Þó að ég ætti aðeins hálftíma í mat í dag fór ég samt heim að borða af því það er svo gaman að koma heim núna. Allt að verða svo fínt hjá mér. Enda er ég ekki nema 3-4 mínútur að labba í vinnuna. Ég labba reyndar hratt en það er sama það eru forréttindi að hafa það svona gott. Kassarnir sem á eftir að taka upp úr eru inni í litla herbergi og ég tek bara einn og einn svona þegar ég nenni. Mér finnst svo gaman að vera búin að endurheimta húsmóðurtitilinn að ég sletti í form, eins og Sissa kallar það, þegar ég kom heim úr vinnunni í dag. Bara til að prófa ofninn. Virkar flott. Eldaði skötuselsrétt í kvöldmat, upp úr mér, en lukkaðist mjög vel. Rúnar minn Gunnarsson færði mér skötuselinn sem innflutningsgjöf. Sætur í sér þessi elska.
mánudagur, 30. ágúst 2004
sunnudagur, 29. ágúst 2004
Ég er búin að selja hosiló og kaupa mér höll.
Nú er ég drottning í hárri höll.
Mér líður eins og drottningu.
Eða eins og mér finnst að drottningu ætti að líða.
Frábært hús sem ég á.
Frábært umhverfi sem ég er í.
Frábær garður við höllina mína.
Mér llíður vel.
Betur en í langan tíma.
Mig hefur vantað eitthvað í átta ár.
Ég er búin að finna það.
Held ég.
Vona ég.
Nú er ég drottning í hárri höll.
Mér líður eins og drottningu.
Eða eins og mér finnst að drottningu ætti að líða.
Frábært hús sem ég á.
Frábært umhverfi sem ég er í.
Frábær garður við höllina mína.
Mér llíður vel.
Betur en í langan tíma.
Mig hefur vantað eitthvað í átta ár.
Ég er búin að finna það.
Held ég.
Vona ég.
Höfuðdagurinn er í dag.
Ég fékk tvo blómavendi í tilefni dagsins.
Simmi minn gaf mér rauðar rósir.
Mamma kom með rosa fallegan vönd.
Tilefnið er að við Simmi minn erum búin að vera heitbundin í 34 ár.
Við verðum örugglega stoppuð upp eins og hefði átt að gera við síðasta geirfuglinn.
Ég fékk tvo blómavendi í tilefni dagsins.
Simmi minn gaf mér rauðar rósir.
Mamma kom með rosa fallegan vönd.
Tilefnið er að við Simmi minn erum búin að vera heitbundin í 34 ár.
Við verðum örugglega stoppuð upp eins og hefði átt að gera við síðasta geirfuglinn.
laugardagur, 21. ágúst 2004
Hún Elsa mín á afmæli í dag. 32 ára stelpan. Hún ætlar að verja kvöldinu með fjölskyldunni uppi í sveit, hjá vinkonu sinni Simone, sem eldar fyrir hana afmælismatinn og dekrar við hana. Á myndinni eru þær mæðgur heima hjá hinni frönsku Simone, sem Nanna kallar ömmu. Simone ræktar allt sitt grænmeti sjálf og bakar brauð sem hún selur á bændamarkaði. Elsa hjálpar henni stundum. Enda á það við hana Elsu mína að vasast í matartilbúningi.
"Lukkan hefur alltaf verið með okkur," sagði hann Simmi minn í dag þar sem við sátum í sólstólum í frábærum garði og slökuðum á. Ég gat ekki annað en verið sammála honum.
mánudagur, 16. ágúst 2004

Það er ekki leiðinlegt að hafa svona útsýni út um gluggann hjá sér á 18 hæð, svona einn sólarhring. Borg vindanna, Chicago, tók vel á móti okkur. Við sáum ekki nema lítið brotabrot af henni en það sem við sáum var stórkostlegt. Borgin stendur við Lake Michigan sem útaf fyrir sig er ógleymankegt að sjá. Stöðuvatn, þar sem ekki sést á bakkann hinu meginn. Við brugðum okkur á ströndina, fyrir börnin, og þau busluðu í vatninu. Fallegur garður er við vatnið sem peningamennirnir sjá ofsjónum yfir, þeir sjá bara byggingarland og vilja kaupa landið en það er í einkaeign og þeir fá ekkert að gert.
Mér finnst ég lifa í köflum eins og í skáldsögu. Í morgun byrjaði að segja frá þegar ég vinn í skólanum. Nýlokið er kaflanum þegar ég var í Ameríku og þar á undan var það kaflinn þegar ég annaðist barnabörnin mín í sex vikur. Allir þessir kaflar eru mjög ólíkir. En eins og í góðri skáldsögu tengist efnið þó það virðist ólíkt í fyrstu.
sunnudagur, 15. ágúst 2004
Tengdapabbi vakti okkur um hádegisbil með símhringingu. Við erum greinilega þjökuð af flugþreytu, því ég man ekki eftir því að hafa sofið til hádegis síðan ég var unglingur. Erindi Kalla Karls var að minna okkur á 85 ára afmæli Laufeyjar systur hans. Við höfðum ekkert heyrt minnst á það en áttum auðvitað að vera með á nótunum þar sem hún, blessunin, hélt upp á 80 ára afmælið sitt hjá okkur á Tærgesen, Reyðarfirði. Við hentumst á fætur og brunuðum á Hafið Bláa þar sem við hittum þennan unga öldung. Það er óþarfi að kvíða framtíðinni ef maður verður jafn sætur og hress og Laufey Karlsdóttir er á afmælisdaginn sinn 85 ára.
Við erum búin að skila barnabörnunum af okkur. Flugum til Minneappolis. Kalli og Elsa voru bæði þar til að taka á móti. Frá Minneappolis er um fimm klukkustunda akstur suður sléttuna miklu til Iowa. Útsýnið er alltaf það sama, enginn tilbreyting. Bóndabæir og maísakrar, svo langt sem augað eygir. Við dvöldum að 1130 East Washington street í Iowa City, í 11 daga, fyrir utan sólarhringinn sem við vorum í Chicago, nutum þess að láta sólina baka okkur og hafa fjölskylduna, sem við hittum svo sjaldan, svona nærri. Við vorum alveg klár á því að vera örugg með gott veður, þannig hefur það verið í Iowa í ágúst síðan mælingar hófust. Auðvitað var slegið kuldamet rétt á meðan við dvöldum þarna og hitamet á meðan á Íslandi! Kuldinn var nú samt sem áður ekki meiri en það að mér þótti vissara að hafa peysu með þegar ég labbaði niður í bæ.