Síður

mánudagur, 30. nóvember 2009


Perutré
"Ég ætla rétt að vona það, að enginn taki eftir því að við erum að hengja ljósin á perutréð," kallaði ég niður til hans Simma míns, þar sem ég var að nálgast himininn, búin að klifra svo hátt upp í stóru öspina í garðinum, en hann stóð fyrir neðan og þóttist rétta mér seríuna.
"Nú, af hverju segirðu það," spurði hann.
"Finnst þér í lagi að ég sé hérna uppi og þú þarna niðri?"
"Já, það er í góðu lagi. Þú klifraðir upp í fyrra, þannig að þú ert í æfingu en ekki ég."
Perutréð er fallegra en í fyrra. Það gerir æfingin.

laugardagur, 28. nóvember 2009


Ekta enska
"Hvernig er það, ástin mín, ertu ekki farin að pæla í að baka ekta ensku jólakökuna," spurði Simmi minn starandi á flöskur í koníaksrekkanum í Ríkinu.
"Jú, ég er búin að taka þá ákvörðun að baka hana ekki í ár."
"Nú, af hverju?" spurði Simmi minn, enn að virða fyrir tegundir koníaks.
"Ég tók þá ákvörðun um daginn, að með því að sleppa því að baka ekta ensku í ár, sparaði ég fullt af af peningum. Þetta er sem sagt liður í sparnaði heimilishaldsins."
"Nú, er það," sagðí,Simmi minn, með vonbrigðasvip á andlitinu um leið og hann sneri sér frá koníaksrekkanum.
Ég ákvað að vorkenna honum ekki neitt. Hann hefur aldrei borðað eina sneið af ekta ensku. Ég borða af henni eins og ég get og svo skemmist afgangurinn. En hann, Simmi minn, hefur séð um að vökva kökuna, eins og nauðsynlegt er, einu sinni í viku a.m.k. með koníaki en ég hef alltaf verið svo hissa á því hvað flaskan tæmist á skömmum tíma á miðað við það, að það á bara að dreypa nokkrum dropum yfir kökuna í hvert eitt sinn.
En þarna er kannski komin skýring á því af hverju þessi sorgar-og vonbrigðasvipur var á Simma mínum þegar ég sagði honum að kaka yrði ekki bökuð í ár.

föstudagur, 27. nóvember 2009

Jólahreingerning
Ég kom svona líka hress heim úr vinnunni í dag. Ég réð bara ekki neitt við neitt og var búin að taka bókahillurnar í gegn áður en ég vissi af. Ég á margar bækur, margar, margar bækur og þær safna ryki. Það er argans mikil vinna að taka hverja einustu bók úr hillunum og bursta af þeim rykið, þurrka rykið, sem hefur safnast fyrir á bak við bækurnar og koma þeim svo fyrir á réttan stað í hillunum aftur.
En ég er búin. og ekki nóg með það heldur bættti ég herbergisgluggunum við, þreif þá hátt og lagt, þvoði gardínur, líka rimlagluggatjöldin, og kom jólaljósum fyrir.
Hér angar allt af hreinlæti.

miðvikudagur, 25. nóvember 2009

Blóðsykur
Ég er oft hrikalega áhrifagjörn og er oft sammála síðasta ræðumanni, jæja, kannski ekki alveg alltaf en mér finnst margir svo klárir og gáfaðir að ég fæ minnimáttarkennd. En ég ríf mig nú ofast upp úr því og laga til sjálfstraustið.
En aftur að áhrifagirninni.
Ég las í DV í fyrradag um hinar ýmsu matartegundir sem vinna á fitu. Þar var margt forvitnilegt. Til dæmis þetta með kanilinn. Ég nota kanil eingöngu út á grjónagraut og þá baðaðan sykri og svo í einhverjar smákökutegundir. En ¼ úr teskeið, t.d. út á hafragrautinn eða jógúrtið eða hvað sem er, á að halda blóðsykrinum í jafnvægi. Lauren Slayton, löggiltur næringarráðgjafi í New York segir að blóðsykur hækki oft eftir máltíðir og gefi líkamanum til kynna að hann eigi að geyma fituna frekar en brenna henni.
Ég hugsaði strax með mér að kannski væri eitthvað að blóðsykrinum í mér og fékk mér kanil út á hafragrautinn minn í morgun.
Nú bíð ég spennt hvort ég finni einhvern mun á mér.
Það er bara verst að ég veit ekki hvað ég á að finna.

þriðjudagur, 24. nóvember 2009

Að lifa lífinu
Ég heyri stundum fólk, þá sérstaklega ungt fólk, tala um að það eigi sér ekkert líf og er þá yfirleitt að skírskota til þess að það vinni svo mikið eða að það fari svo mikill timi í skólalærdóm.
Mér finnst þetta eiginlega alveg hræðilegt. Hræðilegt að því leyti að fólk virðist ekki skilja að lífið er núna. Það kemur ekki eftir vinnu eða þegar búið er að læra.
Lífið er augnablikið sem maður lifir.
Það er ekki alveg nóg að skilja þetta, það þarf líka að læra að njóta hvers augnabliks í lífinu. Ekkert kemur til baka, stundin sem maður dregur andann er mikilvægust og framtíðin er óráðin.
Eða eins og Dónadúettinn syngur: Um leið og þú hugsar um núið er það búið.

sunnudagur, 22. nóvember 2009

Jólaljós
Ég keypti ný jólaljós í stofugluggana í Garðheimum á föstudaginn og þau voru hengd upp í gær. En áður en það gerðist tók ég gardínurnar niður og þvoði þær, þreif gluggana og áður en ég vissi af var ég búin að taka alla stofuna í gegn, þvo alla glerhundana og strjúka veggina.
Nú er stofan eiginlega tilbúin til að taka á móti jólunum.
Ég var hrædd um að ljósin yrðu einhvern veginn yfirþyrmandi og of mikil en þau eru bara þægileg og mjúk.
Ljósin í gluggunum eru bara flott.
Flott jólaljós.

laugardagur, 21. nóvember 2009


Álegg
Hann Simmi minn var heldur búralegur í gær þegar hann sauð og pressaði rúllupylsur sem hann hanteraði um daginn og hafði verið með í saltpækli í nokkra daga.
Rúllupylsupressuna tókum við svilkona mín traustataki úr Búrfelli ÁR 40 þegar við höfðum ítök í því skipi. Við gerðum ekki ráð fyrir að kokkurinn þar notaði pressuna nokkuð. Pressan er enn í okkar fórum og Simmi minn notar hana stundum.
Og nú eigum við álegg á margar, margar brauðsneiðar.

föstudagur, 20. nóvember 2009

Jólainnkaup
Þó að ég sé búin að kveikja á skammdegisljósunum mínum, fyrir nokkru, þá er ég ekki endilega komin í jólaskap. Það er ekkert samhengi þar á milli. Skammdegisljósin eru eitt og jólafílingur er annað.
En ég hengdi upp eldhúsjólagardínur áðan. Nýjar gardínur. Við, Simmi minn, fórum sum sé saman í Rúmfatalagerinn í dag með ýmis verkefni í huganum, eins og að skoða garn í peysu á dótlu, sem vill lopapeysu sem er ekki úr lopa, athuga jólaljós í stofugluggann og skoða eldhúsgardínur.
Við fórum tæpum tólfþúsundum fátækari út úr búðinni með nýjar gardínur í poka, stóran pakka af batteríum og sílikon sleikju.
Ég var sirka 30 mínútur að falda gardínurnar (á hliðunum) og hengja þær upp. Ég gat ekki beðið. Áður þreif ég gluggann með útþynntu Ajax, þannig að nú er orðið ótrúlega jólalegt hjá mér, bæði hvað sjón og lykt varðar.

fimmtudagur, 19. nóvember 2009


Hvað er í matinn?
Það mætti halda að hann Simmi minn hafi liðið matarskort í æsku eða einhvern tímann þurft að búa við hungur og hörmunga. Hann pælir endalaust í því hvað á að vera í matinn. Hann er oftast búinn að skipuleggja matseðilinn fram í tímann.
Það er alls ekki sama hvað er í matinn. Það þarf að vera soðið eða steikt, kjöt eða fiskur.
Ef mig langar í eitthvað "léttara" og sting upp á því þá kemur á hann sérstakur svipur sem segir mér að hann sé ekki alveg nógu ánægður. En stundum fer ég mínu fram og elda pasta eða kjúklingabringur eða grænmetisrétti. Hann borðar þetta allt, það er ekki það,en honum finnst þetta varla matur og á það til að segja eins og mamma hans heitin:
"Þetta er nú alveg á við máltíð."
Það er besta hrósið sem ég fæ.