Síður

laugardagur, 4. janúar 2014

Aftur í veitingabransann

             
Gerum rosalega góðar pizzur
Hef talað um það í nokkur ár að draumstarfið mitt væri að vinna á kassa í Bónus eða annarri álíka verslun. Hugmyndin á bak við þetta er að kennarastarfið er oft svo erfitt og krefjandi  (en um leið gefandi og skemmtilegt en það er allt önnur ella)  að það kemur upp í hugann hvað það væri þægilegt að þurfa ekki að bera ábyrgð á uppeldi barna, þurfa ekki að tala af viti, skynsemi og gáfum við forelrdra um námsárangur barna þeirra, þurfa ekki að bera ábyrgð á framvindu náms margra einstaklinga og hafa áhyggjur af hverjum og einum nemenda. Nóta bene,  ég hef notið kennarastarfsins næstum því hverrar mínútu þessi fjörutíu og eitthvað ár sem ég hef verið að sinna því starfi en samt koma svona hugmyndir upp í kollinn, hvað það væri dásamlegt að þurfa ekki að spjalla við neinn um alvarleg málefni heldur bara brosa, bjóða góðan daginn og bjóða fólki poka og afrit. Draumur í dós. Fara svo bara heim og láta sjónvarpið sjúga úr manni sálina.    
                 Aldrei veit maður ekki neitt. Er maður ekki bara komin í svona djobb, allt í einu og óforvarandis. Við, Simmi minn, hugsuðum reyndar um þetta í nokkurn tíma og slóum úr og í með það að fara að reka veitingahús enn og aftur. Aðra stundina vorum við ákveðin í því að við værum búin með þennan pakka. Við gætum ekki á gamals aldri verið í vinnunni eftir kvöldmat en viti menn við gátum líka fundið milljón ljósa punkta við að fara að reka veitingastað og hér erum við.  Að baka pizzur, steikja hammara og ýmsa aðra góða rétti,brosandi og bjóðandi góðan dag, bjóða fólk velkomið og þjóna á alla lund. Já, aldrei skyldi maður segja aldrei.

fimmtudagur, 2. janúar 2014

Komin á klakann

Ungur nemur, gamall temur
Við vöknuðum klukkan  þrjú í nótt til að ná flugi frá Manchester á réttum tíma. Gærkvöldið var dálítið skrítið því rafmagnið fór af eins og á gamlársdag. Við vorum að horfa á spennandi morðmynd í sjónvarpinu en misstum af því hver var morðinginn því rafmagnið fór áður en gátan leystist. . Það sem reddaði mér var vasaljósið á nýja flotta símanum mínum, þannig að ég sá til að pissa og tannbursta mig. Við sofnuðum út frá körlum á lítilli gröfu, grafa upp gangstettína fyrir utan glugggann hjá okkur en þeir voru að leita að orsök rafmangnsleysisins

                                                                                                              Þegar við lentum á Fróni, með dótlu og Lúkas með okkur urðum við að koma við á tveimur stöðum til að kaupa inn fyrir Víkingpizza. Við náðum ekki mikilli hvíld áður en við urðum að standa vaktina og baka pizzur. Það var rosalega þægilegt kvöldið, enginn asi, bara jafnt að gera frá fimm til hálf átta. Gott fyrir lúna ferðalanga. Svava Rán og Lúkas komu og borðuðu hjá okkur. Honum finnst ekkert betra en kjúklinganaggar og nóg er til af þeim hjá okkur.

miðvikudagur, 1. janúar 2014

Nýtt ár

Lógóið fyrir Víkingpizza
Á þessu, nýja ári, 2014 vöknuðum við Simmi minn í Rhosllenercrugog, 46 Market street í húsi dótlu, Dave og Lúkasar. Hér höfum við dvalið síðan á annan í jólum og notið hverrar mínútu. Við höfum kíkt í búðir í Wrexham, fórum með lest til Liverpool og kíktum aðeins í Cavern club, fórum einn daginn í langan göngutúr um sveitavegi og heilsóttum Heather og Jim. Veðrið hefur verið ágætt,þó rignt hafi aðeins endrum og sinnum. Við förum heim á morgun og ætla dótla og Lúkas að koma með okkur og vera á Fróni í  eina viku.
                                                                                                                                                                                                                                                                      Á móti okkur, Simma mínum, tekur nýjasta afkvæmið sem er rekstur Víkingpizza en þann stað byrjuðum við að reka 1. des sl.  Við héldum að við værum búin með þann pakka, þ.e. að reka veitingahús en aldrei skyldi maður segja aldrei og við erum bara spennt fyrir þessum rekstri og nýja árið leggst vel í okkur.                                                                                                                        Mikil vinna bíður okkar en við höfum það mottó að vinna hafi ekki drepið neinn.