Í útilegu
Eins og oft hefur komið fram þá líður okkur, Simma mínum, ótrúlega vel í Sólbrekku, alveg sama hvar við plöntum henni. Við náum einhvern veginn þægilegri slökun og finnst bara fínt að gera ekki neitt. Um hádegisbil í dag drógum við Sólbrekku upp að Flúðum, á Laufskálaflötina, sem við erum farin að kalla okkar, og settum okkur þar niður.
Ég ætlaði að liggja í sólbaði en einhver óboðinn vindur birtist óforvarandis svo sólbað var ekki lengur í boði. Ég hef samt haft nóg fyrir stafni, sem áhorfandi. Hér er verið að heyja og það er ögn öðruvísi en þegar ég var í sveit fyrir hálfri öld. Nú eru notaðar stórtækar vinnuvélar en það er svo gaman að horfa á vélarnar vinna. Þær raka saman heyið og taka það svo upp í rúlluvél og sem síðan er bundið inn í plast. Ótrúlegt. Nú þurfa bændur ekki lengur að eiga hlöður hvað þá súrheysturna.
Ég hef einnig fylgst með Simma mínum aðstoða Víkinginn við ýmsa hluti, eins og að flytja tré, sem var sjálfsáð, á betri stað, festa niður staur sem gegnir hlutverki spröngu, eins og í Eyjum, lagfæra þakið á andakofanum, sækja hellur sem lagðar voru kringum nýja flotta andapollinn og sitthvað fleira.
Já, það er nóg að gera í sveitinni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli