Maður fer varla úr partýgallanum um þessar mundir svo mikið er að gera í skemmtanalífinu. Um síðustu helgi hittust systur hans Simma míns og buður okkur Jónu með og dætrum og tengdadætrum. Við hittumst heima hjá Dóru Sif og borðuðum svo á Tapashúsinu. Ég hafði mína tendgadóttir með en ekki dótlu þar sem hún átti ekki heimangengt. Þetta var alveg rosalega skemmtilegt kvöld þó svo að það vantaði nokkrar stelpur. Við enduðum svo á karíókí á Obbladí og þar tók Elsa mín lagið og gerði það með stæl.
Á laugardagskvöldið stóðum við Simmi minn upp úr leisíboj klukkan hálftólf og löbbuðum á hverfispöbbinn, Happy hour, því þar var Rúnar að spila og syngja. Það var auðvitað mjög gaman. Ég hef ekki áður séð Rúnar á alvörupöbb að spila og það var gaman að sjá og heyra hvað hann gerir þetta vel. Við tókum meira að segja einn snúning áður en við töltum heim.
Á föstudag var starfsmannadagur Ölfuss sem er alltaf mjög áhugavert að taka þátt í. Fyrirlesarinn að þessu sinni er sálfræðingur sem talaði um öfluga liðsheild. Hann kom inn á marga góða punkta sem hreyfði við manni. Eftir fyrirlesturinn var boðið upp á snittur og vín svo ég kom heim pínu full.
Í gær stóðum við hjónakornin aftur upp úr leisíboj og núna til að fara á Eyjakvöld í Ráðhúskaffi sem er hinn hverfispöbbinn okkar. Þetta var nokkurs konar söngtónleikar, rosalega skemmtileg hugmynd. Hljómsveitin Obbosí úr Eyjum spilaði Eyjalögin og varpaði textum á vegg svo allir gætu sungið með og það var sko gert. Rokna stuð og stemming.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli