 |
| Í jólaskapi |
Það er ósköp gott að hanga inni á náttsloppnum þegar úti geisar vetrarveður. Annar í jólum með góða bók og kósíheit. Er að lesa Jójó eftir Steinunni Sigurðardóttur. Hún lofar góðu. Ég les hana hægt til að njóta hverrar setningar. Það er ekki hægt að lesa svona bók eins og krimma þar sem spennan gerir það að verkum að maður þeysist yfir blaðsíðurnar til að finna út hver er morðinginn. Svona bók er allt öðruvísi. Simmi er að lesa Hjarta mannsins eftir Jón Kalmann. Ég hlakka til að fá hana í hendurnar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli