| Aðventukransinn minn |
Ég hef líka alltaf bakað heilmikið fyrir jól en hent kökunum úr stömpunum í desember að ári svo nýju kökurnar fái pláss. Ég tók þá ákvörðun núna að baka ekki neitt. Ég bakaði nú samt í gær eina smákökusort en það var allt fyrir Nönnu ömmustelpu. Hún bakaði kökur í skólanum sem henni fannst svo góðar en fékk ekki að fara með þær heim af því það á að borða þær á litlu jólunum í skólanum. Hún var það klók að skrifa niður uppskriftina og mundi hana það vel að við gátum skellt okkur í að baka. Í ljós kom að þetta voru rúsínukökurnar sem mamma bakaði alltaf fyrir jólin í den og voru mitt uppáhald nema hvað rúsínum hafði verið skipt út fyrir súkkulaði. Ég bakaði líka eina skúffuköku fyrir hann Simma minn. Hann er allt í einu eitthvað voða spenntur fyrir því að eiga brúnköku sem hann getur nælt sér í öðru hverju með mjólkurglasi. Mér finnst gaman að baka og mun að sjálfsögðu verða við þessari ósk. En fullir stampar af smákökum verða ekki í skápunum um þessi jól.
Það gæti nú samt dottið í mig að baka smá fyrir mömmu.
Tvær þrjár smákökusortir.
Jafnvel lagtertu.
2 ummæli:
Ég myndi örugglega fá mér eina sneið af pissuköku :)
Mín er ánægjan. Ég var einmitt að vona að einhver bæði um eitthvað en ekki ég að troða kökum í fólkið mitt. Það er líka gaman að vera beðin um að halda í gamla hefð eins og "pissukakan" er mjög líklega.
Skrifa ummæli