Ég hef ekki endilega snúið sólarhringnum við, eins og stundum er sagt, heldur fer ég á nokkuð skikkanlegum tíma í bólið en alls ekki á skikkanlegum tíma á fætur. Ég sný mér bara á hina þegar Simmi minn, fer í ræktina, á því sem mér finnst um þessar mundir vera ókristilegur tími, þ.e. kl. sex og sofna aftur og aftur. Ég kveiki á útvarpinu með því forholli að hlusta á morgunvaktina og fara svo á fætur. Ég missi af mest öllu á morgunvaktinni og veit ekkert í minn haus fyrr en eftir klukkan tíu. Druslast á lappir og reyni að vera húsmóðurleg þegar, Simmi minn, kemur heim í hádegismat en það tekst ekki alltaf.
 |
| Svona leit ég út í júlí s.l. |
Ég fór þó út að hlaupa bæði í gær og fyrradag. Í gær hljóp ég göngustíg Selvogsbrautarinnar fram og til baka, þangað til ég hafði hlaupið í 27 mín., en hætti þá af því ég var ég stödd fyrir utan heima hjá mér. Ég mældi vegalengdina á kortvef á ja.is og reyndist þetta vera rúmir 4,4 km. Bara sátt við það í snjó og hálkublettum. Ég prófaði nýju vetrarhlaupaskóna mína, sem Jones´s gáfu mér í jólagjöf og reyndust þeir svakalega góðir. Það er nokkurs konar gaddar neðan á þeim sem koma svona vel út í vetrarfærðinni.
 |
| Nýklippt í ágúst s.l. |
Ég átti að mæta í klippingu í dag hjá henni Röggu minni á Eplinu en ég fer ekki að æða yfir fjöll til að þjóna hégómanum í þessari færð og þessari veðurspá. Mér er líka alveg sama þó hárið vaxi aðeins. Ég hélt að ég fengi ekki nýjan tíma fyrr en eftir dúk og disk en ég má koma 6. jan. Ég vona að snjórinn verði horfinn þá svo ég komist heilu og höldnu yfir fjallið.