Síður

laugardagur, 29. janúar 2011


Þegar, við hjónakornin, komum til Tenerife þann 18.jan. s.l. var komið kvöld og búið að loka matsalnum á hótelinu. Við fengum samt nesti í poka, af því við vorum með hálft fæði. Okkur langaði ekki að fara upp á herbergi og borða samlokur svona fyrsta kvöldið svo við fórum út og fengum okkur pizzu og rauðvín. Dásamlegt alveg hreint. Heitt og ljúft. Þegar við komum heim á hótel var verið að dansa. Gömul og góð lög spiluð af hljómsveit sem heitir Oldies. Við skelltum okkur í dansinn og dönsuðum af okkur rassgatið, rétt eins og á íslensku þorrablóti. Við fengum athugasemdir frá ýmsum ókunnugum þarna um kvöldið og morguninn eftir líka. Við vorum voða ánægð með þetta, héldum að við hefðum slegið í gegn á dansgólfinu.
Seinna runnu á okkur tvær grímur. Það er dansað á hverju kvöldi og við fórum að taka eftir því að fólkið á dansgólfinu dansaði mjög fágað og flott og var augljóslega
búið að fara dansskóla. Dansaði eins og það væri forritað en ekki af hjartans gleði eins og við gerum.
Við höfum látið lítið fyrir okkur fara að undanförnu. Leyfum fýldum kellum og köllum bara eiga dansgólfið.
Við skemmtum okkur samt konunglega fyrsta kvöldið.

mánudagur, 10. janúar 2011

Neyðin kennir naktri konu að spinna.
Hann Simmi minn gat ekki hætt að tönglast á því um daginn, á skæpinu, hvað það væri gott að sofna við hrein rúmföt. Ég samsinnti því auðvitað en skildi ekkert í því af hverju hann hafði orð á þessu aftur og aftur. Að lokum spurði ég hann hvort hann hefði aldrei sofnað við hrein rúmföt áður.
"Jú, auðvitað. Ég hef bara aldrei áður tekið af rúminu, þvegið rúmfötin, þurrkað þau og sett þú utan á aftur. Ég var bara að vona að þú hrósaðir mér fyrir þetta."
Já, stundum verður maður kjaftstopp.
Ég man ekki eftir því að hann hafi hrósað mér fyrir þetta verk, sem ég hef unnið í hartnær 40 ár.
Nú veit ég að hann getur þetta.
Hann sleppur ekki oftar.

fimmtudagur, 6. janúar 2011


Flottur matur
Ég hef sjaldan borðað eins litríkan, hreinlegan og góðan mat. Ýsubitar frá Frostfiski (körfufiskur) snöggsoðnir í saltvatni, spínat úr Bónus, beint úr pokanum á diskinn og svo aðalgúmmulaðið. Sætrakartöfluhummusið hennar dótlu minnar. Vááá...hvað þetta var gott.
Er enn að borða yfir mig.
Jólakílóin sitja sem fastast.
 
Posted by Picasa

Þrettándi dagur jóla
Í dag er síðasti dagur jóla að þessu sinni. Ég er, langt í frá, orðin leið á jólaskrautinu. Ég gæti alveg hugsað mér að hafa það lengur. Ég beygi mig samt undir gamlar hefðir og mun taka skrautið niður á morgun. Ég læt samt jólahrðnglið frá Gogga Jensen hanga lengur. Svo þegar mér finnst of langt liðið frá jólum, dreg ég það á bak við gardínuna. Þar geymi ég það á milli jóla. Mér finnst ekki taka því að taka það niður.
Jólaljósin, sem breytast nú aftur í vetrarljós, fá að loga til 1. mars. Sama hvað aðrir segja. Ég er starx farin að kvíða morgundeginum, þegar ég labba í vinnuna í myrkri og fólk verður búið að slökkva. Ég vona að nokkrir hugsi eins og ég og leyfi nokkrum jólaljósum bara að loga á meðan svartasta skammdegið er.
Það er svo gott að sjá ljós í myrkrinu.

miðvikudagur, 5. janúar 2011

Matur og aftur matur
Matbjó í dag rétti fengna af heimasíðu dótlu minnar. Fyrst bakaði ég haframúffur. Ég tvöfaldaði uppskriftina þannig að nú á ég 12 haframúffur, flestar í frysti, tilbúnar til þess að grípa með í vinnuna, þar sem ég verð að neyta morgunverðar dag hvern. Ég er alltaf mætt á húninn í sundlauginni klukkan sjö og get alls ekki synt með morgunmatinn í maganum þannig að ég verð að borða hann eftir sund. Ég syndi og gúffa svo í mig einhverju góðgæti, aðallega hafragraut, fyrir kennslu. Nú er ég spennt að borða múffur í stað hafragrauts. Ég verð samt aldrei leið á grautnum. Hann er bara besti morgunverður sem um getur. Það eru til svo mörg hliðarspor af honum sem gera hann bara spennandi.
Í kvöldmat hafði ég kryddblöndu sem dótla gaf mér um daginn, eða þegar ég heimsótti hana í nóvember. Tilviljanir eru svo skemmtilegar. Þessi kryddblanda var bara þarna og ég var ekki búin að pæla neitt sérstaklega í henni nema ég mundi að dótla mín hafði gefið mér þetta af því hún vissi að mér þætti þetta gott bragð. Tilviljunin er sú að ég sauð fullan pott af kjúklingabaunum í dag, til að og nota í ýmsa rétti og á meðan bauninrnar voru að sjóða las ég loksins á kryddblöndupakkann. Blönduna átti að nota með kjúklingabaunum. Ég fór eftir leiðbeiningum pakkans og uppskar þvílíkt gúmmulaði fyrir bragðlaukana að seint líður úr minni.
Ég mun taka fulla tösku af þessu heim næst þegar ég skrepp á breska grund eða Indlands eða hvaðan sem nú blandan var frá.
Finn út úr því seinna.
Er enn að smjatta.

þriðjudagur, 4. janúar 2011

Af óþarfa kökuáti.
Ég hef þessa fínu afsökun að baka fyrir jólin. Mamma er hætt að baka en þarf samt að eiga kökur. Ég gef henni svo bara pínulítið en held hinu eftir í stömpum og boxum en þykist ekki þurfa neitt á þessu að halda. Einhverra hluta vegna lækkar í stömpunum. Ég er mest megnis ein heima þannig að það hlýtur að vera minn magi sem góssið hverfur í. Sem betur fer tók Simmi minn aðeins í brúnu lagtertuna þegar hann kom heim í jólafrí og gaf pabba sínum smávegis.
Ég er ansi drjúg við að stinga upp í mig einni og einni smáköku, jafnvel tveimur eða þremur, frá því ég baka og fram að jólum. Á jólunum ét ég yfir mig dag eftir dag en sleppi kökunum. Þegar jólahátíðin er að mestu liðin byrja ég aftur að kíkja í stampana. Og áður en ég veit af hefur ein og ein, jafnvel tvær eða þrjár smákökur endað uppi í munni og runnið ofan í maga.
Nú er svo komið að ég rétt get rennt upp gallabuxunum mínum og vigtin sýnir rúm tvö kíló í plús.
Held ég fari með stampana í vinnuna á morgun í þeirri von að kökurnar endi í einhvers öðrum búki en mínum.
Get ekki hugsað mér að henda þeim. Verkefnið var of stórt til þess.

mánudagur, 3. janúar 2011

Viðsnúinn sólarhringur
Ég hef alla mína hunds-og kattarævi átt u.þ.b.tvær vikur í jólafrí. Ég þekki ekki annað. Ég er ekki viss um að þetta sé það besta. Ég næ því alltaf að snúa sólarhringnum við. Ég breytist úr A-manneskju i B án þess að blána eða blikna. Ég er reyndar farin að hallast að því að ég sé B-manneskja en bara látið A-manneskjur þessa heims stjórna mér.
Ég gerði heiðarlega tilraun í gærkvöldi til að snúa til betri vegar, af því ég verð að mæta til vinnu í fyrramálið, og fór snemma í bólið með það fyrir augum að sofna snemma og vakna snemma. Það fór nú dulítið á annan veg. Ég hef líklega sofið á milli tvö og þrjú í nótt og svo frá hálf níu til hálftólf í morgun. Þáttur í þessari vitlaysu á hann Simmi minn en hann fór á fætur klukkan hálf fjögur til að fara til vinnu í Noregi. Ég fór náttúrlega á fætur með honum og náði mér svo ekki niður þegar hann var farinn.
Geri aðra heiðarlega tilraun í kvöld.
Snemma í bólið.
A-manneskjan verður að ráða á morgun.

sunnudagur, 2. janúar 2011

Áramótaósk
Ég er aldrei í neinum vandræðum með áramótaheit eða áramótaósk. Það eru bara alltaf það sama, þ.e. að mitt fólk finni hamngjuna og hafi það gott. Ég hef verið nokkuð heppin með að þessi bón mín rætist. Allavega veit ég ekki annað en að öllum líði vel.
Mér finnst, einhvern veginn, eins og að ég lifi í veislu.
Mér finnst alla vega gaman.
Gaman að vera til.
Gaman að draga andann.
Gaman að hinu og þessu.
Gaman að búast við morgundeginum.
Gaman að takast á við verkefni morgundagsins.
Gaman.
Bara gaman.

laugardagur, 1. janúar 2011

Áramót
Það var ekkert öðruvísi núna frekar en endranær. Ég verð alltaf meir þegar ég horfi á ártalið hverfa á sjónvarpsskjánum og nýtt koma til baka. Eitthvað sem maður þekkir hverfur í tímans rás og kemur aldrei aftur og óráðinn tími bíður. Ný verkefni til að leysa, ný ævintýri til að lenda í.
En ég byrja árið með smá kjökri, það bara tilheyrir. Þannig hefur það allaf verið.