Ég er búin að ákveða vetrarsportið. Ég þurfti ekki að fara nema einu sinni í sund fyrir vinnu til þess að rifja upp hvað það er æðislega gott. Ég hætti því í fyrra vetur þegar Kolbeinn flutti til okkar. Mér fannst ég verða að sinna barninu á morgnana. Þegar hann sagði um daginn að hann væri e-n veginn orðinn ósjálfstæðari en hann var í Ameríku þá sá ég að ég gæti alveg látið hann um að koma sér í skólann. Enda er afi stundum heima á morgnana og búið að útbúa nestið fyrir hann og leggja á borð morgunverðinn.
Sundið er allra meina bót.
Það hressir og kætir.
Mýkir stífa vöðva.
Liðkar liðamót.
Og einhverju brennir maður af hitaaeiningum.
Ég syndi orðið 600 metra á hverjum morgni fyrir vinnu.
miðvikudagur, 31. ágúst 2005
sunnudagur, 28. ágúst 2005
Við eyddum laugardeginum í yndælisveðri í Hveragerði. Ekki af því að Hvergerðingar voru með sína blómstrandi daga, heldur vegna þess að Kolbeinn var að keppa í fótbolta á HSK mótinu. Við sátum sem sagt í ferðasófanum okkar í fimm klukkutíma við Grýluvöll fyrir ofan Hveragerði. Kolbeinslið spilaði fjóra leiki. Hann vill ekkert mikið tala um gengi liðsins. En eins og fótboltamömmurnar og pabbarnir segja: Kemur! Gengur betur næst!
Sunnudagurinn hefur liðið í friði og ró. Ég las, prjónaði, reyndi við hina ofurskemmtilegu krossgátu í Tímariti sunnudagsmoggans, fór hjólandi í kaffi til mömmu, borðaði hrygg, sem hann Simmi minn eldaði, rak Kolbein áfram með heimanámið, rifjaði upp nokkra kafla í Hrafnkelssögu Freysgoða og er að pæala í að eyða e-m hluta kvöldsins fyrir framan imbann ef ég finn e-ð til að horfa á.
Já, eða slaka bara á og geri ekki neitt.

miðvikudagur, 24. ágúst 2005
Það var kennt samkvæmt stundatöflu í dag. Ég gat samt ekki farið á "fúllsving" með börnin mín af erlendu bergi brotnu þar sem er ekki ljóst enn hvað ég fæ marga tíma til að kenna þeim eða réttara sagt tímarnir sem búið er að úthluta duga engan veginn. Börnin eru 36 að tölu. 28 nýbúar og 8 tvítyngdir. 14,4% barna við skólann. En ég trúi því að ég fái fullan skilning yfirvalda á þessu.
Dagurinn var skemmtilegur. Ég kenni líka íslensku í 9. og 10. bekk og kenndi báðum bekkjum í dag. Frábærir krakkar þar á ferð. Ég er umsjónarkennari 9. bekkjar og sé að ég tek við góðu búi frá fyrrum umsjónarkennara.

þriðjudagur, 23. ágúst 2005
Hugur minn í dag er hjá vini mínum Bjarna Áskels og sonum hans. Guð veiti þeim styrk í sorginni.
mánudagur, 22. ágúst 2005
Alltaf er eitthvað nýtt að gerst í þessu lífi. Nú var hann Simmi minn að byrja í nýrri vinnu í morgun. Búinn að elda ofan í flugfarþega Icelandair í eitt ár en er hættur því. Forsendur fyrir því að keyra 200 km til og frá vinnu brustu þegar þeir hækkuðu olíuna 1. júlí s.l. Þegar mánaðareikningurinn fyrir olíuna á bifreiðina hækkaði frá 14 þúsundum í 37 þúsund, þrátt fyrir nokkra sumarleyfisdaga, sáum við að þetta mátti ekki búa við öllu lengur. Hann var svo heppinn að auglýst var laust starf við Íþróttamiðstöðina sem hann fékk. Gárungarnir, vinir hans, halda að hann verði alltaf að skipta um sápuhylki í kvennaklefanum. Öðrum finnst fyndið að hugsa til þess að hann verði að afgreiða sundskýlur og selja Svala. Hvað um það, honum lýst vel á þetta eftir fyrsta daginn.
Ég skellti mér í morgunsund klukkan 7 og er að vona að Kolbeinn sé svo sjálfbjarga að ég geti gert þetta í vetur. Hann verður þá að borða morgunmatinn, sem ég verð að sjálfsögðu búin að finna til handa honum, aleinn. Hann heldur því fram að hann hafi séð um sig sjálfur í IOWA. Hann sé bara að verða ósjálfbjarga aftur eftir að hann flutti til okkar. Það er víst eins gott að snúa dæminu aftur við.

sunnudagur, 21. ágúst 2005

Hún Elsa tengdadóttir mín á afmæli í dag. Hún er 33 ára í dag. Ég vildi óska þess að ég væri hjá henni og gæti knúsað hana í dag í stað þess að hringja og óska henni til hamingju með daginn. Hún var nefnilega að hafa sig til á ströndina og ætlar að vera þar í dag með Kalla og Nönnu litlu. Malibuströndina í LA. Það er alltaf jafn gott veðrið þar. Sól og hiti, logn og heiðskírt.
Ég ætla að vera með henni í huganum.
laugardagur, 20. ágúst 2005

Kobbalingur hefur kvartað um verki í fótum síðan hann byrjaði að geta tjáð sig. Það er búið að fara með hann til ótal lækna beggja vegna Atlandshafs og e-n veginn hefur ekkert gerst til þess að lina verkina. Í gær fórum við með hann í göngugreiningu hjá Stoðtækni eftir ábendu afleysingalæknis hér í bæ, Jens að nafni. Kom ekki í ljós að hægri fótur krakkans er 1 cm styttri en sá vinstri. Er hér jafnvel búið að finna orsök fótaverkjanna. Hann á að fá innlegg sem rétta að e-u leyti af þessa skekkju.
föstudagur, 19. ágúst 2005
Elsku kallinn minn hann Rúnar er nítján ára gamall í dag. Ég gleymi því náttúrlega aldrei þegar hann fæddist og ég var viðstödd fæðinguna.
Gréta systir í fæðingarrúminu og ég við höfðagaflinn segjandi einhver róandi orð. Svo kom krakkinn með naflastrenginn vafinn um hálsinn eins og trefil. Allt fór samt vel og svona lítill og sætur strákur leit dagsins ljós,... fjólublár! Rúnar minn fæddur, guðstrákurinn minn. Í dag heimsótti ég hann á spítala, höfuðkúpubrotinn eftir smáslys, en eins og áður fór allt vel. Hann er allur að koma til og fékk að fara heim af spítalanum í dag. Rúnar hefur lifað skemmtilegri afmælisdaga, t.d. þegar hann varð fjögurra ára, ógleymanlegt afmæli, og vonandi á hann eftir að eiga þá marga rosalega góða. Knús Rúnsi, púnsi!!

fimmtudagur, 18. ágúst 2005
Það styttist í það að skólarnir hefjist..... Þetta klyngir í erum manna hvenær sem kveikt er á útvarpinu. Ég er samt byrjuð í skólanum. Við, kennaranir, mættum til vinnu á mánudaginn var. Það var ágætt að mæta til vinnu eftir 9 vikna sumarfrí.
Ég er auðvitað búin að hafa það mjög gott í sumar. Við Kolbeinn höfum dúllað okkur hérna heima. Hann hefur verið í fótboltanum og við, amma og afi, dugleg að fylgja honum á keppnisleiki hingað og þangað t.d. Akureyri, Borgarnes, Álftanes og Kópavog og auðvitað Þorlákshöfn.
Við fórum í nokkrar ferðir um landið. Edtir að við fengum Sólbrekku, sem er fellihýsi, höfum við verið á ferðinni. Við höfum gist í Sólbrekku 13 nætur sem af er sumri. Fengum hana 16 júní.
Ég hef mikið verið í garðinum í sumar, bæði til að halda honum þokkalegum og svo notað skjólið og sólina þar.
Það sem stendur upp úr sumrinu er auðvitað brúðkaup dóttur minnar. Hún gekk að eiga hann Dave sinn 9. júlí. Séra Baldur gaf þau saman og fór hann á kostum í athöfninni. Söngfélagið sá um sönginn undir stjórn Stebba Þorleifs. Yndislegur söngur, eins og ég átti von á. Veislan var haldin í Versölum þar sem hann Simmi minn sá um matinn en við fengum Öldu Maríu (systur Gunnars Daníels) og Fríðu Björgu til að sjá um veisluborðið og drykkina. Auður, vinkona Svövu Ránanr, sá um að skreyta salinn og var hann rosalega flottur hjá henni. Geirfuglarnir spiluðui svo fyrir dansi. Gestirnir voru 80 talsins. 75 frá Svövu Rán og 5 frá Dave. Mamma hans og pabbi komu frá Wales, systir hans og amma og besti vinur hans, hann Garreth sem var líka svaramaður hans. Veðrið var fínt og dagurinn allur æðislegur.

fimmtudagur, 11. ágúst 2005
Fékk ímeil frá stráknum mínum áðan og í því stóð:
Ég vann The Lewis Award frá Iowa. Lewis award er veittur fyrir bestu
doktorsritgerðina á skólaárinu - yfir allan skólann. Sjitt. Jæja, þetta
eru þó allavega 500 bucks.
Ég er stolt. Ótrúlega stolt af stráknum mínum.

þriðjudagur, 2. ágúst 2005

Fórum á Reyðarfjörð og skoðuðum Tærgesen í bak og fyrir, utan og innan. Við, Simmi minn, höfum alla vega skilið þau spor eftir okkur á Reyðarfirði að húsið heitir enn Tærgesen. Gaman að því og ég var mjög ánægð með að sjá hvað það er búið að gera við húsið og þar er full starfsemi, í mjög svipuðu formi og við vorum með.

Kolbeinn með Snæfell í baksýn.Við erum stödd á vinnubúðasvæði mannanna sem vinna við Kárahnjúkavirkjun. Okkur fannst alveg lífsnauðsyn að keyra þangað uppeftir fyrst við vorum stödd á Austfjösrðum á annað borð. Þetta svæði mun að öllum líkindum líta öðruvísi út næst þegar við verðum á ferð fyrir austan.

Ég sjálf á ekki margar myndir frá brúðkaupinu sem fór fram 9. júlí í frábæru veðri en þessari stal ég fr? Magnþóru. Fann hana á slóðinni http://www.picturetrail.com/magkris

Það eru upp áhöld um það hvort Camelu Parker hafi verið boðið, svona af því hún er næsta drottning brúðhjónanna eða hvort staðgengill hennar hafi verið sendur...

Lúkas Þorlákur staldraði við í Þorlákshöfn í nokkra daga, svona rétt á meðan mamma hans og pabbi giftu sig og svo náði hann einni útilegu. Hann lærði að það á að sparka í bolta á meðan hann dvali hér og bjó til nafnið Bobbi á Kolbein. Lúkas er lítill snillingur.