Síður

fimmtudagur, 29. maí 2003

Skólanum var slitið í dag. 10. bekkingar fengu samt ekki útkomu samræmdra prófa, því enn er prófanefnd að fara yfir. Skólaslitin voru hátíðleg og mér finnst Halldór skólastjóri gera hárrétt með því að gera að umtalsefni í ræði sinni allt skólastarf, ekki eingöngu bóknámið. Nemendur fá viðurkenningar fyrir íþróttir, þátttöku í kórstarfi, góða umgengni á ferðalögum, svo eitthvað sé nefnt. Þegar ég leit yfir nemendahópinn varð ég klökk, þeir voru svo stilltir, fallegir og prúðbúnir. Ég ræð bara ekki við kökkinn, mér þykir svo rosalega vænt um alla krakkana sem ég kenni.

Nú er ég búin að pakka. Nokkrir klukkutímar í brottför frá Leifsstöð til Edinborgar þar sem við, kennararnir, ætlum að grandskoða skólstarf þeirra Skota. Ég ætla líka að hitta Nessie í Loch Ness (ég man ekki hvernig á að skrifa þetta og nenni ekki að fletta því upp núna) og skoða viskíbrugghús. Annað væri nú bara synd. Vonast til að heyra í sekkjapípu og sjá skotapils.

mánudagur, 26. maí 2003

Nanna litla varð þriggja ára í gær. Ég hefði nú heldur viljað geta knúsað hana heldur en að syngja í gegnum símann yfir Atlandshafið: Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæl'ún Nanna,
hún á afmæli í dag.
Það varð löng þögn í símann eftir sönginn en svo sagði hún með alvöruþrunginni röddu: "Má ég tala við afa Simma?" Henni hefur líklega ekkert litist á þessi ósköp.
Þegar hádegi nálgaðist í gær hringdum við Simmi minn í pabba og hann skutlaði Svövu Rán að Skeiðaafleggjara og við skutluðum henni á Hornafjörð. Við erum búin að fara þessa leið svo oft í vetur að okkur finnst þetta ekkert mál. Það var að öllum líkindum farið of hratt, stöku sinnum, miðað við umferðarlagareglur en ég fann ekkert fyrir því, bíllinn platar dulítið. Svava Rán þurfti að mæta í vinnu í dag vegna prófasýningar og svo var ráðgerður fundur á föstudag en sem betur fer var honum flýtt fram á miðvikudag og við erum að hugsa um að skutlast eftir henni þá. Við spörum eitt fluggjald á þessu og svo langar okkur bara að vera sem mest með litlu stelpunni okkar því það styttist óðum í að hún flytur af landi brott. Sjúkk... ótrúlegt.
Það hefur verið meira um útiveru undanfarna daga hjá mér en síðan ég veit ekki hvenær. Það eru vordagarnir í skólanum, fimmtudag, föstudag og mánudag. Ég fór á hestbak á laugardaginn með saumó og sat svo í heita pottinum á eftir. Ég er öll einhvern veginn hressari eftir alla þessa súrefnisöndun enda veitir ekki af svona þessa síðustu daga í skólanum.
Saumaklúbbsferðin um helgina var æðislega skemmtileg. Við byrjuðum á því að mæta í Hestakránna, hjá Dúnu og Alla, um hádegisbil og fengum okkur súpu og brauð. Spjall og meira spjall. Hestaferðin með öllu sem henni tilheyrir verður ógleymanleg. Hesthúsið, hjálmarnir, hnakkarnir, beislin, komast á bak, tölt, stopp, hestaskál, veðrið, landið, fólkið og samveran. Heiti potturinn og bjórinn. Kvöldverðurinn, þriggja rétta. Trúbadorinn Addi Ása og dansinn og fjörið fram eftir nóttu. Þetta var ferð sem seint gleymist.

föstudagur, 23. maí 2003

Þvílík bongóblíða. Ég er búin að grilla mig. Sat úti á skólalóð í morgun, á meðan á grillinu stóð, á móti sól og fór síðan í sund, eða sko heita pottinn og sólbað, og var þar í tvo tíma. Fór síðan í skotið hjá mömmu og sólaði mig enn meir, þannig að nú er ég eins og grillaður humar í framan og á öxlunum. Frábært, þannig vill maður hafa það.

Það er búið að plana morgundaginn. Saumó ætlar loksins, eftir áratugi, að fara að skemmta sér og taka með eiginmennina með. Við ætlum að mæta í Hestakrána, hjá Dúnu og Alla, um hádegið, borða saman léttan verð, fara á hestbak, í heita pottinn, borða kvöldmat og skemmta okkur og gista þar. Við tökum þetta fram yfir 'júróvsíon'. Við hljótum að frétta hvernig Birgittu gengur. Ég er búin að redda mér reiðbuxum og reiðstígvélum, þannig að ég er tilbúin.
Þá eru prófin búin og vordagar standa yfir. Sólin skín í heiði og allir brosa út að eyrun. Ég er ekki nærri búin að ganga frá öllu mínu. Það er í svo ótrúlega mörg horn að líta og engu má gleyma. Ég er að læra á Stundvísi. Það er heilmikill tímasparnaður að nota það kerfi alla vega hvað útreikning á starfseinkunn varðar.

fimmtudagur, 22. maí 2003

Nú er það klappað og klárt, Karl Kolbeinn kemur til Íslands 4. júní. Þá verð ég reyndar úti í Edinborg með kennurunum, í vinnuferð, en kem heim daginn eftir. Afi gamli verður á Leifstöð nokkra daga í röð því 6. júní mun einkadóttirin flytja alfarin til Wales. Ég á eftir að átta mig á því enn að börnin mín og barnabörn skulu öll vera á erlendri grundu í framtíðinni. Það er eins gott að við gamla settið séum góð hvort við annað - svona alein. Það er huggun harmi gegn að Kolbeinn skuli vilja vera hjá okkur á sumrin.

Gréta systir á afmæli í dag. Ætla að skjótast til hennar með smá pakka.

þriðjudagur, 20. maí 2003

Við mæðgur sátum fyrir framan tölvuna í gærkvöldi, í eina fjóra klukkutíma, að fínpússa BA ritgerðina hennar. Það átti bara eftir að laga örfáar stafsetningar-og ásláttarvillur og samræma punkta og kommur í tilvitnunum. Ritgerðin er 10 eininga ritgerð (með 80 tilvitnunum og einar 60 blaðsíður) og hún er búin að fá einkunn fyrir hana þó að hún sé í fjölritun í dag. Einkunnin er 8.0. Ég er óskaplega ánægð fyrir hönd dóttur minnar að þessu afreki skuli lokið því hún er búin að burðast með þetta á herðunum í 5-6 ár. Raunveruleg skrif hófust ekki fyrr en í haust og mest megnis var hún skrifuð á viku. Hún verður ekki viðstödd útskriftarhátiðina 21. júní, því hún verður flutt til Wales þá.

mánudagur, 19. maí 2003

Gréta systir segir stundum við mig á vorin: "Hvenær á ég að koma að hjálpa þér að þrífa?" Hún heldur því fram að ég verði að búa mér til nýtt hreiður eins og fuglarnir á vorin. Þetta er náttúrulega bara árás því ég hef ekki hreyft mig síðan árið 2000. Þá flutti ég líka þrisvar. En í stað þess að flytja eitthvert núna þá breyttum við aðeins uppröðun húsgagna í gærkvöldi og gátum með þokkalegu móti útbúið svefnstæði fyrir Svövu Rán í pínulitla herberginu. Þar mun svo væntanlega höfðinginn Karl Kolbeinn hafa aðsetur í sumar. Í staðinn varð tölvan að fara inn í stofu. Ég er ekki viss um að Hús og hýbýli hefði áhuga á að mynda neitt hjá mér þó að þeim yrði boðið það því hér ríkir algjört stílleysi. En um leið og þessar breytingar áttu sér stað hér í gær notaði ég tækifærið og henti drasli og þurrkaði ryk þar sem áður var erfitt að komast að. Gott mál.

sunnudagur, 18. maí 2003

Simmi minn lokaði Króniku aðeins fyrr á föstudaginn og við brunuðum austur á Hornafjörð til að hjálpa Svövu Rán að pakka saman búslóðinni og senda hana af stað til Wales. Það er sem sagt búið og gert. Við erum svo vön að pakka saman og flytja að við ættum bara að taka þetta að okkur fyrir fólk. Ég á alltaf límrúllu til að loka kössum með og græju fyrir límið svo mér eru allir vegir færir að stofna fyirtæki um þetta. En búslóð Svövu Ránar verður komin til Wales 2. júní og hún flýgur út þann 6. júní, alflutt til kærastans. Hann er búinn að fá íbúð handa þeim í Rhosllanercrugog (ég skrifaði þetta svo oft í gær að mér tókst að læra nafnið) sem er rétt við Wrexham þar sem David á heima núna.
Þegar við komum heim í gær, skelltum við okkur í betrigallann og heiðruðum hann Dóra hennar Ránar með nærveru okkar í fimmtugsafmælinu hans. Hann var með þetta grand strákurinn, heljarpartý í Versölum, nóg að borða og drekka og voða gaman. Svava Rán skilur alls ekki úthaldið sem við gamla settið höfum, hún var svo þreytt í gærkvöldi að hún lá bara fyrir, á meðan við skemmtum okkur. En þetta hefur kannski eitthvað að gera með Karlottu. Hún tekur sinn toll.

föstudagur, 16. maí 2003

Nú er heimsborgarabragurinn farinn að teygja anga sína hingað til Þorlákshafnar. Í gær var opnuð hérna áfengisútsala. Þetta er skrítin tilfinning að geta labbað niður í bæ (þetta er reyndar ekki orðalag sem notað er hér- ennþá) og keypt sér rauðvín með pizzunni eða grillinu. Það þarf ekki lengur að skreppa af bæ til þess. Ef ég bara man það rétt fyrir klukkan sex þá er sá möguleiki núna fyrir hendi að ég segi við hann Simma minn: „Heyrðu elskan, ættum við kannski að fá okkur rauðvín með kvöldmatnum?" Ef hann segir já, þá get ég skroppið „niðreftir" (þetta er orðaleg sem er notað hér) og keypt flöskuna. Það tekur örugglega einhvern tíma að venjast þessu.
Fengum svona ljómandi góðan fyrirlestur um einelti eða öllu heldur stefnu skóla í eineltismálum, hjá Vilhelm Norðfjörð, sálfræðingi skólans. Á eftir unnum við öll, starfsfólk skólans, í umræðuhópum og það stendur til að skólinn marki sér stefnu hvað þessi mál varðar. Þó einelti verði aldrei liðið er heldur aldrei hægt að koma í veg fyrir það. Það er, eins og einn af fundarmönnum komst að orði, eiliíðarvinna, eitthvað sem verður að lifa með.

fimmtudagur, 15. maí 2003

Ég var að lesa verkefni sem hún Sigríður Guðnadóttir var að vinna í sínu framhaldsnámi. Þetta er kennsluvefur um Þorlákshöfn, hugsaður fyrir grunnskólabörn. Ég mæli eindregið með honum. Fyrir utan það að ég varð klökk við lestur sumra síðnanna en það er ekki kannski ekki alveg að marka tilfinningaskjóðuna mína, hún þarf að tæma sig við ótrúlegust aðstæður og skilyrði.

miðvikudagur, 14. maí 2003

Á meðan forsetinn býður til samkvæmis í Borgarleikhúsinu vegna 60 ára afmælis síns er ég að útbúa afmælispakka fyrir Nönnu sem verður 3 ára 25.maí. Mér er sagt að hún sé algjör dúkkukerling enda hef ég séð til hennar dedúa við dúkkurnar sínar en það er reyndar komið á annað ár síðan. Þá söng hún þær í svefn með amerískum vögguvísum. Af því ég gaf henni Baby born í jólagjöf verð ég að gefa henni núna einhverja fylgihluti sem eru auðvitað alveg bráðnauðsynlegir til þess að Baby born geti þrifist. Gréta systir var svo sæt að keyra mig á Selfoss í Baby born innkaup. Við kíktum við í Lindinni og Skóbúðinni. Ég sá fullt af fötum og tvenna skó sem ég get hugsað mér en keypti ekkert. Svo skrítið sem það nú er þá voru fötin of stór á mig, hef aldrei lent í því áður, og málið með skóna er það að mig vantar þægilega götuskó en skvísan í mér tekur alltaf yfir og ég mátaði bara flotta hælaskó. Skynsemin réð áður en ég tók ákvörðun og ..... ég fór út skólaus. Þarf að leggja hausinn í bleyti.

þriðjudagur, 13. maí 2003

Mig minnir að ég hafi bara átt að vera þakklát um síðustu áramót þegar ég fékk 3% launahækkun. Hafði reyndar verið samið um það fyrir allnokkru síðan. Núna fá sumir sem búa í þessu landi, án þess að berjast fyrir því, launahækkun sem samsvarar mánaðarlaunum eins kennara. Hvernig hljóðuðu öll slagorðin sem duttu inn um bréfalúguna hjá okkur öllum fyrir örfáum dögum?
Ég vildi að ég nennti að fara í rannsóknarstúss. Þá myndi ég reyna að finna út úr því af hverju íslensk börn eru látin sofa úti í vögnum. Af hverju sumarbörn fara út tveggja vikna og vetrarbörn fjögurra vikna. Ég myndi líka rannsaka hve gamall þessi siður er og hvort það sé til eitthvert það land í veröldinni sem fer svona með ungbörnin sín annað en Ísland. Mig langar líka til að vita hvenær barnavagnar komu til landsins. Þessar vangaveltur urðu annars vegar til þegar dóttir mín sagði mér frá belgíska kennaranum, sem dvaldi hjá henni í hálfan mánuð um daginn og tók mynd af hornfirsku barni sofandi úti í barnavagni. Hún vildi segja vinkonu sinni frá þessum furðulega íslenska sið og fannst vissara að hafa sönnunargagn. Hins vegar fór ég að velta þessu fyrir mér vegna Karlottu. Ef hún yrði uppfædd á Íslandi svæfi hún sjálfsagt úti í vagni eins og önnur íslensk börn hafa gert, alla vega um tíma, en það stendur til að hún verði alin upp í Wales og þar er þessi siður ekki þekktur. Mun Karlotta bíða skaða af að missa af öllu íslenska heilnæma loftinu eða hljóta betra af að sleppa við það? Miklar geta spekúlasjónir þessa heims verið.
En mikið rosalega vildi ég geta dvalið, þó ekki væri nema einn dag, með henni ömmu minni á Syðra-Velli í Flóa og fylgst með henni sinna daglegum störfum með barnahópinn sinn stóra. Skyldi hún hafa átt barnavagn? Spyr pabba að því.
Það er óhætt að segja að hún Margrét Frímannsóttir sé hugsjónamanneskja. Hún vill fórna varaformannsstólnum sínum fyrir velgengni flokksins síns. Trúir því að Ingibjörg Sólrún verði flokknum meira til framdráttar þar en hún. Þvílík fórnfýsi. Þeir ættu sumir að taka Möggu til fyrirmyndar. Maður hefur á tilfinningunni að sumir sitji á sínum stólum eins og þeir eigi þá og engum öðrum sé treystandi fyrir þeim.

mánudagur, 12. maí 2003

Ég hef aldrei haft það svona gott eins og þetta vorið. Ég þarf ekki að búa til og leggja fyrir nema tvo próf fyrir utan nýbúana. Prófanefnd sá um að semja fyrir 10. bekk og ég þarf að sjá um 8. bekk og við Ásta saman með 9. bekk. Þvílíkur lúxus. Þetta er sá árstími sem ég fer venjulega á límingunum en nú héld ég bara að ég sleppi við það.

sunnudagur, 11. maí 2003

Fékk þennan sendan, má til með að deila honum.

Nonni litli var aðeins farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og
einn daginn fór hann til pabba síns og spurði hann: "Hvað eru stjórnmál?"
Pabbi hans svaraði: "Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á
þennan hátt: Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig
Auðmagnið. Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldunum og þess vegna
skulum við kalla hana Stjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum
svo við skulum kalla þig Fólkið. Við getum síðan haldið áfram og kallað
barnfóstruna Öreiga. Litla bróður þinn skulum við kalla Framtíðina. Farðu nú
og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og saman.
þannig að Nonni litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem pabbi hans
sagði honum.

Um nóttina vaknar hann upp við grátinn í bróður sínum. þegar hann kemur inn
í herbergi hans finnur hann fljótt að bleian hans er blaut og mikil fýla af
henni. Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína
sofandi. þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst.
Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður sinn í rúminu með barnfóstrunni.

Að lokum gafst Nonni litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði.
Næsta morgun segir hann við föður sinn. "Pabbi, ég held núna að ég skilji
hvað stjórnmál ganga út á." Gott segir faðirinn, segðu okkur frá því. þá
sagði Nonni litli: " Jú sjáðu til, á meðan Auðmagnið riðlast á Öreigunum er
Ríkisstjórnin steinsofandi. Fólkið er hundsað og Framtíðin er í djúpum
skít...












Hann Simmi minn er búinn að sækja grillið og er að koma því fyrir og það stendur til að grilla á svölunum á eftir. Nammi namm....
Það er ríkjandi spennufall í dag. Við drifum okkur heim í Þolló eftir að hafa skenkt íbúum Mosfellsbæjar nokkrum bjórum. Það var kosningapartý á Reykjabrautinni og þar sátum við fram undir morgun. Spennan gífurleg en samt er ekki kominn lokapunktur finnst mér. Hvernig stjórn verður mynduð? Það er stóra spurningin.

laugardagur, 10. maí 2003

Við, hjónakornin, kusum klukkan 10 í morgun á leiðinni í Mosó. Þó að við séum búin að búa saman í meira en 30 ár þá er ég mest hrædd um það að við krossum ekki við sama bókstafinn í kosningum. Það er sama hvað ég predika yfir honum, hann getur ekki kosið annað en ,,flokkinn sinn" þegar í kjörklefann er komið.
Við verðum með opið í Króniku fram eftir kvöldi. Hér verður kosningavaka. Það er búið að undirbúa kvöldið með stóru tjaldi og skjávarpa frammi á torgi. Hér öðru megin við okkur er kosningaskrifstofa D-listans og hinum megin er S-listinn. B- listinn er svo í húsinu við hliðina. Við vonumst eftir sem flestum og að allir kaupi bjór!!!!

miðvikudagur, 7. maí 2003

Ég segi já alveg hiklaust þegar ég er beðin um að prófarkalesa lokaritgerðir úr háskólum og kemst svo að því að ég kann ekki íslensku nógu vel til að taka svona verkefni að mér. Var að ljúka við að lesa eina áðan úr iðjuþjálfaradeild Háskólans á Akureyri. Flott ritgerð; vona bara að ég hafi ekki skemmt neitt.

þriðjudagur, 6. maí 2003

Ég ætla að skrópa á kóræfingu í kvöld að draga hana Öldu Björg vinkonu mína á konukvöld hjá Samfylkingunni á Selfossi. Samfylkingin kemur svo illa orðið út úr skoðanakönnunum að mér finnst ég verða að gera eitthvað og þetta er það eina sem mér dettur í hug. Er þetta ekki liður í að sýna samstöðu? Það hlýtur að vera.

mánudagur, 5. maí 2003

Þrátt fyrir að Karlotta sé aðeins þriggja mánaðar fóstur, þá pælir mamma hennar svo mikið í móðurhlutverkinu að hún hlýtur að verða best upp alda barnið á jörðinni eða mamma hennar besta mamma í heimi. Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að verða foreldri og kannski aldrei of mikið pælt í þessu. Þegar mín börn voru lítil þá ætlaði ég nú að ala þau upp fagmannlega og eignaðist bók eftir hinn fræga dr. Benjanín Spock. Mér fannst samt alltaf ómögulegt að fylgja einhverjum fyrirfram ákveðnum reglum um uppeldið, ég var meira fylgjandi því að vera góð fyrirmynd og hafa ekki boð og bönn. Enda reif sonur minn kaflann um tveggja ára barnið úr bókinni rétt áður en hann varð tveggja ára svo ekki gat ég farið eftir honum. Kannski er Kalli eins og hann er í dag af því það vantar tveggja ára uppeldið í hann! Ég hef nú alltaf sagt svona í gamni af því að ég mátti ekkert vera að því að ala upp börn fyrir kennslunni þá séu börnin min best sjálfuppöldu börnin sem ég þekki.
Ég var líka dálítill hippi í mér, enda af þeirri kynslóðinni. En ég gerði dóttur minni ekkert gott þegar ég leyfði henni að ráða hvenær hún kæmi inn á kvöldin.Ég hélt að hún hefði gott af því að taka ábyrgð á þessu sjálf. En þetta var allt of mikil ábyrgð lögð á hennar herðar og henni leið illa að hafa ekki ákveðnar reglur og aga eins og vinkonurnar. Hún skyldi það að það væri hneykslanlegt að barnið fengi að ráða þessu og laug því að vinkonunum að ég hefði sagt til um ákveðinn útivistartíma en þetta sgaði hún mér ekki fyrr en mörgum árum síðar. Þetta er sem sagt ekki dans á rósum þetta uppeldi.

sunnudagur, 4. maí 2003

Það rættist úr ballinu hjá okkur í Söngfélaginu fyrir rest. Við vorum nú orðin dálítið áhyggjufull um miðnættið, þetta virtist ætla að verða fámennt en auðvitað góðmennt en það virðist vera viðtekin regla hjá landanum að mæta seint á svona samkundur. Hljómsveitin Hjálparsveitin var þrusugóð að mínu áliti en maðurinn sem ég sef hjá segir að hún hafi spilað 3 lög, bara aftur og aftur allt kvöldið. Ég hlusta bara ekki á hann, það er oft gott ráð.
Við bjuggumst við eins balli og í fyrra en auðvitað er sami leikur aldrei endurtekinn. Í fyrra var þetta fyrsta ballið í Versölum og þá mættu allir. Ekkert kynslóðabil. Og ég veit um nokkra sem komu þá eingöngu til að styrkja okkur til Ítalíufrarinnar. Núna var það aðallega fólk í eldri kantinum þó það mætti sjá einn og einn af yngri kynslóðinni. Ég vann á barnum í nokkrar mínútur og það var dálítið einkennilegt að afgreiða gamla nemendur um tvöfaldan Captain Morgan í kók. Svona er lífið.

föstudagur, 2. maí 2003

Árum, jafnvel áratugum saman, hef ég farið í fýlu einu sinni í mánuði. Það er þegar ég fæ launaseðilinn minn. En annað var upp á teningnum í morgun, ég brosti af gleði. Fékk aukasporslu sem ég var búin að gleyma. Þetta þýðir bara eitt, ég er berdreyminn manneskja. Kúkur þýðir aur.
Samræmda prófið í íslensku var í morgun hjá 10. bekk. Mér leist þokkalega á það. Ekki mikið um svínarí eins og hefur komið fyrir. Þó var ein spurning sem ég er ekki enn búin að svara. Spurning úr texta. Ég er enn að velta svarinu fyrir mér. En ég skil ekki af hverju þarf að eyða mörgum spurningum um sama efni eins og spurningarnar um orðflokkana í þessu prófi. Einnig voru tvær spurningar, mjög svipaðar um aðalsetningar og aukasetningar en ekkert spurt um bragfræði eða myndmál, eins og ég eyddi miklum tíma í þann þátt. Reyndar var ein svínaríisspurning. Spurt var hvað orðið sínkur merkir. Hvernig í ósköpunum eiga blessuð börnin að þekkja þetta orð? Ég veit um einn texta þar sem orðið kemur fyrir og það er í eldgamalli stafsetningarbók sem allir eru löngu hættir að nota.