| Örnefni í skólanum |
Ég er búin að bíða spennt, í öll þessi ár, að ég fari nú að skrifa og ég hef staðið í þeirri trú að það verði metsölubók. Það er, jú, enginn tilgangur að skrifa til annars. Metsölubókin hefur ekki enn komið út og mun væntanlega ekki gera.
Ég kveikti svo á perunni áðan að ég er löngu farin að skrifa enda löngu komin á þetta "með aldrinum." Ég hef skrifað pistla í Bæjarlíf í dálítinn tíma. Þetta er líklega þriðji veturinn. Pistlarnir heita Skólalíf og fjalla um einhver málefni tengd skólanum. Ég hef alveg frjálsar hendur, þannig lagað, um hvað ég skrifa svo lengi sem það fjallar um skólann og starfsemina þar. Ég var dálítið stressuð í fyrstu um hvað ég ætti að skrifa og hvort ég gæti það yfir höfuð en reyndi að segja frá því sem var verið að gera í skólanum. Mér fannst svo á öðrum vetri að ég væri farin að endurtaka mig. Enda gengur skólahald svipað fyrir sig, ár frá ári. Upp á síðkastið hef ég ekki haft nokkrar áhyggjur af því hvað ég ætti að fjalla um, ég treysti einhverju innsæi sem býr hið innra og það hefur gengið eftir.
Í dag var ég allt í einu farin að skrifa um nöfnin sem skólastofurnar fengu veturinn 2008-2009 og hafa ekki mikið verið notuð. Mér fannst bara gaman að rifja upp tilurð nafngiftanna og hvernig fólki hefur gengið að venja sig á að nota nöfn í stað númera.
Reyndar á skólastjórinn eftir að gefa grænt ljós á það hvort ég megi senda pistilinn á Bæjarlíf.