 |
| Eftir skötuát í Rauða húsinu |
Við, Simmi minn, höfum vanist því að vera ein á jólunum. Höfum verið ein í nokkur ár. Rólegheitin ríkja í kotinu. Við unum okkur við lestur og spjall og útvarpshlustun og sjónvarpsgláp. Á Þorláksmessu borðum við að sjálfsögðu skötu og höfum gert það að sið að fara með Öldu og Valda í Rauða húsið á Eyrarbakka til að gæða okkur á þeim guðdómlega mat. Skatan hjá Pétri klikkaði ekki frekar en venjulega.
 |
| Maturinn kominn á borð |
Jólamaturinn okkar er Hamborgarhryggur eins og mörg undanfarin ár. Við höldum að á fyrstu jólunum okkar saman hafi verið lambakótelttur í matinn. Við erum að pæla í að endurvekja þann sið. Það er svo erfitt að borða Hamborgarhrygg einn daginn og hangikjöt þann næsta. En það er nú ýmislegt öðruvísi nú en áður. Ég bakaði ekki fulla stampa af smákökum eins og alltaf. Við höfðum ekki jólagraut í gær eins og alltaf. Fengum okkar smá slettu af heimatilbúna jólaísnum í eftirrétt. Sem sagt engin möndlugjöf. Og ekki nóg með það, við elduðum hangikjötsrúllu en höfum ekki lyst á að borða það núna. Höfum samt alltaf gert það. Það sem breytist ekki er meðlætið með hryggnum þ.e.rósakálið og bleika ógeðið. Jóladagskaffið hjá mömmu og pabba er fastur liður í jólahaldi. Við áttum mjög ljúfa stund hjá þeim í dag en ég sakna barnanna minna og barnabarna hvað mest þar því systur mínar hafa sína afkomendur með í boðinu. Samt ekki alveg alla. Þannig er það nú bara. Kalli kemur nú reyndar oftast en veðrið setti strik í reikninginn í dag. Ég kvarta samt ekki. Svava Rán og Lúkas voru hjá okkur í heila viku fyrir jól. Það var náttúrlega alveg æðislega gaman.
 |
| Bara gaman á jólunum |
1 ummæli:
Þið eruð nú meiri krúttbomsurnar.
Skrifa ummæli