Fór út að hlaupa um hádegisbil, þrátt fyrir að hafa setið sviðaveislu í gærkvöldi og drukkið ómælt rauðvín. Ég bað, Simma minn, að koma á bílnum á eftir mér. Lagði til að hann legði af stað hálftíma eftir að ég færi að heiman. Ég setti stefnuna út í Selvog, á nýja Suðurstrandaveginum og fann strax að þetta var kolvitlaus ákvörðun hjá mér því það var hávaðarok beint í fangið á mér. Mér finnst vont að hlaupa á móti vindi en hélt samt áfram. Vildi athuga hvað ég gæti. Þegar Simmi minn kom á bílnum var ég búin að hlaupa eða skokka í 35-40 mínútur og var bara búin að leggja að baki 4,5 km. Afsökunin er sviðaátið, rauðvínsdrykkjan og rokið.
Er samt bara nokkuð stolt af sjálfri mér, alla vega fyrir það að fara út i dag og gera eitthvað smá.
 |
| Hljóp næstum því út í Krísuvík. |
Smá hlaup er betra en ekkert hlaup.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli