Mikil hátíð var haldin í dag á B-götu 20. Tilefnið var 40 ára búseta í Þorlákshöfn. Við fluttum frá Selfossi til Þorlákshafnar sem var þá 13 ára gamalt þorp. Þá var Rut 6 ára, Gréta 10 ára og ég 14 ára. Þetta voru mikil viðbrigði fyrir okkur öll. Við fluttum vegna þess að pabbi kom á fót vélsmiðjunni Boða ásamt fleiri mönnum frá Selfossi sem sáu framtíð í þessu unga þorpi. Hér erum við öll enn og viljum hvergi annars staðar vera. Nema Dundi sem er systursonur mömmu og við fengum að hafa fyrir litla bróður í nokkur ár. Hann býr í Kópavogi er smiður og rekur trésmíðaverkstæði.
Pabbi og mamma keyptu húsið að B-götu 20 fokhelt, vorið 1964, og kláraði pabbi það á kvöldin og um helgar. Karlarnir í Boða leigðu B-götu 22 og bjó ég þar um sumarið ásamt tveimur vinkonum frá Selfossi, Esther og Dóru, og unnum við í Meitlinum. Ég nýfermd og þær ári eldri. Þegar svo húsið var tilbúið og mamma flutti kom í fyrstu bara Rut með henni. Við Gréta vorum eftir hjá Erlu og Hebba. Ég til að klára annan bekk í Gaggó og Gréta til að vera til jóla í 10 ára bekk. Rut hafði byrjað í 6 ára bekk á Selfossi og með flutningnum lauk hennar skólagöngu þennan veturinn því engin kennsla var fyrir 6 ára í Höfninni. Fyrsti veturinn sem ég er alveg í Þorlákshöfn er ekki fyrr en 1971 þegar ég hef lokið Kennó og byrja að búa með honum Simma mínum og eignast Kalla og byrja að kenna og fer að byggja og.....já það var töluvert sem gerðist það árið.
40 ár.
40 ár í Höfninni.
40 ár síðan ég var í Smáratúni 3.
40 ár síðan ég sá hann Simma minn fyrst.
40 ár síðan ég fermdist.
40 ár síðan ég hjálpaði pabba að glerja stofuna.
40 ár síðan ég eignaðist hvíta Sony útvarpið mitt.
40 ár síðan ég flutti frá Selfossi.
40 ár síðan ég sigldi með Heklu til að skoða Surtsey.
40 ár.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli