Þegar líkaminn minn þrýstist
upp við líkama þinn
langar mig kannski meira í þig
en þig langar í mig
nema ef þig skyldi langa jafn mikið í mig
og mig langar þig
þá myndum við hittast
í hita leiksins
laugardagur, 11. febrúar 2012
fimmtudagur, 9. febrúar 2012
Líkamshreyfing
Ég gríp til eigin líkama
þegar ég vil hreyfa mig
get varla ætlast til þess
að ég
geti hreyft aðra líkama
nema ef vera skyldi
að kallinn vilji hreyfa sig
um leið og ég.
þegar ég vil hreyfa mig
get varla ætlast til þess
að ég
geti hreyft aðra líkama
nema ef vera skyldi
að kallinn vilji hreyfa sig
um leið og ég.
miðvikudagur, 8. febrúar 2012
Kuldahrollur
Hef breyst í kuldakreistu
hlusta á vindinn gnauða á nóttinni
í andvökunni
hann gnauðar á gluggann minn
rigningin ber og lemur
mér verður kalt við tilhugsunina
að skella mér út í laug
fyrir klukkan sjö
ákveð að fara ekki
mér gæti fundist of kalt
frétti svo á kennarastofunni
að vatnið hafi verið 29 gráður
hlusta á vindinn gnauða á nóttinni
í andvökunni
hann gnauðar á gluggann minn
rigningin ber og lemur
mér verður kalt við tilhugsunina
að skella mér út í laug
fyrir klukkan sjö
ákveð að fara ekki
mér gæti fundist of kalt
frétti svo á kennarastofunni
að vatnið hafi verið 29 gráður
miðvikudagur, 1. febrúar 2012
Hringormur
| Hann skælbrosir |
Þegar að þeirri stundu kom féll mér allur ketill í eld. Við hlið fiskbitans spriklaði þessi líka feiti og fíni hringormur. Hann hló framan í mig.Ég fékk gæsahúð af hryllingi um mig alla. Þó ég geri mér grein fyrir því að ég hljóti einhvern tíma í gegnum tíðina hafa gúffað í mig hringorm þá vil ég ekki vita af því. Ég tilkynnti Simma mínum, þegar hann kom heim úr vinnunni, að þennan fisk gæti ég ekki borðað og líklega engan fisk á næstunni, kannski aldrei. Við sem höfum aukið fiskneyslu upp á síðkastið svona sem liður í hollara fæði. Hann henti orminum í ruslið, skellti fiskinum í pott, bætti við rófum og gulrótum svo ég fengi eitthvað að borða, lagði á borð og sagði vesgú. Fiskfjandinn var svo hvítur og fallegur að ég fór að narta í hann og gat, með því að pikka hann í smátætlur, borðað pínu pons.
Ég er í fínu lagi í dag.
Enda heyrði ég einhvern tímann að hringormar væru bara prótein.