Síður

miðvikudagur, 30. júlí 2014

Dótla heim

Er svo spennt fyrir morgundeginum. Dótla kemur á landið kalda með báða strákana sína. Dave hefur ekki komið í nokkur ár og núna stendur til að sýna honum íslenska náttúru og landslög. Það er ekki alveg rétt sem Kalli heldur fram að Dave hafi aldrei fengið að sjá neitt nema Þorlákshöfn.  Við höfum farið með hann gullna hringinn og ég veit ekki betur en að honum hafi fundist það bara gaman. Vonandi á hann eftir að njóta Íslands uppi í sveit með útsýni yfir uppsveitir Árnessýslu.