Það styttist óðum tíminn í brúðkaupið. Ég hefði ekki trúað því hvað er í mörg horn að líta fyrir eitt brúðkaup. En tossalistinn styttist. Ég ætla að skreppa í bæinn í dag að ná í eitt og annað smálegt sem ekki fæst í Þolló. Ég er búin að baka eftirréttinn, hef slett í eitt til tvö form á dag í nokkra daga. Er alveg að hnýta síðustu endana. Búin að fá frábæra konu í eldhúsið. Vantar enn nokkra bílstjóra, svarta skyrtu á Kolbein, nótur og....og... smá meira. Það kemur.
Kobbalingur er farinn norður á Akureyri á fótboltamót. Það var náð í hann klukkan tíu í morgun. Við, Simmi minn, brunum eftir vinnu á morgun. Þannig að við náum bara í tvo leiki hjá honum. Það var ógerningur fyrir Simma að fá frí úr vinnunni. Við sjáum svo til hvort við verðum alla helgina fyrir norðan eða brunum suður aftur og náum í restina á Söngfélagsútilegunni. Fer eftir gengi fótboltaliðsins og veðri.
Eftir viku fæ ég minnsta barnabarnið í fangið, Lúkas Þorlák. Ég fæ kipp í hjartað þegar ég hugsa um það. Ég hlakka svo til.
miðvikudagur, 29. júní 2005
fimmtudagur, 23. júní 2005
Við skutluðum Kobbaling í höfuðborgina áðan. Sigurjón, vinur hans, er 13 ára í dag og vildi fá æskuvininn til sín. Þeir eru bestu vinir síðan í Sælukoti en þeir munu hafa verið eins árs og tveggja ára þegar þeir hittust fyrst og síðan hefur ekki borið skugga á vinskapinn.
Úr því við vorum komin í höfuðborgina þá notaði ég tækifærið og skoðaði svona "móður brúðarinnar dress." Ég fór í eina búð. Í búð þar sem ég væri örugg á góðri þjónustu. Þ.e. snúastíkringummannþjónustu. Ég fór út með dress. Og hatt. Og nú vantar mig bara ljósbleika skó og ljósbleikt veski og þá er ég þannig að verða klár. Fötin hans Simma míns fara bara í hreinsun og Kobbalingur verður í sínu brettadressi. Það ræðir ekkert um annað. Þá er nú undirbúningur brúðkaups alllangt á veg kominn. Nokkrir lausar endar eftir en ég hnýti þá bráðum.
Vonandi helst þetta frábæra sólbaðsveður eitthvað lengur. Ég kann mér ekki læti hvað sólina varðar. Eigandi skjólgóðan garð og alles. Bara flatmagast og brúnkast. Það var ekki hægt í blokkinni. Og sei, sei, nei.
Úr því við vorum komin í höfuðborgina þá notaði ég tækifærið og skoðaði svona "móður brúðarinnar dress." Ég fór í eina búð. Í búð þar sem ég væri örugg á góðri þjónustu. Þ.e. snúastíkringummannþjónustu. Ég fór út með dress. Og hatt. Og nú vantar mig bara ljósbleika skó og ljósbleikt veski og þá er ég þannig að verða klár. Fötin hans Simma míns fara bara í hreinsun og Kobbalingur verður í sínu brettadressi. Það ræðir ekkert um annað. Þá er nú undirbúningur brúðkaups alllangt á veg kominn. Nokkrir lausar endar eftir en ég hnýti þá bráðum.
Vonandi helst þetta frábæra sólbaðsveður eitthvað lengur. Ég kann mér ekki læti hvað sólina varðar. Eigandi skjólgóðan garð og alles. Bara flatmagast og brúnkast. Það var ekki hægt í blokkinni. Og sei, sei, nei.
föstudagur, 27. maí 2005
Það er bara ein tölva á heimilinu og síðan unglingurinn bættist í hóp heimilismanna hefur hann tekið yfirráðin. Ég verð að spyrja hann hvort ég megi aðeins kíkja á póstinn minn og svona.....Þannig að dagbókarskrif er líklega e-ð sem heyrir fortíðinni til, alla vega um stundarsakir.
föstudagur, 13. maí 2005
Ég er í stríði. Ég sagði mosa stríði á hendur og hann tók því. Það vex mosi, mér til mikillar skapraunar, á girðingarkantinum, milli hellnanna í innkeyrslunni og á malbikinu fyrir utan girðingu. Ég vil ekki þennan mosa. Ég keypti mosaeyði og stráði lítilháttar á hann og beið svo róleg. Hélt hann hyrfi og kæmi ekki meir. Sá ekki betur en að hann yrði svartur og bjóst við að hann fyki burt í næsta roki. Viti menn, þegar rigndi næst breytti sá svarti um lit og gerðist fagurgrænn og virtist við hestaheilsu. Mín náði í mosaeitrið og stráði snöggtum meir nú en áður. Sama dagan endurtók sig. Mosinn virtist deyja en í næsta úða varð hann fagurgrænn og hélt greinilega að hann ætti bara heima þarna. Í gær krakaði ég í skrattann með járnhrífu og sópaði með strákústi og fyllti svartan ruslapoka af einhverju sem ég hélt að væri mosi og hélt að það dygði en það er eins og mosinn eigi sér fleiri líf en kötturinn því að í dag var hann bara þarna enn. Ég trúði vart mínum eigin augum þegar ég kom heim úr vinnunni. Fagurgrænt um að litast í kringum húsið mitt. Ég átti eitt ráð enn og það framkvæmdi ég áðan. Ég fór út með járnbursta og burstaði kvikindið í burtu. Nú bíð ég morgundagsins með kvíðahnút í maganum. Ef þetta dugar ekki verð ég líklegast að læra að lifa með helv.........
miðvikudagur, 11. maí 2005

Og enn blossar upp mont af drengnum í dag þegar Mogginn segir frá doktorsvörninni og doktorsritgerðinni.
sunnudagur, 8. maí 2005

Það er langt frá því að það sé leiðinlegt að vera með Söngfélagi Þorlákshafnar heila helgi á ferðalagi. Við dvöldum að Höfðabrekku í Mýrdal, sungum tónleika í Vík, skoðuðum svæðið og Byggðasafnið að Skógum, borðuðum, sungum dönsuðum og skemmtum okkur öll rosalega vel.
fimmtudagur, 5. maí 2005
Ég ákvað að vera ekki með neinn hégóma í óvissuferðinni og tók með eins lítið af aukadóti og hægt var. Sá mikið eftir því. Varð að borða fínan mat í Hestakránni í gömlum, svörtum (þægilegum) buxum af Svövu Rán, brúnum reimuðum skóm og flíspeysu. Þannig hefði ég aldrei klætt mig heima hjá mér til þess að fara út að borða. Enda leið mér ekki nógu vel. Óvissan í óvissuferðinni var að fara á hestbak. Það var æðislegt. Ég held að ég hafi fengið sama hestinn og fyrir þremur árum þegar við fórum saman saumaklúbburinn. Hann Smyril. Í dag er mér illt í vissum líkamshluta eftir reiðina. En það á eftir að lagast.
Næst ætla ég að vera með fulla tösku af alls konar fötum og dóti.
Vera við öllu búinn.
Hvenær er svo næst? Jú, á morgun.
Það er ekkert lát á skemmtanalífinu.
Reyndar er það ekki óvissuferð, sem betur fer, heldur (vissuferð) vorferð Söngfélagsins.
Næst ætla ég að vera með fulla tösku af alls konar fötum og dóti.
Vera við öllu búinn.
Hvenær er svo næst? Jú, á morgun.
Það er ekkert lát á skemmtanalífinu.
Reyndar er það ekki óvissuferð, sem betur fer, heldur (vissuferð) vorferð Söngfélagsins.
þriðjudagur, 3. maí 2005
Skrambans, ansans ári er maður eitthvað orðinn leiðinlegur eða gamall eða eithvað nema maður sé bara gamall og leiðinlegur, það skyldi þó aldrei vera. Nú er óvissuferð kennaranna á morgun og ég nenni alls ekki að fara. Ég hef bara enga afsökun og vil ekki vera félagsskítur. Þannig að ég verð að takast á við þessa óvissu en það er líklega það sem er mergurinn málsins. Mér finnst svo ótrúlega erfitt að fara í svona óvissuferð. Hvernig ætti ég að klæða mig? Það þarf að hafa aukaföt með. Það finnst mér vont mál. Og handklæði, það er enn verra mál því það kallar á snyrtidótið allt, hárblásarann og alls kyns vesen. Svo á að borða einhvers staðar og ég get bara ekki husgað mér að borða og fá mér rauðvín og vera jafnvel í strigaskóm og gallabuxum. Maturinn stæði í mér. Ég er mest hrædd um að ég verði andvaka í nótt, því þetta kallar á mikla skipulagningu af minni hálfu.
laugardagur, 30. apríl 2005
Hann hló alveg svakalega hann sonarsonur minn þegar ég sagði honum að ég færi í Ráðhúskaffi í kvöld af því ég væri bakraddasöngkona og dansari í söngvakeppni vinnustaða hér í bæ.
miðvikudagur, 27. apríl 2005
Það er skrítið en skemmtilegt að heyra strákaraddir í húsinu.
Það er skrítið en skemmtilegt að heyra:"Amma, má ég fá pening fyrir nammi?"
Það er skrítið en skemmtilegt að leyfa 11 ára gutta að fara með Félagasmiðstöðinni í skautaferð til Reykjavíkur.
Það er skrítið en skemmtilegt að finna til nesti á morgnana.
Það er skrítið en skemmtilegt að leggja þrjá diska á borðið.
Það er skrítið en skemmtilegt að segja: "Á ég ekki að hjálpa þér með heimanámið Kolbeinn minn?"
Það er skemmtilegt að hafa Kolbein í heimili.
Það er skrítið en skemmtilegt að heyra:"Amma, má ég fá pening fyrir nammi?"
Það er skrítið en skemmtilegt að leyfa 11 ára gutta að fara með Félagasmiðstöðinni í skautaferð til Reykjavíkur.
Það er skrítið en skemmtilegt að finna til nesti á morgnana.
Það er skrítið en skemmtilegt að leggja þrjá diska á borðið.
Það er skrítið en skemmtilegt að segja: "Á ég ekki að hjálpa þér með heimanámið Kolbeinn minn?"
Það er skemmtilegt að hafa Kolbein í heimili.
sunnudagur, 24. apríl 2005

Skipast hafa veður í lofti. Fjölgað hefur um einn í höllu drottningar. Höfðinginn, Karl Kolbeinn, hringdi og bað um að mega koma til Íslands og klára veturinn í Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Honum leist ekki allskostar á sig í hinum nýja skóla í borg englanna. Var það auðsótt hjá ömmu og afa að hann kæmi til okkar. Okkur, Simma mínum, hefur aldrei leiðst að hafa piltinn þann hjá okkur. Hann kom, aleinn, alla leið frá Los Angeles og er búinn að vera tvær vikur í skólanum. Byrjaður á fullu í fótboltanum og fellur strax inn í hópinn, enda þekkir hann marga krakka frá sumarvistunum. Heimilisbragurinn hjá okkur, gamla settinu, hefur breyst, ég segi ekki að hann hafi tekið stakkaskiptum, er bara aðeins öðruvísi. En við erum vön. Kolbeinn hefur verið hjá okkur öll sumur síðan pabbi hans hóf námið í USA. Það sem er öðruvísi núna er að nú erum við með barn í skóla en ekki bara í sumarfríi. En þetta gengur fínt. Bara gaman.
föstudagur, 22. apríl 2005

Við Simmi minn vitum ekki alveg hvernig við eigum að vera núna. Við erum svo montin. Við vildum helst hlaupa út á götu og hrópa. Það er talað um Karlsson K Æ í flestum blöðum Bandaríkjanna um þessar mundir.Hér,á PLoS Biology, má lesa grein, sem er hluti doktorsritgerðarinnar, og í hana eru blaðamnenn í virtum blöðum að vitna, meira að sesgja á heimasíðu Natíonal geograhpic. Ég vildi að ég kynni útlensku aðeins betur svo ég gæti lesið herleg heitin og sagt fólki á mannamáli hvað strákurinn minn er búinn að uppgötva. Ég skil bara að hann rannsakar svefn ungviðis og veit eitthbvað meira um það en nokkur annar í heiminum. Er það ekki bara nokkuð gott? Ef slegið er inn karlsson+sleep á google þá koma upp margar síður um strákinn minn.
sunnudagur, 10. apríl 2005

Hvað var ég svo að gera í Wales um páskana? Jú, auðvitað að dást að minnsta ömmuljósinu mínu sem nú er farinn að ganga og leika sér úti. Hann er algjört draumabarn. Borðar vel og sefur vel og leikur sér þess á milli. Ef farið er með hann út í kerrunni situr hann þar eins lengi og hinir fullorðnu þurfa á að halda. Hann nennir meira að segja að fara í fatabúðir og leyfir ömmu sinni að þukla á öllum fataleppunum sem hún sér. Hann unir sér bara hinn ánægðasti á meðan. Hann talar einhver ósköp en það skilur enginn hvað hann er að segja. Hann er að læra tvö tungumál í einu og samkvæmt fræðunum getur það tafið um stundarsakir en gerir honum svo gott síðar meir.

Við fórum með lest til Liverpool í pílagrimaferð. Þegar ég var 14 ára og gerðist aðdándi the Beatles var það mjög fjarlægur draumur að komast til Liverpool. En allir draumar geta ræst þó svo að árin verði 40. Fórum við á Bítlaslóðir, gengum eftir Mathewstreet og í safn þar sem saga Bítlana var rakin í máli, tónum og myndum. Best af öllu var að fara í Cavern club og standa við sviðið þar sem bítlaæðið byrjaði. Mest var ég hissa á hvað það er lítið og að klúbburinn skuli vera neðanjarðar. Hann er starfræktur enn sem pub.

Við skoðuðum líka einn af mörgum miðaldaköstulum sem eru í Wales. Þessi er í borginni Conwy sem er nyrst í Wales. Edvard l lét byggja hann seint á 13 öld. Það var hann sem náði yfirráðum yfir Wales. Hann byggði 17 kastala víðs vegar um landið og byggði borgarmúra utan um svæðið, hvatti svo Englendinga til þess að flytja þangað. Fyrir utan voru svo Walesbúarnir og steyttu hnefum og eru að því enn.
laugardagur, 2. apríl 2005
Eftir páskaferðina til Wales þekkjum við Simmi minn Heathrow flugvöll snöggtum betur en áður. Á leiðinni til Wales ætluðum við að taka tengiflug sama dag en komum aðeins of seint. Rananum út í Manchestervélina var lokað á nefið á okkur. Við sem hlupum á milli terminala eins og skrattinn væri á hælunum á okkur. Það var ekkert um annað að ræða en að fara á hótel í London og gista þar um nóttina. Nýttum við okkur hótelpöntunarþjónustu á Heathrow vegna þess að við vorum ekkert undir það búin að vera á hóteli. Morguninn eftir fengum tókum við flug til Manchester og þangað náði Jones fjölskyldan í okkur. Við fórum til baka 10 dögum síðar því þá var möguleiki á að laust pláss væri í vél frá London og heim. Þetta skapar gífurlega spennu og stress að vera að ferðast á opnum miðum. Mesta spennan er vegna tengiflugsins. Við vissum að það væri ekkert mál að komast frá Manchester til London, það eru svo margar vélar á dag. En að vera komin til London án þess að vita með vissu hvort það sé laust í vél heim skapr aðal stressið, því það stóð aldrei til að gista í London. Við vorum sem sagt komin allt of snemma á Heathrow á miðvikudeginum. Urðum að vera þar í eina átta klukkutíma því vélin heim fór ekki fyrr en 21:10. Við erum sem sé orðin lúnkin í að fara á milli terminala og þekkjum marga veitingastaði og upplýsingaborð á Heathrow. Við hefðum sjálfsagt getað fengið töskuna okkar geymda einhvers staðar á vellinum og farið og heimsótt Betu, Pusa og Kalla prins en við vorum ekki viss um að þau ættu neitt með kaffinu svo við létum það eiga sig.
Við uppgötvuðum svo morgunin eftir, nývöknuð heima, að við áttum brúðkaupsafmæli þennan dag sem við eyddum á Heathrow. Aldrei gleymt þessum degi áður. Við hefðum sjálfsagt ekkert hegðað okkur öðruvísi en við gerðum þótt við hefðum munað þetta, kannski skálað í hvítvíni, ég veit það ekki. Það er nú alveg ástæða til að skála fyrir 33 árum í hjónabandi enda kom hann Simmi minn með kampavín heim úr vinnunni daginn eftir og það var ekkert verra.
Við uppgötvuðum svo morgunin eftir, nývöknuð heima, að við áttum brúðkaupsafmæli þennan dag sem við eyddum á Heathrow. Aldrei gleymt þessum degi áður. Við hefðum sjálfsagt ekkert hegðað okkur öðruvísi en við gerðum þótt við hefðum munað þetta, kannski skálað í hvítvíni, ég veit það ekki. Það er nú alveg ástæða til að skála fyrir 33 árum í hjónabandi enda kom hann Simmi minn með kampavín heim úr vinnunni daginn eftir og það var ekkert verra.
mánudagur, 28. mars 2005
Það stóð til að koma heim í gær en það eru allar flugvélar fullar svo við komumst líklega ekki heim fyrr en á miðvikudag. Flugmiðarnir okkar eru sannkallaðir spennumiðar. Það væsir ekki um okkur hér hjá Svövu Rán, Lúkasi og Dave, það er ekki það, heldur vinnan. Ég á að mæta í vinnu á morgun. Ég hef áhyggjur af því. Það styttist í samræmd próf hjá 10. bekk. Ég er búin að senda skólastjórunum ímeil með fyrirmælum sem ég vona að koma að gagni.
Í Wales er gott veður, líklega svipað og ég las í Mogganum að væri á Íslandi. En hér er gróður mikið til orðin grænn og páskaliljurnar í fullum blóma alls staðar, meðram vegum og á umferðareyjum, enda þjóðarblómið þeirra.
Lúkas er algjör perla, veluppalinn, fallegur, skemmtilegur, alltaf hlæjandi og mikill ömmusnúður.
Í Wales er gott veður, líklega svipað og ég las í Mogganum að væri á Íslandi. En hér er gróður mikið til orðin grænn og páskaliljurnar í fullum blóma alls staðar, meðram vegum og á umferðareyjum, enda þjóðarblómið þeirra.
Lúkas er algjör perla, veluppalinn, fallegur, skemmtilegur, alltaf hlæjandi og mikill ömmusnúður.
sunnudagur, 20. mars 2005
Búin að pakka. Allt tilbúið fyrir vikudvöl í hinu Stóra-Bretlandi. Við eigum svona spennuflugmiða. Komumst við með eður ei. Það var ekki pláss fyrir okkur með morgunvélinni svo nú er bara að vona að tvö sæti verði laus með seinnipartsvélinni ef ekki þá er að reyna á morgun en vitað er í dag að það muni ganga. Spennandi. Hlakka til að knúsa Lúkas Þorlák.
Horfa á hann ganga óstuddan.
Sjá hann tæta dótið hennar mömmu sinnar.
Sjá fallegu, stóru, bláu augun hans.
Heyra hann babla.
Kenna honum íslensku.
Horfa á hann ganga óstuddan.
Sjá hann tæta dótið hennar mömmu sinnar.
Sjá fallegu, stóru, bláu augun hans.
Heyra hann babla.
Kenna honum íslensku.
föstudagur, 18. mars 2005
8. 9. og 10.bekkir voru með árshátíðina sína í gærkvöldi. Allir bekkir voru með skemmtiatriði og svo borðuðu allir saman. 8. bekkur flutti frumsamið leikrit. 9. bekkur var með Hárið, hvorki meira né minna og 10. bekkur tefldi fram söngkonum sem við eigum örugglega eftir að heyra meira í í framtíðinni. Nemendaráð hafði veg og vanda að skipulagningu og fórst ráðinu það mjög vel úr hendi. Miðrýmið inni í turni breyttist í veitingasal með dúkuðum borðum og rómartískri stemmingu. Krakkarnir voru svo flott klæddir að fína og fræga fólkið má vara sig. Það var dansað til miðnættis og ég sá ekki betur en að allir skemmtu sér vel. Við, kennararnir, þurftum ekki að hafa áhyggjur af neinu, krakkarnir sáu um alla hluti sjálfir.
Góðir krakkar sewm við eigum.
Góðir krakkar sewm við eigum.
föstudagur, 11. mars 2005
The Midwest family er að koma sér fyrir í Los Angeles. Familían hlýtur að skipta um nafn núna þar sem hún er flutt frá miðvesturríkjunum á austurströndina. Hvernig hljómar The Eastcoast family? Ferðin austur tók eina viku með góðum stoppum. Elsa er mjög ánægð með íbúðina sem þau leigðu í gegnum Netið. Það er eins með hana og allt annað í Ameríku, það er allt svo stórt að Nanna heldur að fataherbergið sé herbergið hennar. Hún er alsæl með dótið sitt þar inni. Kolbeinn hefur sérbaðherbergi og sérgang. Þarna er 25 stiga hiti að jafnaði allt árið og Malibuströndin þarna rétt hjá og stutt til fjalla í hina áttina. Þau hafa aðgang að sérsundlaugum og eru systkinin dugleg að nýta sér það.
Það er í dag sem doktorinn byrjar að rannsaka flogaveiki. Undirbúningurinn hefur staðið yfir í eitt og hálft ár. Það stendur heima um leið og Kalli mætir í nýju vinnuna þá er fyrsti sjúklingurinn tilbúinn til þess að láta krukka í hausinn á sér. Það er eins og hann hafi beðið eftir Kalla.
Það er í dag sem doktorinn byrjar að rannsaka flogaveiki. Undirbúningurinn hefur staðið yfir í eitt og hálft ár. Það stendur heima um leið og Kalli mætir í nýju vinnuna þá er fyrsti sjúklingurinn tilbúinn til þess að láta krukka í hausinn á sér. Það er eins og hann hafi beðið eftir Kalla.