Síður

sunnudagur, 30. janúar 2005

Helgin hefur liðið í indælis friði og ró. Það er vinnuhelgi hjá Simma mínum. Hann tók Ástu systur sína með austur á föstudag. Hún gisti hjá okkur og spjölluðum við yfir hvítvínsglasi eða glösum langt fram á nótt. Simmi fór snemma í bólið enda vaknar hann klukkan 20 mínútur gengin í sex dagana sem hann á vakt. Það er alltaf gaman að hafa Ástu og spjalla.
Ég var ekkert í tiltekt innanhúss enda mér sagt að forðast ryk. Ég var að velta því fyrir mér hvort væri þá betra að láta það eiga sig eða þurrka það en lét það eiga sig. En í dag dró eitthvað mig út í garð og tók ég saman í fullan ruslapoka draslið frá gamlárskvöldi. Þá fann ég vortilfinningu og fór í göngutúr neshringinn. Það var eins og á Laugaveginum. Fullt af fólki í sömu erindagjörðum og ég, að ganga.
Ég ætla að hafa togarasteik handa Simma mínum þegar hann kemur heim. Ég er búin að krydda kjötið eftir hans fyrirmælum og skera lauk og kartöflur í báta og krydda eftir mínum smekk. Best að fara að hita ofninn.
Lífið þessa dagana snýst eingöngu um augun mín. Mér finnst þetta allt með ólíkindum. Simmi minn var viðstaddur aðgerðina á miðvikudaginn og horfði á sjónvarpsskjá þar sem hann sá þetta allt í smáatriðum. Augnsperra sett á augað til að halda því opnu, hornhimnan skorin næstum því í hring og flett upp eins og lok á aski, lazergeisla beint í sárið þannig að megn sviðalykt gaus upp. Tilgangurinn var að leiðrétta hornhimnuna svo fjarsýnin hverfi. Hornhimnan sett á sinn stað og hitt augað tekið fyrir. Það tók mínútu að laga skárra augað og rúma mínútu að laga hitt því þar var einnig sjónskekkja. Mér var pakkað inn í teppi eins og á snyrtistofu látin fá bolta í hendurnar sem ég átti að kreista ef ég fyndi þörf fyrir að blikka augunum. Ég kreisti boltann aldrei og fann ekkert til. Mér var sagt að líta á klukkuna á veggnum þegar ég reis upp og var hún 18 mínútur genginn í eitt. Sem sagt ég var með sjón. Ég má ekk nudda augun í viku, má ekki fara í sund í hálfan mánuð og verð að bera augndropa í augun fjórum sinnum á dag í fjóra daga og nota gervitár eftir þörfum í nokkrar vikur. Ég verð að sofa með augnhlíf fyrstu næturnar til að forðast það að nudda augun í svefni. Augnhlífin er nánast eins og skíðagleraugu. Simma finnst þau svo flott að ég hann er búinn að falast eftir þeim þegar ég hætti að nota þau. Ég fór í skoðun daginn eftir og hornhimnufræðingurinn var mjög ánægður með mig. Ég er aftur á móti eitthvað döpur núna því ég verð að hafa gömul gleraugu frá Simma til að lesa og vinna smálega vinnu eins og að naglalakka mig. Ég er kannski óþolinmóð. Ég má búast við að það taki 3-6 mánuði að jafna mig alveg. Og það eru bara komnir fjórir dagar.
En eitt er alveg skelfilegt. Ég má ekki mála mig um augun í viku. Ég fór ómáluð í skólann á föstudaginn í fyrsta skipti á ævinni. En huggun harmi gegn, þá slepp ég fyrir þorrablót.

fimmtudagur, 27. janúar 2005

Er enn með það mikla móðusjón að ég get ekki verið lengi við skjáinn.... kem tvíefld, þó siðar verði, eins og maðurinn sagði.

miðvikudagur, 26. janúar 2005

Ég sé .........án gleraugna!!!!!!!! Vá..................

þriðjudagur, 25. janúar 2005

Ritarinn hjá Sjónlagi hf. hringdi í mig í vinnuna í dag bara svona til þess að minna mig á morgundaginn. Þó að ég sé gleymin og geri oft skissur þá get ég ekki gleymt því að ég er að fara í Laseraugnaðgerð á morgun. Ég hef ekki um annað hugsað síðan ég fór í forskoðunina á fimmtudag. Ég kvíði ekki neitt fyrir, ég bara hlakka til. Ég hringdi í Valey, gömlu góðu vinkonu mín, til að athuga hvernig hún hefði það eftir sína aðgerð en hún fór í svona sl. fimmtudag. Hún hafði það rosalega gott og var himinlifandi með að hafa gert þetta. Hún sagði mér að maður fyndi ekkert til.
Eftir að ég tók þessa ákvörðun hef ég leyft mér að láta gleraugun fara í taugarnar á mér og þá fatta ég hvað þau angra mig ótrúlega oft. Áður ræddi ekkert um það að láta þau angra sig því það voru engin önnur ráð en að hafa lonníetturnar á nefinu. Núna pirrast ég..
... þegar rignir á þau.
... við að lesa í rúminu.
... við að fara yfir próf.
... við faðmlög og enn meir við kossa. (Ég hitti nefnilega gamlan kunningja í dag sem kyssti mig og faðmaði).
... við að lesa Moggann.
... að koma inn úr kulda.
... við að sjá ekki textann á kóræfingum. (Las í gærkvöldi vökumar í stað vökurnar).
... að geta ekki glymskakkað augunum.
... við að þurfa alltaf að horfa beint á alla hluti.
Nei, ég er hætt, listinn er óendanlegur.

fimmtudagur, 20. janúar 2005

Ég þurfti ekkert að hugsa mig um í dag eftir að hafa verið í tveggja tíma rannsókn hjá hornhimnufræðingnum. Hann sagði að ég væri góður kandídat í augnaðgerð með lasertækni. Ég varð harla glöð við tíðindin. Ég var alveg eins undir það búin að heyra það að ég væri ein af þessum prósentum sem svona aðgerð hentaði ekki. Ég hef verið mjög spennt fyrir svona aðgerð síðan ég heyrði fyrst um þetta rætt, hélt samt að þetta hentaði eingöngu nærsýnu fólki. Þegar ég svo hitti mann um daginn, fjórum dögum eftir aðgerð, fjarsýnan með sjónskekkju, dútlandi við að setja saman eyrnalokka, hringdi ég um leið í Sjónlag og pantaði tíma í forskoðun. Og kom út með þessa líka fínu einkunn. Ég pantaði tíma í aðgerð og fer næsta miðvikudag klukkan tíu. Hana nú og hafðu það.
Ég hlakka til.
Ég hlakka rosalega mikið til.
Ég hlakka svo mikið til aðég er með fiðring í maganum.
Kannski get ég lesið án gleraugna eftir aðgerð.
Kannski get ég lesið í rúminu.
Kannski þekki ég fólkið í heita pottinum.
Kannski get ég lesið nóturnar á kóræfingum, með góðu móti.
Kannski þarf ég að nota lesgleraugu.
Kannski kaupi ég þeu í BÓNUS, í stað gleraugna á 70 þúsund.
Kannski, kannski , kannski.
Ég fer kannski að heilsa fólki á götu.
Ég fer kannski að vinka fólki sem keyrir fram hjá mér á bílum.
Ég fer kannski að heyra betur.
Eftir sex daga.
Eftir sex nætur.
Ég fer í aðgerð.

þriðjudagur, 18. janúar 2005

Sauðurinn ég.
Var á vitlausum stað klukkan 11:10 í dag.
Stóð mig ekki í stykkinu.
Hugsaði bara hálfa hugsun.
Er að pæla í hvað veldur.
Álag í vinnunni?
Elliglöp?
Venjulegur sauðsháttur?
Líklega eitthvað af öllu.
Staðráðin í að standa mig betur næst.

sunnudagur, 16. janúar 2005


Unglingurinn er lagstur í ævintýrabókmenntir við mikinn fögnuð ömmu. Hann hefur lagt á hilluna bækur um heimsstyrjöldina síðari við enn meiri fögnuð ömmu. Posted by Hello

Er þetta ekki ömmuvæntumsvipur sem skín af prinsinum af Wales? Ég sé ekki betur.  Posted by Hello

Elsku amma min.
Eg sakna tin hundrad kilo.
Það er nú ekki leiðinlegt að fá svona tölvupóst frá þessu ömmuljósi. Posted by Hello

laugardagur, 15. janúar 2005

Kalli minn er að velta fyrir sér hvort hann eigi að hafa tilvitnun á saurblaði í doktorsritgerðinni sinni eður ei. Ef svo verður á það að vera fyndið en ekki þung speki. Honum datt í hug e-ð sem Skinner lét hafa eftir sér en hallast þó heldur að því að vitna í Gunnlaug ormstungu. "Eigi skal haltur ganga á meðan báðir fætur eru jafnlangir." Af því að hann Simmi minn hefur þetta oft á hraðbergi þá datt mér í hug að Kalli gæti allt eins notað önnur orð sem pabbi hans vitnar oft í en það er sagan um það þegar hann var tólf ára og hann og aðrir strákar voru í steypuvinnu hjá Gæja Karls og sá sagði við strákana, þegar var aðeins farið að draga af þeim um kvöldið: "Það er ekki nóg ekki að vera sterkur að morgni það verður að vera sterkur að kvöldi líka".
Þessi orð hafa setið í Simma mínum alla tíð og gott ef hann hefur ekki farið eftir þessu.

miðvikudagur, 12. janúar 2005

Það er verið að horfa á fótboltaleik í sjónvarpsherberginu í húsinu mínu. Ég hélt áðan að maðurinn, sem er að horfa, væri að tala í símann en þá var hann að tala við sjálfan sig um gang leiksins. Miklar spekulasjónir í gangi. Hann kallar öðruhverju í mig og segir að ég verði að koma og sjá. Það er nú ekki alveg í lagi með þennan mann. Ég vildi horfa á fóstureyðingarþátt en fótboltinn gengur fyrir. Mér er eiginlega alveg sama um gang einstakra leikja í ensku deildinni. En ef það skyldi vera flugvél á leið á leik í Liverpool eða Manchester lýg ég hiklaust og segist vera einlægur áhugamaður, bara til þess að fá að fara með.

þriðjudagur, 11. janúar 2005

Af hverju hætti ég í fyrra hjá De danske vægtkonsulenter, af hverju?
Ég væri löngu komin í kjörþyngd og væri bara að dúlla við það að halda mér í þeirri þyngd.
Skil ekki sjálfa mig.
Það er nefnilega svo pirrandi núna að komast ekki í neinar buxur
svona af því að það er vetur
og allar götur troðfullar af snjó
og það er kalt úti
og vindur
og svoleiðis
og ég í pilsi.

mánudagur, 10. janúar 2005

Jólaskrautið er loksins komið ofan í kassa. Þeir eru enn á stofugólfinu. Ég nenni ekki að bera þá út í skúr. Nokkur jólaljós loga enn utandyra og munu gera enn um sinn. Þau heita núna hjá mér skammdegisljós.

...og the Midwest family flaug til síns heima 5. janúar. Þó að ég sé eins og jójó á milli Þolló og Leifsstöðvar þá rata ég varla þarna á milli. Það kom allavega í ljós þegar ég þurfti að aka alein heim um daginn. Ég ruglaðist tvisvar á leiðinni. Ég lenti inni í Hafnarfirði, bara alveg niður á Strandgötu. Það stóð samt alls ekki til. Ég fór líklega of langt á hringtorgi. Ég fann nú rétta bratut aftur en gleymdi mér í kópavoginum. Fór undir í stað upp á og lenti í því að keyra gömlu góðu Ártúnsbrekkuna. Ég var svo stressuð og ekki bætti hálka úr skák og blindhríð á leiðinni yfir fjallið þannig að ég er enn þreytt. Börnin mín komust öll heil á húfi heim til sín þrátt fyrir löng og ströng ferðalög.  Posted by Hello

Lífið er óðum að færast í samt horf aftur. Hið venjulega líf okkar Simma míns færðist eðlilega úr skorðum á meðan afkomendur okkar dvöldu á Fróni. The Jones´s fóru af skerinu á milli jóla og nýárs. Gátu ekki stoppa lengur vegna vinnunnar.... Posted by Hello

laugardagur, 1. janúar 2005


Við, Simmi minn, óskum öllum vinum og vandamönnum árs og friðar, gæfu og gengis á nýju ári. Þetta nýbyrjaða ár leggst vel í okkur hjónakornin. Posted by Hello