Síður

föstudagur, 31. janúar 2003

Nú er leynivinavikan liðin hjá okkur, starfsfólki grunnskólans. Mín beið, í morgun blómvöndur og lítil rauðvínsflaska ásmt huggulegri orðsendingu. Ótrúlegt hvað maður verður eins og lítið barn á jólum. Ég hefði bara ekki trúað því. Vikan er búin að vera mjög skemmtileg og í löngu frímínútunum í morgun var uppljósrað hver væri leynivinur hvers. Sumir vildu fá að giska á hver sinn væri og í flestum tilfellum var ágiskunin röng. Þannig að greinilega þekkir fólk ekki hvert annað alveg. Ég gat ekki rétt til um minn vin, en það var nú samt sá sem er búin að vera lengst vinur minn í skólanum eða frá því við byrjuðum bæði tvö að kenna við skólann 1971. Hann Jón kennari, hver annar. Hann þekkti mig og vissi hvernig ætti að gleðja viðkvæma grenjuhjartað í mér. Þessi elska.

fimmtudagur, 30. janúar 2003

Það stóð nú til að Svava Rán kæmi með kvöldflugi frá Hornafirði í kvöld en það er búið að aflýsa flugi vegna veðurs. Þetta setur strik í reikninginn og áætlanir breytast agnarögn. Við ætluðum saman á Leifstöð á morgun að taka á móti Dave Jones, hinum velska, en Svava Rán mun lenda, ef guð lofar, um svipað leyti á morgun, á Reykjavíkurflugvelli og Dave lendir í Keflavík. Þau hittast því klukkutíma síðar en ráð var fyrir gert. Ég veit að einn klukkutími fyrir ástfangna er lengri en heil eilífð. Guð er kannski að láta reyna á eitthvað hér. Mamma sagði það við mig, 1969, þegar ég var í Kennó og Simmi minn í Vélskólanum í Vestmannaeyjum. Ef ástin þyldi þennan aðskilnað þá væri þetta alvöru ást. Við löfum enn, 34 árum síðar. Einn klukkutími og einn vetur getur verið jafnlangur tími, ég veit allt um það.

miðvikudagur, 29. janúar 2003

Ég hitti tengdadóttur mína á "emmessenninu" í gær og sagði henni að ég vissi um ferð til Iowa í næsta mánuði og hvort hana vantaði ekki eitthvað sem ég gæti sent henni. Mér datt rétt si svona í hug að hana vantaði íslenskt smjör, harðfisk, Séð og heyrt, lopapeysu eða hrútspung. Ég hefði aldrei getað látið mér detta í hug það sem hana langaði mest af öllu í, samt er það íslenskt, en það er pönnukökupanna. Auðvitað fær þessi elska pönnukökupönnu og uppskrift með. Mér þætti nú best geta bakað pönsurnar og boðið henni í pönsukaffi. En það verður að bíða betri tíma. Næst best er að geta sent henni pönnuna.

þriðjudagur, 28. janúar 2003

Ég vinn með mjög léttu og skemmtilegu fólki. Það er alltaf eitthvað fjör í gangi á kennarastofunni. En þessa dagana er enn meira fjör en áður því að það stendur yfir leynivinavika. Allir eru sérstaklega góðir og hupplegir við alla svo enginn finni út hver leynivinurinn hans er. Fólk fær hrós í tíma og ótíma, klapp á bakið eða jafnvel faðmlag. Svo er fólk að finna litlar og sætar gjafir í básnum sínum eða inniskónum sínum eða fær jafnvel gjöf senda heim. Ég fékk lítinn postulínsengil í morgun en hann fölnar og verður að engu á miðað við orðsendinguna sem fylgdi með.
Þar stóð: Elsku Gunna. Það var gott að draga þig sem vin og eiga þig sem vin. Þú ert vinur, sannur vinur. Það er ekki erfitt að finna eitthvað fallegt að segja við þig. Þú ert góður og traustur kennari, sönn fagmanneskja. Þú ert frábær vinnufélagi. Þú hefur góðan smekk, sem sést á hve fallegum fötum þú klæðist í vinnunni. Þú átt skilið gott hrós, og góðan vin. Njóttu vel. Þinn leynivinur.
Ég fékk stóran kökk í hálsinn þegar ég las þetta, ég hafði bara ekki hugmynd um að ég væri svona í augum einhvers. Þetta var frábært.

mánudagur, 27. janúar 2003

Nú eru bara 5 sólarhringar þar til þorrablótið brestur á. Hann þyngist stöðugt steinninn í maganum á mér. Frá því í september hef ég ekki mátt heyra oðið þorrablót án þess að fá kipp e-s staðar innan í mér og blóðið fer að þjóta og sviti sprettur út í lófunum. Það er nú kannski ekkert skrítið því ég er að feta í fótspor Arnar Árnasonar leikara. Svo frétti ég að sjálfur sýslumaðurinn væri veislustjóri á Stokkseyri (eða var það Eyrarbakka?). Ég hefði aldrei getað skipað mér á bekk með þessum heiðursmönnum. En ef ég kemst lifandi út úr næstu helgi þá má það. Það er nú ekki svo slæmt!

sunnudagur, 26. janúar 2003

Var að tala við Kalla, Kolbein og Nönnu (Elsa var úti að ganga í yfir 20 stiga gaddi). Kolbeinn mátti nú ekki vera að því að tala við hana ömmu sína, hann var sko eiginlega í miðjum tölvuleik og Nanna segir alltaf við mig:" Má ég tala við afa Simma?" Vill heldur spjalla við hann en mig. Skrítið, en svona er lífið. Kalli er í góðum gír með námið og nálgast doktorinn með hverjum degi. Duglegur strákur sem ég á. Ekkert heyrt í Svövu Rán í dag en Simmi talaði við meðan ég var að syngja í messu eða á meðan ég var á þorrablótsæfingu eða meðan ég var..... jæja skiptir engu en henni er bötnuð pestin sem betur fer og kötturinn hefur það gott.
Dagurinn í dag: Ein mynd í rúminu fyrir hádegi, messa klukkan tvö, kaffi hjá mömmu, og svo fékk ég hana Magnþóru í heimsókn eins og glöggir mega sjá.

laugardagur, 25. janúar 2003

Það er nú alveg tilgangslaust að hafa opið á Króniku á laugardögum með þessu áframhaldi, nú komu þrír í hádegismat og einn í hammara. Ekki verður maður ríkur á þessu. En það lukkaðist vel í gær þorrahlaðborðið hjá honum Simma mínum. Fastakúnnarnir voru mjög ánægðir með þetta. Pungana og sviðasultuna, hákarlinn, brennivínið og allt það. Ég gladdi hann svo með lítilli gjöf þegar hann kom heim. Ég gaf honum rakspíra. Hann var voða glaður. Fór svo að borða þorramat með Kiwaniskörlunum. Það finnst mér það hallærislegasta af öllu hallærislegu. Það hefur verið siður til margra alda að kona geri bónda sínum gott á bóndadaginn en að þeir hópi sig saman og hrynji í það á bóndadaginn það er alveg splunkunýr siður. Ég er nú alveg þokkalega nútímaleg en þetta kann ég ekki að meta. Ég hrópa ekki húrra fyrir Kiwanis.

föstudagur, 24. janúar 2003

Mikið rosalega eigum við fína unglinga hérna í Þorlákshöfn. Ég var með umsjón á diskó hjá þeim í gærkvöldi og það er nú ekki mikið mál. Þeir sjá um allt sjálfir, nammið, gosið, fjármálin, tónlistina, dans og leiki. Ég sá ekki betur en að allir skemmtu sér vel. Þeir tóku líka mjög vel til eftir sig. Það var ekki mikið mál því allir gengu svo vel um. Ég þurfti bara að slökkva og læsa. Var einhver að tala um unglingavandamál? Nei, það er einhver vitleysa í mér. Ég heyrði þetta orð þegar ég var unglingur en ekki síðan. Það var þegar við krakkarnir hlustuðum á Bítlana og fullorðnir töluðu um garg. Fullorðnir vissu hreinlega ekki hvaðan á þá stóð veðrið. Það er reyndar ekkert skrítið, því orðið unglingur er svo ungt í málinu. Það kom fyrst fyrir á 20. öldinni. Bítlarnir gerðu það svo að verkum að til varð unglingamenning, unglingaföt og unglingatónlist. Fullorðnir þurftu bara að skilja þetta og það tók smá stund. Ég var t.d. mjög skilningsrík mamma þegar börnin mín voru unglingar. Eða sko....ég veit ekki annað. Nú nálgast ömmustrákurinn minn unglingsárin!!!

fimmtudagur, 23. janúar 2003

Nú er það handboltinn. HM. Hvað er HM oft á ári ? Ég bara spyr eins og fávís kona. Mér finnst alltaf vera HM. Sem betur fer get ég horft á handboltaleiki. Þar er þó e-ð að gerast. Annað en í fótboltanum. Enda æfði ég aðeins handbolta hér á árum áður. Reyndar dálítið mikið langt síðan, nálgast óðfluga 40 ár. En handbolti var það. Ég held ég kunni reglurnar sæmilega. Best að fara og kíkja á þetta. Ísland-Portúgal. Ég get nú samt ekki horft á allan leikinn því ég þarf að sitja yfir á diskóteki hjá 8.-10. bekk. Fjör í því, mar.

miðvikudagur, 22. janúar 2003

Er hægt að verða þreyttur eða er maður bara aumingi? Ég er allavega eins og undin tuska eftir foreldradag í skólanum. Ekki er líkamlegum átökum um að kenna, en eitthvað er það. Ég kom heim, settist í leisí boj, og steinsofnaði. Sem betur fer hef ég ekki þurft að hafa áhyggjur af matseld í þó nokkurn tíma, þannig að ég hvíldi mig bara þangað til ég fékk hina daglegu upphringingu sem snýst um það hvort ég vilji fisk eða kjöt í kvöldmat. Þvílíkur lúxus. Ég hef það bara eins og drottning og panta hvort heldur mér líkar. Fæ síðan heim á silfurfati... eða svona frauðplastboxi, ölluheldur, það sem ég bað um. Hvað er ég svo að kvarta um þreytu eftir foreldraviðtöl? Ég hef það bara rosalega gott.

Ég get svarið það, það er líka rosalega mikilvægur fótboltaleikur í kvöld!!!

Hvernig skyldi ganga hjá finnska kvennalandsliðinu í íshokkí? Eða er það ekki örugglega til? Hvað er svona merkilegt við enska fótboltann umfram aðrar íþróttagreinar og aðrar þjóðir? Ég er ekki alveg að skilja þetta eins og nememdur mínir myndu orða það.

þriðjudagur, 21. janúar 2003

Hvers á ég að gjalda? Kallinn minn horfir á fótbolta öllum stundum í sjónvarpinu. Ég sætti mig við sunnudagana, einhvern tíma verður hann að stunda áhugamálið og þriðjudagskvöldin í lagi líka, því þá fer ég á kóræfingu en hann lætur þetta ekki duga, hver einasti leikur er rosalega mikilvægur, hann má alls ekki missa af honum. Hann fer voða fínt í þetta, undirstingur mig með svona smá athugasemdum þannig að áður en ég fatta er ég búin að segja: "Auðvitað horfirðu á leikinn elskan." En málið er: ÞAÐ ER ALLTAF LEIKUR. Þegar ég kom heim áðan af kóræfingu var framlenging á einhverjum leik og ég var að frétta það í þessu að Liverpool hefði unnið. Mikill léttir.... eða hverju skiptir það? Mér er spurn?
Ég er mjög ánægð með frammistöði nemenda á Reyðarfirði í samræmduprófunum. (Málið skylt, kenndi þar í þrjú ár en líklega ekki þessum!) Nú á ég reyndar í erfiðleikum með að halda stíft fram þeirri skoðun minni að "heimanmundurinn" sé það sem máli skiptir hvað árangur á prófum segir því hver ætti svo sem að vera munurinn á "heimanmundi" reyðfirskra krakka og sunnlenskra? Ég verð heldur betur að setja hausinn í bleyti og átta mig á þesssu.

mánudagur, 20. janúar 2003

Handboltaleikiurinn, Ísland versus Ástralía, var e-ð svo lítið spennandi að ég var bara farin að þurrka af og búin að ryksuga áður en ég vissi af. Ég fann undir rúmi svefnpillubréfið mitt sem kötturinn Fergus týndi fyrir mér um áramótin. Hvað segir þetta mér? Jú, ég hef ekki ryksugað nógu vel síðast. Eða..... er ég kannski ekki búin að ryksuga síðan fyrir jól? Það skyldi þó aldrei vera. Það segir mér hinsvegar að ég sé annaðhvort sóði eða letingi nema hvorttveggja sé. Ég er að reyna að láta sem mér sé slétt sama en það er e-ð.... kannski gamalt og gott uppeldi sé að pirra mig. Það er erfitt þetta líf.

Ég er búin að lesa svo marga brandara á síðustu vikum, vegna þorrablótsins, að ég er orðin hundleið á þeim öllum og finnst ekkert orðið fyndið. Ég vildi að ég hefði gott minni og myndi einhverja brandara sem Bjarni Dagur var með á laugardagsmorgnum hérna fyrir nokkru. Hann var alltaf öðru hverju með góðar sögur.
Ég gróf úr pússi mínu ræðu frá honum syni mínum þar sem hann talar fyrir minni kvenna á sálfræðingablóti fyrir þremur eða fjórum árum. Skratti gott hjá pilti, ég skil ekki hvaðan hann hefur þessa hæfileika. Ég gæti stolið hugmyndum frá honum en ekki flutt þetta óbreytt. Ég veit ekki, á eftir að ígrunda þetta betur.

sunnudagur, 19. janúar 2003

Ég missti af fréttunum í kvöld. Þegar nýir íbúar flytja í stigaganginn þá dettur sjónvarpið hjá okkur út á meðan þeir eru að tengja sitt. Ekki veit ég af hverju en svona er það nú samt.

Klukkan átta var þorrablótsæfing. Það er gaman að fylgjast með þessum snillingum sem eru að æfa heimatilbúin skemmtiatriði. Þeir leynast víða snillingarnir þegar vel er að gáð.

Ég fékk einkunn senda í Webct í dag, úr síðasta verkefninu á haustönninni. Ég fékk 9.0. Ég er svo montinn að ég er að springa yfir því en svo er ég aftur á móti ekki eins ánægð með sjálfa mig að hafa ekki nennt að halda áfram. Mér finnst ég algjör aumingi og ræfill að nenna ekki að gera meira en það er orðið of seint fyrir mig að skipta um skoðun, fyrsti skiladagur verkefnis er á morgun og ég er ekki búin að vinna verkefnið. Takmarkinu var samt náð þ.e. 5 einingar eru í höfn. Húrra.

laugardagur, 18. janúar 2003

Ekki var hún erfið vinnan í Café Króniku í dag. Það kom enginn að borða matinn sem var eldaður þannig að uppvaskið var lítilfjörlegt og fljótgert. Það seldust þó nokkrir hammarar og nokkrir rándýrir kaffibollar þannig að nokkrar krónur komu í kassann.
Ég keypti mér svo þorrablótskjólinn í Debenhams. Bara þokkalega ánægð með hann og verðið var nær því sem ég vonaði heldur en það sem hún dótla mín var búin að nefna. Sem betur fer.
Mig gerir bæði sárt og klæja með Álverið á Reyðarfirði. Þar sem ég bjó ein þrjú ár meðal Reyðfirðinga skil ég afstöðu þeirra til álvers og styð þá í rauninni heilshugar en stundum hvarfla að mér efasemdir um hvort þetta allt saman komi til með að borga sig. En í sambandi við Kárahnjúka er mér alveg sama. Fólk ætlar alveg að fríka út af tilfinningasemi yfir eyðileggingu lands. Hvað er ekki búið nú þegar að "skemma" af landi? Hvernig var t.d. umhorfs þar sem höfuðborgarsvæðið er nú áður en Ingólfur mætti á staðinn? Við viljum jú eiga fallegt land til að sýna túrhestum en landið fóstrar okkur og gefur okkur af sér og af hverju ekki að taka á móti þeim gjöfum og nýta þær? Eða hefðum við kannski aldrei átt að fara úr torfbæjunum?

föstudagur, 17. janúar 2003

Mér sýnist á dagbókarskrifum minnar ástkæru dótlu að hún sé með smá vott af minnimáttarkennd gagnvart sínum eldri bróður þ.e. mínum frumburði. Ekki tel ég, sem þeirri manneskju sem lengst hefur þau þekkt, að þetta sé sú raun sem hún, sú mín kæra, þurfi að bera. Ef stallur er til, sem móðir stillir sínum börnum á, setti ég þau þar, mín börn, bæði jafnfætis. Ekki eru þau, í dag ,að gera þá hina sömu hluti en allt sem þau gera er í mínum huga jafn klárt, skemmtilegt og jafn gaman að fylgjast með. Þau hafa, af sínum fúsa og frjálsa vilja, kosið gjörólíkan vettvang í lífinu þó svo væri auðvelt, ef grant er skoðað,að finna ýmislegt sameiginlegt, svo skrýtið sem það nú er. Hann er í doktorsnámi, hún framhaldskólakennari. Hvort tveggja tengist skóla, lestri fræðigreina, fyrirlestrum, kennslu, rannsóknum, kennurum, bókum, gagnrýni, þolinmæði, nemendum, prófum, yfirferð verkefna, prófagerð, frímínútum, sýnast gáfulegur, standa á gati, jólafríi svo fátt eitt sé talið. Ég hef hvatt þau til dáða til hvers eins sem þeirra hugur hefur staðið til. Mömmuhjartað stundum titrað ef einhver vafi hefur flögrað um hug, en alltaf þótt þeirra hugmyndir þær hinar bestu. Lífiið hefur ekki verið einn dans á rósum, mikið langt í frá, en ég hef alltaf sagt það og segi það enn, ég á þau bestu sjálfuppöldu börn sem hugsast getur.

fimmtudagur, 16. janúar 2003

Það eina sem kemst orðið að í heilabúinu á mér er Þorrablótið. Það hefur reyndar ekki horfið úr huga mér lengi í einu síðan ég tók að mér veislustjórnina en nú ræður það algjörlega yfir mér. Eftir að nafnið mitt birtist í Bæjarlífi hef ég verið að fá ráð og ábendingar frá fólki og sitt sýnist hverjum. Mér dettur í hug að þegar ég rak kaffihús, sem breyttist í pöbb á kvöldin, þá fannst mér það leiðinlegustu kúnnarnir sem vildu gefa mér góð ráð og vissu miklu betur en ég hvernig ætti að reka svona apparat. Ég er nú ekki með þessu að segja að allir sem gefa mér ráð núna, um það hvernig á að stjórna 5-600 manna þorrablóti, séu leiðinlegir, það er bara þannig að ég get ekki farið að allra ráðum. Ég verð að finna út úr þessu sjálf. Það er eitt sem ég kvíði sérstaklega sem reyndur maður getur en ég hef ekki reynslu í. Það er að skynja salinn um finna hvað á við og hvað ekki. Reyndur maður spilar bara eftir salnum. Ég verð aftur á móti að vera með allt undirbúið og get ekki mikið hnikað frá því. Þó að ég hafi rúmlega 30 ára reynslu í kennslu og skynja andrúmsloftið í bekk eins og skot þá er þetta öðruvísi.

þriðjudagur, 14. janúar 2003

Enn af afmælinu hans Kidda. Þegar ég kvaddi hann um nóttina kem ég auga á Bengaleldspýtur á kommóðu í forstofunni. Ég hrópa upp: "Eru ekki Bengaleldspýturnar mínar hérna." Taktu þær, sagði e-r við mig." Ég geri það. Þegar ég tók til í gær, þá eru allt í einu tveir stokkar til heima hjá mér. Ég átti ekkert í þessum hjá Kidda. Ef maður er ekki stundum eins og fífl þá er maður hálfviti. En hvað er svona merkilegt við Bengaleldspýtur????????
Mér datt í hug flökkusagan um konuna sem átti Kitkat og fór inn á kaffihús og pantaði sér kaffibolla, settist við borð og hugðist drekka kaffið og gæða sér á Kitkatinu. Þá sest hjá henni við borðið ungur maður og fer að borða Kitkat. Konunni verður hverft við dónaskapinn en fær sér bita af Kitkatinu. Maðurinn fær sér líka bita og svona gengur þetta. Þau líta fjandsamlega hvort á annað á milli þess sem þau fá sér bita. Konan strunsar síðan út með þjósti þegar Kitkatið er búið og hugsaði unga manninum þegandi þörfina. Þegar hún stingur höndinni í vasann, til að ná í bíllyklana, verður fyrir henni Kitkatið hennar. Hún hafði aldrei tekið það úr vasanum og lagt það á borðið.
Svava Rán segir að ég fái engan kjól fyrir sextán þúsund. 'Eg hef greinilega ekki verið að rápa um kjólabúðir að undanförnu. Mitt verðskyn segir nefnilega e-ð allt annað.
Kominn þriðjudagur og eftirstöðvar helgarinnar eru enn að elta mig. Ég týndi gemsanum hans Simma. Búin að leita og leita, kemur þá ekki Kiddi með hann í vinnuna í morgun. Hafði skroppið upp úr veskinu mínu. Verð að fara að passa mig betur, ég hef áður týnt síma sem fannst aldrei.
Í Íslandi í dag í gær var talað við mann sem getur kennt fólki að eignast peninga. Mér fannst tillögurnar ágætar á meðan ég hlustaði á hann. Hugsaði með mér að reyna þetta, sem sagt næst þegar ég á afgangs tíuþúsundkall (hvenæar gerist það nú?)þá á ég að fara í bankann og leggja hann ínn á höfuðstól e-s skuldabréfsins míns. Af nógu er að taka. Strax í gær áskotnaðist mér auka sextánþúsundkall. Mín fyrsta hugsun var: "FR'ABÆRT ég fer og kaupi mér kjól fyrir þorrablótið." Svo datt mér ráð mannsins í hug og nú er ég á algjörum bömmer.

mánudagur, 13. janúar 2003

Kiddi kennari varð fimmtugur á laugardaginn. Meira hvað þessi tími líður. Við (nokkrir kennarar, vinir og kórfélagar ) ruddumst heim til hans um kvöldið með snakk og bjór og héldum veislu heima hjá honum. Hann var sem betur fer heima, það væri leiðinlegra ef hann hefði bara frétt þetta seinna. En ég held að hann hafi skemmt sér vel eins og við öll hin.
Sunnudagurinn hjá mér var að þessum sökum rólegheitadagur. Ég stend sem sagt ekki í neinum stórræðum daginn eftir svona dúndur. Ég held að þetta hafi e-ð með aldur að gera. Ef hin venjulega daglega rútína skekkist þá er ég ótrúlega lengi að jafna mig. Ég er t.d. búin að geispa alveg rosalega mikið í dag.
Mér finnst reyndar svona sunnudagar alveg frábærir. Þá ligg ég í bælinu eins lengi og mig lystir og horfi á hverja myndina á fætur annarri. Náði þremur í röð.

laugardagur, 11. janúar 2003

Þegar ég kom heim í gærkvöldi klukkan 23:30, eftir "ógeðslega"skemmtilegan fund hjá þorrablótsnefnd, bauð mín heimboð í hús nokkurt hér í bæ, þar sem boðið var upp á æriskoffí. Þar sem ég mundi þá skyndilega eftir því að ég hafði gleymt að fá mér eftirrétt í kvöldmat, þáði ég að sjálfsögðu þetta frábæra heimboð. Stóð heimsókn þessi fram yfir miðnætti við spjall og tónlist. Þegar Bó er settur á fóninn og kemur að laginu Ég bíð þín undir bláum mána, þá er partý.

föstudagur, 10. janúar 2003

Rotinpútuleg var ég í meira lagi er ég skreiddist heim að afloknum vinnudeg. Er það ekki svo mjög undarlegt sakir svefnleysis undangenginna nátta, ófögnuður sá er hefir mig hrjáð eigi allstutt. Beið mín beður minn mjúkur hver ég lagði mig í, tók mér í hönd sögu þá er nefnist Gunnlaugs saga ormstungu. Seig mér svefn á brá sem dugði ei minna en klukkustund. Gerðist ég þá þess albúin að lesa alla hina skemmtilegu sögu um ástir Helgu hinnar fögru og vonbiðla hennar. Mun ég að liðnum nokkrum vikum bjóða nemendum mínum í 8. bekk að njóta þessara sögu með mér. 9. bekkur fær hins vegar öllu óblíðari sögu, það er um kappann og ójafnaðar manninn Hrafnkel nokkvarn Freysgoða.Hef ég dálæti nokkurt haft á þeim þokkapilti um hríð vegna dugnaðar hans við að koma undir sig fótum að nýju eftir það sem í dag kallast gjaldþrot. Er hann mín fyrirmynd að því leyti.

fimmtudagur, 9. janúar 2003

Ég lít út eins og argintæta. Ég tók eftir því áðan að hárið á mér er orðið 5 cm of sítt. Ég sá það bara alls ekki síkka. Ég dreif í að panta klippingu og strípur. Ekki dugir að hafa músgráa háralitinn sem ég hlaut í vöggugjöf. Verð sem sagt sæt og fín aftur eftir helgi, ætla ekki að spegla mig þangað til.
Dave Jones er æðislegt krútt. Svava Rán er búin að fá myndir úr framköllun. Ég vona að hann sé jafn góðður og hann er sætur.

miðvikudagur, 8. janúar 2003

Það ku vera mörsugur núna samkvæmt gömlu tímatali. Mér fannst það skjóta skökku við þegar ég leit í spegilinn áðan. Það hefur engin mör sogast úr mér á síðustu vikum. Líklega hafa tímarnir e-ð breyst....hvur veit.
Mikið er ég fegin að það taka ekki allir jólaljósin niður á sama tíma. Mér finnst gott að sjá enn falleg ljós logandi hér og þar. Það verður svo dimmt ef allir slökkva í einu. Húrra fyrir jólabörnunum.....eða jólaljósunum..... eða ljósunum sem eru núna allt í einu ekki lengur jólaljós heldur heilsársljós. Það voru logandi ljós (jólaljós) á tveimir húsum í Þorlákshöfn í fyrra fram í ferbrúar og var mikið umrætt. Ég var alveg sannfærð um það að fleiri létu loga hjá sér núna og kannski hef ég rétt fyrir mér. Núna er umræðan allt önnur, nú finnst fólki þetta alveg sjálfsagt. Gaman hvernig fólk breytist og gaman að fylgjast með hvernig fólk reynir að eigna sér breytingar sem verða, til þess að fá viðurkenningu fyrir að hafa orðið fyrstur til e-s. Fólk lætur undan ósýnilegum þrýstingi og skiptir um skoðun af því það er auðveldara að vera í vinningsliðinu, berast með stramnum. Það er svo erfitt að vera öðruvísi og þurfa alltaf að réttlæta gjörðir sínar.
En skelfing dáist ég að þeim sem geta og þora.
Orðið tíska var til umfjjöllunar í 9. bekk í morgun. Þar kom fram að það gæti verið orsök eineltis að klæða sig öðruvísi en fjöldinn. Nemendum mínum fannst það líka helvíti hart að mega ekki vera öðruvísi, því sumir vilja það. Tískan er höfuðskepna og erfitt að berjast á móti henni.

þriðjudagur, 7. janúar 2003

Ja, hérna hér........ allt komið í fullan gang eftir jólafrí. Börnin koma bara fín undan jólunum, þokkalega tilbúin í slaginn. Byrjaði einu sinni enn á Gísla sögu Súrssonar í morgun, líklega í 13 eða 14 skiptið. Alltaf jafn gaman. Krökkunum óar við þessu í fyrstu en svo er þatta bara allt í lagi. Örugglega ekki vegna kennararns heldur vegna sögunnar. Sagan snertir tilfinningar, það gerir hana áhugaverða.
Ég byrjaði í gær á námsefninu fyrir Íslenska sem annað mál og ég er alveg glötuð í þessu. Enska sem annað mál fyrir mig er mér sem sagt ofviða. Ég er samt ekki alveg búin að gefast upp enn, reyni meira í dag og sé svo til.

sunnudagur, 5. janúar 2003

Allur gærdagurinn fór í námskeiðið Íslenska sem annað mál. Ég er mest hrædd um að ég eigi eftir að flosna upp úr þessu námi. Ég er svo andskoti vitlaus og heimsk að það er með ólíkindum. Ég held að ég ráði bara ekkert við alla þessa vinnu sem ég á að inna af hendi. Tvö væn verkefni núna í janúar og tvö önnur í febrúar eða mars og stórt rannsóknarverkefni sem á að skila í apríl. Allar greinar og bækur á ensku og ég sem þarf að glósa og glósa eins og hálfviti. Ég get samt ekki kvartað yfir því að heimilishald tefji mig. Það er bara vinnan sem tefur mig. Ég hef varla sett mat í pott í nokkur ár eða síðan Simmi fór að bera í mig afganga úr veitingahúsunum sínum. Ég ætla nú samt að byrja að lesa á morgun og sjá hvort ég sé eins vitlaus þá og ég er í dag. Mér finnst þetta nefnilega svo spennandi efni.
Sævar Berg, ömmustrákur Grétu systur, bauð mér í 7 ára afmælið sitt í gærkvöldi. Pottrétt og flott. Hann er grand á því drengurinn. Hann er mjög skemmtilegur strákur og kann fullt af bröndurum. Algjört uppáhald hjá mér.
Dúlla Jones er mætt á klakann og flogin austur á Höfn. Alsæl með dvölina í Wales og Dave Jones.
Ég er búin að eyða lunganu úr þessum degi í að undirbúa Þorrablótið. Það er nú einn hnúturinn í maganum sem ég þvælist með þessa dagana og hann stækkar og stækkar eftir því sem nær dregur þorrablótinu. Ég þarf að læra að segja nei. Ég reyni að muna það næst þegar ég er beðin um að gera e-ð sem gæti valdið magahnút.Ég ætla nú samt ekki að fara í þvílík niðurlút eins og hún Sara, þegar það gekk illa hjá henni að fá viðtal við Mandela. Ég verð bara að gjöra svo vel og standa mig.

föstudagur, 3. janúar 2003

Nú er ég hálfpartinn komin í gang. Það var staðbundin lota á nýju námskeiði í framhaldsdeild KHÍ í morgun og verður einnig á morgun. Þetta námskeið heitir Íslenska sem annað mál og er á braut sem heitir Menntun tvítyngdra barna. Verulega fróðlegt og skemmtilegt með tilliti til þess að við erum að sigla hraðbyri inn í fjölmenningarlegt þjóðfélag og verðum að vera í stakk búin til að taka því. Á ég þá við að við verðum að vinna bug á fórdómum og læra umburðarlyndi gagnvart hvert öðru.
Kötturinn og karlinn mjálma báðir á mat sinn og engar refjar....... vilja fá mig að borðinu..... maturinn tilbúinn...

fimmtudagur, 2. janúar 2003

Dagur rvö. Hálftómlegur líka. Líklega vantar núna þetta venjubundna, vakna, fara í skólann, borða á réttum tíma, undirbúa næsta dag, koma heim mátulega þreytt að afloknum vinnudegi, glápa á imbann og svo í háttinn. Já, það verður fínt þegar þetta líf fer að rúlla.

miðvikudagur, 1. janúar 2003

Nýársdagur er svo undarlega tómlegur dagur. Það er eins og nýja árið tregðist við að koma. Ég veit að þessi tilfinning varir ekki lengi því áður en maður veit er árið liðið og enn eitt gengið í garð. Árin fljúga áfram. Tíminn er nú samt afstæður. Ein mínúta getur verið eins og heil eilífð og heil eilífð eins og mínúta. Þetta sannaðist í gærkvöldi þegar ég sprengdi (eða fékk hjálp við að sprengja) tertuna mína sem ég eyddi stórfé í. Það tók hana 55 sekúndur að fuðra upp. Hún var mjög falleg, en að fara svona með fjármuni sína skil ég ekki alveg sjálf. Nágrannarnir voru í 40 mínútur, stanslaust, að sprengja allar terturnar og flugeldana sína. Mínar 55 sekúndur voru ansi hjákátlegar á miðað við það. Ég tala nú ekki um peningana, en það kemur mér ekkert við.
Skaupið fannst mér skemmtilegt, verst að þeir tíma ekki að endursýna það, en e-r tók það upp. Ég ætla að reyna að sjá það aftur, til þess að vera viðræðuhæf við nemendur mína eftir nokkra daga, því reynsla mín er sú að krakkar læra utanað ýmsar setningar úr svona skemmtiþáttum og þá er betra að geta verið með. Já, það styttist í að skólinn byrji aftur. Ég á reyndar að mæta á föstudag til undirbúnings en einnig í staðbundna lotu í KHÍ, föstudag og laugardag. Ég fæ frí úr skólanum til að mæta í Kennó. Hlakka reyndar mjög til, því ég á von á að fá einkunnir úr tveimur verkefnum frá síðustu önn. Ef ég hef náð ætti ég að fá launaflokk í kauphækkun, mig vantaði sem sagt 2,5 einingu upp á 30 einingar í Háskólanámi til að hækka. Tók 27,5 einingar árið 1987-88 í HÍ og það kom mér í koll við síðustu kjarasamninga að hafa ekki druslast þá við að taka 30. Hvernig átti ég að vita það???????
Talaði bæði við Ameríku og Wales í gærkvöldi. Svava Rán fór með Dave Jones flott út að borða og svo á pöbb samkvæmt Welskum sið. Hitti vini hans og skemmti sér mjög vel. Var ekki tilbúin í háttinn þegar pöbbinn lokaði en Walesbúar vissu ekki hvað hún meinti með eftirpartýi. Voðalega eru þeir eftirá..... eða erum við rugluð?
Kolbeinn hlakkaði rosalega til að sprengja flugeldana sem þeir feðgar keyptu á leiðinni til Cleveland. Hann hefur ekki séð flugeldasýningu í tvö ár. Flugeldar eru bannaðir í Iowa. Hann lýsti búðinni fyrir mér þar sem flugeldarnir voru keyptir. Þetta var svona "warehouse" eins stórt og Hagkaup eða eins og 15 Bónusbúðir á Selfossi. Flugeldar og tertur frá gólfi og upp í loft. Það er nú eins og það er, það er allt svo stórt í Ameríku.