn,"ertu að fara að sofa?"
"Not, yet."
"Hvað fékkstu að borða?"
"Can I watch the TV, please?"
"Já, já,Lúkas minn þú mátt horfa á sjónvarpið."
Þá heyrðist hvíslað: "I love you."

Hvað ætli, bráðum sex ára gutti, nenni að röfla við ömmu sem talar ekki sama tungumál og hann!
En hann gleymir ekki að vera kurteis.

mánudagur, 31. ágúst 2009

Bjartur dagur
Ég var orðin frekar döpur þegar hann Simmi minn las laugardagsmoggann því hann gat tuðað yfir einhverju á hverri einustu blaðsíðu.
"Helvítis fíflið."
"Andskotans aumingjar."
"Þetta gengur ekki lengur."
"Það verður að fara að gera eitthvað í þessu."
Svona gekk lesturinn fyrir sig þangað til að hann var kominn á næstöftustu síðu þá kom fyrsta ljós dagsins.
"Mikið djöfull er Madonna alltaf flott."

Guði sé lof að maðurinn minn fann eitthvað jákvætt. Honum er þá ekki alls varnað.

föstudagur, 28. ágúst 2009

Ein útilega enn
"Er komin vetur?" spurði mágur minn í gær.
Hann var í símanum og ég vissi alveg hvað hann meinti svo ég svaraði því til að það væri sko ekki kominn vetur.
Við ætlum sem sagt í eina útilegu enn. Það er spáð blíðskaparveðri á Suðurlandi og við förum á eitthvert gott tjaldstæði þegar Simmi minn kemur heim úr vinnunni.
Og nokkrir góðir vinir með.

fimmtudagur, 27. ágúst 2009

Prjónadella
Ég kláraði hettupeysu á Nönnu á dag. Hún liggur á gólfinu til þerris. Mig vantar bara tölur á hana. Nanna pantaði bláa hettupeysu hjá mér þegar ég var búin að prjóna svarta lobbu á Kolbein.
Ég get varla beðið með að komast í búð á morgun að kaupa lopa í peysu á sjálfa mig. Næst verður það fjólublá peysa úr léttlopa og einbandi.

miðvikudagur, 26. ágúst 2009

Endalaust montin mamma
Ég sá það á fésbókinni hennar Elsu að hún hefði verið að hlusta á svefndoktorinn á Morgunvaktinni í morgun. Ég skil ekkert í því að ég skuli ekki hafa verið látin vita að hann yrði þar.
En sem betur fer er allt á netinu þannig að ég gat hlustað á hann í hádeginu.
Á Morgunvaktina kemur einu sinni í viku einhver sérfræðingur. Hann útskýrir sitt sérsvið og svo geta hlustendur hringt inn og spurt sérfræðinginn að hverju sem tengist hans sviði.
Mér finnst það í rauninni enn dálítið óraunverulegt að ég skuli eiga sérfræðing, vísindamann, doktor eða hvað nú ná að kalla hann Kalla minn.
En hann stóð sig vel eins og hans var von og vísa og ég sat brosandi útaað eyrum af monti á meðan ég hlustaði á hann tala.

mánudagur, 17. ágúst 2009

Skólabyrjun

Það var bara fínt að mæta til vinnu í morgun eftir stórgott sumarfrí. Ég segi ekki að ég hefði ekki getað dúllað mér lengur heima en það er líka gott að hitta allt samstarfsfólkið. Við fengum fyrirlestur í dag um grenndarkennslu. Bragi prófessor við Háskólann á Akureyri var með fyrirlesturinn frá kl. 10 til 15. Anna Solla og Unnur kynntu verkefni sem þær unnu í sínu námi sem er líka um grenndarkennslu. Þetta var allt mjög áhugavekjandi. Gott að byrja skólaárið svona.
Ég fékk stundatöfluna mína í hendur og fannst hún heldur einkennileg á að líta. Ég er orðin svo gömul að ég hef ekki nema 19 tíma kennsluskyldu og fæ barqa tvo í yfirvinnu vegna kreppunnar. Ég hef alltaf verið með mikla kennslu og mikla yfirvinnu svo þetta verður aldeilis breyting en því miður kemur það líka við pyngjuna, hún mun léttast en það verður að bíta í það súra enni eins og maðurinn sagði.
Ég fór fýluferð í sundlaugina í morgun. Hafði ekki hugmynd um að hún væri lokuð og yrði svo í nokkra daga.
Ég fór út áðan og skondraði hálftímahringinn til þess að hreyfa mig eitthvað. En sundið er best en það verður að vera fyrir hádegi.

laugardagur, 15. ágúst 2009

Útilegur nútímans

Einhvern tímann verður allt fyrst, segir máltækið. Hvern hefði órað fyrir því fyrir nokkru síðan að maður færi í útilegu með tölvuna með sér og nettengingu.
Þannig er það hjá mér núna.
Þegar við Simmi minn fórum að fara í útilegur saman, fyrst á unglingsaldri síðan með börnin okkar, þá var ég yfir mig hneyksluð á honum að taka bók með sér. Ég man að við tjölduðum einhvern tímann í Þjórsárdal með Kalla lítinn og Simmi tók upp Alister Mc Lane og fór að lesa. Ég átti ekki orð. Ég hafði vanist því með mömmu og pabba að skoða landið í útilegum og njóta þéss að vera úti.
Það er eins gott að pabbi frétti ekki að ég er farin að taka tölvuna með í útilegur.

föstudagur, 14. ágúst 2009

Sumarfrí á enda

Þessi föstudagur er síðasti virki dagurinn sem ég á frí þetta sumarið. Letilíf og leikur er á enda. Á mánudag tekur alvaran við. Ég á að mæta til vinnu.
Sumarið er búið að vera alveg frábært. Við höfum verið á miklu flakki með Sólbrekku í eftirdragi og verið einstaklega heppin með veður. Sól og blíða hvar sem við höfum staldrað við nema á Ísafirði, þar fengum við rok og rigningu og það snjóaði niður í miðjar fjallshlíðar. Það gerði samt ekkert til.
Ég kem afskaplega vel nærð á sál og líkama undan þessu sumri og hlakka til að hitt samstarfsfólkið á mánudaginn.

fimmtudagur, 13. ágúst 2009


Brotið var blað í sögu hans Simma míns þegar hann lét snoðklippa sig í fyrradag. Hann hefur alltaf verið með frekar mikið hár svo þetta er mikil breyting. Honum bregður enn þegar hann lítur í spegil og ég er enn að átta mig á breytingunni.

þriðjudagur, 30. júní 2009

Nanna og Jara, vinkona hennar, voru að leika sér úti í garði í gærkvöldi þegar þær komu hlauðpandi inn til að segja okkur frá sniglum sem þær fundu í grasinu. Mér finnst sniglar ógeðslegir, þannig að ég hélt mér til hlés en Simmi setti djöfsana í krukku til að geta skoðað þá betur.
Þetta eru heljar hlunkar brúnir eða rauðbrúnir að lit og verða nokkrir sentimetrar að lengd þegar þeir teygja úr sér. Okkur datt Spánarsnigillinn í hug en ég held að hann sé svartur.
Þetta minnti okkur líka á "the slugs" sem við urðum vör við í fyrrasumar hjá Svövu Rán í Wales. "The slugs" koma upp á yfirborðið eftir að dimma tekur og skilja eftir sig slikju af einhverju ógeði hvar sem þeir fara. Og miðað við hraða snigilsins var oft ótrúlega mikil slikja á jörðinni þegar við komum út á morgnana. Einu sinni voru skórnir hans Simma míns þaktir þessu dularfulla efni. Honum var nær að gleyma þeim úti.
Simmi minn, hringdi áðan og bað mig um að halda lífi í sniglunum í krukkunni með því að gefa þeim hundasúrur eða eitthvað að borða. Hann var búinn að hringja í einhvern fræðing og sá vill fá sniglana.
Ég get ekki hugsað mér að opna krukkuna svo ég bíð eftir að stelpurnar vakni svo þær geti hjálpað mér.
Þær eru ekkert smeykar við kvikindin.

mánudagur, 29. júní 2009


Við, Simmi minn skruppum, í heimsókn til the Jones´s í Rhosllanercrugog
fyrstu helgina í júní. Við getum ekki látið of langt líða milli þess sem við sjáum yngsta barnabarnið. Hann er algjör snillingur hann Lúkas þorlákur. Duglegur í skólanum og fær oft verðlaun fyrir dugnað og háttprýði. Hann er á öðru ári í skóla þrátt fyrir að vera enn bara fimm ára.
Afi mældi piltinn og gerði strik á vegginn. Lúkas var þá 120 cm.
Nú er ég búin að vera í sumarfríi í tvær vikur og finnst það alveg dásamlegt. Ekki það að ég sé neitt leið á vinnunni minni, það er langt í frá, það er bara svo notalegt að þurfa ekkert að gera nema það sem hugurinn býður upp á þegar farið er á fætur.
Ég hef alltaf lagt morgunsundið niður um leið og skólinn er búinn en nú hef ég haldið áfram að fara í sund á hverjum morgni og finnst það alveg ómissandi.Ég jók við metrana mína, sem ég syndi fyrir nokkrum vikum síðan og fer ekki ofan í vatnið núna fyrir minna en einn kílómetra.
Þannig að ég syndi fimm kílómetra a.m k. á viku og geng svo um helgar.
Líkamsræktinni ætti þannig að vera þjónað.