Úff, hvað það var óhreint í eldhúsinu í Café Króniku þegar ég kom þangað klukkan 10 í morgun. Svakalega var hreint og fínt þar fjórum tímum síðar. En ég þurfti að fara í bað um leið og ég kom heim.
mánudagur, 31. maí 2004
sunnudagur, 30. maí 2004
Söng í tveimur messum í dag.
Fyrst í Þorlákskirkju svo á Strönd.
Hvítasunnukaffi hjá mömmu.
Margir mættir.
Ekki allir.
Sumir eru að sóla sig.
Á sólaströnd.
Ásta mágkona kíkti við hjá okkur
í hosiló og Dóra Sif.
Alltaf gaman að spjalla við þær mæðgur.
Alltaf jafn gaman.
Góður dagur.
Góður letidagur.
Þrátt fyrir skyldustörf.
Fyrst í Þorlákskirkju svo á Strönd.
Hvítasunnukaffi hjá mömmu.
Margir mættir.
Ekki allir.
Sumir eru að sóla sig.
Á sólaströnd.
Ásta mágkona kíkti við hjá okkur
í hosiló og Dóra Sif.
Alltaf gaman að spjalla við þær mæðgur.
Alltaf jafn gaman.
Góður dagur.
Góður letidagur.
Þrátt fyrir skyldustörf.
laugardagur, 29. maí 2004

Ég hef oft óskað þess að geta farið aftur í tímann til hennar ömmu á Velli þegar hún var ung með allan barnahópinn sinn. Það er ekki í boði en þessa frábæru mynd fékk ég senda. Hún er tekin árið 1925 Þegar amma var búin að eignast 11 börn. Eitt þeirra dó ungt. Þarna eru: Soffía, Guðrún, Sveinbjörn, amma með Margréti í fanginu, Sigursteinn, Ingvar, Ólafur, Ólöf, Guðfinna og Kristján. Ófædd eru: pabbi, Gísli, Aðalheiður, Jón og Helgi. Amma varð áttræð. Hún var fædd 1890 og dó 1970. Hún var yndisleg manneskja, hjartahlý og mjög skemmtileg.
föstudagur, 28. maí 2004
Ég er eftir á, hef gleymt mér, er ekki með eða tek ekki eftir. Ég tala enn um þorpið, hreppinn, kaupfélagið, hreppsnefndina, bryggjuna, sveitarstjórann, hreppsvinnuna, A-götu og B-götu, Mundaver, Meitilinn og Gletting. Ég þarf greinilega að taka mig og reyna að halda í við nútímann. Ég vil helst ekki verða forpokað gamalmenni.
fimmtudagur, 27. maí 2004
Ég sat í þrjá og hálfan klukkutíma í bílnum mínum í gærkvöldi. Ég fór ekkert. Hefði getað keyrt langleiðina á Hornafjörð á þessum tíma en ég gerði það ekki. Ég sat í bílnum niður við höfn og horfði á strandað skip. Hernes. Vikurflutningaskip. Við, Simmi minn, ætluðum bara að skreppa og kíkja á þetta en við hljótum að hafa heillast eða orðið bergnumin því þegar skipið losnaði af strandstað var klukkan um hálf tólf en við fórum út upp úr klukkan átta. Við skiptum að vísu einu sinni um sjónarhorn en það var það eina sem við hreyfðum okkur þennan tíma. Ég skil þetta ekki alveg enn. Hvað var svona spennandi? Við botnuðum lítið í því hvað var að gerst. Horfðum á lóðsinn úr Eyjum og Ölver gera eitthvað en vissum ekki almennilega hvað og tíminn leið. Tíminn leið mjög hratt. Ótrúlega hratt.
miðvikudagur, 26. maí 2004
þriðjudagur, 25. maí 2004

Nanna ömmuljós er fjögurra ára í dag. Verst að geta ekki knúsað þessa dúllu í tilefni afmælisins. Ég verð að láta nægja að hringja og syngja. Hún verður vonandi ánægð með pakkann frá ömmu og afa. Hún ætlar að halda álfaprinsessuafmæli. Hún fékk álfaprinsessukjól frá Lúkasi frænda í Wales og það kemur álfamær í veisluna. Gestum verður boðið upp á pizzu og krækling. Kræklingur er uppáhaldsmatur Nönnu og bað hún um krækling í veisluna sína.
mánudagur, 24. maí 2004
Fór með 8. og 9. bekk í fjallgöngu í morgun. Sól og blíða. Dásamlegt veður. Vorum keyrð á Hengilsvæðið, gengum fyrir Ölkelduháls og þaðan niður í Reykjadali að Rjúpnabrekkum. Við hesthús Hvergerðinga biðu bílarnir. Fórum um jarðhitasvæði þar sem krakkarnir fóru í bað. Drullubað. Þeim fannst það toppurinn á ferðinni. Ég naut útiverunnar, göngunnar og útsýnisins.
sunnudagur, 23. maí 2004

Ég er montinn af stráknum mínum. Hann er búinn að fá vinnu í UCLA. Þriðja besta háskóla í USA. Hann fer þangað eftir eitt ár. Rannsóknarmaðurinn Kalli. Svefnrannsóknarmaðurinn og vísindamaðurinn. Los Angeles. Það er enn lengra þangað en til Iowa. Þar ætlar hann að vera í tvö til þrjú ár. Með Elsu sinni og ömmuljósunum mínum Kolbeini og Nönnu. Kolbeinn töffari. Fer í Junior High. Nanna í Elementary school.

Lúkas Þorlákur meðan hann var enn með exem sár á kinninni sinni. Hann er góður í dag sem betur fer. Athugull strákur. Lukku Láki.

Kalli og Svava Rán hittust á Íslandi í mars. Kalli sá þá Lúkas í fyrsta sinn. Við að sjá Kalla eftir tvö ár. Það er langur tími að sjá ekki börnin sín.
Göngutúr.
Góður göngutúr.
Neshringurinn.
Smá skokk líka.
Vonandi sá enginn.
Við erum hálf álappaleg á skokkinu.
Gamla settið.
Getum það samt.
Erum bara nokkuð ánægð með okkur.
Þannig lagað.
Vonandi helst þetta góða veður.
Ég nenni ekki að ganga eða skokka í rigningu.
Góður göngutúr.
Neshringurinn.
Smá skokk líka.
Vonandi sá enginn.
Við erum hálf álappaleg á skokkinu.
Gamla settið.
Getum það samt.
Erum bara nokkuð ánægð með okkur.
Þannig lagað.
Vonandi helst þetta góða veður.
Ég nenni ekki að ganga eða skokka í rigningu.
laugardagur, 22. maí 2004
Í gær var óvissuferð starfsfólks Grunnskólans. Þriðja helgin í röð hjá mér í vissu- eða óvissuferðum. Það var auðvitað alveg frábært. Verst hvað veðrið var leiðinlegt, rigning og meiri rigning. Við vorum í nokkurs konar keppni alla ferðina. Fjögur lið sem unnu sér inn stig í ýmsum þrautum. Ég var liðstjóri í mínum hóp og mér fannst við standa okkur mjög vel. Nonni og gærurnar hét liðið. Við áttum heróp, baráttusöng og skemmtiatriði. Lentum samt í þriðja sæti. Ótrúlega óréttlátt. Við hoppuðum líklega of hægt í snú-snú. Borðuðum lambalæri að Leirubakka í Landsveit. Gaman. Öðruvísi.
Ég vildi að ég gæti kysst hana Grétu systir til haminju með 50 ára afmælið en hún er á Spáni. Það væri ekki amalegt að vera þar með henni. En þetta er sá tími í skólanum þar sem erfitt er að fara frá. Ég gat kysst hana mömmu til hamingju með 75 ára afmælið sem var í gær. Hún fór til Spánar en kom heim daginn fyrir afmælið.
fimmtudagur, 20. maí 2004
Það var þéttsetinn bekkurinn í Strandarkirkju
eins og alltaf þegar messað er þar.
Þéttsetinn bekkurinn af fólki.
Þéttsetinn af trúuðu fólki.
Presturinn í Hveragerði þjónaði fyrir altari.
Séra Baldur predikaði.
Hann talaði um stríðshrjáðan heim eins og áður í sinni predikun.
Hann vonaði líka að guðs vilji verði á jörðu og himni.
Þegar maður sér í fréttum slösuð eða dáin börn vegna stríðsátaka spyr maður sjálfan sig hver sé vilji hans.
eins og alltaf þegar messað er þar.
Þéttsetinn bekkurinn af fólki.
Þéttsetinn af trúuðu fólki.
Presturinn í Hveragerði þjónaði fyrir altari.
Séra Baldur predikaði.
Hann talaði um stríðshrjáðan heim eins og áður í sinni predikun.
Hann vonaði líka að guðs vilji verði á jörðu og himni.
Þegar maður sér í fréttum slösuð eða dáin börn vegna stríðsátaka spyr maður sjálfan sig hver sé vilji hans.
Maður finnur fyrir öllum þessum frídögum þegar maður er að reka veitingahús sem byggir á iðnaðar-og verkamönnum sem vinna virka daga og þurfa almennilegan íslenskan mat í hádeginu. Ég legg til að við hættum þessari hræsni og fækkum frídögum sem hafa orðið til vegna trúarinnar. Í Ameríku er það eingöngu ofsatrúarfólk sem tekur frí þessa daga og á Bretlandi fer fólk til vinnu þegar við erum með annan í þessu og annan í hinu. Við nennum ekki að vinna og notum hvert tækifæri til þess að hanga heima.
þriðjudagur, 18. maí 2004
Mikið er það nú svekkjandi þegar maður fer að heiman að morgni í támjóum skvísuskóm og stuttum leðurjakka og lendir svo í rigningu á leiðinni heim í hádeginu. Það er líka svekkjandi þegar maður missir ofan á sig tómatsneið, í þessu sama hádegi, og hún lendir ofan í brjóstvasa á nýþveginni og straujaðri skyrtu. En maður bítur bara á jaxlinn og bölvar í hljóði. Einhver kenndi mér það fyrir margt löngu.
mánudagur, 17. maí 2004
Mikil undur og stórmerki eru tölvur og það sem þeim tilheyrir. Við, Simmi minn, fylgdumst með Lúkasi Þorláki borða kvöldmatinn sinn í gær. Við horfðum á hann og heyrðum líka í honum. Ótrúlegt. Hann situr bara eins og fínn maður og lætur mömmu sína mata sig. Kominn með tvær tennur og borðar orðið allt. Við, amman og afinn, störðum á tölvuskjáinn með bros út að eyrum og vorum örugglega frekar fávitaleg, skríktum og hlógum en áttum varla orð til að lýsa því hvað barnið er myndarlegt og fallegt. Þegar hann eldist verður þetta orðinn eðlilegst hlutur í heimi, að tala saman í gegnum tölvuna.
sunnudagur, 16. maí 2004
Það er skemmtilegt fólk í Söngfélagi Þorlákshafnar.
Óvissuferðin var skemmtileg.
Skemmtileg óvissa.
Allur sólahringurinn var mjög skemmtilegur.
Ég gleymdi alveg að vera hrædd við óvissuna um leið og rútan lagði af stað.
Af því þetta var júróvisíondagur ríkti júróvisíonstemmning í hópnum. Gömul júróvisóionlög voru æfð og flutt. Veðbanki var í gangi um gengi okkar manns. Ég spáði honum áttunda sætinu af því átta er talan mín. Simmi spáði 19 sætinu af því 19 er talan hans. Hann vann sem sagt pottinn. Skipti honum reyndar með öðrum en varð nokkrum þúsundköllum ríkari. Komum heim úr ferðinni ríkari en við vorum við upphaf hennar. Þvílík lukka sem ríkir yfir okkum hjónunum þessa vikuna. Ég rauk í að athuga Lottótölurnar en ég var bara með tvær réttr. Það dugir víst ekki.
Óvissuferðin var skemmtileg.
Skemmtileg óvissa.
Allur sólahringurinn var mjög skemmtilegur.
Ég gleymdi alveg að vera hrædd við óvissuna um leið og rútan lagði af stað.
Af því þetta var júróvisíondagur ríkti júróvisíonstemmning í hópnum. Gömul júróvisóionlög voru æfð og flutt. Veðbanki var í gangi um gengi okkar manns. Ég spáði honum áttunda sætinu af því átta er talan mín. Simmi spáði 19 sætinu af því 19 er talan hans. Hann vann sem sagt pottinn. Skipti honum reyndar með öðrum en varð nokkrum þúsundköllum ríkari. Komum heim úr ferðinni ríkari en við vorum við upphaf hennar. Þvílík lukka sem ríkir yfir okkum hjónunum þessa vikuna. Ég rauk í að athuga Lottótölurnar en ég var bara með tvær réttr. Það dugir víst ekki.
laugardagur, 15. maí 2004
Nú bíður óvissa.
Mikil óvissa.
Söngfélagsóvissa.
Mér líður betur þegar farið er í vissuferðir.
En læt mig hafa það.
Ég má ekki missa af neinu.
Er í útifötum.
Bíngódress í tösku og hvítvín.
Simmi minn tilbúinn og ætlar með í þetta skipti.
Bjór í bakpoka og tannbursti.
Kem eftir 24 klukkutíma.
Mikil óvissa.
Söngfélagsóvissa.
Mér líður betur þegar farið er í vissuferðir.
En læt mig hafa það.
Ég má ekki missa af neinu.
Er í útifötum.
Bíngódress í tösku og hvítvín.
Simmi minn tilbúinn og ætlar með í þetta skipti.
Bjór í bakpoka og tannbursti.
Kem eftir 24 klukkutíma.
föstudagur, 14. maí 2004
Vann í Króniku eftir vinnu í dag.
Nú eru komnir koflóttir dúkar á borðin.
Og kertastjakar.
Hjálpaði Maríu að skreyta með gerviblómum.
Ég skreytti með gerviblómum.
Við hengdum gerviburkna upp um allt.
Gervibukna. Ég.
Annaðhvort læt ég ráða yfir mér eða ég þekki mig ekki.
Það er svo fínt í Króniku núna.
Loksins alvöruveitingahús.
Café Krónika.
Það var opið til klukkan níu í kvöld
enda nokkrir kallar að borða
og fá sér bjór og hafa það huggulegt.
Mjög huggulegt.
Nú eru komnir koflóttir dúkar á borðin.
Og kertastjakar.
Hjálpaði Maríu að skreyta með gerviblómum.
Ég skreytti með gerviblómum.
Við hengdum gerviburkna upp um allt.
Gervibukna. Ég.
Annaðhvort læt ég ráða yfir mér eða ég þekki mig ekki.
Það er svo fínt í Króniku núna.
Loksins alvöruveitingahús.
Café Krónika.
Það var opið til klukkan níu í kvöld
enda nokkrir kallar að borða
og fá sér bjór og hafa það huggulegt.
Mjög huggulegt.
fimmtudagur, 13. maí 2004
Nú eru kræsingarnar orðnar svo ómótstæðilegar í Króniku að það er engin leið að standast þær.
miðvikudagur, 12. maí 2004
Talan átta kom upp. Ég er 10 flöskum ríkari. Ég sem sagði við hann Simma minn í gær að ég vonaði að ég ynni ekki svona í fyrsta sinn af því ég dreif í stofna klúbbinn með látum. Ég er greinilega bara mjög heppin manneskja.
þriðjudagur, 11. maí 2004
Ég stofnaði léttvínsklúbb í dag. Stal hugmyndinni frá samstarfsfélögum, sem stálu henni annars staðar frá. Við erum 10 í klúbbnum og ég skipaði sjálfa mig sem formann og skráningarstjóra. Klúbbfélagar völdu sér tölu frá 0-9. Ég valdi mér auðvitað átta. Allir komu svo með eina flösku til mín í dag og nú er að bíða eftir því að það verði dregið í Happdrætti Háskólans, því sá sem hefur öftustu töluna í stærsta vinningi Háskólans hefur unnið allar flöskurnar.
mánudagur, 10. maí 2004
Í dag eru 40 ár síðan ég fermdist. Ég fermdist í Selfosskirkju ásamt 40 öðrum krökkum. Séra Sigurður Pálsson fermdi. Það var sól og blíða þennan dag. Ég var í bláum kjöl sem hún Rannsí saumaði á mig og með hvíta nelliku í hárinu. Lykt af nelliku minnir mig æ síðan á ferminguna. Á laugardaginn var hittumst við fermingarsystkinin í tilefni afmælisins. Við hittumst 19 krakkar á Selfossi klukkan fimm í bakarínu hans Guðna, fórum í skoðunarferð um Selfoss undir leiðsögn Gúnda og Valla, keyrðum í Ölfusið þar sem Hannes tók við fararstjórn og borðuðum svo öll saman á Hafinu Bláa.
Það var gaman.
Það var rosalega gaman.
Frá fyrstu mínútu var gaman.
Það var gaman allan tímann.
Mikið rosalega var annars gaman.
Mikið á ég skemmtileg fermingarsystkin.
Það var gaman.
Það var rosalega gaman.
Frá fyrstu mínútu var gaman.
Það var gaman allan tímann.
Mikið rosalega var annars gaman.
Mikið á ég skemmtileg fermingarsystkin.
föstudagur, 7. maí 2004
Í Bónus með Grétu systir.
Bónus, Bónus herm þú mér
er ódýrast að verlsa hjá þér?
Jóhannes brosti í kampnn og hló
en Jón Ásgeir bjó
um sig
í hjörtum landsmanna.
Bónus, Bónus herm þú mér
er ódýrast að verlsa hjá þér?
Jóhannes brosti í kampnn og hló
en Jón Ásgeir bjó
um sig
í hjörtum landsmanna.
Nítján ferðir bringusund, léttar teygjur við bakkann djúpulaugarmegin, baksund yfir.
Líður eins og fuglinum fljúgandi. Frjáls. Svíf á vatninu.
Líkamsrækt dagsins aflokið. Góð tilfinning. Mjög góð.
Lauginni verður lokað um óákveðin tíma.
Á von á að fitna eins og þessi sem sat á fjósbitanum.
Er að velta fyrir mér hlaupaskónum þeim reyðfirsku.
Líður eins og fuglinum fljúgandi. Frjáls. Svíf á vatninu.
Líkamsrækt dagsins aflokið. Góð tilfinning. Mjög góð.
Lauginni verður lokað um óákveðin tíma.
Á von á að fitna eins og þessi sem sat á fjósbitanum.
Er að velta fyrir mér hlaupaskónum þeim reyðfirsku.
Spegill,spegill....
Allir sáu hvað hún var illa til höfð
fötin fóru illa
buxurnar ópressaðar
hárið klesst
skórnir óburstaðir
Spegillinn sagði:
"Ekki gleyma varalitnum heima."
Allir sáu hvað hún var illa til höfð
fötin fóru illa
buxurnar ópressaðar
hárið klesst
skórnir óburstaðir
Spegillinn sagði:
"Ekki gleyma varalitnum heima."
fimmtudagur, 6. maí 2004
Litli prinsinn minn af Wales er 6 mánaða gamall í dag. Fyrir 12 dögum síðan vorum við saman, heima hjá honum, í 20 stiga hita og klæddum okkur í sumardressið okkar, sem er alveg eins. Hvítur bolur og kvartbuxur úr hör.
Óskalisti
Ég vildi óska að það væru leikföng út úm allt.
Ég vildi óska að það væru fleiri raddir í kringum mig.
Ég vildi óska að ég þyrfti að reima skó.
Ég vildi óska að ég þyrfti að setja meira í pottana.
Ég vildi óska að ég væri að kaupa bleiupakka.
Ég vildi óska að ég segði stundum:"Ertu búinn að læra?"
Ég vildi að sumir vegir væru styttri.
Ég vildi óska að það væru leikföng út úm allt.
Ég vildi óska að það væru fleiri raddir í kringum mig.
Ég vildi óska að ég þyrfti að reima skó.
Ég vildi óska að ég þyrfti að setja meira í pottana.
Ég vildi óska að ég væri að kaupa bleiupakka.
Ég vildi óska að ég segði stundum:"Ertu búinn að læra?"
Ég vildi að sumir vegir væru styttri.
þriðjudagur, 4. maí 2004
Hér fór fram mikil viðhöfn á dögunum. Maðurinn, sem ég sef hjá, fékk í jólagjöf fyrir einum 17 árum síðan forláta mikil kúrekastígvél. Hann hefur gengið í þeim síðan. Skiptir ekki máli hvernig búningurinn er sem maðurinn klæðist, alltaf hefur hann notað kúrekastígvélin. Vð spariföt, léttan klæðnað, gallabuxur, smóking og stuttbuxur. Veðrið hefur heldur ekki skipt máli. Stígvélin hafa verið notuð í sól og blíðu, kulda og trekki, rigningu og krapa, frosti og fannbyl. Nokkrum sinnum hafa þau fengið yfirhalningu hjá skósmið.
Um daginn benti ég manninum á að hann væri ekki lengur snyrtilegur í þessum stígvélum og benti honum ofurvarlega á gat hér og gat þar á stígvélunum. Orðið snyrtilegur fór eitthvað fyrir brjóstið á honum svo að hann kyssti stígvélin, viðhafði hugljúf kveðjuorð og lagði þau, í orðsins fyllstu, á hilluna. Núna skreyta stígvélin forstofuna í hosiló. Það hefur hvarflað að mér að láta gylla þau, eins og sumir gerðu við barnaskó hér á árum áður en ég held ég hafi þau eins og þau eru. Skökk, skæld og götótt.
Um daginn benti ég manninum á að hann væri ekki lengur snyrtilegur í þessum stígvélum og benti honum ofurvarlega á gat hér og gat þar á stígvélunum. Orðið snyrtilegur fór eitthvað fyrir brjóstið á honum svo að hann kyssti stígvélin, viðhafði hugljúf kveðjuorð og lagði þau, í orðsins fyllstu, á hilluna. Núna skreyta stígvélin forstofuna í hosiló. Það hefur hvarflað að mér að láta gylla þau, eins og sumir gerðu við barnaskó hér á árum áður en ég held ég hafi þau eins og þau eru. Skökk, skæld og götótt.
