| Í jólaskapi |
mánudagur, 26. desember 2011
Annar í jólum
sunnudagur, 25. desember 2011
Jólin 2011
| Eftir skötuát í Rauða húsinu |
| Maturinn kominn á borð |
Jólamaturinn okkar er Hamborgarhryggur eins og mörg undanfarin ár. Við höldum að á fyrstu jólunum okkar saman hafi verið lambakótelttur í matinn. Við erum að pæla í að endurvekja þann sið. Það er svo erfitt að borða Hamborgarhrygg einn daginn og hangikjöt þann næsta. En það er nú ýmislegt öðruvísi nú en áður. Ég bakaði ekki fulla stampa af smákökum eins og alltaf. Við höfðum ekki jólagraut í gær eins og alltaf. Fengum okkar smá slettu af heimatilbúna jólaísnum í eftirrétt. Sem sagt engin möndlugjöf. Og ekki nóg með það, við elduðum hangikjötsrúllu en höfum ekki lyst á að borða það núna. Höfum samt alltaf gert það. Það sem breytist ekki er meðlætið með hryggnum þ.e.rósakálið og bleika ógeðið. Jóladagskaffið hjá mömmu og pabba er fastur liður í jólahaldi. Við áttum mjög ljúfa stund hjá þeim í dag en ég sakna barnanna minna og barnabarna hvað mest þar því systur mínar hafa sína afkomendur með í boðinu. Samt ekki alveg alla. Þannig er það nú bara. Kalli kemur nú reyndar oftast en veðrið setti strik í reikninginn í dag. Ég kvarta samt ekki. Svava Rán og Lúkas voru hjá okkur í heila viku fyrir jól. Það var náttúrlega alveg æðislega gaman.
| Bara gaman á jólunum |
þriðjudagur, 6. desember 2011
Bara
| Allar götur fullar af snjó |
Ég verð líklega að drífa mig í sund líka þá daga sem ég er bara heima. Ég hef allavega nægan tíma til þess. Í morgun var sundlaugarvatniðreyndar svo kalt að ég var ekki búin að ná upp hita í skrokkinn eftir 30 ferðir svo ég gafst upp og fór í heita pottinn.
En það er bara næs að hanga í heita pottinum. Það gerir gamla kroppi bara gott.
Það lítur út fyrir að íslenska orðið bara sé í uppáhaldi hjá mér.
mánudagur, 28. nóvember 2011
Minningarorð
![]() |
| Ásta og Simmi sumarið 2004 |
Það líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um Ástu
mágkonu. Ég sakna hennar svo mikið og
átti eftir að gera svo margt með henni. Hún dó, aðeins 65 ára gömul 23. júlí
s.l og var jarðsungin frá Hallgrímskirkju þann 5. ágúst. Hún var jarðsett í Þorlákshöfn, rétt hjá
mömmu sinni.
Ég man fyrst eftir Ástu sem ungri stúlku í Þorlákshöfn, úti að
ganga með Baldvin kaupfélagsstjóra. Mér fannst það mjög rómantískt. Hún hefur
líklega verið skiptinemi í Ameríku
fyrsta sumarið mitt í Þorlákshöfn, svo göngutúrar með Baldvin hafa verið
sumarið 1965 eða 1966.
Það var svo 1969 sem ég fer að koma á heimili foreldra
hennar sem kærasta Simma en þá er Ásta farin að búa með Jonna og Hrefna litla fædd.
Það var alltaf svo gaman að koma til þeirra í heimsókn enda vel tekið á móti
okkur. Margar góðar minningar á ég um
Ástu og Jonna, Dóru Sif og Hrefnu.
Fyrsta sólarlandaferðin var farin með
þeim á Costa del sol. Mér fannst þau svo sigld og klár og flott og fín
enda bjuggu þau í Noregi um tíma þar sem þau stunduðu bæði nám. Ásta var búin
með hjúkrunarskólann og bætti við sig heilsuverndarhjúkrun sem hún vann svo við
í Reykjavík í mörg ár. Þegar þau fluttu
svo seinna til Gautaborgar í Svíþjóð, í frekara nám, fylgdum við Simmi þeim út
og gerðum úr þessu frábæra skemmtiferð með viðkomu í Kaupmannahöfn. Þar kynnti Jonni
fyrir okkur þeim ágæta mat pizza og hann fór með okkur á jazzbúllu. Upplifun fyrir okkur Simma.
Ásta var mikil smekkmanneskja, hvort sem það var klæðnaður
eða híbýlaprýði. Hún var alltaf svo vel klædd og kunni að velja sér fatnað sem kælddi hana. Hárið alltaf fínt og
stíllinn allur elegant. Hún var lágvaxin en var samt svo stór, hnarreist og
spengileg.
Það var sama hvar hún bjó sér heimili, það var alltaf
fallegt. Hún vildi hafa fallega hluti í kringum sig og kunni að velja saman það
sem passaði. Allt frá húsgögnum, myndum
á veggjum og niður í smæstu hluti sem hún skreytti heimilið með var á réttum
stað og féll saman.
Hún unni góðri, sígildri tónlist og var dugleg að sækja
menningarviðburði, leikhús og tónleika.
Ekkert var eins gaman og þegar hún bauð okkur Simma í mat.
Matarboðin hennar voru svo glæsileg. Nostrað við hvert smáatriði, hvort sem það
var matseldin sjálf , hvernig maturinn var framreiddur eða hvernig lagt var á
borð. Það skipti hana miklu máli að hafa
allt fallega borið fram. Fyrir utan hvað
hún kunni vel að leggja á borð var hún frábær kokkur. Það var alltaf eitthvað
spennandi í pottunum hennar. Einu sinni
þegar hún bjó á Seyðisfirði, með Ingimundi, hafði hún mikið fyrir því að ná í
hreindýrakjöt, því hún vildi allt það besta fyrir Simma bróður. Hún varð því
frekar sár þegar hún komst að hvers konar gikkur hann er því hann vill helst
ekki prófa neitt nýtt.
Ásta var mikil heimsmanneskja. Hún hafði komið til margra landa
og hafði mjög gaman af að ferðast. Hún kom oft til Rómar eftir að Hrefna flutti
þangað enda fylgdist hún vel með barnabörnunum þremur og reyndist þeim afar góð
amma. Hún fylgdist líka vel með börnum systkina sinna og var dugleg að spyrja
um þau öll. Síðasta utanlandsferið hennar var til þess að ljúka við
Jakobsveginn. Hún gekk hann, ásamt vinkonum sínum, í þremur áföngum. Hún lagði
ríka áherslu á að klára seinasta hlutann í vor. Hún var orðin veik þegar hún
gekk en krafturinn svo mikill að það var ekki annað viðkomandi en að ljúka við
verkið.
Ásta fékk sýkingu í lungun sem leiddi hana til dauða. Mig
grunaði ekki, þegar við hittumst 17.júní í Reykjavík og fengum okkur að borða á
veitingahúsi, að það yrði síðasta máltíðin okkar saman.
Lífið getur verið hræðilega óréttlátt. Ásta átti eftir að
gera svo margt.
Jólaundirbúningur.
| Aðventukransinn minn |
Ég hef líka alltaf bakað heilmikið fyrir jól en hent kökunum úr stömpunum í desember að ári svo nýju kökurnar fái pláss. Ég tók þá ákvörðun núna að baka ekki neitt. Ég bakaði nú samt í gær eina smákökusort en það var allt fyrir Nönnu ömmustelpu. Hún bakaði kökur í skólanum sem henni fannst svo góðar en fékk ekki að fara með þær heim af því það á að borða þær á litlu jólunum í skólanum. Hún var það klók að skrifa niður uppskriftina og mundi hana það vel að við gátum skellt okkur í að baka. Í ljós kom að þetta voru rúsínukökurnar sem mamma bakaði alltaf fyrir jólin í den og voru mitt uppáhald nema hvað rúsínum hafði verið skipt út fyrir súkkulaði. Ég bakaði líka eina skúffuköku fyrir hann Simma minn. Hann er allt í einu eitthvað voða spenntur fyrir því að eiga brúnköku sem hann getur nælt sér í öðru hverju með mjólkurglasi. Mér finnst gaman að baka og mun að sjálfsögðu verða við þessari ósk. En fullir stampar af smákökum verða ekki í skápunum um þessi jól.
Það gæti nú samt dottið í mig að baka smá fyrir mömmu.
Tvær þrjár smákökusortir.
Jafnvel lagtertu.
sunnudagur, 20. nóvember 2011
Ljósatré
Við, Simmi minn, notuðum góða veðrið um síðustu helgi og hengdum þrjár ljósaseríur í öspina í garðinum. Ekki tókst betur til en svo að ljósin vildu hrúgast einhvern veginn öll á sama stað þannig að ég var ekki nógu ánægð með útkomuna. Við fórum þess vegna í höfuðhreppinn í gær og keyptum tvær alveg eins seríur í viðbót en þær eru þannig að það er hægt að bæta endalaust við.
Þessar tvær voru settar upp í gær svo núna eru 500 ljós á trénu en samt væri hægt að bæta 500 í viðbót. Það er nóg pláss ennþá.
Þetta verður látið duga í ár.
Ljósatré eða perutré eins og Dillí á Reyðarfirði kallaði það.
Jólaljósaperutré.
| Tréð er ekki á hið í garðinum en vill vera svona hér. |
Þetta verður látið duga í ár.
Ljósatré eða perutré eins og Dillí á Reyðarfirði kallaði það.
Jólaljósaperutré.
laugardagur, 19. nóvember 2011
Leikhúsferð
Ég er svo heppin að hafa minn eigin leikhúsferðstjóra. Ef ég hefði hann ekki færi sjálfsagt eignilega aldrei í leikhús. Svilkona mín fylgist miklu betur en ég með því sem er að gerast í leikhúsum borgarinnar og sendir mér öðru hverju símaskilaboð, tðlvupóst eða skillaboð á fésbók um að hún hafi pantað miða, þennan dag á þetta leikverk. Ég tek daginn frá og svo förum við að sjá eitthvað spennandi. Í gær var það Hjónabandssæla í Gamla bíói, með þeim Eddu Björgvins og Ladda í aðalhlutverkum. Þau eru tvö allan tímann á sviðinu og skila hlutverkum sínum auðvitað alveg frábærlega. Þau leika miðaldra hjón, sem eru komin í helgardvöl á hóteltil þess að finna ástarneistann aftur. Maður kannaðist við ýmislegt sem fór á millum þeirra og hláturinn var ekki langt undan.
Frábært kvöld með góðum vinum
![]() |
| Hjón í krísu |
Frábært kvöld með góðum vinum
föstudagur, 18. nóvember 2011
Ánægð hlaupakelling
| Heldur betur ánægð eftir 3 km hlaup í Reykjavíkurmaraþoni |
Veðrið var eins og best verður á kosið í nóvember. Austan gola, þurrt og mátulega hlýtt.
Gott hlaupaveður.
fimmtudagur, 17. nóvember 2011
Skondnar uppákomur.
Hann er svo skondinn og skemmtilegur þessi heimur. Alltaf er hann að skreppa saman og ég hef alltaf jafn gaman af því þegar dæmi um það skjóta upp kollinum. Netið á nú aldeilis stóran þátt í því hvað heimurinn hefur minnkað.
Í fyrravetur langaði einn nemenda minn, af erlendu bergi brotinn, að fræðast um Gullfoss og Geysi. Ég sagði honum frá og lét hann svo "gúggla" Gullfoss og skoða myndir. Margar fínar myndir komu upp af Gullfossi en ein líka af Svövu Rán og Lúkasi við fossinn. Ég missti næstum andlitið af undrun en þá hafði ég sjálf sett þessa mynd á netið og texta við, þannig að hún spratt upp.
Í dag var annar nemandi minn, stelpa frá Tælandi, að vinna með texta og þurfti að fá útskýringu á hvað blómsveigur væri. Hún notaði líka Google translate og fór inn á myndir. Hún fékk upp ýmsar myndir af fólki að leggja blómsveiga á leiði eða styttur en ein myndin var af tengdadóttur minni. Ég athugaði af hverju hún kæmi upp og það var vegna þess að hún hefur lagt blómsveiga á leiði, bæði Jóns Sigurðssonar og Bríetar Bjarnhéðinsdóttur sem forseti borgarstjórnar.
Þetta var eiginlega alveg ótrúlegt í bæði skiptin.
Svona er heimurinn í dag.
| Frú forseti borgarstjórnar |
| Svava Rán og Láki við Gullfoss |
Í dag var annar nemandi minn, stelpa frá Tælandi, að vinna með texta og þurfti að fá útskýringu á hvað blómsveigur væri. Hún notaði líka Google translate og fór inn á myndir. Hún fékk upp ýmsar myndir af fólki að leggja blómsveiga á leiði eða styttur en ein myndin var af tengdadóttur minni. Ég athugaði af hverju hún kæmi upp og það var vegna þess að hún hefur lagt blómsveiga á leiði, bæði Jóns Sigurðssonar og Bríetar Bjarnhéðinsdóttur sem forseti borgarstjórnar.
Þetta var eiginlega alveg ótrúlegt í bæði skiptin.
Svona er heimurinn í dag.
miðvikudagur, 16. nóvember 2011
Af gömlum kennara
Það er komin allnokkur reynsla á þetta nýja líf mitt, þ.e. að vera bara hálfdagskerling eins og það var sagt um konur sem unnu bara hálfan daginn í Meitlinum í gamla daga. Ég er búin að vera hálfdagskerling síðan skóli hófst í haust. Ég hóf þá töku lífeyris og réð mig í 49% starf við skólann. Ég er svo heppinn að vera á 95% reglunni og ákvað að nýta mér þau réttindi sem það gefur. Þrátt fyrir að hlakka til að minnka svona við mig var ég líka kvíðin. Kvíðinn fólst aðallega í því að vera ekki með á nótunum, missa af einhverju sem verið er að gera í skólanum af því ég mæti bara þrjá daga í viku. Ég passa mig mjög vel á því að spyrja fólk um hitt og þetta og lesa viðburðadagatalið sem hangir á vegg. Þetta hefur gengið nokkuð vel. En það besta er að mér finnst þetta fyrirkomulag alveg dásamlegt. Ég mæti eingöngu í vinnu þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag og á þess vegna alltaf langa helgi.
Ja, nema þegar ég er beðin um að taka að mér forfallakennslu, sem kemur nokkuð oft fyrir.
Af því ég hef fulla starfsorku enn, þannig lagað, þá finnst mér bara fínt að kenna tíma og tíma í forföllum.
Ég gerði mér samt fulla grein fyrir því, fyrir mörgum árum, að ég sæi mig ekki fyrir mér að kenna 10. bekk íslensku eftir sextugt. Það einfaldlega gengi ekki upp. Bilið á milli kynslóða stækkar svo ört á vissu skeiði að það væri sama hvað ég reyndi að skilja ungmennin til að geta verið skemmtilegi, nútímalegi íslenskukennarinn, gæti ég það aldrei. Ég er svo heppin að hafa, fyrir tilviljun byrjað fyrir nokkrum árum að kenna íslensku sem annað mál og það er það sem gerir það að verkum að ég get þetta ennþá. Þegar ég var leyst undan því að vera umsjónarkennari léttist kennslan og öll vinnan til muna.
Þess vegna er ég svo þakklát forsjóninni fyrir að hafa hent mér í þessa, fáránlegu 95% reglu sem auðvitað gengur ekki upp til lengdar. Ég nýt hennar á meðan hægt er.
Ég varð alveg ferlega reið í dag þegar ég las á einhverjum fréttamiðli að Pétur Blöndal, alþingismaður,
íhugar að leggja það til að hækka lífeyrisaldurinn. Hann var með einhverjar röksemdir til að styðja mál sitt og klikkti út með það að kennarar gætu alveg kennt til 75 ára aldurs jafnvel til áttræðs ef þeir hefðu áhuga á því. Hann veit ekki, þessi maður, um hvað hann er að tala. Ég er rétt komin á sjötugsaldurinn og er afskaplega fegin að geta minnkað við mig.
Pétur heldur að ég geti þetta í 14 til 19 ár í viðbót. Ef þetta er dæmi um hugsunarhátt alþingismanna, fari þeir bara allir heim til sín.

sunnudagur, 13. nóvember 2011
Partýtími
Maður fer varla úr partýgallanum um þessar mundir svo mikið er að gera í skemmtanalífinu. Um síðustu helgi hittust systur hans Simma míns og buður okkur Jónu með og dætrum og tengdadætrum. Við hittumst heima hjá Dóru Sif og borðuðum svo á Tapashúsinu. Ég hafði mína tendgadóttir með en ekki dótlu þar sem hún átti ekki heimangengt. Þetta var alveg rosalega skemmtilegt kvöld þó svo að það vantaði nokkrar stelpur. Við enduðum svo á karíókí á Obbladí og þar tók Elsa mín lagið og gerði það með stæl.
Á laugardagskvöldið stóðum við Simmi minn upp úr leisíboj klukkan hálftólf og löbbuðum á hverfispöbbinn, Happy hour, því þar var Rúnar að spila og syngja. Það var auðvitað mjög gaman. Ég hef ekki áður séð Rúnar á alvörupöbb að spila og það var gaman að sjá og heyra hvað hann gerir þetta vel. Við tókum meira að segja einn snúning áður en við töltum heim.
Á föstudag var starfsmannadagur Ölfuss sem er alltaf mjög áhugavert að taka þátt í. Fyrirlesarinn að þessu sinni er sálfræðingur sem talaði um öfluga liðsheild. Hann kom inn á marga góða punkta sem hreyfði við manni. Eftir fyrirlesturinn var boðið upp á snittur og vín svo ég kom heim pínu full.
Í gær stóðum við hjónakornin aftur upp úr leisíboj og núna til að fara á Eyjakvöld í Ráðhúskaffi sem er hinn hverfispöbbinn okkar. Þetta var nokkurs konar söngtónleikar, rosalega skemmtileg hugmynd. Hljómsveitin Obbosí úr Eyjum spilaði Eyjalögin og varpaði textum á vegg svo allir gætu sungið með og það var sko gert. Rokna stuð og stemming.

laugardagur, 22. október 2011
Matarstúss að hausti
| Allar þrjár komnar í pækilinn. |
| Hreykinn með rúllupylsuna sína. |
| Vel af lauk og allrahanda. |
Nú tekur við biðtími.
Spennandi biðtími.
fimmtudagur, 20. október 2011
Selfossferð
Við, hjónakornin, skutumst á Selfoss seinnipartinn. Okkur vanhagaði um ýmsa hluti. Þessir hlutir tengjast flestallir því að Simmi minn vill helst alltaf elda, það sem sumir kalla "gamaldags mat."
Það vantaði gróft salt, saltpétur og teygjunet vegna þess að hann er með rúllupylsur í bígerð. Þetta fékkst allt saman.
Ég vildi fara í Intersport og kaupa nýja hlaupaskó, sem ég hafði séð auglýsta á tilboði en hann vildi fara í Júróprís, þar sem hann hélt að hann fengi eldunarhellu sem hægt væri að hafa úti í skúr svo hann geti soðið hrossabjúga og hrossakjöt og ýmislegt sem skilur sterka lykt eftir í húsinu. Þetta gekk eftir. Nú á hann þessa líka fínu spam hellu en ég verð enn um sinn að hlaupa í götóttum skóm.
Við keyptum líka hausljós, þannig að nú getum við hjólað í morgunsundið áhyggjulaus í myrkrinu en örugglega svolítið skondin. En það gerir nú ekkert til.

þriðjudagur, 18. október 2011
Lopaengill
| .....sem varð svona sætur engill eftir þæfingu. |
| Prjónaði þetta stykki eftir uppskrift... |
þriðjudagur, 11. október 2011
Í upphitun
Mér finnst enn dálítið skrýtið að fara út og skokka tuttugu mínútna upphitunarhlaup. Fyrir skömmu síðan hefði þetta bara verið hið ágætasta hlaup. Ég er svo heppin að akkúrat heiman frá mér er besti, skemmtilegasti hlaupahringurinn minn, sem endar á frjálsíþróttavellinum, tuttugu mínútna skokk hjá mér.
Ég var bara í rúðustrikuðum heimi í dag, með uppskriftina að æfingum á blaði, haldandi það að enginn kæmi út á frjálsíþróttavöllinn, þegar ég uppgötvaði í miðjum hnébeygjum að ég var ekki Palli, þessi sem var einn í heiminum. Par gekk röskum skrefum fram hjá mér þegar ég rétti úr mér eftir hnébeygjurnar. Ég bauð góðan daginn en ég heyrði ekki hvort mér var svarað á íslensku eða útlensku. Ég ákvað að láta ekki undan neinum hégómaskap, skellti mér á jörðina og tók magaæfingar eins og andskotinn.Enda öðlaðist ég visst frelsi við það að verða sextug og ég tala ekki um að verða sextíuogeins. Ég má allt.
Ég tók sem sagt með stæl fyrstu æfingu í þriðju viku hins frábæra hlaupaprógramms sem mér áskotnaðist á dögunum.
Það er ekki alltaf auðvelt.
En alltaf gaman.

sunnudagur, 9. október 2011
Smáhlaup á sunnudegi
Fór út að hlaupa um hádegisbil, þrátt fyrir að hafa setið sviðaveislu í gærkvöldi og drukkið ómælt rauðvín. Ég bað, Simma minn, að koma á bílnum á eftir mér. Lagði til að hann legði af stað hálftíma eftir að ég færi að heiman. Ég setti stefnuna út í Selvog, á nýja Suðurstrandaveginum og fann strax að þetta var kolvitlaus ákvörðun hjá mér því það var hávaðarok beint í fangið á mér. Mér finnst vont að hlaupa á móti vindi en hélt samt áfram. Vildi athuga hvað ég gæti. Þegar Simmi minn kom á bílnum var ég búin að hlaupa eða skokka í 35-40 mínútur og var bara búin að leggja að baki 4,5 km. Afsökunin er sviðaátið, rauðvínsdrykkjan og rokið.
Er samt bara nokkuð stolt af sjálfri mér, alla vega fyrir það að fara út i dag og gera eitthvað smá.
Smá hlaup er betra en ekkert hlaup.
Er samt bara nokkuð stolt af sjálfri mér, alla vega fyrir það að fara út i dag og gera eitthvað smá.
| Hljóp næstum því út í Krísuvík. |
föstudagur, 7. október 2011
200 grömm í gróða
| Stóra tá komin út úr á vinstri skó. |
Þetta er bara skemmtilegt.
Skemmtilegt að hlaupa.
Skemmtihlaup.
miðvikudagur, 5. október 2011
Tilraunaeldhús
| Karfi í raspi og karfi í sesamfræjum |
| Mangósósa og sósa úr pakka |
Í kvöld var tilraunaeldhús heima hjá mér. Okkur áskotnaðist karfi, sem hefur ekki verið á matseðlinum hingað til en ég verð alltaf spennt ef við prófum eitthvað nýtt. Ég gúglaði nokkrar uppskriftir og fann eftir það hvað hentaði okkur. Hann fékk sína bita velta upp úr raspi. Ég mína bita velta upp úr sesamfræjum. Hann bjó til sósu úr pakka en ég gerði mangósósu úr ab-mjólk, epli, gulrótum og mangó chutney. Hann bætti kartöflum við, ekki ég.
Við vorum bæði ánægð með árangurinn og pakksöddd.
þriðjudagur, 4. október 2011
Sumarsöknuður
| Kósíkvöld |
Við náðum að sofa 51 nótt í Sólbrekku í sumar. En það helgaðist nú af því að Simmi minn fékk óvenju langt sumarfrí þetta árið.
sunnudagur, 2. október 2011
Í roki og rigningu
| Komin heim, heldur betur ánægð. |
Ein bjartsýn.
föstudagur, 30. september 2011
300 gr í skuld
Ég stend í stað á vigtinni og er hæstánægð með það þó svo að þessi 300 gr sem eiga að fara af á viku hafi ekki farið núna þá veit ég að þau fara bara næst. Ég get hugsað um þau sem 300 gr í skuld og að ég verði að ná 600 gr af næstu viku en ég get líka dreift þeim á næstu vikur eins og hægt er að gera með VISA reikninginn.
Ég er svo ánægð með það að ég hef ekkert fyrir þessu. Þá á ég við að mér finnst ég ekki láta neitt á móti mér eins og var í megrunarkúrunum hér áður fyrr. Ég borða allt það sem mig langar í en skríð svona hægt og rólega niður á við samt. Ég hef tekið ýmislegt út af matseðlinum mínum en ég hugsa ekki um þær matartegundir með söknuði heldur er svo hreykin af sjálfri mér fyrir að velja hollan mat í staðinn.
Ég skynjaði þessa hugsun mjög sterkt í morgun þegar ég kom upp í skóla. Þar var verið að leggja á borð afganga frá 10. bekkjar kaffsölunni í gær og það hvarflaði ekki að mér að fá mér bita af neinni köku eða tertu. Ég var nýbúin að borða hafragrautinn minn og það sem var þarna á boðstólum er ekki með á mínum matseðli og þá nær það ekki lengra. Ég var ekki á hnefanum, ég var ekki slefandi yfir gúmmulaðinu. Þessi tegund matar rúmast bara svo illa á matseðlinum mínum.
Ég var spurð að því hvort ég ætlaði ekki að fá mér á disk. Ekki vil ég vera með einhverjar yfirlýsingar eða almenn leiðindi en var svo heppin í þetta skipti að hafa nýétinn hafragrautinn sem afsökun.

fimmtudagur, 29. september 2011
Enn af hlaupum
Þegar ég bjó fyrir austan fór ég að skokka. Skokkaði þar í tæp tvö ár. Það var svo fínt að skokka þar, út úr bænum, sama í hvora áttina var og heim aftur. Ef það var rok lét ég Simma minn skutla mér í þá áttina að ég hefði rokið í rassinn. Ég hljóp aldrei meira en 3-3.5 km þar. Ég veit ekki af hverju ég festist í þeirri vegalengd. En ég fann vellíðunina eftir hverja ferð og fannst þetta æðislegt. Þegar ég flutti að austan breyttust aðstæður og hlaupn lögðust af.
Það var svo í fyrra að ég fór að prófa hvort ég gæti þetta. Tólf árum síðar og ég komin á sjötugsaldur.
Ég varð sjálf steinhissa á því hvað mér reyndist þetta, þannig lagað, auðvelt. Ég gat með góðu móti skokkað 3 km.
Það var svo í ágúst að ég hljóp fyrst 5 km með Svövu Rán í hlaupinu hennar. Hún í Wales og ég í Bláskógabyggð. Ég varð svo spennt fyrir hlaupum að ég hljóp 3 km skemmtiskokk í Reykjavíkurmaraþoninu. Það var sérstök upplifun að hlaupa með svona svakalega mörgu fólki.
Núna áskotnaðist mér hlaupaprógramm sem á að kenna mér að hlaupa 10 km. Ég er búin með tvær fyrstu æfingarnar í því prógrammi. Í gær hljóp ég sem sagt samtals 5 km. Á morgun sýnist mér að ég eigi að fara enn lengri vegalengd. Það sem gerir þetta svo skemmtilegt eru æfingarnar með. Mismunandi hraði, valhopp og teygjur inn á milli.
Kannski fer ég 10 km einhvern tímann.

föstudagur, 23. september 2011
Föstudagar eru vigtunardagar
Ég var dálítið smeyk um að þyngjast í Spánarferðinni og þar með fitna. Það er ekki hægt annað en að breyta um mataræði þegar dvalið er í öðru landi um hríð. Ég ætlaði að elda mér hafragraut, eins og ég geri á hverjum morgni hér heima en það varð bara einu sinni. Í staðinn gúffaði ég í mig jógúrt, örugglega stútfullri af sykri, og hrærði haframjölinu út í. Í hádeginu fékk ég mér oftast einhvers konar salat, eins og heima en á kvöldin var alltaf veisla með rauðvíni og alles. Það sem var aðallega öðruvísi en heima var hvítvínið í hádeginu og oftar yfir daginn.
Það leit út eins og ég hefði bætt einhverju á mig þegar ég kom heim en af því ég tek bara mark á föstudagsvigtinni þá beið ég spennt þar til í morgun.
Vigtin sýndi 69,9 kg, aðeins 200 gr meira en föstudaginn áður en ég fór í ferðina.
Það sem ég er ánægð með þetta.
Ég er búin að losa mig við 6,5 kg síðan í apríl sem þýðir að 300 gr hafa farið á viku. Ef ég held svona áfram, að missa 300 gr á viku, verða 3,9 kg til viðbótar farin á Þorláksmessu. 69,9 mínus 3,9 er jafnt og 66.
Nýtt markmið er komið í hús. 66 kg um jólin.

miðvikudagur, 21. september 2011
Daglegt líf, aftur
Við lentum á klakanum klukkan hálf átta í gærkvöldi. Forseti borgarstjórnar tók á móti okkur. Við hefðum, bæði, viljað iðka þetta dásemdar iðjuleysi lengur en það var bara ekki í boði.
Hið venjubundna líf, sem er líka dásamlegt, tók við í morgun. Vorum mætt í sund klukkan sjö og það var ekkert mál að synda þúsund metra, eins og ég hefði ekki tekið mér neitt frí. Við vorum reyndar mjög dugleg við að fara í röska göngutúra á Costa del sol enda býður strandlengjan upp á það.
Það var líka gott að koma í vinnuna og hitta samstarfsfólkið og nemendurna.
Það var bara aldeilis frábært að lengja sumarið um nokkra daga.
| Í göngutúr á ströndinni |

mánudagur, 19. september 2011
Kaþólsk messa
![]() |
| Kirkjan okkar |
Jæja, við fórum inn, settumst á bekk og horfðum á allt skrautið. Fólk fór að streyma inn og allt í einu fóru kirkjuklukkurnar að hringja, ljós voru kveikt, prestur skaust fram á sjónarsviðið og messa hófst. Við sátum full lotningar og hlustuðum á spænska kaþólska messu. Allt í einu fattaði ég að Simmi minn var í stuttbuxum og ég í sjústringbol. Það var algjörlega bannað á Ítalíu að fara inn í kirkju með berar axlir. Eftir að hafa talað agnarögn við guð minn og hulstað á spænska prestinn dró ég Simma minn út því ég held að guð vilji ekki að ég sé með berar axlir í hans húsi. Þetta var samt góð stund sem við áttum þarna inni áður en ég fattaði þetta með beru axlirnar. Við fórum með trúarjátninguna á spænsku, eða þannig, og höfðum bara gaman að þessari óvæntu uppákomu.
Simmi minn sextugur
Við, nokkur saman, sungum líka afmælissönginn á Gussabar í gærkvöldi, eftir miðnætti á spönskum. Það var bara gaman að koma við á Gussabar. Gussi er búinn að reka staðinn í 26 ár. Stendur sjáfur vaktina frá klukkan níu öll kvöld nema mánudagskvöld. Þvílík elja.
| Skál fyrir sextugum kalli |
| Með Gussa |
Í dag er dagurinn sem varð til þess að skruppum þessa sólarlandaferð. Simmi minn er sextugur í dag. Okkur finnst einhvern veginn að öll ferðin sé afmæliseitthvað þannig að gerðum ekkert spes í dag nema ég færði honum kampavínsflösku á sundlaugarbarnum í morgun og nokkrir landar sungu afmælissönginn fyrir hann. Við fórum á kínverskan stað á laugardagskvöldið og það finnst honum hafa verið afmælihátíðin. Hann um það. Mér finnst sama hátíðin vera á hverju kvöldi. Alltaf jafn gaman að fara út að borða.
sunnudagur, 18. september 2011
Hitabylgja
| Hér drýpur smjör af hverju strái eða ávöxur |
Við höfum verið mjög dugleg við að fara í göngutúra hérna í hitanam á Costa del sol. Okkur finnst bráðnauðsynlegt að hreyfa aðeins á okkur rassgatið. Það er um klukkutíma gangur að skemmtibátahöfninni og fórum við í þriðja sinn í dag þangað. Það var kannski ekki mjög gáfulegt af okkur. Við fórum þegar mestur er hitinn á daginn og ekki nóg með það heldur er mesti hitinn í dag, að við höldum. Hér er einhver dularfull hitabylgja á ferð. Við heyrðum talað um 42 gráður þegar við komum heim, dauðuppgefin, úr göngutúrnum. Peysurnar sem áttu að halda á manni hita á kvöldin eru bara hlægilegar ofan í tösku ennþá.
Ég sit núna úti á svölum, sólin að ganga til viðar en það er svo heitt ennþá að það verður bara erfitt að hífa sig upp í kvöldrúntinn. En það verður ekkert slegið slöku við það. Nú stendur til að fara á Gussabar. Við, Simmi minn, erum eins og álfar út úr hól að hafa aldrei komið þangað. Hér er fólk með okkur sem kemur hingað ár eftir ár, sumir eiga 40 ára sögu að baki sem Costa del sol fólk og það fólk þekkir Gussa vel og heilsar auðvitað upp á hann alltaf þegar það kemur.
Við verðum að vera eins og hinir.
Kíkja á Gussabar.
Svona til að vera gjaldgeng.
laugardagur, 17. september 2011
Mijas og Molino
Til þess að brjóta upp leitlífið aðeins brugðum við okkur af bæ í gær og fórum í típíska ferðaskrifstofuferð. Gréta systir segir að það sé ekkert mál að taka strætó til Mijas og heim aftur og miklu ódýrara. Ég er bara ekki búin að læra á strætókerfið eða hef öllu heldur ekkert pælt í því svo við keyptum okkur ferð með Heimsferðum til Mijas og Molino del la Placa.
| Hin fræga kapella í Mijas |
Við komum til Mijas síðast fyrir 36 árum, þá til að fara á asnabaki eittvert upp í sveit þar sem við borðuðum Paellu í fyrsta skipti. Nú skoðuðum við bæinn, kapelluna frægu,þar sem við kveiktum á kertum og létum fallegar hugsanir streyma gegnu heilabúið, skoðuðum kaþólska kirkju, stóðum fyrir utan nautabanahring, okkur langaði ekki inn og almennt nutum þess að vera í þessu fallega fjallaþorpi.
| Ólífutrén í Molino |
Við fórum líka á sveitabæ þar sem ólífurækt er aðaljobbið og fengum fræðsluerindi um feril ólífunnar til þess að verða olía og hratið hennar að eldsneyti.
Í molinos var farið í keppni um það að sýta ólífusteini sem lengst út úr sér. Simmi minn var lengst af með lengstu spýtinguna, um 8 metra en þá kom Húsvíkingurog bætti um betur.
Í molinos var farið í keppni um það að sýta ólífusteini sem lengst út úr sér. Simmi minn var lengst af með lengstu spýtinguna, um 8 metra en þá kom Húsvíkingurog bætti um betur.
Skemmtilegt.
Svo var farið í sóbað.
Og út að borða.
Og njóta þess að geta farið í svona afslöppunarferð
fimmtudagur, 15. september 2011
Strandlífið á við okkur
Strandalíf, sólbað, letilíf og almennt að gera ekkert af viti finnst okkur, Simma mínum, ótrúlega næs. Við venjumst þessu eiginlega bara allt of fljótt. Eftir að hafa legið á ströndinni í morgun og legið í hótelgarðinum eftir síestu fengum við okkr frábæran göngutúr í fjöruborðinu alla leið í smábátahöfnina. Hitinn er rétt við 40 gráðurnar og svitinn lekur stríðum straumum. Við vorum rétt tæpan klukkutíma að ganga þetta og það var ekkert rölt. Við gengum frekar rösklega. Heimleiðin var tekin á göngustígnum fram fyrir klett og þaðan í fjöruborðinu heim. Það er algjörlega nauðsynlegt að hreyfa sig svona á hverjum degi til að vega upp á móti sólbaðslegunni.
| Enginn miði á flöskunni, skrítið. |
| Bara grogg eftir. |
Samt næs.
Samt gott.
miðvikudagur, 14. september 2011
Matur og meiri matur
| Keypti þá ekki en djöfull eru þeir flottir |
Í dag lágum við á ströndinni til að byrja með fórum svo heim í smá síesta og ætluðum að taka reiðhjól á leigu og hjóla með ströndinni. Þá var ekkert hjól inni og gaurinn vissi ekki hvenær væri hægt að leigja hjól af honum næst. Frekar áhugalítill ferðabísnissgæi. Þá tókum við smá sólbað í garðinum okkar og fórum svo bara í göngutúr með ströndinni fram.
Alltaf er eitthvað að sjá, eitthvað að pæla og eitthvað að spekulera í.
| Það verður eð eiga vatn í þessum hita |
þriðjudagur, 13. september 2011
Það er sko heitt
| Þeir kunna alveg að laga gott kaffi |
Við erum búin að borða á einum venjulegum stað, pizzastað og í gærkvöldi á indverskum veitingastað. Borðuðum "pompadom" með mangósósu og lauk í forrétt. Ég fékk mér kjúlla í körrí og Simmi minn, lamb vindaloo og svo fengum við okkur tvær tegundir af grjónum og einn grænmetisrétt að auki. Við erum enn svo södd að við erum að pæla í að borða ekki neitt í kvöld. Sjáum samt til með það.
mánudagur, 12. september 2011
Göngutúr
| Við smábátahöfnina |
| Á heimleið eftir langan göngutúr |
sunnudagur, 11. september 2011
Að gleyma og gleyma
Þegar ég ætlaði að snyrta mig pínu í morgun, bera á mig dagkremið og svona, fann ég hvergi snyrtipunginn. Hann hlýtur að vera heima á baðherbergisborðinu. Sem betur fer keypti ég mér maskara og ilmvatn á Leifsstöð þannig að það verður látið nægja næstu daga sem bjútímeðferð.
Við fengum okkur morgunverð á hótelinu og svo var stefnan tekin á ströndina. Við erum bæði stranda, sjó -og sandfólk. Þá uppgötvaðist að strandtaskan varð eftir heima. Við neyddumst til þess að festa kaup á einni, ofur hallærislegri, því hvernig kemst maður öðruvísi með handklæðin, sólarvörnina, bækurnar, peningabudduna og vatnsflöskuna með sér?
Við erum í þokkalegri íbúð en með hrikalega ljótt útsýni af svölunum.
Ég býst samt ekki við því að við höngum mikið inni.
Það er svo gaman úti.
| Útsýnið af svölunum. | >
Við erum í þokkalegri íbúð en með hrikalega ljótt útsýni af svölunum.
Ég býst samt ekki við því að við höngum mikið inni.
Það er svo gaman úti.
laugardagur, 10. september 2011
Á Spáni
Þegar ég varð sextug fékk ég mína drauma uppfyllta. Mig langaði að halda upp á afmælið mitt á Ítalíu. Mig langaði að ganga á fjöll. Mig langaði að sýna Simma mínum fegurðina við Gardavatnið. Ég varð sextug 8. júní 2010 og var við Gardavatnið, gangandi á fjöll og Simmi minn var með mér.
Ógleymanleg ferð.
Hann, Simmi minn er alveg að verða sextugur. Hann langar bara að liggja í leti í sól og sandi. Ég get alveg gert það með honum eins og hann nennti að ganga á fjöll með mér, án þess að hafa snefil af áhuga á því. Ég hef, nefnilega, smá snefil af áhuga á því að liggja í leti í sól og sandi.
Þess vegna erum við mætt á Costa del sol og ætlum að liggja í sandi og sleikja sól næstu 10 daga.
Spánn tók einstaklega vel á móti okkur í dag. Hér er 25 gráðum heitara en heima á Fróni.
Við erum ákveðin í að njóta þess í botn.
| Fer í sólbað á morgun. |
Ógleymanleg ferð.
Hann, Simmi minn er alveg að verða sextugur. Hann langar bara að liggja í leti í sól og sandi. Ég get alveg gert það með honum eins og hann nennti að ganga á fjöll með mér, án þess að hafa snefil af áhuga á því. Ég hef, nefnilega, smá snefil af áhuga á því að liggja í leti í sól og sandi.
Þess vegna erum við mætt á Costa del sol og ætlum að liggja í sandi og sleikja sól næstu 10 daga.
Spánn tók einstaklega vel á móti okkur í dag. Hér er 25 gráðum heitara en heima á Fróni.
| Ströndin er æði. |
föstudagur, 9. september 2011
Ellilífeyriskelling
| Á leið í vinnu. 41. árið að hefjast. |
sunnudagur, 14. ágúst 2011
Hlauptu, kona hlauptu
Ég er enn í sæluskýi eftir 5 kílómetra hlaupið í gær og um leið ákaflega stolt af henni dóttur minni. Það er allt henni að þakka að ég dreif mig í að prófa hvort ég gæti hlaupið svona langa vegalengd. Hún bauð fésbókarvinum að hlaupa með sér í lokatakmarkinu á hlaupaprógrammi sem hún hefur verið í undanfarnar vikur. Ég hafði sem sagt örfáa daga til að þjálfa mig upp. Á fimmtudag fór ég 5 kílómetra innan þorps en hljóp og gekk til skiptis. Þannig að ég vissi ekki hvort ég gæti þetta.
Við fórum með Sólbrekku upp í Reykholt á föstdag og byrjuðum á því að mæla 2,5 kílómetra frá tjaldstæðinu og upp á veg í átt að Geysi. Þar settum við á okkur merki, aðeins lengra en afleggjarinn að bænum Felli. Ég var bæði kvíðin og rosa spennt fyrir þessu. Undirbjó mig vel með hvíld og hollum mat og sleppti auðvitað öllu rauðvínssulli. Fór ekki með vinunum á pöbbinn um kvöldið heldur skreið í rúmið með bók.
Vaknaði klukkan korter fyrir átta og smessaði á Svövu Rán að ég væri í startholunum og fór svo af stað. Simmi fór með mér en hætti fljótlega að skokka og gekk alla leiðina. Honum er illt í hnénu. Mér leið ótrúlega vel á leiðinni. Hugsaði aldrei um að hætta að skokka, ekki einu sinni þegar kom að brekku. Þegar ég fór niður brekku lengdi ég skrefin alveg ósjálfrátt.
Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin augum þegar ég koma að skiltinu að Felli, sneri þar við og þá var ég laus við vindinn sem var á móti mér áður. Brekkan sem var létt áður var nú upp í móti og ansi erfið. Ég hægði á mér og tautaði í sífellu: Við getum þetta Svava Rán, við getum þetta.
Og við gátum þetta. Ég skokkaði alveg heim að dyrum á Sólbrekku, náði í myndavélina og gekk á móti Simma til að taka myndir af honum.
Ég er svo ánægð með árangurinn að ég ræð mér varla fyrir gleði.
Ekki skemmdi svo fyrir að loksins sá ég nýja tölu á vigtinni. Hinn langþráði draumur að fara niður fyrir 70 kíló rættist.
| 5 kílómetrar að baki |

laugardagur, 13. ágúst 2011
Ég setti persónulegt met í dag og hljóp 5 kílómetra í einu.
fimmtudagur, 11. ágúst 2011
Hvíldardagur
Ég þorði ekki að skokka í dag. Ég fann að ég reyndi talsvert á mig í gær enda hef ég heyrt talað um að það eigi að hvíla öðru hverju. Ég tók bara stuttan hjólatúr með Simma mínum og Nönnu ömmustelpu.
Nanna er búin að vera hjá okkur síðan á mánudagsmorgun. Hún er á glerlistanámskeiði hjá Dagnýju í Hendur í Höfn. Hún tók líka eina viku í fyrra þannig að stelpan er komin í framhaldsnámskeið. Hún vill ekkert fara út á kvöldin þó það sé spurt eftir henni. Hún vill bara sitja hjá gamla settinu sínu spjalla, horfa á sjónvarpið og prjóna. Já, sú stutta fitjaði uppá peysu á mánudagskvöld og er langt komin með hana. Gróft garn en það er sama. Hún er ótrúlega iðin. Finnst reyndar ekki eins gaman að prjóna ermarnar og bolinn.
Hulda langamma er afar stolt af stelpunni. Hún er alveg bit á barnabörnin sín hvað þau eru löt við hannyrðir. Hún vill meina að ein kynslóð hafi dottið út.
Nanna bjargar sinni kynslóð.
Dugleg stelpa.
miðvikudagur, 10. ágúst 2011
Þjálfun í algleymingi
Hlaupaþjálfunin mín gengur bara ótrúlega vel. Í gær fór ég hringinn minn, ýmist gangandi eða skokkandi en í dag keyrðum við, Simmi minn, fimm kílómetra í átt að Selvoginum, sem sagt á hinum nýja Suðurstrandavegi. Þar fór ég út úr bílnum og byrjaði strax að skokka. Simmi keyrði á eftir mér og náði ég að skokka samfellt þrjá og hálfan kílómetra, ganga hálfan, skokka hálfan og ganga hálfan. Veðrið var alveg frábært og fjallahringurinn fagur á að líta. Ég sá, í upphafi hlaups, út á sjó þar sem Keflavíkin er. Það er svo skrítið að þó ég sé bara fimm kílómetra frá þorpinu sjást engin ummerki um það. Engin hús og engin mannvirki. Þorpið hverfur ofan í lægð. Fyrsta merki mannabygðar var Dólósinn sem er á miðri umferðareyjunni fyrir utan þorpið.
Ég er alsæl með sjálfa mig því ég hafði ekki hugmynd um að ég gæti þetta.
Hvað ég geri á morgun, kemur í ljós.

mánudagur, 8. ágúst 2011
Hlaupakelling
Ég hef ekki mikið leikið mér við íþróttagyðjuna í sumar. Ekki stundað neina hreyfingu reglulega. Hef samt gengið á tvö fjöll, Skálafellið og Miðfellið í Hrunamannahreppi. Það er reyndar lítið en við, félagarnir, gengum yfir það.Svo hef ég synt nokkrar ferðir í ýmsum sundlaugum, hist og her á landinu og rölt á barinn ef svoleiðis lagað er þar sem ég hef komið Sólbrekku fyrir.
Ég hélt ég væri búin að tapa niður öllu þoli og er þess vegna að springa úr monti því ég skellti mér út áðan og hljóp sama hringinn og ég hljóp fyrir mörgum mánuðum síðan. Hann er rúmlega þrír kílómetrar. Ég geng í fimm mínútur, hratt, og skokka svo í 20 mínútur.
Ég varð að fara út í dag og gá hvað ég gæti því ég ætla að taka þátt í hlaupinu hennar dótlu minnar á laugardagsmorgunin. Ég vildi nú helst hlaupa við hliðina á henni en það verður ekki að þessu sinni svo ég hleyp hérna í Þolló með henni í anda. Hún ætlar að hlaupa fimm kílómetra sem lokatakmark í hlaupaprógrammi sem hún hefur verið í en ég býst við að ég gangi og hlaupi til skiptis. Nema ég nái að þjálfa mig upp í fimm. Ég hef fjóra daga. En það er nú eins og að læra fyrir próf nóttina fyrir prófdag. Það hefði aldrei gengið hjá mér.
Djöfull, sem ég er nú samt ánægð með sjálfa mig.

þriðjudagur, 12. júlí 2011

Akureyri
Mér finnst ómögulegt annað en að koma til Akureyrar a.m.k. einu sinni á sumri. Ég er sem sagt á Akureyri núna. Komum hingað í gær, í bongó blíðu. með Sólbrekku í eftirdragi. Að vera á tjaldsvæðinu á Þórunnarstræti er toppurinn. Það er svo fallegt hérna og alltaf jafn gaman að labba niður í bæ og skoða mannlífið. Við fórum á Bautann í gærkvöld og fengum okkur pizzu, það tilheyrir líka. Röltum svo um og komum við á Götubarnum, samt bara mánudagur. En við erum í fríi. Það er ekki alveg eins mikil sól núna og í gær en það hlýtur að lagast.
Ég er alltaf í smá pílagrímaferð þegar ég kem á Akureyri. Það rifjast alltaf upp fyrir mér þegar ég missti fóstur hérna, einmitt á tjaldsvæðinu. 26. júlí 1973, komin þrjá mánuði á leið. Við vorum hér í litla bláa topptjaldinu okkar með Kalla eins og hálfs árs. Ég var lögð inn á sjúkrahúsið í útskröpun og þeir feðgar keyrðu tveir heim. Ég var inni í nokkra daga og flaug svo heim. Atburður sem ekki gleymist.
Ég hef sest inn í kirkjuna og beðið fyrir litla barninu mínu. Ég hef líka farið í messu í kapellu í kjallarunum. Éf ég kemst ekki inn í kirkjuna bið ég fyrir barninu á kirkjutröppunum.
Einhvern veginn tengist kirkjan litla barninu, sem mér finnst að hafi verið stelpa og ég á líka nafn handa henni.
fimmtudagur, 7. júlí 2011
Í útilegu
Eins og oft hefur komið fram þá líður okkur, Simma mínum, ótrúlega vel í Sólbrekku, alveg sama hvar við plöntum henni. Við náum einhvern veginn þægilegri slökun og finnst bara fínt að gera ekki neitt. Um hádegisbil í dag drógum við Sólbrekku upp að Flúðum, á Laufskálaflötina, sem við erum farin að kalla okkar, og settum okkur þar niður.
Ég ætlaði að liggja í sólbaði en einhver óboðinn vindur birtist óforvarandis svo sólbað var ekki lengur í boði. Ég hef samt haft nóg fyrir stafni, sem áhorfandi. Hér er verið að heyja og það er ögn öðruvísi en þegar ég var í sveit fyrir hálfri öld. Nú eru notaðar stórtækar vinnuvélar en það er svo gaman að horfa á vélarnar vinna. Þær raka saman heyið og taka það svo upp í rúlluvél og sem síðan er bundið inn í plast. Ótrúlegt. Nú þurfa bændur ekki lengur að eiga hlöður hvað þá súrheysturna.
Ég hef einnig fylgst með Simma mínum aðstoða Víkinginn við ýmsa hluti, eins og að flytja tré, sem var sjálfsáð, á betri stað, festa niður staur sem gegnir hlutverki spröngu, eins og í Eyjum, lagfæra þakið á andakofanum, sækja hellur sem lagðar voru kringum nýja flotta andapollinn og sitthvað fleira.
Já, það er nóg að gera í sveitinni.

föstudagur, 1. júlí 2011
Vigtunardagur.
Það er búið að taka mig fimm vikur að ná af mér tveimur kílóum. Mér finnst það bara fínt. Það er hrikalega spennandi að sjá vigtina síga þó það sé svona hægt og rólega vegna þess að það sem ég geri til að léttast er ekkert mál. Bara borða hollt og gott og sleppi að borða óhollt. Það er allt og sumt. Ekkert mál, bara hugsa áður en troðið er í gúllann.
Það er betra að vera 70,5 kg heldur en 76,5 kg.
Nú styttist í að ég sjái nýjan tug.
Vá, hvað ég hlakka til að verða 60 og eitthvað. Þó það sé 69 komma eitthvað.

fimmtudagur, 30. júní 2011
Matarstúss í útilegu
Hann, Simmi minn, ákvað að gefa sjálfum sér ristilspeglun í 60 ára afmælisgjöf. Flott hjá pilti, að mínu mati, þar sem 140 manns greinast árlega með krabbamein í ristli. Hann fór í þessa skoðun á þriðjudaginn var. Kom flott út þannig lagað. Það voru brenndir í burtu þrír litli separ sem hefðu mögulega getað orðið leiðindatól eftir fimmtan, tuttugu ár.
Læknaferðir þetta sumarið slíta í sundur fyrir okkur útilegur og ferðir með Sólbrekku. Ég átti tíma hjá hjartalækninum mínum í vikunni áður. Honum leist nú ekki betur á mig en það að ég ég á að koma í þrekpróf til hans 14. júlí. Þá er nú reyndar sumarfríið hans Simma míns á enda runnið.
Það sem ég ætlaði að sagt hafa var þetta með matinn og útilegur. Simmi minn, varð að vera á fljótandi fæði í tvo og hálfan sólarhring áður en speglunin var gerð. Við vorum sem sagt á Geysi í Haukadal í útlegu fyrsta daginn sem hann þurfti að vera á fljótandi fæði. Ég er svo meðvirk að ég ákvað að vera á fljótandi með honum þannig að það var enginn matur eldaður eða grillaður. Eina sem þurfti að gera var að hella einhvers konar safa í glas og drekka. Það var reyndar ótrúlega auðvelt að lifa þannig. Ég hefði ekki trúað því að óreyndu að það væri hægt að lifa, þó ekki væri nema hálfan dag, án þessa að BORÐA. Ég verð að skera matinn í sundur og bera hann að munninum með gaffli og tyggja hann. Það er það besta sem ég veit.
Þarna vorum við í útilegu og þurftum ekki að elda.
Þá fattaði ég hvað matargerð er stór og mikill þáttur í útilegunni.
Það er svo gaman að vesenast með matinn. Skera niður grænmeti og grilla það, krydda kjöt eða fisk og grilla og bara standa í matartilbúningi. Taka tappa úr góðri rauðvínsflösku og dreypa á með grillinu og ég tala ekki um að vaska upp á eftir og fá svo kaffi og grand.
Sumarið er tíminn.