Síður

laugardagur, 21. janúar 2006

Það hafa greinilega fleiri en ég áhyggjur af framtíð íslenskrar tungu. í Lesbókinni í dag eru margar greinar um málið okkar. Skemmtilegar vangaveltur af ýmsu tagi. Ég held að það sé einnig málþing um helgina, haldið í Reykjavík, þar sem verður fjallað um ástkæra ylhýra frá mörgum sjónarhornum. Fyrir u.þ.b. fjórum árum ræddum við þessi mál, sonur minn og ég. Hann spáði því þá að íslenskan biði lægri hlut gagnvart enskunni innan tíu til fimmtán ára. Mér fannst hann einum of svartsýnn þá en hvað kemur í ljós. Með útrás ýmissa fyrirtækja, sem hófst fyrir um þremur árum, hefur margt breyst. Það gefur auga leið að með útrásinni koma útlendingar inn í fyrirtækin og þá þýðir lítið að vera að nota íslenskuna. Enda segir í blaðinu í dag að enska sé aðalmál KB banka. Aðalfundir og stjórnarfundir fara fram á ensku. Svo er ennig háttað um mörg önnur fyrirtæki.
Ég hef ekki haft miklar áhyggjur af íslenskunni þó að unglingar noti slettur, msm mál, sms mál eða sér bloggmál. Það er lestur bóka og iðkun tungunnar eins og Þórður Helgason kemst að orði sem ég hef meiri áhyggjur af. Þ.e.a.s. börn og unglingar lesa lítið sem ekkert af bókum og iðka málið ekki nóg, alast upp í málfátæku umhverfi og fá þar af leiðandi ekki næga tilfinningu fyrir málinu.
Mér finnst, eftir lestur Lesbókarinnar í dag, að ég geri ekkert gagn með því að segja nemendum mínum að það eigi að segja mig langar og ég hlakka til.
Til hvers og hvaða máli skiptir það?

miðvikudagur, 11. janúar 2006

Þá eru "jólin" komin ofan í kassa og bíða næstu jóla. Ég ætla samt að hafa ljósin á kantinum á húsinu dulítið lengur. Það er svo ansans ári dimmt á bak við hjá mér, þannig að nú gegna jólaljósin hlutverki útiljósa. Samnýting gæti það kallast.
Ég var að ganga frá fataleppum ofan í tösku og er á leiðinni í heimsborgina London. Ætla að dvelja þar í fjóra sólarhringa með nokkrum samstarfsfélögum mínum. Við ætlum á hina frægu BETT tölvuráðstefnu.
Ég á einnig von á heimsókn til London. Svava Rán og Lúkas ætla að koma með lest frá Wales og vera með með mér í einn sólarhring. Ég hef nokkrum sinnum komið til London áður en aldrei gengið Oxford stræti barn í kerru fyrr.
Einhvern tímann verður allt fyrst. Ég hlakka til.

mánudagur, 2. janúar 2006


Ég er alltaf að verða meira og meira uggandi um framtíð íslenskunnar. Íslenska tungumálið okkar. Þetta sem Jónas kallaði ástkæra ylhýra. Það er varla nokkur umræðuþáttur í útvarpi eða sjónvarpi þar sem slettur enskrar tungu koma ekki fyrir. Í einu stuttu viðtali í Kastljósi kvöldsins komu fyrir orð eins og mjúsik, prófessjónal, sketstar, kóreugrafía, krítik, stress og húmor. Á skiltum í miðbæ Reykjavíkur má finna enskar leiðbeiningar eins og city og imformation. Í blöðum og auglýsingum er allt yfirfullt af enskum orðum. Sími er auglýstur með bluetooth og enginn maður er með mönnum nema hann eigi plasmasjónvarp.
Ég reyni á hverjum degi að halda uppi málvernd en tek á móti nýju ári með Happy new year á höfðinu!!!
Ég hef miklar áhyggjur af framtíð íslenskrar tungu.

sunnudagur, 1. janúar 2006

Ég slapp nokkurn veginn við táraflóð og viðkvæmni þegar nýja árið gekk í garð. Ég var svo upptekin við að finna sjálfa mig á skjánum þegar Nú árið er liðið var flutt. Ég sást nokkur augnablik. Ég fékk sms frá gömlum kærum vini sem býr í Noregi þar sem hann segist hafa séð mig í tölvunni sinni. En hún dótla mín gleymdi þessari útsendingu. Hún hlýtur bara að vera orðinn svona mikill Breti í sér. Hún sem hefur langoftast staðið við hlið mér þegar Nú árið er leikið í sjónvarpinu og við grátið saman. En svona er nú þetta, lífið breytist.
Gamlársdagur var frábær. Sigga og Siggi buðu okkur í mat í hádeginu ásamt nokkrum góðum vinum og kunningjum. Þau gerðu þetta líka í fyrra og nú er spurning hvort þetta sé orðin hefð.
Hulda Gunn bauð svo allri stórfjölskyldunni heim til sín um kvöldið. Þetta var siður í mörg ár að við systurnar skiptumst á að vera heima hjá hver annarri á þessu kvöldi og Hulda vildi endurvekja það. Flest allir afkomendur mömmu og pabba komu og skemmtu sér saman við borðhald, söng, flugeldaskot og sjónvarpsgláp. Við fengum tvöfaldan skammt af áramótaskaupi. Þessu venjulega og því sem Magnþóra og Kolbrún höfðu sett saman um árið 2005 hjá fjölskyldunni. Þær höfðu tekið viðtöl við suma og settu það ásmt ljósmyndum saman í annál. Skemmtilegt hjá stelpunum. Strákarnir Rúnar og Kalli spiluðu á gítara og stjórnuðu fjöldasöng.
Skemmtilegur dagur.
Skemmtilegt kvöld.
Skemmtileg áramót.