Síður

mánudagur, 12. september 2011

Göngutúr

Við smábátahöfnina
Í gær fórum við í svakalega langan göngutúr. Mágsi minn, Gunnar,  var búinn að segja okkur að það væri gaman að ganga að smábátahöfninni og það væri ekki svo mikið mál. Við ákváðum eftir hádegi að hvíla okkur á sólbaðinu, fórum í íþróttaskóna og lögðum af stað eftir strandgötunni í átt að smábátahöfninni. Það tók okkur einn og hálfan tíma að ná þangað og auðvitað sama tíma til baka. Við gengum samt rösklega eins og fólk í likamsrækt. Við vorum voða ánægð með okkur þegar við komum heim.
Á heimleið eftir langan göngutúr

Eftir hvíld og sturtu heima tókum við lyftuna upp á 7 hæð og gengum þaðan út í bæ. Fundum þennan líka fína pizzastað og þar með var kvöldmaturinn ákveðinn. Pizza og Rioja rauðvín. Vitum fátt betra. Hitinn gífurlegur en þannig viljum við hafa þetta.

2 ummæli:

murta sagði...

Mikið rosalega sem þið hafið það gott. Þegar ég er orðin stór þá ætla ég að kaupa handa ykkur hús á Spáni. Þá getið þið bara verið þar og ég komið í heimsókn alltaf þegar ég vil.

Guðrún sagði...

Það er ekki annað hægt en að "læka" á þetta komment!!!!!!!