 |
| Allar þrjár komnar í pækilinn. |
 |
| Hreykinn með rúllupylsuna sína. |
Hann, Simmi minn, er algjör "matarkall." Honum líður ekki vel nema allar hirslur séu fullar af mat. Mér finnst nóg að vita af búðinni hérna hinum megin við götuna. Honum áskotnaðist eitthvað af lambakjöti á dögunum og dúllar núna við það á einn og annan hátt. Nú er hann búinn að búa til þrjár rúllupylsur. Þær líta rosalega vel út. Núna breytti hann aðeins út af. Í stað þess að sauma pylsurnar saman með þar til gerðum nálum og rúllupylsugarni, þá varð hann sér úti um net og tróð vefjunum þar inn í með minni hjálp. Kvöldið áður var hann búinn að gera saltpækil eftir uppskrift úr aðaluppskriftabókinni, Helgu Sigurðar. Hann lét samt engan sykur í pækilinn eins og Helga leggur til en notaði saltpétur, þrátt fyrir vitneskju um óhollustu.
 |
| Vel af lauk og allrahanda. |
Hann saltaði líka í fötu tvo framparta sem hann kubbaði sjálfur niður því það er ekki búið að saga kjötið niður í bita enn. Það er bara grófskorið, Gerði eins og pabbi hans kenndi honum fyrir mörgum árum. Velti hverjum bita upp úr grófu salti og lagði í fötuna og smá saltpétur á milli laga.
Nú tekur við biðtími.
Spennandi biðtími.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli