Síður

þriðjudagur, 23. febrúar 2010

Sumarbústaðaferð
Við, Simmi minn, höfum ekki verið að troða stéttarfélögum okkar um tær hvað nýtingu sumarbústaða varðar. Við tókum á leigu kennarabústað á Flúðum, þegar ég varð fertug og það nálgast að vera 20 ár síðan.
Mér datt í hug um daginn að notfæra mér bústað aftur í vetrarfríinu (19.-22. feb.) en auðvitað var allt upppantað. Ég get aldrei hugsað nógu langt fram í tímann enda var ég alltaf að vona að ég dytti niður á ódýra ferð til Manchester þessa helgi sem varð nú ekki.
Simmi minn, hringdi í bríaríi í sitt stéttatfélag og viti menn, það var laust á Laugarvatni. Við höfum í nokkur skipti plantað Sólbrekku á tjaldsvæði vélstjóra á Laugarvatni og finnst alltaf jafn gott að vera þar. Tjaldsvæðið er við hliðina á sumarbústöðunum og er sameiginleg sundlaug þarna og heitir pottar.
Við dvöldum síðustu helgi í einu af raðhúsunum þeirra með einkapott og alles. Við áttum þarna frábæra helgi í afslöppun, við lestur, göngutúra, sjónvarpsgláp og fleira. Borðuðum og borðuðum og dreyptum á rauðvíni.
Ákváðum að vera þarna aftur um páskana en viti menn, allt er löngu upppantað.

fimmtudagur, 18. febrúar 2010

Vinadagar


Þemadagar voru í skólanum mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Nefnd var skipuð í að sjá um þetta fyrir jól. Ég var gerð að framkvæmdastjóra nefndarinnar. Við byrjuðum strax fyrir jól að skipulegga og héldum marga fundi. Markmiðið var að efla og treysta vináttu innan skólans og kölluðum við þemað vinadaga.
Verkefnið tókst, að mínu mati, mjög vel. Við skiptum nemendum í sex hópa og unnu hóparnir tvær kennslustundir í senn í hverju verkefni en þau dreifðust á sex stöðvar. Markmiðið með verkefnum var að eitt sameiginlegt verk kæmi frá hverri stöð.
Unnið var við: ritun, málun og mótun, prjónaskap, sauma, smíði og sælgætis-og kökugerð.
Útivera var á hverjum degi.Við föðmuðum skólann og fórum í göngur, öll saman.
Ég er nú ekki meiri bógur en það að ég er enn dauðþreytt eftir öll skemmtilegheitin. Ég sá um annan af tveimur prjónahópum og af því ég þurfti að kenna mörgum undirstöðuatriði í prjónaskap var vinnustellinginn þessa daga ekki af besta taginu. Ég stóð fyrir aftan nemendann og teygði mig yfir hann og framfyrir til þess að hann sæi hvernig ætti að bera sig að. Þarna er ég hálfboginn í þrjá daga í þrjá klukkutíma í senn. Ofan á slæma vinnustellingu bættist stressið, sem ég gerði mér ekki alveg grein fyrir að ég hefði þjáðst af, fyrr en að þemadögunum lauk. Ég var með áhyggjur af því hvernig til tækist, hvort öllum liði vel, bæði nemendum og starfsfólki, hvort nokkuð hefði gleymst o.s.frv.
Þess vegna er vetrarfrí kærkomið.
Ég þarf að vinda ofan af mér.
En þessir dagar voru mjög skemmtilegir.

miðvikudagur, 17. febrúar 2010

Vetrarfrí
"Ég er ekki búinn að redda neinum blómum", heyrði ég að Simmi minn tautaði fyrir munni sér á sunnudagsmorguninn þegar látlaust glumdu í útvarpinu auglýsingar um konudagsblóm.
"Hafðu ekki áhyggjur af því", sagði ég "í dag er Valentínusardagur og við höldum ekki upp á hann."
"Nú, sagði minn heittelskaði, "Valentínusardagur og konudagur, hva..hve.. og.."
Hann vissi greinilega ekkert í sinn haus.
Nú er minn búinn að panta sumarbústað fyrir næstu helgi, bara svona til að hafa það huggulegt og næs, af því það er konudagur og vetrarfrí hjá mér og hann ætlar að taka vetrarfrí af eintómri meðvirkni.
Hlakka til næstu helgar.
Vetrarfrí og næs.
Löng helgi í sumarbústað.

föstudagur, 12. febrúar 2010


Prjón
Það eru fleiri en ég sem fá skrítnar prjónahugmyndir. Í næstu viku verða þemadagar í skólanum sem við köllum vinadaga. Unnið verður að ýmsum verkefnum sem eiga öll að efla og treysta vináttu allra í skólanum. Verkefnin verða flest samvinnuverkefni.
Ég verð á einni stöðinni með prjónaskap handa öllum. Það stendur til að prjóna vinaorm. Allir leggja sitt af mörkum, prjóna eins og þeir geta í eina eða tvær kennslustundir. Sumir eru náttúrlega byrjendur en það er allt í lagi. Einhvern tímann er allt fyrst. Vonandi verður til langur, mjúkur ormur sem hægt er að hringa utan um sig eða kúra hjá.
Nú sé ég að íbúar Fjallabyggðar ætla að prjóna trefil sem nær frá Siglufirði til Ólafsfjarðar í gegnum Héðinsfjarðargöng.
Skemmtileg hugmynd. Þar verður prjónað á öllum biðstofum og kaffistofum.
Já, það má segja að prjónarnir séu "inn" um þessar mundir.

fimmtudagur, 11. febrúar 2010

Montinn skokkari
Ég mældi gönguhringinn minn og komst að því að hann er 3,5 km langur. Ég notaði kort á ja.is og mældi þetta þar. Bráðsniðugt alveg. En ég er svo montinn yfir því að ég geng u.þ.b. hálfan kílómetra og skokka þrjá. Og get það.
Mér datt ekki í hug að þessi vegalengd næði þremur kílómetrum en það reyndist raunin.
Mér finnst fínt að skokka þrjá kílómetra. Ég þarf bara að huga að betri skóm og þægilegri fatnaði. Ég er örugglega dálítið asnaleg í snjóbuxum og úlpu. Ég sé engan þannig klæddan á skokki.
En mér er slétt sama um öll asnalegheit.
Ég skokka.

sunnudagur, 7. febrúar 2010


Leikhúsferð
Við, Simmi minn, fórum í dag að sjá Söngvaseið. Þessi leikhúsferð kom til vegna þess að Nanna var hjá okkur um daginn og sagði okkur að hana langaði svo að sjá Söngvaseið. Ég dreif mig á netið til að athuga með miða og komst að því að síðasta sýning væri í dag. Ég keypti miða, þrátt fyrir að þetta væri sunnudagurinn eftir þorrablót.
Það var auðvitað frábært að vera með ömmubarninu sínu í leikhúsinu. Hún skemmti sér konunglega en það var tilgangurinn. Við, gamla dressið, skemmtum okkur líka vel.
Mér finnst alltaf svo gaman að fara í leikhús.
Nú vonum við að Nanna muni eiga góða minningu um það þegar hún fór í leikhúsið með ömmu og afa.

föstudagur, 5. febrúar 2010



Föstudagskvöldmatur
Okkur, Simma mínum, finnst voða gaman að elda kvöldmatinn saman. Við getum það ekki alltaf því hann kemur svo seint heim úr vinnunni, þannig að ég elda virka daga og borða áður en hann kemur heim. Við lærum að lifa með því eins og öðru.
Á föstudögum er mjög oft pizza. Við kunnum alveg að gera fínar pizzur enda bökuðum við og seldum pizzur um tíma þegar við vorum í "útrás."
Í kvöld var hins vegar matreitt úr fiskihakki frá Selfossi. Skrítið en satt. Við stóðum saman hlið við hlið í eldhúsinu okkar og útbjuggum matinn, hann fyrir sig og ég fyrir mig. Hann setti út í hakkið sitt: salt, pipar, lauk,karrí, egg og hveiti og bjó úr þessu bollur sem hann steikti upp úr smjöri á pönnu.
Ég lét í hakkið mitt: salt,pipar,lauk,eggjahvítu og heilhveiti. Setti þetta í sílíkonform og bakaði inni í ofni.
Við nutum matarins bæði, þó ólíkur væri.

fimmtudagur, 4. febrúar 2010

Kaupstaðarferð
Fór á Selfoss í dag til tannlæknis. Bara svona eftirlit sem ég fer í einu sinni á ári. Af því ég var á Selfossi þá var ég komin í Bónus áður en ég vissi af, sjálfsagt til að nýta ferðina. Ég mundi samt ekki eftir neinu sem vantaði til heimilsins nema eyrnapinna. Ég rölti um búðina og týndi ofan í körfuna hitt og þetta sem kostaði um áttaþúsund. Dýrir eyrnapinnar það. Lét konu, sem var að kynna brauð frá Svíþjóð, plata mig til að kaupa slíkt. Ég spurði hana hvort það væri ekki stútfullt af E-efnum en hún sagði svo ekki vera en það væri óvenjupróteinríkt sem ég og sá á innihaldslýsingu. Ég er svo áhrifagjörn. Af því að hún dótla mín er að pæla í próteinum og kolvetnum þá keypti ég brauðið, handa mér.
Annað sem ég gerði á Selfossi var að ég fór í fiskbúðina. Aldrei gert það áður. Keypti fisk fyrir fjögurþúsund. Fiskur er einmitt líka próteinríkur. Mér finnst einhvern veginn enn þá að Simmi minn eigi að koma með fisk heim af sjónum en hann verður víst að vera á fiskibát till þess að það sé hægt.

þriðjudagur, 2. febrúar 2010


Gamlar venjur

Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Það sést á mér. Ég var alveg sannfærð um það að ég hefði lært að hafa matarskammtinn af réttri stærð eftir að ég vigtaði allt ofan í mig í nokkra mánuði í fyrrasumar. Ég hef ekkert botnað í því núna, frá því í haust, af hverju ég léttist eiginlega ekki neitt. Tók því til gagngerar endurskoðunar matarskammtana og viti menn! Auðvitað borða ég allt of mikið. Ég hef sem sagt, hægt og rólega farið í gamla farið aftur og stækkað matarskammtana án þess að taka eftir því eða ekki viljað sjá það.
Núna verð ég að byrja aftur að vega og mæla, vigta og pæla.
Það eina sem ég vigta alltaf er haframjölið í morgungrautinn. Það kemur til af því að ég elda hann í örbylgjuofni í vinnunni og vigta í litla poka fyrir hvern dag. Ég er alltaf jafn hissa hve lítið er á disknum mínum, þess vegna ætti ég líka að vera hissa á kjötbitanum eða ostsneiðinni. En hef greinilega aukið við þann skammt.
Það þýðir víst ekkert að dæsa yfir þessu heldur safna liði og hefna.