Síður

mánudagur, 26. desember 2011

Annar í jólum

Í jólaskapi
Það er ósköp gott að hanga inni á náttsloppnum þegar úti geisar vetrarveður. Annar í jólum með góða bók og kósíheit. Er að lesa Jójó eftir Steinunni Sigurðardóttur. Hún lofar góðu. Ég les hana hægt til að njóta hverrar setningar. Það er ekki hægt að lesa svona bók eins og krimma þar sem spennan gerir það að verkum að maður þeysist yfir blaðsíðurnar til að finna út hver er  morðinginn. Svona bók er allt öðruvísi. Simmi er að lesa Hjarta mannsins eftir Jón Kalmann. Ég hlakka til að fá hana í hendurnar.
Posted by Picasa

sunnudagur, 25. desember 2011

Jólin 2011

Eftir skötuát í Rauða húsinu
Við, Simmi minn, höfum vanist því að vera ein á jólunum. Höfum verið ein í nokkur ár. Rólegheitin ríkja í kotinu. Við unum okkur við lestur og spjall og útvarpshlustun og sjónvarpsgláp.   Á Þorláksmessu borðum við að sjálfsögðu skötu og höfum gert það að sið að fara með Öldu og Valda í Rauða húsið á Eyrarbakka til að gæða okkur á þeim guðdómlega mat. Skatan hjá Pétri klikkaði ekki frekar en venjulega.

Maturinn kominn á borð
Jólamaturinn okkar er Hamborgarhryggur eins og mörg undanfarin ár. Við höldum að á fyrstu jólunum okkar saman hafi verið lambakótelttur í matinn. Við erum að pæla í að endurvekja þann sið. Það er svo erfitt að borða Hamborgarhrygg einn daginn og hangikjöt þann næsta. En það er nú ýmislegt öðruvísi nú en áður. Ég bakaði ekki fulla stampa af smákökum eins og alltaf. Við höfðum ekki jólagraut í gær eins og alltaf. Fengum okkar smá slettu af heimatilbúna jólaísnum í eftirrétt. Sem sagt engin möndlugjöf. Og ekki nóg með það, við elduðum hangikjötsrúllu en höfum ekki lyst á að borða það núna. Höfum samt alltaf gert það. Það sem breytist ekki er meðlætið með hryggnum þ.e.rósakálið og bleika ógeðið.                                                                                                    Jóladagskaffið hjá mömmu og pabba er fastur liður í jólahaldi. Við áttum mjög ljúfa stund hjá þeim í dag en ég sakna barnanna minna og barnabarna hvað mest þar því systur mínar hafa sína afkomendur með í boðinu. Samt ekki alveg alla. Þannig er það nú bara. Kalli kemur nú reyndar oftast en veðrið setti strik í reikninginn í dag. Ég kvarta samt ekki. Svava Rán og Lúkas voru hjá okkur í heila viku fyrir jól. Það var náttúrlega alveg æðislega gaman. 
Bara gaman á jólunum

þriðjudagur, 6. desember 2011

Bara

Allar götur fullar af snjó
Það eru ansi margir dagar síðan ég skokkaði síðast. Það hefur bara ekki verið hægt vegna snjóa og enn bætir í. Það bara snjóar og snjóar og fýkur til í skafla. Ég hef látið duga að synda þessa þrjá daga sem ég fer til vinnu. Ég er ekki nógu hress með svona litla hreyfingu. Ég vil hreyfa mig meira. Ég get bara ekki hugsað mér að fara í "ræktina."                                                                          Hlaupa inni á bretti. Nei, get ekki hugsað mér það. Fyrir utan hvað það kostar mikið. 
                                                
Ég verð líklega að drífa mig í sund líka þá daga sem ég er bara heima. Ég hef allavega nægan tíma til þess. Í morgun var sundlaugarvatniðreyndar  svo kalt að ég var ekki búin að ná upp hita í skrokkinn eftir 30 ferðir svo ég gafst upp og fór í heita pottinn.
En það er bara næs að hanga í heita pottinum. Það gerir gamla kroppi bara gott.
Það lítur út fyrir að íslenska orðið bara sé í uppáhaldi hjá mér.

mánudagur, 28. nóvember 2011

Minningarorð

Ásta og Simmi sumarið 2004

Það líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um Ástu mágkonu.  Ég sakna hennar svo mikið og átti eftir að gera svo margt með henni. Hún dó, aðeins 65 ára gömul 23. júlí s.l og var jarðsungin frá Hallgrímskirkju þann 5. ágúst.  Hún var jarðsett í Þorlákshöfn, rétt hjá mömmu sinni.

Ég man fyrst eftir Ástu sem ungri stúlku í Þorlákshöfn, úti að ganga með Baldvin kaupfélagsstjóra. Mér fannst það mjög rómantískt. Hún hefur líklega verið skiptinemi í Ameríku  fyrsta sumarið mitt í Þorlákshöfn, svo göngutúrar með Baldvin hafa verið sumarið 1965  eða 1966.

Það var svo 1969 sem ég fer að koma á heimili foreldra hennar sem kærasta Simma en þá er Ásta farin að búa með Jonna og Hrefna litla fædd. Það var alltaf svo gaman að koma til þeirra í heimsókn enda vel tekið á móti okkur. Margar góðar minningar á ég  um Ástu og Jonna, Dóru Sif og Hrefnu.  Fyrsta sólarlandaferðin var farin með  þeim á Costa del sol. Mér fannst þau svo sigld og klár og flott og fín enda bjuggu þau í Noregi um tíma þar sem þau stunduðu bæði nám. Ásta var búin með hjúkrunarskólann og bætti við sig heilsuverndarhjúkrun sem hún vann svo við í Reykjavík í mörg ár.  Þegar þau fluttu svo seinna til Gautaborgar í Svíþjóð, í frekara nám, fylgdum við Simmi þeim út og gerðum úr þessu frábæra skemmtiferð með  viðkomu í Kaupmannahöfn. Þar kynnti Jonni fyrir okkur þeim ágæta mat pizza og hann fór með okkur á jazzbúllu.  Upplifun fyrir okkur Simma. 

Ásta var mikil smekkmanneskja, hvort sem það var klæðnaður eða híbýlaprýði. Hún var alltaf svo vel klædd og kunni að velja sér  fatnað sem kælddi hana. Hárið alltaf fínt og stíllinn allur elegant. Hún var lágvaxin en var samt svo stór, hnarreist og spengileg.

Það var sama hvar hún bjó sér heimili, það var alltaf fallegt. Hún vildi hafa fallega hluti í kringum sig og kunni að velja saman það sem passaði.  Allt frá húsgögnum, myndum á veggjum og niður í smæstu hluti sem hún skreytti heimilið með var á réttum stað og féll saman.

Hún unni góðri, sígildri tónlist og var dugleg að sækja menningarviðburði, leikhús og tónleika.

Ekkert var eins gaman og þegar hún bauð okkur Simma í mat. Matarboðin hennar voru svo glæsileg. Nostrað við hvert smáatriði, hvort sem það var matseldin sjálf , hvernig maturinn var framreiddur eða hvernig lagt var á borð.  Það skipti hana miklu máli að hafa allt fallega borið fram.  Fyrir utan hvað hún kunni vel að leggja á borð var hún frábær kokkur. Það var alltaf eitthvað spennandi  í pottunum hennar. Einu sinni þegar hún bjó á Seyðisfirði, með Ingimundi, hafði hún mikið fyrir því að ná í hreindýrakjöt, því hún vildi allt það besta fyrir Simma bróður. Hún varð því frekar sár þegar hún komst að hvers konar gikkur hann er því hann vill helst ekki prófa neitt nýtt.

Ásta var mikil heimsmanneskja. Hún hafði komið til margra landa og hafði mjög gaman af að ferðast. Hún kom oft til Rómar eftir að Hrefna flutti þangað enda fylgdist hún vel með barnabörnunum þremur og reyndist þeim afar góð amma. Hún fylgdist líka vel með börnum systkina sinna og var dugleg að spyrja um þau öll. Síðasta utanlandsferið hennar var til þess að ljúka við Jakobsveginn. Hún gekk hann, ásamt vinkonum sínum, í þremur áföngum. Hún lagði ríka áherslu á að klára seinasta hlutann í vor. Hún var orðin veik þegar hún gekk en krafturinn svo mikill að það var ekki annað viðkomandi en að ljúka við verkið.

Ásta fékk sýkingu í lungun sem leiddi hana til dauða. Mig grunaði ekki, þegar við hittumst 17.júní í Reykjavík og fengum okkur að borða á veitingahúsi, að það yrði síðasta máltíðin okkar saman.

Lífið getur verið hræðilega óréttlátt. Ásta átti eftir að gera svo margt.

Jólaundirbúningur.

Aðventukransinn minn
Í gamla daga  væri ég um þessar mundir farin að anda hraðar og alveg að fara á límingunum yfir því hvað jólin nálgast hratt og að það ætti eftir að gera allt fyrir jólin. Nú er allt breytt hjá mér. Ég læt duga að þvo gardínur og þrífa glugga og ég geri það áður en jólaljósin eru hengd upp. Það hefur nú þegar verið gert. Og ég bóna gólfflísarnar með þar til gerðu flísabóni. Ég er búin að kaupa bónið og byrjuð að undirbúa vinnuna.
Ég hef líka alltaf bakað heilmikið fyrir jól en hent kökunum úr stömpunum í desember að ári svo nýju kökurnar fái pláss. Ég tók þá ákvörðun núna að baka ekki neitt. Ég bakaði nú samt í gær eina smákökusort en það var allt fyrir Nönnu ömmustelpu. Hún bakaði kökur í skólanum sem henni fannst svo góðar en fékk ekki að fara með þær heim af því það á að borða þær á litlu jólunum í skólanum. Hún var það klók að skrifa niður uppskriftina og mundi hana það vel að við gátum skellt okkur í að baka. Í ljós kom að þetta voru rúsínukökurnar sem mamma bakaði alltaf fyrir jólin í den og voru mitt uppáhald nema hvað rúsínum hafði verið skipt út fyrir súkkulaði. Ég bakaði líka eina skúffuköku fyrir hann Simma minn. Hann er allt í einu eitthvað voða spenntur fyrir því að eiga brúnköku sem hann getur nælt sér í öðru hverju með mjólkurglasi. Mér finnst gaman að baka og mun að sjálfsögðu verða við þessari ósk. En fullir stampar af smákökum verða ekki í skápunum um þessi jól.
Það gæti nú samt dottið í mig að baka smá fyrir mömmu.
Tvær þrjár smákökusortir.
Jafnvel lagtertu.

sunnudagur, 20. nóvember 2011

Ljósatré

Við, Simmi minn, notuðum góða veðrið um síðustu helgi og hengdum þrjár ljósaseríur í öspina í garðinum. Ekki tókst betur til en svo að ljósin vildu hrúgast einhvern veginn öll á sama stað þannig að ég var ekki nógu ánægð með útkomuna. Við fórum þess vegna í höfuðhreppinn í gær og keyptum tvær alveg eins seríur í viðbót en þær eru þannig að það er hægt að bæta endalaust við.
Tréð er ekki á hið í garðinum en vill vera svona hér.
Þessar tvær voru settar upp í gær svo núna eru 500 ljós á trénu en samt væri hægt að bæta 500 í viðbót. Það er nóg pláss ennþá.
Þetta verður látið duga í ár.
Ljósatré eða perutré eins og Dillí á Reyðarfirði kallaði það.
Jólaljósaperutré.

laugardagur, 19. nóvember 2011

Leikhúsferð


Hjón í krísu
Ég er svo heppin að hafa minn eigin leikhúsferðstjóra. Ef ég hefði hann ekki færi sjálfsagt eignilega aldrei í leikhús. Svilkona mín fylgist miklu betur en ég með því sem er að gerast í leikhúsum borgarinnar og sendir mér öðru hverju símaskilaboð, tðlvupóst eða skillaboð á fésbók um að hún hafi pantað miða, þennan dag á þetta leikverk. Ég tek daginn frá og svo förum við að sjá eitthvað spennandi. Í gær var það Hjónabandssæla í Gamla bíói, með þeim Eddu Björgvins og Ladda í aðalhlutverkum. Þau eru tvö allan tímann á sviðinu og skila hlutverkum sínum auðvitað alveg frábærlega. Þau leika miðaldra hjón, sem eru komin í helgardvöl á hóteltil þess að finna ástarneistann aftur. Maður kannaðist við ýmislegt sem fór á millum þeirra og hláturinn var ekki langt undan.
Frábært kvöld með góðum vinum

föstudagur, 18. nóvember 2011

Ánægð hlaupakelling

Heldur betur ánægð eftir 3 km hlaup í
Reykjavíkurmaraþoni
Ég hef ekki alveg haldið mig við hið fína hlaupaprógramm sem mér áskotnaðist. Mér fannst þetta orðið dálítið erfitt á sjöttu viku. Þá fór ég bara að stytta tímann um 10 mínútur eða svo. Ég er samt hæst ánægð með sjálfa mig. Á þriðjudaginn skokkaði ég gamla litla hringinn minn og það var ekkert mál. Í dag fór ég stóra hringinn og fór með þeim ásetningi að hlaupa og ganga til skiptis. Ekki fór það nú svo heldur skokkaði ég alla leiðina, sem er rúmir  5 km, á þremur hraðaskiptingum, hægt, meðalhratt og tók nokkra hraðaspretti.
Veðrið var eins og best verður á kosið í nóvember. Austan gola, þurrt og mátulega hlýtt.
Gott hlaupaveður.

fimmtudagur, 17. nóvember 2011

Skondnar uppákomur.

Hann er svo skondinn og skemmtilegur þessi heimur. Alltaf er hann að skreppa saman og ég hef alltaf jafn gaman af því þegar dæmi um það skjóta upp kollinum. Netið á nú aldeilis stóran þátt í því hvað heimurinn hefur minnkað.
Frú forseti borgarstjórnar
Svava Rán og Láki við Gullfoss
Í fyrravetur langaði einn nemenda minn, af erlendu bergi brotinn, að fræðast um Gullfoss og Geysi. Ég sagði honum frá og lét hann svo "gúggla" Gullfoss og skoða myndir. Margar fínar myndir komu upp af Gullfossi en ein líka af Svövu Rán og Lúkasi við fossinn. Ég missti næstum andlitið af undrun en þá hafði ég sjálf sett þessa mynd á netið og texta við, þannig að hún spratt upp.
Í dag var annar nemandi minn, stelpa frá Tælandi, að vinna með texta og þurfti að fá útskýringu á hvað blómsveigur væri. Hún notaði líka Google translate og fór inn á myndir. Hún fékk upp ýmsar myndir af fólki að leggja blómsveiga á leiði eða styttur en ein myndin var af tengdadóttur minni. Ég athugaði af hverju hún kæmi upp og það var vegna þess að hún hefur lagt blómsveiga á leiði, bæði Jóns Sigurðssonar og Bríetar Bjarnhéðinsdóttur sem forseti borgarstjórnar.
Þetta var eiginlega alveg ótrúlegt í bæði skiptin.
Svona er heimurinn í dag. 

miðvikudagur, 16. nóvember 2011

Af gömlum kennara

Það er komin allnokkur reynsla á þetta nýja líf mitt, þ.e. að vera bara hálfdagskerling eins og það var sagt um konur sem unnu bara hálfan daginn í Meitlinum í gamla daga. Ég er búin að vera hálfdagskerling síðan skóli hófst í haust. Ég hóf þá töku lífeyris og réð mig í 49% starf við skólann. Ég er svo heppinn að vera á 95% reglunni og ákvað að nýta mér þau réttindi sem það gefur. Þrátt fyrir að hlakka til að minnka svona við mig var ég líka kvíðin. Kvíðinn fólst aðallega í því að vera ekki með á nótunum, missa af einhverju sem verið er að gera í skólanum af því ég mæti bara þrjá daga í viku. Ég passa mig mjög vel á því að spyrja fólk um hitt og þetta og lesa viðburðadagatalið sem hangir á vegg. Þetta hefur gengið nokkuð vel. En það besta er að mér finnst þetta fyrirkomulag alveg dásamlegt. Ég mæti eingöngu í vinnu þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag og á þess vegna alltaf langa helgi.
Ja, nema þegar ég er beðin um að taka að mér forfallakennslu, sem kemur nokkuð oft fyrir.
Af því ég hef fulla starfsorku enn, þannig lagað,  þá finnst mér bara fínt að kenna tíma og tíma í forföllum.
Ég gerði mér samt fulla grein fyrir því, fyrir mörgum árum, að ég sæi mig ekki fyrir mér að kenna 10. bekk íslensku eftir sextugt. Það einfaldlega gengi ekki upp. Bilið á milli kynslóða stækkar svo ört á vissu skeiði að það væri sama hvað ég reyndi að skilja ungmennin til að geta verið skemmtilegi, nútímalegi íslenskukennarinn, gæti ég það aldrei. Ég er svo heppin að hafa, fyrir tilviljun byrjað fyrir nokkrum árum að kenna íslensku sem annað mál og það er það sem gerir það að verkum að ég get þetta ennþá. Þegar ég var leyst undan því að vera umsjónarkennari léttist kennslan og öll vinnan til muna.
Þess vegna er ég svo þakklát forsjóninni fyrir að hafa hent mér í þessa, fáránlegu 95% reglu sem auðvitað gengur ekki upp til lengdar. Ég nýt hennar á meðan hægt er.
Ég varð alveg ferlega reið í dag þegar ég las á einhverjum fréttamiðli að Pétur Blöndal, alþingismaður,
íhugar að leggja það til að hækka lífeyrisaldurinn. Hann var með einhverjar röksemdir til að styðja mál sitt og klikkti út með það að kennarar gætu alveg kennt til 75 ára aldurs jafnvel til áttræðs ef þeir hefðu áhuga á því. Hann veit ekki, þessi maður, um hvað hann er að tala. Ég er rétt komin á sjötugsaldurinn og er afskaplega fegin að geta minnkað við mig.
Pétur heldur að ég geti þetta í 14 til 19 ár í viðbót. Ef þetta er dæmi um hugsunarhátt alþingismanna, fari þeir bara allir heim til sín.

sunnudagur, 13. nóvember 2011

Partýtími

Maður fer varla úr partýgallanum um þessar mundir svo mikið er að gera í skemmtanalífinu. Um síðustu helgi hittust systur hans Simma míns og buður okkur Jónu með og dætrum og tengdadætrum. Við hittumst heima hjá Dóru Sif og borðuðum svo á Tapashúsinu. Ég hafði mína tendgadóttir með en ekki dótlu þar sem hún átti ekki heimangengt. Þetta var alveg rosalega skemmtilegt kvöld þó svo að það vantaði nokkrar stelpur. Við enduðum svo á karíókí á Obbladí og þar tók Elsa mín lagið og gerði það með stæl.
Á laugardagskvöldið stóðum við Simmi minn upp úr leisíboj klukkan hálftólf og löbbuðum á hverfispöbbinn, Happy hour, því þar var Rúnar að spila og syngja. Það var auðvitað mjög gaman. Ég hef ekki áður séð Rúnar á alvörupöbb að spila og það var gaman að sjá og heyra hvað hann gerir þetta vel. Við tókum meira að segja einn snúning áður en við töltum heim.
Á föstudag var starfsmannadagur Ölfuss sem er alltaf mjög áhugavert að taka þátt í. Fyrirlesarinn að þessu sinni er sálfræðingur sem talaði um öfluga liðsheild. Hann kom inn á marga góða punkta sem hreyfði við manni. Eftir fyrirlesturinn var boðið upp á snittur og vín svo ég kom heim pínu full.
Í gær stóðum við hjónakornin aftur upp úr leisíboj og núna til að fara á Eyjakvöld í Ráðhúskaffi sem er hinn hverfispöbbinn okkar. Þetta var nokkurs konar söngtónleikar, rosalega skemmtileg hugmynd. Hljómsveitin Obbosí úr Eyjum spilaði Eyjalögin og varpaði textum á vegg svo allir gætu sungið með og það var sko gert. Rokna stuð og stemming.

laugardagur, 22. október 2011

Matarstúss að hausti

Allar þrjár komnar í pækilinn.
Hreykinn með rúllupylsuna sína.
Hann, Simmi minn, er algjör "matarkall."  Honum líður ekki vel nema allar hirslur séu fullar af mat. Mér finnst nóg að vita af búðinni hérna hinum megin við götuna. Honum áskotnaðist eitthvað af lambakjöti á dögunum og dúllar núna við það á einn og annan hátt. Nú er hann búinn að búa til þrjár rúllupylsur. Þær líta rosalega vel út. Núna breytti hann aðeins út af. Í stað þess að sauma pylsurnar saman með þar til gerðum nálum og rúllupylsugarni, þá varð hann sér úti um net og tróð vefjunum þar inn í með minni hjálp. Kvöldið áður var hann búinn að gera saltpækil eftir uppskrift úr aðaluppskriftabókinni, Helgu Sigurðar. Hann lét samt engan sykur í pækilinn eins og Helga leggur til en notaði saltpétur, þrátt fyrir vitneskju um óhollustu.
Vel af lauk og allrahanda.
Hann saltaði líka í fötu tvo framparta sem hann kubbaði sjálfur niður því það er ekki búið að saga kjötið niður í bita enn. Það er bara grófskorið, Gerði eins og pabbi hans kenndi honum fyrir mörgum árum. Velti hverjum bita upp úr grófu salti og lagði í fötuna og smá saltpétur á milli laga.
Nú tekur við biðtími.
Spennandi biðtími.
Posted by Picasa

fimmtudagur, 20. október 2011

Selfossferð

Við, hjónakornin, skutumst á Selfoss seinnipartinn. Okkur vanhagaði um ýmsa hluti. Þessir hlutir tengjast flestallir því að Simmi  minn vill helst alltaf elda, það sem sumir kalla "gamaldags mat."
Það vantaði gróft salt, saltpétur og teygjunet vegna þess að hann er með rúllupylsur í bígerð. Þetta fékkst allt saman.
Ég vildi  fara í Intersport og kaupa nýja hlaupaskó, sem ég hafði séð auglýsta á tilboði en hann vildi fara í Júróprís, þar sem hann hélt að hann fengi eldunarhellu sem hægt væri að hafa úti í skúr svo hann geti soðið hrossabjúga og hrossakjöt og ýmislegt sem skilur sterka lykt eftir í húsinu. Þetta gekk eftir. Nú á hann þessa líka fínu spam hellu en ég verð enn um sinn að hlaupa í götóttum skóm.
Við keyptum líka hausljós, þannig að nú getum við hjólað í morgunsundið áhyggjulaus í myrkrinu en örugglega svolítið skondin. En það gerir nú ekkert til.

þriðjudagur, 18. október 2011

Lopaengill

.....sem varð svona sætur engill eftir þæfingu.
Prjónaði þetta stykki eftir uppskrift...
Prjónaði, að beiðni dótlu, svona líka fínan engil úr tvöföldum lopa.

þriðjudagur, 11. október 2011

Í upphitun

Mér finnst enn dálítið skrýtið að fara út og skokka tuttugu mínútna upphitunarhlaup. Fyrir skömmu síðan hefði þetta bara verið hið ágætasta hlaup. Ég er svo heppin að akkúrat heiman frá mér er besti, skemmtilegasti hlaupahringurinn minn, sem endar á frjálsíþróttavellinum, tuttugu mínútna skokk hjá mér.
Ég var bara í rúðustrikuðum heimi í dag, með uppskriftina að æfingum á blaði, haldandi það að enginn kæmi út á frjálsíþróttavöllinn, þegar ég uppgötvaði í miðjum hnébeygjum að ég var ekki Palli, þessi sem var einn í heiminum. Par gekk röskum skrefum fram hjá mér þegar ég rétti úr mér eftir hnébeygjurnar. Ég bauð góðan daginn en ég heyrði ekki hvort mér var svarað á íslensku eða útlensku. Ég ákvað að láta ekki undan neinum hégómaskap, skellti mér á jörðina og tók magaæfingar eins og andskotinn.Enda öðlaðist ég visst frelsi við það að verða sextug og ég tala ekki um að verða sextíuogeins. Ég má allt.
Ég tók sem sagt með stæl fyrstu æfingu í þriðju viku hins frábæra hlaupaprógramms sem mér áskotnaðist á dögunum.
Það er ekki alltaf auðvelt.
En alltaf gaman.

sunnudagur, 9. október 2011

Smáhlaup á sunnudegi

Fór út að hlaupa um hádegisbil, þrátt fyrir að hafa setið sviðaveislu í gærkvöldi og drukkið ómælt rauðvín. Ég bað, Simma minn, að koma á bílnum á eftir mér. Lagði til að hann legði af stað hálftíma eftir að ég færi að heiman. Ég setti stefnuna út í Selvog, á nýja Suðurstrandaveginum og fann strax að þetta var kolvitlaus ákvörðun hjá mér því það var hávaðarok beint í fangið á mér.  Mér finnst vont að hlaupa á móti vindi en hélt samt áfram. Vildi athuga hvað ég gæti. Þegar Simmi minn kom á bílnum var ég búin að hlaupa eða skokka í 35-40 mínútur og var bara búin að leggja að baki 4,5 km. Afsökunin er sviðaátið, rauðvínsdrykkjan og rokið.
Er samt bara nokkuð stolt af sjálfri mér, alla vega fyrir það að fara út i dag og gera eitthvað smá.
Hljóp næstum því út í Krísuvík.
Smá hlaup er betra en ekkert hlaup.

föstudagur, 7. október 2011

200 grömm í gróða

Stóra tá komin út úr á vinstri skó.
Það var alveg óhætt hjá mér að vera pollróleg yfir 300 gr í skuld fyrir viku síðan. Ég er nefnilega núna með 200 gr í gróða. Ég tapaði af sjálfri mér heilum 800 grömmum þessa vikuna. Það hlýtur að vera hlaupunum að þakka. Ég held mínu striki með sundið á morgnana og hef bætt hlaupaprógramminu við. Ég er enn standandi hissa á því að ég get hlaupið. Í dag gerði ég nákvæmlega það sama og á mánudaginn.  Mér fannst dálítið erfitt  að gera æfingarnar á mánudaginn enda var erfitt að fara fram úr rúminu á þriðjudagsmogrun. Mér fannst eins og ég hefði lent undir valtara. En ég varð eins og nýsleginn eftir sundið. Í dag var ekkert mál að gera æfingarnar. Ég virðist þjálfast við þetta prógramm.
Þetta er bara skemmtilegt.
Skemmtilegt að hlaupa.
Skemmtihlaup.

miðvikudagur, 5. október 2011

Tilraunaeldhús

Karfi í raspi og karfi í sesamfræjum
Mangósósa og sósa úr pakka
Það er eiginlega bara skondið hvernig matarsmekkur okkar, Simma míns, hefur þróast í sín hvora áttina eftir að hafa mallað matinn saman í 40 ár eða svo. Ég pæli alltaf meira og meira í hollustunni en hann vill endalaust hafa veislu. Honum finnst ekki nóg að fá magafylli. Hann þarf að geta notið matarins á einhvern hátt sem ég ætti kannski ekki að skilgreina fyrir hann en ég skynja að er meira en að verða saddur. Það er honum mikið í mun að maturinn smakkist vel. Ég þarf aftur á móti að finna fyrir matnum. Ég vil þurfa að skera hann á disknum og ég vil finna fyrir honum í munninum og  ég vil tyggja hann.
Í kvöld var tilraunaeldhús heima hjá mér. Okkur áskotnaðist karfi, sem hefur ekki verið á matseðlinum hingað til en ég verð alltaf spennt ef við prófum eitthvað nýtt. Ég gúglaði nokkrar uppskriftir og fann eftir það hvað hentaði okkur. Hann fékk sína bita velta upp úr raspi.  Ég mína bita velta upp úr sesamfræjum. Hann bjó til sósu úr pakka en ég gerði mangósósu úr ab-mjólk, epli, gulrótum og mangó chutney. Hann bætti kartöflum við, ekki ég.
Við vorum bæði ánægð með árangurinn og pakksöddd.

þriðjudagur, 4. október 2011

Sumarsöknuður

Kósíkvöld
Sólbrekka var dregin í vetrargeymslu í gær. Hún er farin úr innkeyrslunni. Þá er sumarið örugglega alveg búið. Enda langar mig ekki í útilega þegar laufin eru farin að detta af trjánum. Ég vil heldur ekki fara að vori fyrr en laufin eru komin aftur. Þar dreg ég mörkin hvað útilegur varðar. Ég varð pínu döpur þegar við skildum Sólbrekku eftir við flugskýlið sem hún verður í, í vetur. Það er svo gaman að fara eitthvert út í buskann með hana í eftirdragi og gista einhvers staðar. Við, Simmi minn, náum algörri slökun við þær aðstæður. Það er meira að segja gaman í útilegu þegar farið er að rökkva og við kveikjum á ljósum úti. Við erum alltaf með eina jólaseríu og hengjum hana upp á Brekku eða í nálæg tré. Það er bara kósí.
Við náðum að sofa 51 nótt í Sólbrekku í sumar. En það helgaðist nú af því að Simmi minn fékk óvenju langt sumarfrí þetta árið.

sunnudagur, 2. október 2011

Í roki og rigningu

Komin heim, heldur betur ánægð.
Ég ætlaði að taka þriðja vers, fyrstu viku í hlaupaprógramminu á föstudaginn en veðrið bauð ekki upp á útivist. Ég synti mína 1000 metra þann morguninn svo ég var í gíðum gír. Veðrið var ekkert betra í gær svo skokki var frestað þar til í dag. Úti er enn þá rok og rigning og eftir að hafa farið út veit ég að rok og rigning er engin afsökun. Það var gaman að takast á við veðrið. Ég byrjaði á að skokka rólega í 30 mínútur og fór þá hringinn minn góða en stað þess að enda heima fór ég út á frjálsíþróttavöll og tók þar sex sinnum hundrað metra hlaup. Þá lék vindurinn við mig. Ég hljóp í norðurátt til að hafa sunnanvindinn í bakið og það var eins og hann vissi að ég ætti að herða á mér þessa hundrað metra því hann blés þannig á mig að ég herti á mér ósjálfrátt. Ég átti að slaka á í 30 sekúndur á milli en ég gekk rösklega á móti rokinu til að geta hlaupið aftur með vindinn í rassinn. Þegar þessu lauk tók ég próf á sjálfri mér með skeiðklukku. Ég hljóp einn kílómetra á 6 mínútum og 23 sekúndum. Það er kannski enginn topptími en gaman fyrir mig að eiga þennan tíma því nú hef ég ekki bara 10 kílómetrana að stefna að heldur líka að bæta hraðann.
Ein bjartsýn.

föstudagur, 30. september 2011

300 gr í skuld

Ég stend í stað á vigtinni og er hæstánægð með það þó svo að þessi 300 gr sem eiga að fara af á viku hafi ekki farið núna þá veit ég að þau fara bara næst. Ég get hugsað um þau sem 300 gr í skuld og að ég verði að ná 600 gr af næstu viku en ég get líka dreift þeim á næstu vikur eins og hægt er að gera með VISA reikninginn.
Ég er svo ánægð með það að ég hef ekkert fyrir þessu. Þá á ég við að mér finnst ég ekki láta neitt á móti mér eins og var í megrunarkúrunum hér áður fyrr. Ég borða allt  það sem mig langar í en skríð svona hægt og rólega niður á við samt. Ég hef tekið ýmislegt út af matseðlinum mínum en ég hugsa ekki um þær matartegundir með söknuði heldur er svo hreykin af sjálfri mér fyrir að velja hollan mat í staðinn.
Ég skynjaði þessa hugsun mjög sterkt í morgun þegar ég kom upp í skóla. Þar var verið að leggja á borð afganga frá 10. bekkjar kaffsölunni í gær og það hvarflaði ekki að mér að fá mér bita af neinni köku eða tertu. Ég var nýbúin að borða hafragrautinn minn og það sem var þarna á boðstólum er ekki með á mínum matseðli og þá nær það ekki lengra. Ég var ekki á hnefanum, ég var ekki slefandi yfir gúmmulaðinu. Þessi tegund matar rúmast bara svo illa á matseðlinum mínum.
Ég var spurð að því hvort ég ætlaði ekki að fá mér á disk. Ekki vil ég vera með einhverjar yfirlýsingar eða almenn leiðindi en var svo heppin í þetta skipti að hafa nýétinn hafragrautinn sem afsökun.

fimmtudagur, 29. september 2011

Enn af hlaupum

Þegar ég bjó fyrir austan fór ég að skokka. Skokkaði þar í tæp tvö ár. Það var svo fínt að skokka þar, út úr bænum, sama í hvora áttina var og heim aftur. Ef það var rok lét ég Simma minn skutla mér í þá áttina að ég hefði rokið í rassinn. Ég hljóp aldrei meira en 3-3.5 km þar. Ég veit ekki af hverju ég festist í þeirri vegalengd. En ég fann vellíðunina eftir hverja ferð og fannst þetta æðislegt. Þegar ég flutti að austan breyttust aðstæður og hlaupn lögðust af.
Það var svo í fyrra að ég fór að prófa hvort ég gæti þetta. Tólf árum síðar og ég komin á sjötugsaldur.
Ég varð sjálf steinhissa á því hvað mér reyndist þetta, þannig lagað, auðvelt. Ég gat með góðu móti skokkað 3 km.
Það var svo í ágúst að ég hljóp fyrst 5 km með Svövu Rán í hlaupinu hennar. Hún í Wales og ég í Bláskógabyggð. Ég varð svo spennt fyrir hlaupum að ég hljóp 3 km skemmtiskokk í Reykjavíkurmaraþoninu. Það var sérstök upplifun að hlaupa með svona svakalega mörgu fólki.
Núna áskotnaðist mér hlaupaprógramm sem á að kenna mér að hlaupa 10 km. Ég er búin með tvær fyrstu æfingarnar í því prógrammi. Í gær hljóp ég sem sagt samtals 5 km. Á morgun sýnist mér að ég eigi að fara enn lengri vegalengd. Það sem gerir þetta svo skemmtilegt eru æfingarnar með. Mismunandi hraði, valhopp og teygjur inn á milli.
Kannski fer ég 10 km  einhvern tímann.

föstudagur, 23. september 2011

Föstudagar eru vigtunardagar

Ég var dálítið smeyk um að þyngjast í Spánarferðinni og þar með fitna. Það er ekki hægt annað en að breyta um mataræði þegar dvalið er í öðru landi um hríð. Ég ætlaði að elda mér hafragraut, eins og ég geri á hverjum morgni hér heima en það varð bara einu sinni. Í staðinn gúffaði ég í mig jógúrt, örugglega stútfullri af sykri, og hrærði haframjölinu út í. Í hádeginu fékk ég mér oftast einhvers konar salat, eins og heima en á kvöldin var alltaf veisla með rauðvíni og alles. Það sem var aðallega öðruvísi en heima var hvítvínið í hádeginu og oftar yfir daginn.
Það leit út eins og ég hefði bætt einhverju á mig þegar ég kom heim en af því ég tek bara mark á föstudagsvigtinni þá beið ég spennt þar til í morgun.
Vigtin sýndi 69,9 kg, aðeins 200 gr meira en föstudaginn áður en ég fór í ferðina.
Það sem ég er ánægð með þetta.
Ég er búin að losa mig við 6,5 kg  síðan í apríl sem þýðir að 300 gr hafa farið á viku. Ef ég held svona áfram, að missa 300 gr á viku, verða 3,9 kg til viðbótar farin á Þorláksmessu. 69,9 mínus 3,9 er jafnt og 66.
Nýtt markmið er komið í hús. 66 kg um jólin.

miðvikudagur, 21. september 2011

Daglegt líf, aftur


Í göngutúr á ströndinni
Við lentum á klakanum klukkan hálf átta í gærkvöldi. Forseti borgarstjórnar tók á móti okkur. Við hefðum, bæði, viljað iðka þetta dásemdar iðjuleysi lengur en það var bara ekki í boði.
Hið venjubundna líf, sem er líka dásamlegt, tók við í morgun. Vorum mætt í sund klukkan sjö og það var ekkert mál að synda þúsund metra, eins og ég hefði ekki tekið mér neitt frí. Við vorum reyndar mjög dugleg við að fara í röska göngutúra á Costa del sol enda býður strandlengjan upp á það.
Það var líka gott að koma í vinnuna og hitta samstarfsfólkið og nemendurna.
Það var bara aldeilis frábært að lengja sumarið um nokkra daga.

mánudagur, 19. september 2011

Kaþólsk messa

Kirkjan okkar
Það er með ólíkindum hvað okkur Simma mínum dettur í hug að gera. Þegar við vorum að rölta um gamla bæinn í dag dettur mér allt i einu í hug kort af bænum, sem ég hafði skoðað. Ég mundi að einhvers staðar á þar að vera kirkja. "Heyrðu, Simmi minn, sagði ég, hér einhvers staðar á að vera kirkja. Gaman væri að skoða hana." Þar sem við vorum stödd segir Simmi minn: "Þetta gætu verið kirkjudyr." Og viti menn, við vorum fyrir framan kirkjuna. Það var búð fyrir utan og rusl og alls konar, og maður sá ekki neinn kirkjuturn nema að beygja hausinn eins langt aftur og hægt var.
Jæja, við fórum inn, settumst á bekk og horfðum á allt skrautið. Fólk fór að streyma inn og allt í einu fóru kirkjuklukkurnar að hringja, ljós voru kveikt, prestur skaust fram á sjónarsviðið og messa hófst. Við sátum full lotningar og hlustuðum á spænska kaþólska messu. Allt í einu fattaði ég að Simmi minn var í stuttbuxum og ég í sjústringbol. Það var algjörlega bannað á Ítalíu að fara inn í kirkju með berar axlir. Eftir að hafa talað agnarögn við guð minn og hulstað á spænska prestinn dró ég Simma minn út því ég held að guð vilji ekki að ég sé með berar axlir í hans húsi. Þetta var samt góð stund sem við áttum þarna inni áður en ég fattaði þetta með beru axlirnar. Við fórum með trúarjátninguna á spænsku, eða þannig, og höfðum bara gaman að þessari óvæntu uppákomu.

Simmi minn sextugur


Skál fyrir sextugum kalli

Með Gussa
Í dag er dagurinn sem varð til þess að skruppum þessa sólarlandaferð. Simmi minn er sextugur í dag. Okkur finnst einhvern veginn að öll ferðin sé afmæliseitthvað þannig að gerðum ekkert spes í dag nema ég færði honum kampavínsflösku á sundlaugarbarnum í morgun og nokkrir landar sungu afmælissönginn fyrir hann. Við fórum á kínverskan stað á laugardagskvöldið og það finnst honum hafa verið afmælihátíðin. Hann um það. Mér finnst sama hátíðin vera á hverju kvöldi. Alltaf jafn gaman að fara út að borða.
Við, nokkur saman, sungum líka afmælissönginn á Gussabar í gærkvöldi, eftir miðnætti á spönskum. Það var bara gaman að koma við á Gussabar. Gussi er búinn að reka staðinn í 26 ár. Stendur sjáfur vaktina frá klukkan níu öll kvöld nema mánudagskvöld. Þvílík elja.

sunnudagur, 18. september 2011

Hitabylgja

Hér drýpur smjör af hverju strái eða ávöxur
Við höfum verið mjög dugleg við að fara í göngutúra hérna í hitanam á Costa del sol. Okkur finnst bráðnauðsynlegt að hreyfa aðeins á okkur rassgatið. Það er um klukkutíma gangur að skemmtibátahöfninni og fórum við í þriðja sinn í dag þangað. Það var kannski ekki mjög gáfulegt af okkur. Við fórum þegar mestur er hitinn á daginn og ekki nóg með það heldur er mesti hitinn í dag, að við höldum. Hér er einhver dularfull hitabylgja á ferð. Við heyrðum talað um 42 gráður þegar við komum heim, dauðuppgefin, úr göngutúrnum. Peysurnar sem áttu að halda á manni hita á kvöldin eru bara hlægilegar ofan í tösku ennþá.
Ég sit núna úti á svölum, sólin að ganga til viðar en það er svo heitt ennþá að það verður bara erfitt að hífa sig upp í kvöldrúntinn. En það verður ekkert slegið slöku við það. Nú stendur til að fara á Gussabar. Við, Simmi minn, erum eins og álfar út úr hól að hafa aldrei komið þangað. Hér er fólk með okkur sem kemur hingað ár eftir ár, sumir eiga 40 ára sögu að baki sem Costa del sol fólk og það fólk þekkir Gussa vel og heilsar auðvitað upp á hann alltaf þegar það kemur.
Við verðum að vera eins og hinir.
Kíkja á Gussabar.
Svona til að vera gjaldgeng.

laugardagur, 17. september 2011

Mijas og Molino


 
Til þess að brjóta upp leitlífið aðeins brugðum við okkur af bæ í gær og fórum í típíska ferðaskrifstofuferð. Gréta systir segir að það sé ekkert mál að taka strætó til Mijas og heim aftur og miklu ódýrara. Ég er bara ekki búin að læra  á strætókerfið eða hef öllu heldur ekkert pælt í því svo við keyptum okkur ferð með Heimsferðum til Mijas og Molino del la Placa.


Hin fræga kapella í Mijas


 
Ólífutrén í Molino
Við komum til Mijas síðast fyrir 36 árum, þá til að fara á asnabaki eittvert upp í sveit þar sem við borðuðum Paellu í fyrsta skipti. Nú skoðuðum við bæinn, kapelluna frægu,þar sem við kveiktum á kertum og létum fallegar hugsanir streyma gegnu heilabúið, skoðuðum kaþólska kirkju, stóðum fyrir utan nautabanahring, okkur langaði ekki inn og almennt nutum þess að vera í þessu fallega fjallaþorpi.
Við fórum líka á sveitabæ þar sem ólífurækt er aðaljobbið og fengum fræðsluerindi um feril ólífunnar til þess að verða olía og hratið hennar að eldsneyti.
Í molinos var farið í keppni um það að sýta ólífusteini sem lengst út úr sér. Simmi minn var lengst af með lengstu spýtinguna, um 8 metra en þá kom Húsvíkingurog bætti um betur.

Skemmtilegt.
Svo var farið í sóbað.
Og út að borða.
Og njóta þess að geta farið í svona afslöppunarferð

fimmtudagur, 15. september 2011

Strandlífið á við okkur


Strandalíf, sólbað, letilíf og almennt að gera ekkert af viti finnst okkur, Simma mínum, ótrúlega næs. Við venjumst þessu eiginlega bara allt of fljótt. Eftir að hafa legið á ströndinni í morgun og legið í hótelgarðinum eftir síestu fengum við okkr frábæran göngutúr í fjöruborðinu alla leið í smábátahöfnina. Hitinn er rétt við 40 gráðurnar og svitinn lekur stríðum straumum. Við vorum rétt tæpan klukkutíma að ganga þetta og það var ekkert rölt. Við gengum frekar rösklega. Heimleiðin var tekin á göngustígnum fram fyrir klett og þaðan í fjöruborðinu heim. Það er algjörlega nauðsynlegt að hreyfa sig svona á hverjum degi til að vega upp á móti sólbaðslegunni.
Enginn miði á flöskunni, skrítið.
Fengum okkur pizzu í kvöld. Mín var þokkaleg, Simmi minn var glaður með sína en rauðvínið var örugglega heimabruggað. Það var enginn miði á flöskunni og þegar flaskan tæmdist var grogg innan í henni eins og þegar ég tæmi flösku af berjasaft sem ég gerði um daginn úr krækiberjum
Bara grogg eftir.


Samt næs.
Samt gott.



miðvikudagur, 14. september 2011

Matur og meiri matur

Keypti þá ekki en djöfull eru þeir flottir
Vð ætluðum ekki að borða neitt í gær því við vorum bæði einhvernveginn svo hrikalega södd. Römbuðum um í gamla bænum í gærkvöldi og það er sko ekki leiðinlegt og áður en við vissum af vorum við sest með paella fyrir framan okkur. Enn eitt kvöldið vorum við ofursödd.
Í dag lágum við á ströndinni til að byrja með fórum svo heim í smá síesta og ætluðum að taka reiðhjól á leigu og hjóla með ströndinni.  Þá var ekkert hjól inni og gaurinn vissi ekki hvenær væri hægt að leigja hjól af honum næst. Frekar áhugalítill ferðabísnissgæi.  Þá tókum við smá sólbað í garðinum okkar og  fórum svo bara í göngutúr með ströndinni fram.
Alltaf er eitthvað að sjá, eitthvað að pæla og eitthvað að spekulera í.


Það verður eð eiga vatn í þessum hita

 Við ætlum í kvöld að ganga upp tröppurnar í gamla bæinn og sjá til hvort við höfum pláss fyrir eina góðu máltíðina enn. Hver veit? Það er því miður alltaf rúm fyrir góðan mat.

þriðjudagur, 13. september 2011

Það er sko heitt

Þeir kunna alveg að laga gott kaffi
Við heyrðum í gær talað um 35 stiga hita. Við lágum allan daginn á ströndinni og urðum að fara öðru hverju í sjóinn til að kæla okkur. Í dag er álíka heitt en við höfum legið í sólbaði heima á hóteli, svona til þess að hitta aðra mörlanda og sýna okkur og sjá aðra. Það gekk eftir.
Við erum búin að borða á einum venjulegum stað, pizzastað og  í gærkvöldi á indverskum veitingastað. Borðuðum "pompadom" með mangósósu og  lauk í forrétt.  Ég fékk mér kjúlla í körrí og Simmi minn, lamb vindaloo og svo fengum við okkur tvær tegundir af grjónum og einn grænmetisrétt að auki. Við erum enn svo södd að við erum að pæla í að borða ekki neitt í kvöld. Sjáum samt til með það.

Sit núna á svölunum mínum með hrikalega ljóta ústsýnið sem er samt töff. Sólin er enn að og verður til klukkan níu.

mánudagur, 12. september 2011

Göngutúr

Við smábátahöfnina
Í gær fórum við í svakalega langan göngutúr. Mágsi minn, Gunnar,  var búinn að segja okkur að það væri gaman að ganga að smábátahöfninni og það væri ekki svo mikið mál. Við ákváðum eftir hádegi að hvíla okkur á sólbaðinu, fórum í íþróttaskóna og lögðum af stað eftir strandgötunni í átt að smábátahöfninni. Það tók okkur einn og hálfan tíma að ná þangað og auðvitað sama tíma til baka. Við gengum samt rösklega eins og fólk í likamsrækt. Við vorum voða ánægð með okkur þegar við komum heim.
Á heimleið eftir langan göngutúr

Eftir hvíld og sturtu heima tókum við lyftuna upp á 7 hæð og gengum þaðan út í bæ. Fundum þennan líka fína pizzastað og þar með var kvöldmaturinn ákveðinn. Pizza og Rioja rauðvín. Vitum fátt betra. Hitinn gífurlegur en þannig viljum við hafa þetta.

sunnudagur, 11. september 2011

Að gleyma og gleyma

Þegar ég ætlaði að snyrta mig pínu í morgun, bera á mig dagkremið og svona, fann ég hvergi snyrtipunginn. Hann hlýtur að vera heima á baðherbergisborðinu. Sem betur fer keypti ég mér maskara og ilmvatn á Leifsstöð þannig að það verður látið nægja næstu daga sem bjútímeðferð.


<>           Lagstur í sólbað

Útsýnið af svölunum.
  Við fengum okkur morgunverð á hótelinu og svo var stefnan tekin á ströndina.  Við erum bæði stranda, sjó -og sandfólk. Þá uppgötvaðist að strandtaskan varð eftir heima. Við neyddumst til þess að festa kaup á einni, ofur hallærislegri, því hvernig kemst maður öðruvísi með handklæðin, sólarvörnina, bækurnar, peningabudduna og vatnsflöskuna með sér?
Við erum í þokkalegri íbúð en með hrikalega ljótt útsýni af svölunum.
Ég býst samt ekki við því að við höngum mikið inni.
Það er svo gaman úti.

laugardagur, 10. september 2011

Á Spáni


Fer í sólbað á morgun.
Þegar ég varð sextug fékk ég mína drauma uppfyllta. Mig langaði að halda upp á afmælið mitt á Ítalíu. Mig langaði að ganga á fjöll. Mig langaði að sýna Simma mínum fegurðina við Gardavatnið. Ég varð sextug 8. júní 2010 og var við Gardavatnið, gangandi á fjöll og Simmi minn var með mér.
Ógleymanleg ferð.
Hann, Simmi minn er alveg að verða sextugur. Hann langar bara að liggja í leti í sól og sandi. Ég get alveg gert það með honum eins og hann nennti að ganga á fjöll með mér, án þess að hafa snefil af áhuga á því. Ég hef, nefnilega, smá snefil af áhuga á því að  liggja í leti í sól og sandi.
Þess vegna erum við mætt á Costa del sol og ætlum að liggja í sandi og sleikja sól næstu 10 daga.
Spánn tók einstaklega vel á móti okkur í dag. Hér er 25 gráðum heitara en heima á Fróni.

Ströndin er æði.
 Við erum ákveðin í  að njóta þess í botn.

föstudagur, 9. september 2011

Ellilífeyriskelling


Á leið í vinnu. 41. árið að hefjast.
Ég er eiginlega enn að átta mig á því að vera komin á lífeyri og bara ráðin í 49% stöðu við skólann. Breytingin fellst aðallega í hve mikinn tíma hef ég núna fyrir sjálfa mig. Ég mæti bara þrjá daga til vinnu því ég þarf bara að skila 9 kennslustundum. Ég er hæst ánægð með þetta fyrirkomulag en hef samt nokkrar áhyggjur af því að lenda utanveltu í starfinu, þá meina ég að ég missi af einhverju, fylgist ekki nógu vel með og verði eins og álfur út úr hól. Ég verð að vera með augu og eyru galopinn þessa þrjá daga sem ég mæti. Ég hef skipulagt líkamsrækt út frá þessari breytingu í mínu lífi. Í stað þess að synda alla virka morgna fyrir vinnu þá skokka ég núna mánudaga og föstudaga og fer eftir það í stutta sundferð en syndi hina dagana mína 1000 metra fyrir vinnu. Mér finnst ég vera lukkunar pamfíll. Heppin að lenda á 95 ára reglunni.

sunnudagur, 14. ágúst 2011

Hlauptu, kona hlauptu


5 kílómetrar að baki


Ég er enn í sæluskýi eftir 5 kílómetra hlaupið í gær og um leið ákaflega stolt af henni dóttur minni. Það er allt henni að þakka að ég dreif mig í að prófa hvort ég gæti hlaupið svona langa vegalengd. Hún bauð fésbókarvinum að hlaupa með sér í lokatakmarkinu á hlaupaprógrammi sem hún hefur verið í undanfarnar vikur. Ég hafði sem sagt örfáa daga til að þjálfa mig upp. Á fimmtudag fór ég 5 kílómetra innan þorps en hljóp og gekk til skiptis. Þannig að ég vissi ekki hvort ég gæti þetta.
Við fórum með Sólbrekku upp í Reykholt á föstdag og byrjuðum á því að mæla 2,5 kílómetra frá tjaldstæðinu og upp á veg í átt að Geysi. Þar settum við á okkur merki, aðeins lengra en afleggjarinn að bænum Felli. Ég var bæði kvíðin og rosa spennt fyrir þessu. Undirbjó mig vel með hvíld og hollum mat og sleppti auðvitað öllu rauðvínssulli. Fór ekki með vinunum á pöbbinn um kvöldið heldur skreið í rúmið með bók.
Vaknaði klukkan korter fyrir átta og smessaði á Svövu Rán að ég væri í startholunum og fór svo af stað. Simmi fór með mér en hætti fljótlega að skokka og gekk alla leiðina. Honum er illt í hnénu. Mér leið ótrúlega vel á leiðinni. Hugsaði aldrei um að hætta að skokka, ekki einu sinni þegar kom að brekku. Þegar ég fór niður brekku lengdi ég skrefin alveg ósjálfrátt.
Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin augum þegar ég koma að skiltinu að Felli, sneri þar við og þá var ég laus við vindinn sem var á móti mér áður. Brekkan sem var létt áður var nú upp í móti og ansi erfið. Ég hægði á mér og tautaði í sífellu: Við getum þetta Svava Rán, við getum þetta.
Og við gátum þetta. Ég skokkaði alveg heim að dyrum á Sólbrekku, náði í myndavélina og gekk á móti Simma til að taka myndir af honum.
Ég er svo ánægð með árangurinn að ég ræð mér varla fyrir gleði.
Ekki skemmdi svo fyrir að loksins sá ég nýja tölu á vigtinni. Hinn langþráði draumur að fara niður fyrir 70 kíló rættist.

laugardagur, 13. ágúst 2011

Ég setti persónulegt met í dag og hljóp 5 kílómetra í einu.

fimmtudagur, 11. ágúst 2011


Hvíldardagur
Ég þorði ekki að skokka í dag. Ég fann að ég reyndi talsvert á mig í gær enda hef ég heyrt talað um að það eigi að hvíla öðru hverju. Ég tók bara stuttan hjólatúr með Simma mínum og Nönnu ömmustelpu.
Nanna er búin að vera hjá okkur síðan á mánudagsmorgun. Hún er á glerlistanámskeiði hjá Dagnýju í Hendur í Höfn. Hún tók líka eina viku í fyrra þannig að stelpan er komin í framhaldsnámskeið. Hún vill ekkert fara út á kvöldin þó það sé spurt eftir henni. Hún vill bara sitja hjá gamla settinu sínu spjalla, horfa á sjónvarpið og prjóna. Já, sú stutta fitjaði uppá peysu á mánudagskvöld og er langt komin með hana. Gróft garn en það er sama. Hún er ótrúlega iðin. Finnst reyndar ekki eins gaman að prjóna ermarnar og bolinn.
Hulda langamma er afar stolt af stelpunni. Hún er alveg bit á barnabörnin sín hvað þau eru löt við hannyrðir. Hún vill meina að ein kynslóð hafi dottið út.
Nanna bjargar sinni kynslóð.
Dugleg stelpa.

miðvikudagur, 10. ágúst 2011

Þjálfun í algleymingi
Hlaupaþjálfunin mín gengur bara ótrúlega vel. Í gær fór ég hringinn minn, ýmist gangandi eða skokkandi en í dag keyrðum við, Simmi minn, fimm kílómetra í átt að Selvoginum, sem sagt á hinum nýja Suðurstrandavegi. Þar fór ég út úr bílnum og byrjaði strax að skokka. Simmi keyrði á eftir mér og náði ég að skokka samfellt þrjá og hálfan kílómetra, ganga hálfan, skokka hálfan og ganga hálfan. Veðrið var alveg frábært og fjallahringurinn fagur á að líta. Ég sá, í upphafi hlaups, út á sjó þar sem Keflavíkin er. Það er svo skrítið að þó ég sé bara fimm kílómetra frá þorpinu sjást engin ummerki um það. Engin hús og engin mannvirki. Þorpið hverfur ofan í lægð. Fyrsta merki mannabygðar var Dólósinn sem er á miðri umferðareyjunni fyrir utan þorpið.
Ég er alsæl með sjálfa mig því ég hafði ekki hugmynd um að ég gæti þetta.
Hvað ég geri á morgun, kemur í ljós.

mánudagur, 8. ágúst 2011

Hlaupakelling
Ég hef ekki mikið leikið mér við íþróttagyðjuna í sumar. Ekki stundað neina hreyfingu reglulega. Hef samt gengið á tvö fjöll, Skálafellið og Miðfellið í Hrunamannahreppi. Það er reyndar lítið en við, félagarnir, gengum yfir það.Svo hef ég synt nokkrar ferðir í ýmsum sundlaugum, hist og her á landinu og rölt á barinn ef svoleiðis lagað er þar sem ég hef komið Sólbrekku fyrir.
Ég hélt ég væri búin að tapa niður öllu þoli og er þess vegna að springa úr monti því ég skellti mér út áðan og hljóp sama hringinn og ég hljóp fyrir mörgum mánuðum síðan. Hann er rúmlega þrír kílómetrar. Ég geng í fimm mínútur, hratt, og skokka svo í 20 mínútur.
Ég varð að fara út í dag og gá hvað ég gæti því ég ætla að taka þátt í hlaupinu hennar dótlu minnar á laugardagsmorgunin. Ég vildi nú helst hlaupa við hliðina á henni en það verður ekki að þessu sinni svo ég hleyp hérna í Þolló með henni í anda. Hún ætlar að hlaupa fimm kílómetra sem lokatakmark í hlaupaprógrammi sem hún hefur verið í en ég býst við að ég gangi og hlaupi til skiptis. Nema ég nái að þjálfa mig upp í fimm. Ég hef fjóra daga. En það er nú eins og að læra fyrir próf nóttina fyrir prófdag. Það hefði aldrei gengið hjá mér.
Djöfull, sem ég er nú samt ánægð með sjálfa mig.

þriðjudagur, 12. júlí 2011


Akureyri
Mér finnst ómögulegt annað en að koma til Akureyrar a.m.k. einu sinni á sumri. Ég er sem sagt á Akureyri núna. Komum hingað í gær, í bongó blíðu. með Sólbrekku í eftirdragi. Að vera á tjaldsvæðinu á Þórunnarstræti er toppurinn. Það er svo fallegt hérna og alltaf jafn gaman að labba niður í bæ og skoða mannlífið. Við fórum á Bautann í gærkvöld og fengum okkur pizzu, það tilheyrir líka. Röltum svo um og komum við á Götubarnum, samt bara mánudagur. En við erum í fríi. Það er ekki alveg eins mikil sól núna og í gær en það hlýtur að lagast.
Ég er alltaf í smá pílagrímaferð þegar ég kem á Akureyri. Það rifjast alltaf upp fyrir mér þegar ég missti fóstur hérna, einmitt á tjaldsvæðinu. 26. júlí 1973, komin þrjá mánuði á leið. Við vorum hér í litla bláa topptjaldinu okkar með Kalla eins og hálfs árs. Ég var lögð inn á sjúkrahúsið í útskröpun og þeir feðgar keyrðu tveir heim. Ég var inni í nokkra daga og flaug svo heim. Atburður sem ekki gleymist.
Ég hef sest inn í kirkjuna og beðið fyrir litla barninu mínu. Ég hef líka farið í messu í kapellu í kjallarunum. Éf ég kemst ekki inn í kirkjuna bið ég fyrir barninu á kirkjutröppunum.
Einhvern veginn tengist kirkjan litla barninu, sem mér finnst að hafi verið stelpa og ég á líka nafn handa henni.

fimmtudagur, 7. júlí 2011

Í útilegu
Eins og oft hefur komið fram þá líður okkur, Simma mínum, ótrúlega vel í Sólbrekku, alveg sama hvar við plöntum henni. Við náum einhvern veginn þægilegri slökun og finnst bara fínt að gera ekki neitt. Um hádegisbil í dag drógum við Sólbrekku upp að Flúðum, á Laufskálaflötina, sem við erum farin að kalla okkar, og settum okkur þar niður.
Ég ætlaði að liggja í sólbaði en einhver óboðinn vindur birtist óforvarandis svo sólbað var ekki lengur í boði. Ég hef samt haft nóg fyrir stafni, sem áhorfandi. Hér er verið að heyja og það er ögn öðruvísi en þegar ég var í sveit fyrir hálfri öld. Nú eru notaðar stórtækar vinnuvélar en það er svo gaman að horfa á vélarnar vinna. Þær raka saman heyið og taka það svo upp í rúlluvél og sem síðan er bundið inn í plast. Ótrúlegt. Nú þurfa bændur ekki lengur að eiga hlöður hvað þá súrheysturna.
Ég hef einnig fylgst með Simma mínum aðstoða Víkinginn við ýmsa hluti, eins og að flytja tré, sem var sjálfsáð, á betri stað, festa niður staur sem gegnir hlutverki spröngu, eins og í Eyjum, lagfæra þakið á andakofanum, sækja hellur sem lagðar voru kringum nýja flotta andapollinn og sitthvað fleira.
Já, það er nóg að gera í sveitinni.

föstudagur, 1. júlí 2011

Vigtunardagur.
Það er búið að taka mig fimm vikur að ná af mér tveimur kílóum. Mér finnst það bara fínt. Það er hrikalega spennandi að sjá vigtina síga þó það sé svona hægt og rólega vegna þess að það sem ég geri til að léttast er ekkert mál. Bara borða hollt og gott og sleppi að borða óhollt. Það er allt og sumt. Ekkert mál, bara hugsa áður en troðið er í gúllann.
Það er betra að vera 70,5 kg heldur en 76,5 kg.
Nú styttist í að ég sjái nýjan tug.
Vá, hvað ég hlakka til að verða 60 og eitthvað. Þó það sé 69 komma eitthvað.